Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Page 22
Priscillu Gardner Benbow brá
verulega þennan morgun í júní árið
1976 þegar tíu ára gömul dóttir
hennar, Maryann, sagði frá draumi
sem hana hafði dreymt þá um nótt-
ina.
„Það stóð gráhærð kona við hlið-
ina á rúminu. Hún lyfti vinstri
hendinni og benti á einn fingurinn á
henni með flngri á þeirri hægri. Ég
var ekkert hrædd þótt draumurinn
væri afar raunverulegur. Það var al-
veg eins og hún stæði við hliðina á
mér. Hún leit út fyrir að vera döpur.
Mér sýndist hún hafa grátið.”
„Það var bara draumur, elskan
mín,” sagði frú Benbow. „Hugsaði
ekki meira um það.”
„Já, en það var svo raunveru-
legt,” sagði Maryann. „Það var eins
og hún vildi sýna mér eitthvað.”
„Hugsaðu ekki meira um þetta,”
sagði móðir hennar þá. „Flýttu þér
nú í skólann.”
r
I annað sinn
Um leið og Maryann var farin út
um dyrnar varð frú Benbow alvar-
leg á svip. Sex árum áður hafði
eldra bróður Maryann, Charles, sem
var þá sjö ára, dreymt sama draum.
Þá hafði Maryann aðeins verið fjög-
urra ára og hvorki frú Benbow né
maður hennar. Richard Benbow,
höfðu sagt Maryann frá draumnum.
Þegar Charles kom heim spurði
móðir hans hann hvort hann hefði
sagt systur sinni frá draumnum sem
hann hafði dreymt sex árum áður.
Hann varð hissa yfir spurningunni
en svaraði þvi svo til að það hefði
hann ekki gert enda hefði hann ver-
ið búinn að gleyma draumnum.
Um kvöldið þegar börnin voru
háttuð sagði frú Benbow manni sín-
um söguna og var hann henni sam-
mála um að mjög erfitt væri að
finna eðlilega skýringu á því að
börnin dreymdi sama drauminn
með svo margra ára millibili. Féllst
hann á tillögu konu sinnar um að
hún færi á fund kunns geðlæknis,
frú Claire Lloyd, sem bjó í smábæn-
um Orillia í Ontario í Kanada,
heimabæ Benbows-fjölskyldunnar.
Amma barnanna
Frú Lloyd reyndist ekki vera
heima því hún var á ráðstefnu í
Toronto en sonur hennar, Hubert,
sem var tuttugu og sjö ára, var geð-
læknir og hlustaði hann á frásögn
frú Benbow.
„Það er enginn vafi á því í mínum
huga að konan sem þau sáu í
draumnum var móðir mín,” sagði
hún. „En hún lést árið 1968 svo að
Charles á ekki miklar minningar
um hana. Og Maryann getur alls
ekki munað eftir henni.”
„Mér sýnist enginn vafi leika á
því,” sagði Hubert Lloyd, „að móðir
þín geti af einhverjum ástæðum
ekki fundið frið fyrir handan og það
sýnist ljóst að það hafi eitthvað með
vinstri höndina að gera. Þótt margir
séu vantrúaðir á það eru allmörg
dæmi um að framliðnir hafi sent
boð en það gerist þó því aðeins að
okkar megin sé fólk sem hefur til að
bera sérstakan næmleika. Bæði
börn þín virðast hafa hann.”
Frú Benbow spurði hann þá
hvernig á því gæti staðið að móöir
hennar hefði fyrst reynt að hafa
samband við Charles og svo við
Maryann sex árum síðar.
„Það getur verið að' móðir þín
hafi gefist upp í fyrra sinnið af því
að sonur þinn skildi ekki boðskap-
inn eða þá af því að þið hjónin tók-
uö ekki mark á draumnum.”
Hringurinn
Benbows-hjónin reyndu að ráða
draum barna sinna en án árangurs.
Fór nú Maryann að dreyma hann á
hverri nóttu, alveg eins og Charles
áður.
Móðir frú Benbow, Ethel Rose
Rafferty, hafði gifst Charles Gardn-
er í Orillia árið 1937. Þau höfðu
Maryann Benbow.
eignast son sem lést skömmu eftir
fæðinguna en síðan höfðu þau eign-
ast Priscillu sem hafði gifst Richard
Benbow árið 1963. Þau Priscilla og
Benbow mundu bæði eftir því að
faðir hennar hafði gefið konu sinni
mjög verðmætan hring á þrjátíu ára
brúðkaupsafmæli þeirra árið 1967.
Hringurinn var úr gulli, með ör á og
settur demöntum. A hann var graf-
ið: Ethel-Dennis 1937—1967.
Benbows-hjónin mundu einnig
eftir því að sama ár og hún fékk
hringinn veiktist frú Gardner af
krabbameini. Þegar henni varð ljóst
að hún var dauðvona bað hún um
að hringurinn yrði grafinn með sér.
Hún lést svo árið 1968 og var þá beð-
ið um að ósk hennar yrði uppfyllt.
Þegar þau hjón höfðu rifjað upp
söguna um hringinn fór þau að
renna grun í hvað gæti hafa gerst.
Einhver ástæða hlyti að vera til
þess að konan í draumnum benti
þeim Charles og Maryann á vinstri
hönd sína.
Rannsóknin hefst
Frú Benbow spurði nú Maryann
hvort hún hefði séð hring á vinstri
hendi konunnar. Hún svaraði hik-
Ethel Rose Gardner.
laust: „Nei. Hún var ekki með neinn
hring.”
