Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Síða 31
JL>V LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995 39 Þegar tæplega fimm hundruð ís- lendingar stigu út úr Boeing 747, fyrstu breiðþotu í eigu íslensks flug- félags, eftir átta tíma flug, á Ba- hamaeyjum í síðustu viku biðu á flugvellinum fjölmiölar, ungfrú Ba- hamaeyjar, ferðamálafulltrúar og fjörug hljómsveit. Atburðurinn var ekki síður merkilegur þar en hér á landi. Nokkrir úr hópi farþeganna voru teknir í viðtal við þarlenda sjónvarpsstöð en aðrir létu tækifær- ið að mynda sig með Miss Bahamas ekki ganga sér úr greipum. Það eru sjö hundruð eyjar sem til- heyra Bahama. íslendingar flugu til New Providence, þar sem höfuðborg- in Nassau er, og dvöldu þar. Eyjan er agnarsmá og þar þekkjast ekki stærri hópferðabílar en fyrir tuttugu manns. Það þurfti þess vegna tuttugu og fimm rútur að flytja þennan stóra hóp á milli staða. í september og október er rigning- artímabil á þessum slóðum og því ekki ferðamannatími. íslenski hóp- urinn var því sannarlega kærkom- inn. Þó að hópurinn hafi kynnst óteljandi rigningardembum lét hann það ekki á sig fá því sólin skein heit á milli. Það var yfir þrjátíu stiga hiti þó skýjað væri og menn fóru inn fyrir dyr til að kæla sig. Spilavítið lokkaði Föstudaginn 13. október var sér- stakur dagur á eyjunum, svokallað- ur „Discovery Day“ sem innfæddir halda hátíðlegan þar sem talið var að Kristófer Kólumbus hefði fyrst stigið á land á eyjunni San Salvador á Bahama 12. október 1492. Þennan dag voru bankar lokaðir og verslan- ir. Á San Salvador voru hátíðahöld alla helgina. íslenski hópurinn gisti á Marriott hótelinu sem er gríöarstórt og með 867 herbergjum. Stærsta spilavítið í öllu Karíbahafinu er sambyggt hót- elinu og þar var sannarlega nóg að gera hvort heldur menn vildu leggja undir eða bara horfa á. Sögur herma að allmargir hafi fengið glaðning - aflt upp í 2000 dali. Konur voru ekki síður kræfar en karlar í spilavítinu. Hópurinn fylgdist með skemmti- legri dans-, söngva- og skemmtidag- skrá í spilavítisleikhúsinu þar sem ungar stúlkur dönsuðu berbrjósta. Þrír íslenskir herramenn voru drifnir upp á svið og dönsuðu undir stjórn gamanleikara. Engir skattar Á Bahamaeyjum búa um 260 þús- und manns, um helmingur þeirra býr á New Providence. Rúmlega 80% þjóðarinnar eru svart fólk. Eyj- an hefur haft fullt sjálfstæði frá ár- inu 1973 en er innan Breska sam- veldisins. Vinstri umferðin ber þess glöggt vitni. Þó eru aðeins um 97 km Það var skemmtilegt að kafa og skoða marglita fiskana í tærum sjónum. Tæplega 500 íslendingar til Bahamaeyja: viðburður fyrir innfædda Það var glatt á hjalla á ströndinni og Haukur Halldórsson, fyrrverandi formaður Stéttarsambands bænda, ræddi kvennapólitík af fullum krafti við hressar dömurnar. til syðsta odda Flórída og 80 km til Kúbu. Innfæddir Bahamabúar fara í innkaupaleiðangra til Miami en lög í landinu heimila þeim að koma með varning með sér fyrir allt að 600 dali. Þessar verslunarferðir eru mjög viðamiklar fyrir jólin. Ástæða þess að Bahamabúar leita annað til að versla er kannski sú að þeir lifa á ferðamönnum og því er verðlag hátt á eyjunum. T.d. kostar glas af bjór um 300 krónur og góð máltíð fyrir hjón varla undir 100 