Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995 39 Samningurinn undirritaður. F.v.: Júlíus Jónsson forstjóri, Finnur Ingóifsson ráðherra, Friðjón Einarsson, Reykjanesbæ, Halldór J. Kristjánsson frá við- skiptaráðuneytinu og Garðar Ingvarsson frá iðnaðarráðuneytinu. DV-mynd Ægir Már Átaksverkefni í orkufrekum iðnaði Ægir Már Kárason, DV, Suöurnesjum: „Ég hef trú á að árangur náist því þessi staður hefur upp á svo margt að bjóða. Ef okkur tekst það ekki á þessu svæöi meö öllum þeim landkostum sem hér eru; staðsetn- ingunni, heita vatninu, kalda vatn- inu, jarðgufunni - að ná til erlendra fjárfesta - þá held ég að okkur gæti reynst það erfitt annars staðar," sagði Finnur Ingólfsson iðnaðarráð- herra á fundi í húsakynnum hita- veitu Suðumesja í Svartsengi. Þar var undirritaður samningur 21. nóvember mn átaksverkefni í orkufrekri iðnaðarstarfsemi sem samnýtir raforku og iðnaðargufu. Samstarfsaðilar eru Hitaveita Suð- umesja, markaðs- og atvinnumála- skrifstofa Reykjanesbæjar, mark- aðsskrifstofa iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar og fjárfestinga- skrifstofa viðskiptaráðuneytis og útflutningsráðs. Markmið átaksins er að kynna fyrir erlendum fyrirtækjum fjárfest- ingu í iðnaðarstarfsemi á starfs- svæði hitaveitu Suðumesja. Gefinn hefúr verið út bæklingur til að kynna Suðumes. Markaðsráðgjafi hefur verið ráöinn i USA sem hita- veitan kostar og nemur upphæðin 3 millj. króna. Átakið stendur í eitt ár en reiknað er með að 3-5 ár taki að verkefnið skili einhverju. „Það er skoðun okkar að tví- mælalaust sé rétt að taka þátt í verkefhinu. Með því að stuðla að aukinni nýtingu þessara helstu auðlinda svæðisins getur Hitaveita Suður- nesja best aukið hagsæld íbúa svæðisins og landsins í heild um leið og það tryggir framtíð fýrirtæk- isins,“ sagði Júlíus Jónsson, for- stjóri hitaveitu Suðumesja. ___________Fréttir Bjór tek- inn í Bakka- fossi Tollgæslan í Reykjavik fann fyrir helgi 32 kassa af bjór í Bakkafossi. Einnig fúndust þar níu flöskur af áfengi og 10 kiló af skinku. Flestir skipverja áttu í smyglinu og telst málið upplýst og afgreitt með greiöslu tolla af farminum. -GK BREMSUR! * Klossar * Borðar * Diskar * Skálar RENNUM! skálar og diska allar stærðir Allar álimingar! ö ÁLÍMINGAR Síðumúla23-s.5814181 Selmúlamegin Fæddust engar stúlkur í 2 áratugi Guðfinnur Finnbogason, DV, Hólmavík: Nú á haustdögum hófu 4% íbúa í Kirkjubólshreppi í Strandasýslu nám við Háskóla íslands eða tveir af 50 íbúum. Vitaskuld var hér um pilta að ræða þar sem ekki fæddust stúlkuböm í sveitinni í tvo áratugi á milli 1970 og 1990 en á því tímabili fæddust tæpir tveir tugir svein- barna. Kynjahlutfall íbúa í Kirkjubóls- hreppi hefur um langt skeið verið íhugunarefni bæði leikra manna og lærðra innan héraðs sem utan. Um nokkurra ára skeið leit út fyrir að kona myndi hvergi ylja rúm karl- manns í þeirri sveit undir miðja 21. öldina - sem betur fer þróuðust mál ekki svo iila. Sama hlutfall íbúanna og stundar nám við háskóla eða tveir