Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Blaðsíða 44
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Viö tökum viö fréttaskotum alian sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995
Fimm manns handtekin eftir grófan þjófnað í Leifsstöð:
Oðu inn á öryggissvæði og
tóku ferðatöskur og póstpoka
- enginn varð þjófanna var og málið upplýstist fyrir tilviljun
Fimm manns, fjórir karlmenn
og ein kona, voru handtekin í gær
eftir að þjófnaður komst upp fyrir
tilviljun á tveimur ferðatöskum og
tveimur póstpokum af öryggis-
svæði í Leifsstöð. Málið er allt hið
skrýtnasta þar sem þjófamir fóru
inn um bilaða loku á færibandi
innritunarborða og inn í geymslu
sem á vera algjörlega öruggt
svæði. Enginn varð þjófanna var
en starfsfólk Flugleiða var ekki
komið til vinnu þegar þetta átti sér
stað upp úr klukkan fjögur aðfara-
nótt sunnudagsins.
Samkvæmt heimUdum DV fóru
tveir þjófanna inn um hina biluðu
loku og tóku með sér tvo póstpoka,
annan frá New York og hinn frá
Reykjavík, sem áttu að fara með
vél tU Lúxemborgar, og tvær ferða-
töskur. Þjófunum tókst að rífa upp
aUan póst sem í pokunum var og
tæta bréf í leit aö peningum en
ekki er vitað hversu mikið þeir
höfðu upp úr krafsinu. Þó er talið
að þeir hafl náð allmiklu fé og
fundust m.a. 80 mörk á einum
mannanna. Einnig rifu þjófarnir
upp aðra ferðatöskuna í Leifsstöð
og hirtu aUt fémætt úr henni. Hina
töskuna tóku þeir meö sér til
Keflavíkur. Annar póstpokinn
fannst síðan á víðavangi utan við
ilugstöðina en hinn í ruslafotu í
Leifsstöð. Bréf og bögglar vora illa
farin.
Það var hins vegar fyrir kjána-
skap þjófanna og glöggskyggni lög-
reglumanna að málið komst upp.
Lögreglumenn á eftirlitsferð í
Keflavík komu að fólkinu þar sem
það var að brjóta upp aðra ferða-
töskuna. Þegar þeir athuguðu mál-
ið kom í ljós að hér var um þjófn-
aðarmál að ræða og var þá haft
samband við lögregluna í Leifsstöð
en þar hafði þá hin taskan fundist
skömmu áður. Enginn setti þann
fund í samband við þjófnað eða
neins konar Ulvirki. Munir úr
þeirri tösku fundust hins vegar á
einum þjófinum og einnig pening-
ar úr bréfum. yið leit fundust póst-
pokamir skömmu síðar.
Þegar málið var kannað kom í
ljós að fólkið hafði ætlað sér úr
landi eftir að hafa stolið töskunum
og riflð upp póstpokana. Það hélt
því til í flugstöðinni þar tU sölu-
skrifstofa Flugleiða opnaði en þá
óskaði það eftir að kaupa farseðla
tU einhvers staðar þar sem ekki
væri vegabréfaskylda. Ekkert sem
í boði var virtist henta og gengu
þjófarnir út úr flugstöðinni með
ferðatösku í hendi, eins og hverjir
aðrir ferðamenn, og tóku leigubU
til Keflavíkur.
Að sögn Óskars Þórmundssonar,
yfírlögregluþjóns á Keflavíkurflug-
veUi, á flugstöðin að vera öryggis-
held og það því með ólíkindum að
þjófarnir skyldu komast þarna inn.
Hugsanlegt er að lokinn að tösku-
geymslunni hafi verið bUaður í
einhverja daga. „Þetta á ekki að
vera hægt,“ sagði Óskar. „Það sem
er ömurlegast við þetta er að þama
var um póst að ræða og erfitt að
átta sig á hvort hann er aUur kom-
inn fram.“
Fólkið var í yfirheyrslum hjá
rannsóknardeild lögreglunnar í
Keflavík í aUan gærdag og fram á
kvöld. Fólkið, sem er um tvítugt,
hefur áður komið við sögu hjá lög-
reglunni. Mál þess verður síðan
sent tU viðeigandi yfirvalda.
