Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995 fréttir ? Sj ómenn horfa til kolmunnaveiða fyrir sunnan land: Gætu verið milljónir tonna - segir Trausti Egilsson, skipstjóri á Örfirisey, sem fengið hefur stór höl af kolmunna „Það getur verið um að ræða millj- ónir tonna af kolmunna á slóðinni. Viö höfum verið að reyna að forðast hann þar sem við erum fyrst og fremst að leita að smokkfiski," segir Trausti Egilsson, skipstjóri á frysti- togaranum Örfirisey RE. Örfirisey er við tilraunaveiðar á smokkfiski fyrir sunnanverðu land- inu. Áhöfnin hefur ekki orðið vör við mikinn smokkfísk á öllu svæðinu frá Reykjaneshrygg og austur fyrir Hornafjörð. Aftur á móti hefur að sögn Trausta sést mikið af kolmunna sem heldur sig á um 200 faðma dýpi og menn hafa reynt að forðast hann eftir megni. „Við höfum fengið allt að 40 tonn í hali af kolmunnanum þrátt fyrir að við reynum að forðast hann eftir megni. Við vitum á hvaða dýpi hann heldur sig og slökum trollinu niður fyrir hann en allt kemur fyrir ekki. Smokkfiskurinn gefur sig aftur á- móti ekki. Það er talsvert ánetjað af honum en við fáum sáralítið í pok- ann,“ segir Trausti. Trausti segir að áhöfnin hafi fryst þann hluta aflans sem er heill en þarna sé fyrst og fremst um að ræða bræðslufisk. Hann segir að sá fiskur sem þeir hafi fengið sé fullvaxinn. „Þetta er mikiö af stæröinni 25 til 40 sentímetrar. Við frystum það sem nýtanlegt er en mikið af fiskinum skemmist þegar um er að ræða með- afla svo sem karfa,“ segir hann. „Menn eru mikið að spá í veiðar á kolmunnanum. Það eru margir mjög spenntir fyrir því aö prófa þessar veiðar. Gallinn er bara sá að skip okkar eru of lítil til að takast á við þessar veiðar," segir Sveinn ísaks- son, skipstjóri á Hábergi GK, um möguleika íslenskra nótaskipa til að veiða kolmunna. Hann segir að sökum þess hve kol- munninn er þungur verði skipin að vera stór og öflug með kraftmikinn spilbúnað. „Það er þess virði að skoða það hvort mögulegt er að veiða kolmunn- ann með tveggja báta trolli. Nú eru Skotar, írar og fleiri þjóðir að kaupa geysiöfiug skip sem eru með frá 5 þúsund til 8 þúsund hestafla vélum. Menn þurfa að fara að huga að þessu hér,“ segir Sveinn. Beitir GK er á leiö til kolmunna- veiöa eftir helgina en skipið mun að mestu veiða í bræðslu. -rt Steingrímur Njáls§on: Þrjú ár fyrir nauðgunar Hæstiréttur hefur staöfest þriggja ára fangelsisdóm yfir Steingrími Njálssyni vegna tilraunar hans til kynmaka við þroskaheftan pilt í byrjun þessa árs. Til frádráttar kem- ur gæsluvarðhaldsvist Steingríms - frá 12. júlí í sumar. Steingrímur áfrýjaði málinu og krafðist vægari refsingar en það var ekki tekið til greina. Töldu hæsta- réttardómarar óhjákvæmilegt að líta til sakaferils Steingríms en hann hefur verið dæmdur 28 sinnum, þar af sex sinnum fyrir kynferðisafhrot gegn börnum og unglingum. Steingrímur verður og að greiða allan málskostnað. -GK Fjöldi smá- hvela f læk- ist í netum Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: „Daglega fáum við við allt að 20 hnísur í netin og mikiö af háhyrning- um. Þetta er hins vegar fyrsta hrefn- an. Það er mikið af alls konar hval á svæðinu. Þetta fer illa með veiðar- færin og þessi hrefna eyðilagði til dæmis trossuna. Söluandvirðið rétt dugar fyrir viðgerð," segir Eiríkur Ólafsson, skipstjóri á Sæmundi HF, en hann kom með rúmlega tveggja tonna hrefnu að landi í Sandgerði á fimmtudaginn. Eins og fram kom í DV í gær var hrefnan seld til fiskbúðarinnar Sæ- bjargar í Reykjavík sem greiddi 60 krónur fyrir kílóið, eða aUs um 120 þúsund krónur. Hrefnan flæktist í trossunni hjá Sæmundi HF þar sem hann var að veiðum út af Stafnesi. /------------\ BUNAÐARBANKINN - ti'austur banki Þér standa allar dyr við Búnaðarbankann Viðskiptavinum Búnaðarbankans stendur til boða margþætt fjármálaþjónusta og ýmiskonar fræðsla sem lýtur að fjár- málum heimilanna. Nú bætist beintenging Heimilisbankans við þá þjónustuþætti sem fyrir eru í Búnaðarbankanum. —• Ffeiri aðgerðir og fallegra um- hverfi með Heimilisbankanum og Hómer! Þeir sem vilja nýta sér Heimilis- banka Búnaöarbankans geta sinnt öllurn almennum bankavið- skiptum hvenær sólarhringsins sem er frá sinni eigin tölvu. Viðskiptavinir Heimilisbankans fá að auki fjármálahugbúnað- inn Hómer. Hómer er einfaldur og þægilegur Windows hugbúnaður sér- staklega ætlaður fyrir heimilisbók- haldiö. Búnaðarbankinn er eini bankinn sem býður slíkan fjármálahug- búnaö en hann er nauðsynlegur við að fullnýta þá möguleika sem bjóöast með beintenging- unni. Það borgar sig að vera tengdur við traustan banka því þar er hugsað fyrir öllu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.