Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Blaðsíða 12
12 erlend bóksjá
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. John Grisham:
The Chamber.
2. Davld Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
3. Ruth Rendell:
Slmlsola.
4. Tom Clancy:
Debt of Honour.
5. Chaterlne Cookson:
The Tinker’s Glrl.
6. Robert Harris:
Fatherland.
7. Jane Austen:
Pride and Prejudlce.
8. Barbara Tayior Bradford:
Everythlng to Gain.
9. Robert James Waller:
The Brldges of Madlson County.
10. Maeve Blnchy:
The Glass Lake.
Rit almenns eölis:
1. Alan Bennett:
Writing Home.
2. lan Botham:
Botham: My Autoblography.
3. J. Loweil & J. Kluger:
Apotlo 13.
4. Andy McNab:
Bravo Two Zero.
5. Blll Bryson:
Made In America.
6. Jung Chang:
Wild Swans.
7. A. Llttle & L. Silber:
The Death of Yugoslavla.
8. Peter de la Billére:
Looking for Trouble.
9. S. Britwlstle & S. Conklln:
The Maklng of Pride and Prejudlce.
10. Richard Preston:
The Hot Zone.
(Byggt á The Sunday Tlmos)
Danmörk
1. Robert J. Waller:
Broerne I Madison County.
2. Jung Chang: Vllde svaner.
3. Peter Hoeg: De máske egnede.
4. Josteln Gaarder:
Sofies verden.
5. Barbara Vlne:
Astas bog.
6. Allce Hoffmann:
Lysenes nat.
7. Llse Norgaard:
Kun en pige.
(Byggt á Polltlken Sendag)
vísindi
Metsölukiljur
Bannaðar bækur
fara á uppboð
Óvenjulegt uppboð verður haldið
í Lundúnaborg í byrjun nóvember-
mánaðar. Þar verður hægt að bjóöa
í bækur sem eiga það eitt sammerkt
að hafa verið bannaðar af stjórn-
völdum vestanhafs eða austan á slð-
ustu áratugum.
Þetta er gert til þess að afla fjár-
magns til að auka dreifingu tímarits
sem hefur barist gegn ritskoðun
áratugum saman. Það nefnist Index
on Censorship og kemur út sex
sinnum á ári á vegum samtakanna
Writers and Scholars International.
Þau hyggjast koma tímaritinu til
lesenda í Austur-Evrópu og þróun-
arríkjunum þar sem stjórnvöld
standa víða að víðtækri ritskoðun.
Uppboðinu stjórnar Hindlip lávarð-
ur, sem ræður ríkjum hjá frægu
uppboðsfyrirtæki, Christie’s.
Bannaðar bækur
frægra höfunda
Mikið af frægum bókum hefur
borist til tímaritsins að undanfórnu.
Af nýlegum verkum má til dæmis
nefna ritlinga sem Vaclav Havel,
núverandi forseti Tékklands, samdi
sem andófsmaður á sínum tíma og
eru þeir áritaðir af honum. Einnig
fleiri andófsrit frá tímum kommún-
istaríkja þar austur frá, svonefndar
samizdat-útgáfur.
Af kunnari verkum má nefna
prentaðar útgáfur og handrit að rit-
um á borð við Krabbadeild
Solzhenitsyns, safn ljóða Borís
Pasternaks, pólska útgáfu af Dýra-
garði Orwells og ítalska útgáfu af
Fear of Flying.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
Þá verða boðnar upp nokkrar
ólíkar útgáfur af þeirri frægu bók
Lady Chatterley’s Lover, en þessi
opinskáa skáldsaga D.H. Lawrence
var bönnuð áratugum saman í Bret-
landi og vtðar. Þar á meðal er eitt
eintak af frumútgáfu sögunnar, sem
var prentuð fyrir höfundinn í Flór-
ens á Ítalíu árið 1928, og er árituð af
honum. En þrjú eintök af Penguin-
útgáfunni sem kom á markaðinn
árið 1960 um það leyti sem réttar-
höld vegna bókarinnar stóðu yfir í
London þykja einnig forvitileg.
Þetta eru nefnilega þau eintök sem
lögmenn notuðu við málaferlin og
hafa þeir ritað athugasemdir hér og
þar á spássíurnar.
Þá eru ónefnd sögufræg rit á borð
við Queen Mab eftir Shelley, en sú
bók var bönnuð árið 1828 fyrir guðl-
ast. Alls verða um sjötíu bækur og
rit boðin upp 6. nóvember næstkom-
andi.