-ELA
36 vetra hestur:
Svæfður
eftir að
hafa dreg-
ist á eftir
Hnífamál á ísafirði:
Málið tekiö
fyrir hjá %
dómara 0
flutninga-
vagni
Jón Benediktsson, DV, Hvolsvelli:
Sá sorglegi atburður gerðist þeg-
ar verið var að fiytja hest úr haga í
hesthús á fostudagskvöldið að aftur-
lúga hrökk af flutningavagni og
einn elsti hestur landsins, 36 vetra,
hrasaði með báða afturfætur á göt-
una. Hesturinn dróst nokkurra kUó-
metra leið með vagninum án þess
að ökumaðurinn tæki eftir því fyrr
en við bensínsöluskálann á Hvols-
veUi. Þar varð að svæfa hestinn.
„Hann var ansi skemmdur. Hann
hafði dregist eftir kerranni töluvert
langan spöl. Kerran stoppaði við
bensínstöðina hjá okkur og þar var
hann bara í blóði sínu. Hófarnir,
sérstaklega annar, voru eiginlega
búnir. Við hringdum strax í lögregl-
una og dýralækni en það var ekkert
hægt að gera við greyið," segir Ottó
Eyfjörð, starfsmaður bensínsölu-
skálans. -GHS
Úrtökumót fyrir heimsmeistaramótið í þolfimi, sem verður í desember, var haldið í Laugardalshöllinni í gærkvöldi.
Magnús Scheving sigraði í karlaflokki og var hann reyndar eini keppandinn í þessum flokki. í kvennaflokki sigraði
Unnur Pálmadóttir en mjótt var á mununum á milli hennar og Ásdísar Sigurðardóttur sem lenti í öðru sæti. Irma
Gunnarsdóttir hafnaði í þriðja sæti. Á myndinni fagna Magnús og Unnur þegar úrslit lágu fyrir. DV-mynd JAK
Norðmaður um tvítugt var hand-
tekinn aðfaranótt laugardags fyrir
utan Sjallann á ísafirði eftir að hann
hafði stungið íslending með hnífi í
lærið. Til átaka kom fyrir utan
skemmtistaðinn milli íslendinga og
Norðmanna sem voru í áhöfn norsks
togara sem var við bryggju á ísafirði.
Ekki var lögreglunni kunnugt um
hvers vegna átökin urðu og vildi
ekki viðurkenna að um Smugudeilur
hefði verið að ræða.
Ungi maðurinn sem fékk hnífst-
unguna hafði gengið á milli tveggja
manna til að stilla til friðar þegar
hann fann blóðið leka niður eftir fót-
um sér. Kallað var á lögreglu og
maðurinn fluttur á sjúkrahús.
Meiðsli hans munu ekki vera alvar-
leg.
Norðmaðurinn fékk að dúsa í
fangageymslu til morguns en var síð-
an í yfirheyrslum í allan gærdag.
Mál hans verður tekið fyrir hjá dóm-
ara fyrir hádegi i dag. Togarinn, sem
maðurinn er á, átti að leggja úr höfn
klukkan sex í gærdag en því hefur
verið írestað þar til dómari hefur
kveðið upp sinn dóm yfir honum.
-ELA
Verður nú að senda
jólapóstinn til út-
landa með skipi!
Veðrið á morgun:
Smáél við
austur-
ströndina
A morgun verður skýjað
suðvestan- og vestanlands en
hægviðri eða norðangola í
öðrum landshlutum. Smáél
verða við austurströndina
en skýjað annars staðar. Hiti
verður víðast yfir frost-
marki, hlýjast á höfuðborg-
arsvæðinu.
Veðrið í dag er
á bls. 52
i
i
i
i
i
i
i
i
i
gi 1-|
STmi: 5 886 886 Fax: 5 886 888
Grœnt númer: 800 6 886
i
LVTIW
alltaf á
Miðvikudögum