Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Side 2
2
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995
Fréttir
Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambandsins:
Blasir við að segja
kjarasamningunum upp
„Það er enginn ágreiningur um
þaö innan Alþýðusambandsins að
það sem menn eru tilbúnir til að
setja inn í samningana uppfyllir
ekki þær kröfur sem við höfum ver-
ið með í umræðunni. Eins og málin
standa í dag þá blasir ekkert annað
við en uppsögn samninga. Menn
hafa ekki annan kost. Afstaða
Verkamannasambandsins er alveg
klár í því,“ sagði Bjöm Grétar
Sveinsson, formaður Verkamanna-
sambandsins, í gær eftir formanna-
fund Alþýðusambands fslands, ASÍ.
Formenn aðildarfélaga innan ASÍ
hittust á fundi síðdegis í gær til að
ræða yfirvofandi uppsögn kjara-
samninga um áramót. Bæði Bene-
Grafarvogur.
Þrír
fimmtán
ára hand-
teknir
Þrír fimmtán ára drengir
voru handteknir laust upp úr
miðnætti á föstuda'gskvöld í
Grafarvogi er þar kom til rysk-
inga milli unglinga og lögreglu-
manna. Lögreglan var kölluð að
húsi við Langarima vegna há-
vaða frá heimapartíi. Tveir lög-
reglumenn fóru á staðinn en
fljótlega óskuðu þeir eftir frek-
ari aðstoð þar sem til átaka kom.
Fjórir lögreglubílar voru þá
sendir til viðbótar, að sögn varð-
stjóra. Talið er að um 30 ung-
lingar hafi verið á staðnum.
Unglingamir þrír vom hand-
jámaðir óg fluttir á aöalstöð lög-
reglunnar við Hverfisgötu. Þar
fengu þeir að bíða í biðherbergi
þar til foreldrar sóttu þá.
Faðir eins drengsins sagði i
samtali við DV að lögreglan
hefði beitt drengina fantabrögð-
um og ráðist aö þeim með þeim
afleiðingum að flytja þurfti þá á
slysavarðstofu. Hann sagði for-
eldra í hverfinu ósátta við fram-
komu lögreglunnar og yrði rætt
við lögreglustjóra eftir helgina
vegna þessa máls.
Að sögn varðstjóra hjá lög:
reglúnni hefur það færst í vöxt
að unglingar hópi sig saman í
hverfum borgarinnar og hefur
lögreglan þurft að hafa afskipti
vegna þess. Hins vegar hafa
færri verið í miðbænum um
helgar. -ELA
dikt Davíðsson, forseti ASÍ, og Björn
Grétar Sveinsson sögðu eftir fund-
inn að afstaða formannanna hefði
verið einhuga: uppsögn samninga
um áramót verði ekki komið betur
til móts við kröfur verkalýðshreyf-
ingarinnar. Ljóst er að stuttur tími
er til stefnu og enn hefur enginn
fundur verið boðaður með VSÍ.
„Málið er að við höfum ekki lang-
an tíma. Samþykktir Verkamanna-
sambandsins hljóöa upp á það að
skora eigi á félög innan sambands-
ins til að segja upp samningunum ef
á þarf að halda og sum eru þegar
búin að því. Dagsbrún er búin að
því og fjöldi félaga er með heimild
til þess. Þessum félögum þarf að
Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambandsins, og Benedikt
Davíðsson, forseti ASÍ, hittust á formannafundi ASÍ í gær til að ræða yfirvof-
andi uppsögn kjarasamninga um áramót. DV-mynd ÞÖK
Jólabærinn Hveragerði:
Sérstök vegabréf
þarf inn í bæinn
- kveikt verður á jólaljósunum á föstudaginn
Sigrún Lovísa, DV, Hveragerði:
Eins og alþjóð veit er Sankti
Kláus og allt hafurtask flutt til
Hveragerðis. Þessa dagana er verið
að gera allt klárt. Margur bæjarbú-
inn er í vinnu hjá jólasveinafjöl-
skyldunni og er verið að leggja síð-
ustu .hönd á jólasveinahöllina i
gamla Tívolíhúsinu, sem búið er að
breyta í risastórt jólaland, og á hún
að verða tilbúin 1. des. nk.