gegna starfi bcuikastjóra við virtar lánastofnanir, Búnaðarbank- ann og Sparisjóð Strandamanna, og hefur svo veriö í nær tvo áratugi. Það svarar til að hátt í fjögur þús- und Reykvíkinga gegndu slíku starfi. Innra-Bæjargiliö, Flateyri: Varnargarðurinn þar lengdur og stækkaður Guðmundur Sigurðsson, DV, Flateyri: „Þessi framkvæmd er ætluð til að verjast snjóflóðum úr Innra-Bæjar- gilinu vegna þess sem gerðist á síð- asta vetri. Þá féll stórt flóð úr gilinu en talið er að garðurinn, sem var þar fyrir, hafi beint stærsta hluta snjóflóðsins frá byggðinni,“ sagði Kristján J. Jóhannesson, sveitar- sljóri á Flateyri, í samtali við DV. Framkvæmdir eru hafnar við lengingu og hækkun annars snjó- flóðavarnargarðsins á Flateyri. Fyr- ir nokkram áram vora gerðir tveir leiðigarðar til þess að veija byggð- ina fyrir flóðum úr svokölluðu Innra- Bæjargili. Það er næsta gil utan við Skollahvilft sem flóðið féll úr 26. október sl. Það er Græðir sf. á Flateyri sem sér um framkvæmdina fyrir rúmar sex millj. króna eða 75% af kostnaðaráætlun. „Framkvæmdum við stækkunina á að vera lokið fyrir 20. desember ef veður hamlar ekki vinnu,“ sagði Kristján. Kjúklingaveröstríðið: Kaupir einn og færð annan frían „Við höfum verið ódýrastir og viljum vera þaö áfram. Við sögð- umst ætla að gera eitthvað fyrir okkar viðskiptavini þegar við ætt- um afmæli og ákváöum að taka ekki þátt í verðslagnum fram að þessu. Nú er hins vegar komið að því að við látum vita af okkur og bjóðum fólki frían kjúklingabita með hveij- um bita sem það kaupir,“ sagði Bjami Þór Þórhallsson hjá Boston- kjúklingum en hann heldur upp á eins árs afmæli staðarins mánudag, þriðjudag og miðvikudag með þessu tilboði. „Svona lagað hefur ekki verið gert áður og ég ætla að enda þess kjúklingaveislu sem staðið hefur að undanförnu með þessu,“ segir Bjami. Akranesbær: Hallinn eykst þó tekjur aukist Daníel Ólafsson, DV, Akranesi: í nýrri rekstrarspá sem gerð hefur verið fyrir bæjarsjóð Akraness kemur fram að áætlað er að bærinn fari 30 millj. króna fram úr fjárhagsáætlun sem gerð var fyrir þetta ár. Gísli Gíslason bæjarstjóri sagði á bæjarstjórnarfundi 14. nóv. að á móti kæmi að tekjur bæjarsjóðs myndu aukast. Þær voru um 500 milljónir á síðasta ári og ekki væri óvarlegt að áætla að bærinn færi 15-20 milljónir fram úr fjárhagsáætlun. Þeim tilmæl- um hefur verið beint til forstöðu- manna stofnana að þeir haldi sig inn- an fjárhagsáætlunar. Gísli sagði jafnfrámt að á næsta ári yrði að snúa blaðinu við og byrja að vinna að því að lækka skuldir. .-to £ 'O Lausnin fundin! Securitas býður öllum heimiium á íslandi að fá að láni, án nokkurs stofnkostnaðac fullkomið öryggiskerfi. Heimavörn Securitas er alsjáandi auga sem hleypir engum óboðnum gestum inn til þín og er tengt við stjórnstöð Securitas allan sólarhringinn, 365 daga á ári. Tryggðu heímilinu vörn gegn ínnbrotum og bruna og færðu fjölskyldunni aukið öryggi í jólagjöf. beimavörn SECURITAS Sími 533 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.