Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Side 17
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995
17
„Það er ágætt að fá smáfrí, mér sýnist á öllu að ég geti
hvílt lúin bein fram að áramótum. Ég vona bara að ég
þurfi ekki að képpa við Attenborough sjálfan þegar ég
mæti jafningjum mínum," sagði Ármann Jakobsson þegar
hann tók við verðlaunum úr hendi Jónasar Haraldssonar,
fréttastjóra DV, fyrir frammistöðu sína í spurningakeppni
DV. Verðlaunin eru nýútkomin bók, Einkalíf plantna, eftir
David Attenborough.
Nú eru liðnar fjórar vikur frá því að spurningakeppni DV
hóf göngu sína í blaðinu. Eftir að skorað var á Ármann til
að taka þátt í keppninni fyrir þremur vikum hefur hann
verið ósigrandi, sigrað þann sem hann keppti við fyrst og
einnig lagt að velli tvo áskorendur. DV hefur því valið þá
leið að verðlauna hann með bókagjöf. Þátttöku Ármanns
er þó engan veginn lokið en hann mun nú hvíla sig frá
þátttöku um tíma. Ármann skipar nú vitringahóp spurn-
ingakeppninnar sem er smár enn sem komið er því að
Ármann er þar einn en bíður þess að fleiri sem ná sama
árangri og hann bætist í sömu fylkingu eftir einhvern
tíma.
Bókin sem Ármann hlýtur að launum er sem fyrr segir
Einkalíf plantna, gróður jarðar eftir David Attenborough
en í íslenskri þýðingu Óskars Ingimarssonar. Bókin var
nýlega gefin út af bókaúígáfunni Skjaldborg en í henni
sýnir Attenborough okkur h^im náttúrunnar af mikilli
snilld. Bækur hans og sjónvarpsmyndir eru öllum kunnar
en þær eru í fremstu röð og hafa reynst einn mesti fróð-
leiksbrunnur á seinni hluta 20. aldar. Að sögn Attenboro-
ughs er Einkalíf plantna þungamiðjan í verkum hans,
grunnurinn að öllu sem hann hefur rannsakað hingað til.
Attenborough var nýlega staddur hér á landi til að árita
bók sína en eintak Ármanns er einmitt áritað af höfundi.
-pp
Ármann Jakobsson tekur við verðlaununum úr hendi Jónasar Haraldssonar, fréttastjóra DV, á ritstjórn blaðsins.
DV-mynd GVA
Verðlaun fyrir góða frammistöðu í spurningakeppni DV:
Ágætt að fá smáfrí
GLEYMJJM EKKI
rnmmmum
Á hverju ári fá á annað hundrað börn og
unglingar meðferð vegna geðvandamála. Talið
er að margfalt fleiri þurfi á aðstoö að halda.
Kiwanismenn hafa safnað fyrir geðsjúka á
K-deginum frá 1974 og fengið frábærar
viðtökur landsmanna.
Söfnunarfé veröun að þessu sinni varið til kaupa á íbúð nálægt
Barna- og unglingageðdeild Landspítalans við Dalbraut í
Reykjavík, svo foreldrar geti verið meö börnum sínum á meöan
meðferð stendur yfir. Þaö sem safnast umfram íbúöarveröið
fer til tveggja vemdaöra vinnustaða á landsbyggöinni: Réttargeö-
deildarinnar aö Sogni og Plastiðjunnar Bjargs á Akureyri.
Tökum vel á móti Kiwanismönnum í dag og
kaupum K-lykilinn til styrktar geðsjúkum.
Kiwanishreyfingin á íslandi
Einnig er tekið á móti framlögum í síma 588 2700
lE