Bærinn verður allur uppljómað-
ur, götur, íbúðarhús, fyrirtæki og
gróðurhús.
Kveikt verður á öllum jólaljósun-
um samtímis, kl. 18 föstudaginn 1.
des. Nemendur grunnskólans fara
blysför um bæinn sem endar með
flugeldasýningu. Verslanir og fyrir-
tæki verða með alls konar sértilboð
og uppákomur allan desembermán-
uð. Jólabærinn Hveragerði verður
iðandi af lífi og fjöri alla daga og
langt fram á kvöld. Boðið veröur
upp á fjölbreytta dagskrá fyrir böm
og fullorðna sem Sankti Kláus mun
stjóma aö sínum hætti. Fluttir
verða leikþættir, til dæmis sérsamd-
ar dagskrár um íslensku jólasvein-
ana. Hljómsveitir og kórar munu
skemmta og önnur tónlistaratriði
verða í boði. Brúðubíllinn verður á
staðnum og margt fleira verður í
gangi.
Meðal flytjenda verða Leikfélag
Frá Hveragerði þar sem bæjarbúar vinna hörðum höndum að breyta bænum
í jólasveinaland. DV-mynd Sigrún Lovísa
Hveragerðis, tónlistarfólk á öllum
aldri úr Hveragerði og nágrenni og
Möguleikhúsið verður á staðnum.
Sérstakt vegabréf þarf til að kom-
ast inn í Jólaland. Börn 6 ára og
yngri fá ókeypis vegabréf en aðrir
verða að greiða kr. 550 fyrir þau.
Vegabréfið veitir aðgang að allri
dagskránni og fylgja því afslættir í
fyrirtækjum í Hveragerði, frítt á
hestbak og ýmislegt annað sem
koma á að óvörum.
Jólaland verður opið fimmtudaga til
sunnudagskvölds frá kl. 13-19 í sex
vikur, frá 1. des. - 6. jan.
Stórverslun Selfridges í London
tók hugmyndina inn í árlega jólaget-
raun verslunarinnar en þátttakend-
ur eru um 250 þ. manns. Aðalverð-
launin í ár eru ferð til íslands til að
hitta jólasveininn og fjarskylda ætt-
ingja hans, Grýlu, Leppalúða og allt
það hyski og islensku jólasveinana
þrettán. Það þykja stórtíðindi úti í
heimi að Sankti Kláus skuli eiga
fjölskyldu á íslandi.
Ýfingar milli sjónvarpsstöðvanna:
Sjónvarpsstjóri Stöðvar 3 bann-
aði tökumanni að mynda vígsluna
- segir Elín Hirst, fréttastjóri Stöðvar 2
„Ég sendi myndatökumann um
sjöleytið á fötudagskvöldið til þess
að taka myndir af vígslu sjónvarps-
stöðvarinnar Stöð 3, til þess að sýna
í 19-19 fréttatímanum þá um kvöldið
og þegar hann kom á staðinn var
hann stoppaður við innganginn af
móttökustúlku. Síðan var kallað á
sjónvarpsstjórann, Úlfar Steindórs-
son, og hann sagði myndatöku-
manninum að það hefði verið ákveð-
ið hjá Stöð á að þangað inn kæmi
énginn frá Stöð 2,“ sagði Elín Hirst,
fréttastjóri á Stöð 2, í samtali við
DV.
„Það var þama ljósmyndari frá
Morgunblaðinu og tökumenn frá
Sjónvarpinu sem tóku myndir og
sýndu í fréttatíma sínum og þeir
virðast ekki hafa verið hindraðir.
Þessar aðgerðir eru því greinilega
til höfuðs okkur. Ég hef verið í
blaðamennsku í meir en áratug og
hef aldrei áður lent í neinu slíku,“
sagði Elín.
