Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Blaðsíða 16
16
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995
Jónas Þórhallsson, varaformaður knattspyrnudeildar Grindavíkur, Baidur Hjaltason, framkvæn.darstjóri Lýsis hf. og
Svavar Sigurðsson formaður deildarinnar ásamt Ragnari Reykás í fullum skrúða.
Lifrin styrkir
fótboltann
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
„Samskipti okkar við deildina
hafa alltaf verið mjög traust sem
hefur leitt til öflugri lifrasöfnunar á
svæðinu. Við sjáum aukin árangur
miðað við í fyrra og erum mjög
ánægðir með samstarfið. Það geng-
ur vel og vonumst við til að eiga
eins gott samstarf um ókomna fram-
tíð,“ sagði Baldur Hjaltason, fram-
kvæmdarstjóri Lýsis hf en fyrirtæk-
ið hélt mikið hóf í Grindavík í til-
efni af 10 ára samstarfi við knatt-
spyrnudeildina í Grindavík.
Baldur segir að Grindavík hafi
um áratuga skeið verið ein helsta
hráefnisuppspretta Lýsis hf en fyrir-
tækið var stofnað árið 1938 og hefur
alla tíð síðan framleitt og markað-
sett lýsi og afurðir unnar úr því.
Samstarfíð gengur útá það að knatt-
pyrnudeildin hefur beinan fjárhags-
legan ávinning af því að stuðla að
aukinni lifrasöfnun á svæðinu. Þeir
fá fasta greiðslu en fá ákveðna auka-
greiðslu ef magnið fer yfir ákveðið
lágmark. Þetta samstarf ásamt
stuðningi atvinnulífsins í Grindavík
hefur verið deildinni uppspretta
kröftugrar uppbyggingar og vel-
gengi undanfarin ár.
Að sögn Baldurs hafa skips-
verjamir á Oddgeiri í Grindavik
safnað lifrinni saman og stofnað
lifrasjóð sem þeir notuðu siðan til
að fara í frí til Majorka. Hann segir
þetta ein leiö ef útgerðin sé sam-
mála því að upphæðin renni til
skipsverja. Samt fær deildin í
Grindavík ávallt sitt fyrir.
„Þessi samningur er mjög hvetj-
andi. Það er þjóðþrifamál að lifrinni
sé hirt og nýtt. Kvótinn minnkar og
þá skiptir miklu máli að koma með
allan aflann að landi. Þetta eru mik-
il verðmæti. Við munum hafa tal á
þeim sem hafa hent lifrinni í sjóinn
og reyna fá þá til að koma með hana
að landi,” sagði Svavar Sigurðs-
son,formaður knattspyrnudeildar
Grindavikur.
Það byrja allir
frá grunni
- segir Harpa Pálsdóttir danskennari
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
„Það er aldrei of seint að byrja að
dansa og það byrja allir frá grunni,"
sagði Harpa Pálsdóttir, danskennari
og umsjónamaður dansskóla Heiðars
Ástvaldssonar í Grindavik. Harpa
hefur starfað við skólann í 23 ár og
ferðast um landið og kennt. Hún
byrjaði að dansa þegar hún varð íjög-
urra ára og hefur dansað síðan eða í
36 ár.
Harpa fluttist til Grindavíkur fyr-
ir 11 árum og hefur séð síðan um
danskennslu fyrir skólann á Suður-
nesjum síðan. í Grindavík stunda
rúmlega 40 börn dans við skólann í
ár. Hún segir að margir góðir dans-
arar séu í Grindavík og þrjú pör hafa
tekið þátt í íslandsmeistarakeppni.
Þau hafa staðið sig mjög vel og kom-
ist á verðlaunapall oftar en einu
sinni.
Harpa segir að einnig séu um
hjónahópa sem láta sjá sig. Oft séu
eiginmennirnir útá sjó og sé stund-
um erfitt þess vegna fyrir suma en
viljinn er fyrir hendi hjá þessu fólki.
„Fólk fær heilmikið út úr því að
stunda dans, bæði andlega sem lík-
amlega. Þá er vísindalega rannsakað
að börn sem stunda dans gengur bet-
ur í skóla og það geta kennarar stað-
fest.-Þá sé mjög gott fyrir þá sem eru
í boltaíþróttum að stunda dans,” seg-
ir Harpa.
Harpa Pálsdóttir danskennari með tvo stórefnilega og góða dansara, Eyþór
Atla Einarsson og Auði Haraldsdóttur en þau eru 12 ára.