Bækur eru enn
víða bannaðar
Þetta tiltæki Index on Censorship
vekur einnig athygli á þeirri stað-
reynd að bækur eru enn bannaðar
víða um heim. Það kemur auðvitað
ekki á óvart í einræðisríkjum. En
slíkt gerist einnig oft í lýðræðisríkj-
um. Stjórnendur bókasafna, skóla
eða annarra hliðstæðra stofnana
gera oft tilteknar bækur útlægar af
því þeim líkar ekki efni þeirra.
Vel er með slíku fylgst í Banda-
ríkjunum. Þar er árlega efnt til sér-
stakrar viku til þess að vekja at-
hygli á tilraunum yfirvalda til rit-
skoðunar. Til er nýleg bók þar sem
slíkum málum sem upp hafa komið
síðustu áratugina í Bandaríkjunum
eru gerð ítarleg skd. Hún nefnist:
Banned in the USA: A Reference
Guide to Book Censorship in
Schools and Public Libraries og er
eftir Herbert N. Foerstel. Þeir sem
eru netvæddir geta fengið lista yfir
bannaðar bækur á Internetinu, til
dæmis á netfanginu:
http://www.cs.cmu.edu/Web/Pe-
ople/spok/banned-books.html.
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Danlelle Steel:
Wlngs.
2. Sidney Sheldon:
Nothing Lasts Forever.
3. Dick Francis:
Wlld Horses.
4. Patrlcia Cornwell:
The Body Farm.
5. Stephen King:
Insomnia.
6. Roger MacBride Allen:
Showdown at Centerpoint.
7. Nelson DeMllle:
Spencerville.
8. Tom Clancy & Steve Pleczenik:
Mirror Image.
9. Carol Shields:
The Stone Diaries.
10. Judith Mlchael:
A Tangled Web.
11. John Irving:
A Son of the Circus.
12. Phyllls A. Whitney:
Daughter of the Stars.
13 Celeb Carr:
The Alienist.
14. Ann Quindlen:
One True Thing.
15. Brenda Joyce:
Beyond Scandal.
Rit almenns eðlis:
1. Paul Reiser:
Copplehood.
2. Tim Allen:
Don't Stand to Close
To a Naked Man.
3. Rlchard Preston: The Hot Zone.
4. Mary Plpher: Revlving Ophelia.
5. Clarissa Pinkota Estés:
Women Who Run with the Wolves.
6. B.J. Eadle & C. Taylor:
ÍEmbraced by the Light.
7. Thomas Moore: Care of the Soul.
8. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
9. LouAnne Johnson:
IDangerous Minds.
10 J. Lovell & J. Kluger:
Apollo 13.
11. Jlll Ker Conway:
True North.
12. Delany, Delany & Hearth:
Having Our Say.
13. Maya Angelou:
I Know why the Caged Bird Sings.
14. Thomas Moore:
Soul Mates.
15. Hope Edelman:
Motherless Daughters.
(Byggt á New York Times Book Review)
I>v
Salvía gegn
alzheimer
Jurtin salvía, sem margir eiga
uppi í kryddhillunni sinni, kann
að vera lykillinn að lækningu
alzheimersjúkdómsins.
Læknar við sjúkrahús í Newc-
astle á Englandi hcifa komist að
því að salvíuolía kemur í veg
fyrir starfsemi ensímsins AChE
sem talið er eiga þátt í minnis-
leysi alzheimersjúklinga.
Helstu einkenni sjúkdómsins
er vaxandi minnisleysi. Því sam-
fara minnkar magn asetílkólíns,
efnaboöa sem AChE brýtur nið-
ur.
Læknarnir, undir forustu Ela-
ine Perry, prófuðu sig áfram
með nokkrar jurtir sem sagðar
eru hafa áhrif á minnið og
reyndist salvíuolían best. Frek-
ari rannsóknir verða gerðar á
salvíunni.
Moskítóflugur
í táfýlu
Hollenskir skordýrafræðingar
segja að moskítóflugur, sem
valda malaríu, sæki í sveitta
fætur og hinn ilmsterka hol-
lenska Limburgerost.
Vísindamennirnir gáfu mo-
skítóflugunum kost á að velja
milli táfýlulappa og hreinna fóta
og völdu flugurnar hinar fyrr-
nefndu.
Talsmaður vísindamannanna
sagði að það væri þó ekki nægi-
leg vörn gegn malaríu að þvo sér
oft um fætuma.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Heili fiðluleikaranna
stærri en okkar hinna
Hvað er stærra í fiðlu-
leikurum, sellóleikur-
um og gítarleikurum en
öðrum mönnum? Jú, sá
hluti heilans sem
stjórnar hreyfingum
fingranna á vinstri
hendi, fingranna sem
hlaupa upp og niður
hálsinn á hljóðfærinu.
