Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Side 36
44
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995 DV
>
skjainn
Það hefur ekki mikið
frést af leikkonunni Cybill
Shepherd upp á síðkastið
enda virðist frekar lítið ha
verið að gerast hjá henni fra
því hún lék í sjónvarpsþáttun
um með Bruce Willis. Nú er
hins vegar allt á uppleið
hjá Cybill. Hún er með
sína eigin sjónvarps-
þætti sem nefnast ein-
faldlega „Cybill" og
fjalla um einstæða
móður með tvær
táningsstelpur.
Þátturinn hefur
náð vinsæld-
um.
Söguefnið
er í raun
ekki
mjög
ólíkt
lífi
leik-
kon-
unnar
því hún er
einstæð móðir
með þrjú börn,
Clementine
16 ára og tvíburana
Ariel og Zack
sem eru sjö ára.
...að David Copperfield, kær-
asti súpermódelsins Claudiu
Schiffer, hefði keypt gömlu
snekkjuna Marlin en
hún var í eigu Johns F.
Kennedys og eigin-
konu hans, Jackie.
Sagt er að parið sigli til
framandi staða til að fá
frið með sitt einkalíf.
..•.að leikarinn Lorenzo
Lamas (36 ára) hefði fallið fyrir
mótleikkonu sinni, Shaunu
Sand (24 ára), í framhaldsþátt-
unum Renegade. Hvað fyrrver-
andi kona hans, Kathleen Kin-
mont, sem einnig leikur í þátt-
unum, segir vitum við ekki en
ætli þessir leikarar séu ekki
öllu vanir.
Olyginn sagði...
...að siðgæðisyfirvöld í
Malasíu hefðu lagt bann á Bar-
biedúkkuna frægu vegna þrýst-
ings frá foreldrum og dagblöð-
um. Það er ekki bara vegna
ljósa hársins, löngu leggjanna
eöa óausturlenska útlitsins
heldur þar sem kynþokki þess-
ara fögru meyja er talinn geta
brenglað siðgæðisvitund barna.
Bók um ævi Arne Næss:
Mun valda æsingi í Noregi
Norðmenn biða
spenntir þessa dagana
eftir nýrri bók um ævin-
týramanninn Arne
Næss. Bókin segir frá lífi
Arne og um þrjátíu
manns, sem hafa kynnst
honum, segja frá þessum
athafnamanni. Það er
blaðamaður við Aften-
posten, Mona Levin, sem
skrifar bókina en þrír
Íaðilar komu til greina
sem höfundar. Það var
: Arne sjálfur sem valdi
Monu enda hafði hún
: tekið viðtal við hann eitt
sinn.
Arne Næss er líklegast
þekktastur fyrir að vera
kvæntur söngkonunni
Díönu Ross en jafnframt
hefur hann gert út risa- Auðkýfingurinn Arne Næss og eiginkona
stór skemmtiferðaskip. hans, Díana Ross söngkona.
Arne er Norðmaður en
hefur búið í Bandaríkjunum allnokkur ár og er meðal helstu auðkýf-
inga Norðmanna. Hann þykir þó engu að síður sparsamur.
Sögur gengu um það síðasta sumar að Arne og Díana væru aö skilja
og breska blaðið Daily Mirror birti frétt um það. Sagt er að peningamál
hafi verið ástæða þess að hjónabandið væri að fara út um þúfur en
Díana þolir Ola sparsemi eiginmannsins. Skilnaður hefur hins vegar
ekki átt sér stað.
Díana Ross gaf út ævisögu sína árið 1991 og þar kom vel í ljós hversu
peningamál eru viðkvæm í hjónabandinu. Helst þarf hún að borga sjálf
af eigin bankareikningi ef hana langar að kaupa eitthvað.
Sagt er að bókin um Arne Næss muni valda miklum æsingi í Noregi
en sjálfur fær hann ekki að lesa hana fyrr en hún er komin út — rétt
eins og aðrir. „Sumir segja að best sé fyrir mig að koma ekki nálægt
Noregi eftir aö bókin er komin út,“ segir Arne en vildi ekki láta hafa
neitt frekar eftir sér.
Hann hefur sjálfur gefið út bækur, t.d. um fjallgöngu sína í Himalaja
en Arne hefur alla tíð þótt mikill ævintýramaður.
...að Rosanna Della Corte,
sem er 63 ára og elsta smá-
barnamóðir í heimi, hefði hug á
að eignast annað barn. Þetta
sagði hún á ársafmæli sonar
síns, Riccardos. Rosanna fékk
hjálp frá ítalska lækninum
Severino Antinori sem fram-
kvæmir tæknifrjóvganir á eldri
konum.
Þrisvar sinnum tvíburar
Shirley Webre, sem er aðeins 21
árs gömul, getur aðeins eignast tví-
bura - að minnsta kosti hefur hún
eignast þrenna tvíbura á þremur
árum. Hún segist vera búin að fá
nóg og ætli sér ekki að eignast fleiri
börn. Shirley og eiginmaður henn-
ar, David, 29 ára, búa í hjólhýsi með
sex börnum sínum í Louisiana í
Bandaríkjunum. í hjólhýsinu eru
þrjú lítil herbergi og eldhús.
Þau hjónin ætluðu sér einungis
að eignast eitt barn i upphafi en nú
eiga þau fjórar stúlkur og tvo
drengi. Davíð og Elísabet urðu
þriggja ára í júlí, Angel og Bethany
urðu tveggja ára í ágúst og þau
yngstu, Courtney og Christen, eru
aðeins nokkurra vikna gömul.
Þegar um glasafrjóvganir er aö
ræða er ekki óalgengt að konur
eignist fjölbura en Shirley hefur
aldrei verið á hormónalyfjum né
heldur þurft á glasafrjóvgun að
halda. Læknum finnst því ákaflega
merkilegt að hún skuli eignast
þrisvar sinnum tvíbura og þeir telja
að hún muni alltaf ganga með tvö
böm í einu.
Hjónin eru fjárhagslega illa stæð
og hafa því ekki átt auðvelt með að
fæða og klæða þessa stóru fjöl-
skyldu. Þau eru engu að síður að
reyna að safna sér fyrir stærra hús-
næði. Davíð er ekki óvanur stórum
fjölskyldum því hann er yngstur ell-
efu systkina. Hann segist hafa verið
mjög glaður þegar elstu tvíburarnir
fæddust og ekki minna þegar þeir
næstu voru fæddir. „En mér leist þó
ekki alveg á blikuna þegar við feng-
um tvíbura í þriðja skiptið — jafn-
vel þótt við séum mikið fyrir börn,“
segir sex barna faðirinn.