„Það kom þarna einn tökumaður
hlaupandi frá Stöð 2 við vígsluat-
höfnina og hann vissi í rauninni
ekkert hvað hann átti að vera að
gera. Það var sagt við þennan töku-
mann að það heföi ekki verið gert
ráð fyrir honum við vígsluna og
með það fór hann,“ sagði Úlfar
Steindórsson, sjónvarpsstjóri Stöðv-
ar 3, við DV.
„Viðstaddir vígsluna voru bara
þeir sem búið var að ræða við fyrir
fram og búið var að gera ráð fyrir,
enda er plássið ekki mikið til að
hrúga inn miklu af fólki og
tækniliði.
Við vorum ekkert að hópa fólki
inn á stöðina hjá okkur við vígsluna
og það er því rangt að einhverjum
hafi verið hent út þarna.
Það kom reyndar einhver frá
þeim um daginn og þá voru engin
vandamál. Menn frá Stöð 2 era vel-
komnir hingað hvenær sem þeir
vilja,“ sagði Úlfar.
-ÍS
gefa svigrúm til að segja samning-
unum upp,“ segir Bjöm Grétar.
Sérfræðingar á vegum verkalýðs-
hreyfingarinnar era þessa dagana
að kanna hvernig samningunum
verði sagt upp á löglegan hátt. Björn
Grétar segist sannfærður um að
efniviðurinn sé nægur. Hann bendir
á þátt ríkisstjórnarinnar og segir að
launastefnan hafi brostið og kjara-
dómur flætt inn í borgarkerfið með
launahækkunum til borgarfulltrúa
og helstu embættismanna.
Niðurstaða formannafundarins
verður kynnt á sambandsstjórnar-
fundi ASÍ í dag og þá verður fram-
haldið ákveðið.
-GHS
Stuttar fréttir
Óbreyttur samningur
Landbúnaðarráðherra hafnar
því að gerðar verði breytingar á
• búvörusamningnum, skv. Stöð 2.
Hann vill að Alþingi afgreiöi
samninginn fyrir mánaðamót.
Vantar peninga
Ekki tekst að ljúka fram-
kvæmdum við flugvelli á lands-
byggðinni á næsta ári ef fjár-
lagafrumvarpið verður óbreytt,
að mati Flugráðs. RÚV greindi
frá.
Útboö eftir áramót
Framkvæmdir við Gilsfjarðar-
brú og breikkun Ártúnsbrekku
hefjast eftir áramót, skv. Stöð 2.
Vegagerðin hefur fengiö heimild
til að bjóða verkin út.
Vili svör um börn
Barnaréttarnefnd SÞ vill að
fulltrúi stjómvalda svari spum-
ingum um réttindi íslenskra
barna, skv. Útvarpi.
ís i brúöargjöf
Tveir Vestfirðingar fara með
10 kíló af is úr Vatnajökli sem
brúðargjöf til Indlands, að sögn
Stöðvar 2.
Hrókendur ógna
Hrókendur hafa sest að hér á
landi. Talið er að þær geti ógnað
öðram fuglastofnum, skv. Út-
varpi.
Nýtt fióttamannaráö
Nýtt flóttamannáráð verður
skipað í tilefni af komu 25 flótta-
manna frá Bosníu, skv. RÚV.
-GHS
Tilveran á morgun:
Augun Ijúga
aldrei
í Tilveranni í blaðinu á morg-
un verður flallað um hvernig
spegill sálarinnar afhjúpar fólk
algerlega, ástir þess, afbrýði og
kynóra. Augun ljúga aldrei.
Af öðru efni má nefna að
reynt verður að ráðleggja fólki
hvemig hnífa sé best að nota við
heimilishaldið og hvemig eigi
að meðhöndla þá. Þá verður að
venju birt uppskrift úr Nagla-
súpunni, uppskriftasamkeppni
DV, og loks verður fólki sagt að
það geti verið lífsspursmál aö
nota endurskinsmerki. -sv