J3V
Miklu skemmtilegra
og allt svo jákvætt
við að vinna saman
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
„Allur undirbúningur svo mikið
auðveldari þegar ég hef hana mér við
hlið,“ segir Siguróli Geirsson, skóla-
stjóri Tónlistarskóla Grindavíkur,
sem er einnig stjómandi bamakórs-
ins um konu sína, Vilborgu Sigur-
jónsdóttur, sem hefur starfað og
stjómað barnakórnum með manni
sínum síðan 1992.
„Við skemmtum okkur alveg kon-
unglega saman. Þegar okkur dettur
eitthvað í hug og finnum eitthvað
nýtt við vinnuna þá leysum við mál-
in í sameiningu," segir Vilborg sem
byrjaði að syngja í barnakór þegar
hún var 9 ára og má segja að hún
hafi verið sísyngjandi síðan. Hún
syngur með kirkjukórnum og segir
Vilborg að ekki sé hægt að lifa án
þess að syngja.
Barnakór Grindavíkurkirkju var
stofnaður 1990 og eru 27 börn í kóm-
um. Þau hafa stundað æfmgar í
kirkjunni fyrir aóventutónleika. Kór-
inn sem þykir góður hefur m.a. sung-
ið með Sinfóníuhljómsveitinni. Kór-
inn syngur við flestar athafnir og
stefna á að fara í vinabæjarheimsókn
til Danmerkur næsta vor.
Siguróli hefur verið skólastjóri
síðan 1990 og er organisti kirkjunn-
ar. Hann þekkja flestallir á Suður-
nesjum enda búinn að vera í tónlist-
inni síðan 1960. Hann segir að á imd-
anfórnum árum hafi verið mikil upp-
bygging í tónlistarmálum í Grinda-
vík og mikil aðsókn í skólann. Alls
stunda rúmlega 80 nemendur nám
við skólann og eru margir krakkar
komnir vel á veg í sínu fagi. Sigruóli
segir að það sé mjög þroskandi og
gott að sækja tónlistarnám.
Hjónin Vilborg Sigurjónsdóttir og Siguróli Geirsson gera það gott í tónlist-
armálum í Grindavík. DV-mynd Ægir Már.
Krakkarnir reyna að
tala við túristana
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
„Útlendu ferðamennimir taka
myndir af krökkunum og þau reyna
að tala við þá og veifa síðan til
þeirra þegar rúturnar hverfa héðan.
Þessi staður heillar fólk alveg ótrú-
lega,“ segja þær Lydía Jónsdóttir og
Álfhildur Jónsdóttir sem reka sam-
an dagmæðraheimili í gömlu kirkj-
unni í Grindavík sem hefur heillað
marga erlendra ferðamenn sem hafa
átt leið um Grindavík. Að sögn
þeirra hafa túristarnir sem eru bú-
settir víðsvegar um heiminn sent
myndir, kort og bréf til þeirra.
Dagmæðurnar gera mikiö af því
að hleypa fólki inn til að skoða
gömlu kirkjuna. Aðsóknin hefur
orðið svo mikill að þau ákváðu að
vera með minjagrip af staðnum, -
myndir af kirkjunni prentaða á
könnu sem seld er á kostnaðarverði.
Kirkjan, sem er i eigu Grindavík-
urbæja,r var reist 1909 og þjónaði
Grindvíkingum til 1982. Árið 1988
var henni breytt í barnaheimili.
Lydía og Álfhildur byrjuðu í sept-
ember að reka heimilið en höfðu
unnið þar áður. Alls eru 15 börn frá
6 mánaða til 6 ára á heimilinu.
Langir biðlistar eru eftir plássi og
ekki skrýtið að foreldrar vilji láta
börnin sín vera þar sem margir for-
eldrar eiga góðar minningar frá því
þegar kirkjan var notuð og mörg
þeirra fermdust þar. Á kirkjulóð-
inni eru leiktæki sem krakkarnir
eru ólmir að leika sér í.
„Það eru margir ánægðir með að
kirkjan skuli hafa verið nýtt sem
heimili. Viðbrögðin eru geysilega
góð og jákvæð,” segja dagmæðurnar
Álfhildur og Lydía en hún er
einmitt ein margra sem fermdist í
kirkjunni.
Dagmæðurnar sem reka barnaheimili í gömlu kirkjunni í Grindavík, Álfhild-
ur Jónsdóttir og Lydía Jónsdóttir eru ánægðar með viðtökurnar.
DV-mynd Ægir Már.