Síðdegis sama dag fór frú Benbow
í heimsókn til grannkonu sinnar,
frú Söndru, en hún var gift rann-
sóknarlögreglumanni, Norman
Philps. Sagði hún henni allt um þær
grunsemdir að móðir hennar hefði
ekki verið grafin með hringinn eins
og hún hafði beðið um og kynni það
að vera ástæðan til þess að hún kom
margsinnis fram við barnabörn sín
í draumi.
Um kvöldiö kom Philps rannsókn-
arlögreglumaður í heimsókn til frú
Benbow og bað hana að endurtaka
sögu sína. Hún gerði það.
„Það er aðeins ein leið til að
ganga úr skugga um hvað hefur
gerst,” sagði Philps þegar hann
hafði heyrt söguna. „Biöja verður
um leyfi til að grafa líkið upp. Við
verðum hins vegar að hafa hljótt um
þetta mál svo að grafarræningjar
verði ekki á undan okkur og steli
hringnum ef hann skyldi enn vera í
kistunni.”
Horfinn
Philps fékk bráðlega leyfi til að
grafa líkið af frú Gardner upp. Við-
Priscilla Benbow.
Paul Maycock.
staddir voru lögreglumenn og rétt-
arlæknir. Þegar kistan var opnuð
kom í ljós að hringinn vantaði.
Philps tók að sér rannsókn máls-
ins. Hann dró strax þá ályktun að
mestar líkur væru til að hringnum
hefði verið stolið í útfararstofunni
en hún var í eigu Pauls Maycock.
Fyrirspurnir leiddu í ljós að árið
1968 hafði Maycock haft þrjá aðstoð-
armenn. Tveir þeirra voru hins veg-
ar hættir störfum þar. Philps hafði
uppi á þeim báðum og sögðu þeir að
Maycock hefði alltaf séð sjálfur um
að loka kistum látins efnafólks en
aðstoðarmennirnir hefðu hins vegar
verið látnir sjá um þá efnaminni.
„Mig grunaði alltaf að hann stæli
skartgripum og öðru verðmætu sem
lagt var í kistur þess,” sagði annar
aðstoðarmannanna, „en ég gat ekk-
ert sannað. Og ég sagði ekkert til að
missa ekki vinnuna.”
Maycock heimsóttur
PhOps þóttist nú hafa aflað nægra
upplýsinga tO þess að taka sjálfan
útfararstjórann til yfirheyrslu og
var yfirmaður hans honum sam-
mála. Um kvöldmatarleytið dag
einn seint í júlí 1976 barði Philps
svo að dyrum hjá Paul Maycock.
Hann var þá á leið með konu sinni
tO kvöldverðar í ráðhúsinu og dró
ekki dul á hve slæmt honum þætti
að geta ekki mætt stundvíslega. Og
þegar honum var skýrt frá ástæð-
unni tO heimsóknar rannsóknarlög-
reglumannanna brást hann illa við
og hótaði að beita áhrifum sínum til
þess að fá PhOps rekinn úr starfi.
En þá hafði Philps séð hring sem frú
Maycock var með og liktist hann
mjög hringnum sem horfið hafði úr
kistu frú Gardner. Hann spurði
hvort hann mætti fá að skoða hann.
Maycock ætlaði að hreyfa mót-
mælum en þá sagði kona hans: „Það
getur ekkert gert tO, Paul. Er þetta
ekki hringurinn sem þú fékkst upp í
útfararkostnað hjá manninum sem
gat ekki gert upp við þig til fuHs?
Hvað hét hann? Var það ekki herra
Gardner?”
Dóttirin
fákk hringinn
Maycocks-hjónin fóru ekki í
kvöldverðinn í ráðhúsinu. Þess í
stað var Paul Maycock færður á lög-
reglustöðina. Þar var fljótlega sýnt
fram á að herra Gardner hafði haft
efni á að borga útfor konu sinnar og
að hringurinn hefði átt að fylgja
henni í gröfma.
Maycock játaði nú aö hafa tekið
hringinn áður en hann lokaði kist-
unni. Hann neitaði hins vegar ákaft
að hafa stolið skartgripum eða öðr-
um verðmætum af öðrum framliðn-
um og þar eð ekki var hægt að
sanna að hann hefði gert það var lát-
ið nægja að ákæra hann fyrir stuld-
inn á hringnum.
Maycock fékk allháa sekt, tveggja
ára skOorðsbundinn fangelsisdóm
og var sviptur leyfi til að reka útf-
ararstofu. En vandræðum hans var
ekki lokið. Kona hans fór frá honum
skömmu síðar og lýsti hún þá af-
broti hans þannig að það væri „það
vesalmannlegasta og fyrirlitlegasta
sem hægt væri að fremja.”
Hringurinn fór nú til Benbows-
fjölskyldunnar og viö það tækifæri
sagði PrisciOa Benbow. „Dóttir mín
fær hann þegar hún verður tuttugu
og eins árs. Ef verða ætti við ósk
móður minnar yrði að grafa kistu
hennar upp aftur en mér finnst
innst inni að hún muni faUast á þá
lausn að barnabarn hennar fái
hringinn.”
Það bendir tU þess að frú Ethel
Rose Gardner hafi orðið sammála
þessari lausn og hún hafi nú fundið
frið að hún hefur ekki komið fram í
draumum ungmennanna aftur.