dölum (6.500 krónum). Þjórfé tíðkast á þess- um slóðum og er um 15% af verði. Á sumum veitingahúsum er þjórféð reiknað inn í verðið. Bahamabúar greiða enga skatta og þess vegna hafa bankar víða um heim komið sér fyrir á eyjunum. Margt frægt fólk hefur einnig stofnað fyrirtæki sitt á Bahama og má þar t.d. nefna Björk Guðmundsdóttur. Hinum stóra hópi íslendinga bauðst að fara í skoðunarferð til Nassau á laugardeginum, skoða gömul virki, sem reyndar aldrei þurfti að nota, hverfi ríkra og þeirra fátæku. Áherslur íbúanna virtust töluvert öðruvísi en við þekkjum því ágætis bílar og risastórir gervi- hnattadiskar voru fyrir utan fátæk- leg og lítil húsin. Sungið og dansað Á sunnudeginum fór hópurinn í afar skemmtilega bátsferð í eyju sem kölluð er Blue Lagoon. Þar er ströndin hvít og hrein og sjórinn svo grænn og heitur sem hann getur ver- ið. Sólin skein heit þennan dag og því voru allnokkrir orðnir nokkuð rauðir þegar líða fór að kveldi. Á eyjunni var boðið upp á mat, ómælt hvítvín og fjörug hljómsveit lék und- ir dansi. íslenskur piltur, Júlíus Guðmundsson, lét sig ekki muna um að fara á svið og syngja með. Það voru allir sammála um að þessi tæp- lega fimm hundruð manna hópur kynni sannarlega að skemmta sér. Fylgst með limbódansi fyrir utan hótelið. DV-myndir ELA Þessir skrautlegu búningar seldust upp á eyjunni Blue Lagoon en þeir fengust bæði á smáa og stóra. Á Bahamaeyjum er köfun mjög vinsæl og sérstakir þjálfarar æfa menn í henni í sundlaugum við hót- elin áður en lagt er upp í ferðina. Þeir sem eru lærðir kafarar telja það þó kannski ekki nægilegt, menn verði að fara varlega þegar djúpt er kafað. Þeir sem prófuðu voru alsælir með þessa nýstárlegu reynslu en skrautlegir fiskar, jafnvel höfrungar, sjást vel í hreinum og tærum sjónum. Bubbi ómaði í garðinum I sundlaugagarðinum var diskó- tek og þar var spilað bingó, farið í limbó eða dansað undir stjórn fjörugra heimamanna. íslendingun- um líkaði vel hinn bráðijörugi takt- ur í tónlist heimamanna en þó voru ekki margir dagar liðnir þegar Bubbi Morthens og kúbverska hljómsveitin hans voru farin að óma í loftinu. Innfæddir kunnu vel að meta því þeir dilluðu sér í takt við hinn íslenska kóng. Á Bahamaeyjum er mikið lagt upp úr sjávarréttum og um síðustu helgi var stór fískmarkaður þar sem menn gátu smakkað alls kyns glænýtt góm- sæti úr sjónum. Fiskurinn þykir góð- ur á þessum slóðum og því óhætt að prófa hinar ýmsu tegundir. Sérstök sjávarréttasúpa þar sem skeljarnar eru muldar í er einn af þjóðarréttun- um og sjálfsagt að prófa hana. Helsti ferðamannatíminn á Ba- hamaeyjum er í desember, janúar og febrúar, mars og apríl. Þá hækk- ar verð á hótelum og sjálfsagt fleiri hlutum. Bahamaeyjar eru nýstárleg- ur ferðakostur fyrir íslendinga enda munu flestir þeir sem í ferðinni voru ekki hafa verið í ferðahugleið- ingum þegar þeir sáu ferðina aug- lýsta - heldur stokkið á hið óvænta kostaboð. Það glumdu við húrra- hróp fyrir Atlanta og Samvinnuferð- um hjá ánægðum ferðalöngum þeg- ar breiðþotan lenti aftur á Keflavík- urflugvelli eftir vel heppnaða ferð. íslensku blómarósirnar voru skraut- legar um háriö þegar innfæddar maddömur voru búnar að fara hönd- um um þær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.