Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1995, Page 56
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notaö i DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
MUNIÐ NYTT SIMANUMER
Frjálst,ohaö daqblaö
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995.
LOKI
Ber karmski að líta á Hring
dauðans sem starfskynningu
fyrir verðandi mafíósa?
txothec
tölvu
límmiða
prentari
1É
Nýbýlavegi 28 - símí 554-4443
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Bjart veður syðra
Á morgun verður fremur hæg norðlæg átt í fyrstu en vaxandi norðaustanátt á Vestfjörðum. É1 verða um landið norðanvert en nokkuð bjart
veður syðra, hiti 0 til 4 stig að deginum en víða næturfrost.
Á mánudaginn verður nokkuð hvöss norðaustanátt um landið norðvestanvert en hægari annars staðar, áfram él norðanlands en þurrt að
mestu sunnanlands. Vægt frost verður á Vestfjörðum en 0 til 4 stiga hiti í öðrum landshlutum.
Veðrið í dag er á bls. 61.
m
m
, 1. nóvember:
Gera samning
að ,Jre pa“ mann
„Bestu morðin eru þau þar sem
fórnarlambið hefur ekki einu sinni
hugmynd um hver drap,“ segir i
leikreglum fyrir drápsleik sem
hefjast mun á götum Reykjavikur
á allraheilagramessu - 1. nóvemb-
er.
Leikurinn flokkast með svoköll-
uðum hlutverkaleikjum og er hug-
myndtn hingað kornin frá Banda-
ríkjunum. Leikurinn var reyndur
einu sinni hér í haust með fámenn-
um hópi. Nú er skráning haíin í
næsta hóp „morðingja".
Leikurinn er í þvi fólginn að hver
þátttakandi fær úthlutað fórnar-
lambi sem hann á að „drepa“ með
öllum ráðum - en þó ekki þannig
að likamstjón hljótist af. Hver sá
sem fengið hefur slíkan „samning
um morö“ er einnig fórnarlamb
einhvers í leikum. Haldið er áiram
að leika þar til aðeins einn er eftir
„lifandi" og er sá sigurvegari,
<rt
Ftagnar Brynjúlfsson, 21 árs Seltirningur, segir að drápsleikurinn Hringur dauðans sé saklaus skemmtun,
en Áskell örn Kárason sálfrœðlngur segir þetta óheilbrigt tómstundagaman. DV-mynd Brynjar Gautí
„Þaö eru aðallega menntaskóla-
krakkar sem eru með í þessu. Þetta
er ekkert verra fyrir unglingana
en að horfa á glæpamynd og að
minu viti bara heilbrigð skemmtun
eöa í það minnsta skárra en að
kaupa landaflösku og drekka sig
fullan niðri í bæ,“ segir Ragnar
Brynjúlfsson, 21 árs Seltirningur,
sem stjómar leiknum.
Hann segir að þegar hafi margir
látiö skrá sig og ekkert því til fyrir-
stööu að hefja leikinn á allraheil-
agramessu. Hægt er að láta skrá
sig í tveimur verslunum í Reykja-
vik. Þá er og hægt að tilkynna þátt-
töku á Intemetinu.
í leiknum eru öll vopn leyfileg.
Vatnsbyssur munu vinsælar en
einnig er mælt með að nota
sprengjur og gildrur af ýmsu tagi.
Óll munu þó vopnin skaðlaus.
Hefur leitt til morða
Erlendis hafa leikir af þessu tagi
verið ýmsum þymir í augum og á
síðasta ári gerðist þaö í Svíþjóð að
unglingar urðu dreng að bana og
gáfu þá skýringu að þeir hefðu ver-
ið í hlutverkaleik og ekki áttað sig
á alvörunni.
Áskell Öm Kárason, sálfræðing-
ur hjá Meöferðarstöð ríkisins fyrir
unglinga, sagði við DV að leikir af
þessu tagi væru mjög varasamir,
einkum fyrir þá unglinga sem
væm veikir fyrir og þyldu illa
mikla spennu.
„Þetta er mjög óheilbrigt tóm-
stundagaman. Hættan er að börn
eöa unglingar sem eru veikir fyrir
þoli ekki álagið og upplausn veröi
í lifi þeirra. Það getur leitt til að
þátttakendurnir rugla saman leik
og veruleika,“ sagði Áskell Örn.
-GK
Bankaránið:
Einsdæmi að
máli á einum
sólarhring
Sunnudagur
Mánudagur
Engin dæmi eru til frá síðari tímum
um að íslendingur hafi verið hand-
tekinn, ákæröur og dæmdur á sama
sólarhringnum eins og gert var í
máli mannsins sem reyndi að ræna
Háaleitisútibú Landsbankans fyrr í
vikunni. Eftir upplýsingum frá ríkis-
saksóknara mun slíkt þó hafa gerst
þegar útlendingar eiga í hiut og á
liggur að ljúka málunum.
Skýringar frá ríkissaksóknara á
skjótum framgangi málsins eru að
maðurinn var handtekinn snemma á
vinnudegi lögreglu, öll vitni voru á
~ staðnum, játning lá fyrir og engar
skaðabótakröfur voru lagðar fram.
„Allar ytri aðstæður voru þannig
að það var hægt að ljúka málinu á
einum sólarhring. Þetta var engin
illmennnska í garð þessa eina manns
og raunar furöulegt að við erum
bæði gagnrýndir fyrir að ljúka mál-
um of fljótt og eins fyrir að draga
afgreiðsluna of lengi,“ segir Guðjón
Magnússon, fulltrúi hjá ríkissak-
sóknara en hann annaðist „banka-
ránsmálið" fyrir embættið.
— . Ómar Smári Ármannsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn í Reykjavík, :
sagði í samtah við DV í gær að lög-
reglan hefði lengi knúið á um að i
málum síbrotamanna yrði flýtt:
„Heimildin til að flýta málum með
þessum hætti er til staðar og hana
mætti nota oftar þegar um raunveru-
lega síbrotamenn er að ræða.“
Maðurinn sem reyndi aö ræna
Háaleitisútibúið var dæmdur í sex
mánaða fangelsi. Guðmundur
Ágústsson, skipaður verjandi hans,
sagði við DV að dómurinn væri
óvenjuþungur. -GK