Þetta eru niðurstöður
rannsóknar sem vís-
indamenn skýrðu frá
nýlega og gæti haft þýð-
ingu fyrir fólk sem hef-
ur fengið heilablóðfall.
„Strengjaleikarar
þurfa að nota fjóra síð-
ustu fingur vinstri
handar mjög mikið og
andsvar heilans er að
stækka til að auðvelda
þeim verkið sem krefst
mikillar fingrafimi," segir
Edward Taub, einn vísindamann-
anna sem stóðu að rannsókninni og
sagt er frá í tímaritinu Science.
Eiginkona Taubs er óperusöng-
kona og það var hún sem átti hug-
myndina að rannsókninni. Taub og
félagar hans rannsökuðu níu tónlist-
armenn, sex fiðluleikara, tvo selló-
leikara og einn gítarleikara. Auk
tónlistarmannanna tóku sex aðrir
þátt í rannsókninni.
Vísindamennirnir komust að því
að það var nærri fullkomin fylgni
milli þess hversu athafnasöm
vinstri höndin var og stækkunar
viðeigandi svæðis í heilanum.
Taub segir að mikilvægt hafi ver-
ið að rannsaka strengjaleikara þar
sem þeir noti aðallega vinstri hönd-
ina. Því væri auðveldara að greina
og mæla heilastækkunina. Flest
verkefni sem krefjast mikillar fimi í
höndunum eru fyrir báðar hendur
og því mundi stækkunin vera svip-
uð báðum megin í heilanum.
Rannsókn Taubs og samstarfs-
manna byggist á rannsóknum á öp-
um sem tókst að endurheimta ein-
hverja hreyfingu í útlimi eftir að
búið var aö fjarlægja allar tilfinn-
ingar með skurðaðgerð.
Taub og félagar komust að því að
mannskepnan, rétt eins og aparnir,
getur endurskipulagt heila sinn til
að svara kröfum umhverfisins eða
sem andsvar við skemmdum í
taugakerfinu. Þar til nýlega héldu
vísindamenn að aðeins óþroskuð
spendýr gætu slíkt. Taub segir að
þetta geti gefið heilablóðfallssjúk-
lingum vonir um að geta fengið aft-
ur mátt í útlimi sem hafa skaddast.
Næsta rannsókn Taubs miðar að
því að hjálpa þeim sem hafa fengið
heilablóðfall að endurheimta hreyfi-
getu útlims. Það er gert með því að
setja heilbrigða handlegginn í fatla
og þjálfa þann sem missti mátt að
hluta af völdum heilablóðfallsins til
að gera ýmis verkefni.
Megrunin
ruglar fólk
Ekki einasta eru megrunar-
kúrar gagnslausir heldur valda
þeir gleymsku og gera fólk
sljótt. Þessu halda breskir vís-
indamenn fram. Þeir segja þó
að það sé miklu fremur stressið
sem fylgir megrunarkúrnum en
minni fæðuneysla sem hafi
þessi áhrif.
Vísindamennimir gerðu til-
raunir á sjötíu 'sjálfboðaliðum
og mátu andlega hæfni þeirra,
m.a. minni, viðbragðsflýti og
úrvinnsluhæflleika.
Mike Green við bresku mat-
vælarannsóknarstofnunina,
; sem stjórnaði rannsókninni,
! sagði að þeir sem hefðu ekki
staðið sig sem skyldi hefðu und-
antekningarlaust verið í megr-
un. Hann sagði að geta þátttak-
enda hefði minnkað ámóta mik-
ið og eftir tvo sjússa.
Elstu sveppir
í heimi hár
Elstu sveppir heimsins eru
fundnir. Þeir eru 90 milljón ára
gamlir og eru varðveittir í rafi.
Sveppirnir fundust í New Jers-
ey-fylki í Bandaríkjunum.
Sveppirnir em ekkert ósvip-
aðir sveppum eins og við þekkj-
um þá sem þykir benda tU þess
að sveppir hafi fundið óska-
form sitt fljótlega á þróunarferl-
inu.
í bréfi til vísindaritsins Nat-
ure segja vísindamennirnir
sem fundu sveppina að þeir séu
meira en þrisvar sinnum eldri
en elsti sveppurinn sem hafi
fundist fram að því. Sá var ný-
lega aldursgreindur og reyndist
vera 25 til 30 mUljón ára gam-
all.