Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Qupperneq 21
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995
21
Fréttir
Akureyringar í atvinnu-
rekstri á Seyðisfirði
Jóharm Jóhannsson, DV, Seyðisfirði:
Nýlega keypti SR-mjöl það sem
eftir stóð af verksmiðju Vestdals-
mjöls eftir snjóflóðið í marsmánuði
og skömmu áður höfðu þeir keypt
eignir frystihúss Norðursíldar af
Landsbankanum. Frystihúsið hafði
ekki verið starfrækt um nokkurt
árabil.
Ungir menn, Sverrir Hermanns-
son og Örn Óskarsson, tóku eignina
á leigu. Hófu þeir lagfæringar og
endurbætur með loðnu- og sildar-
frystingu í huga sem framtíðarverk-
efni.
Fjármögnun á frystibúnaði og
tækjum mun eitthvað hafa vafist
fyrir þeim fjárhagslega. Fjármögn-
unin reyndist þeim ofviða og fengu
þeir þá Útgerðarfélag Akureyringa
til samstarfs við sig. Stofnað var
einkahlutafélag sem nefnt er S.Ú.A.
og ætlar það að kaupa tæki og ann-
an búnað og hefja frystingu og
skylda starfsemi á næstunni.
Nýtt tölublað
á næsta blaðsölustað
María Sigurðardóttir
skyggnilýsingamiðill í viðtali.
Kombúkha-sveppurinn.
Nýir tímar, vandað
tímarit um það sem skiptir máli.
Áskriftarsími:
581-3595.
Áskriftartilboð:
Bókin um áruna eftir Edgar Cayce.
Sýnir Ulfs Ragnarssonar-iæknis
Tímamóta-
samningur
Akraness og
Borgarbyggðar
Daniel Ólafsson, DV, Akranesi:
Nú nýverið tókust samningar á
milli Akraneskaupstaðar og Borgar-
byggðar um að íbúar skuli njóta
sömu greiðslukjara fyrir þá þjón-
ustu sem sveitarfélögin veita í
hvoru sveitarfélaginu sem er.
Ef íbúi í öðru hvoru sveitarfélag-
anna þarf að sækja þjónustu í hitt
greiðir hann sama verð og ef um
íbúa heimabyggðar væri að ræða. í
þessu sambandi er veriö að tala um
gjald fyrir þjónustu - fyrir tónlistar-
skóla, leikskóla, heimilishjálp,
vinnuskóla og fleira.
Hornaflörður:
Fundum bæjar-
stjórnar sjón-
varpað
Júlía Imsland, DV, Hö£n:
Sjónvarpsfélag Hornafjarðar hef-
ur verið með útsendingar frá tveim-
ur siðustu fundum bæjarstjórnar
Hornaíjarðar og geta allir, sem
tengdir eru kapalkerfi sjónvarpsfé-
lagsins, fylgst með fundunum á
SkjáVarps-rásinni.
„Þetta hefur mælst vel fyrir og
hjálpar okkur til að viðhaida form-
festu og hefðum slíkra funda.
Fólk virðist fylgjast vel með út-
sendingunum sem verið hafa og ég
vona að sjónvarpsfélagið haldi
þessu áfram. Þetta er góður vett-
vangur til að tengja böndin milli
íbúa og bæjarstjórnar," sagði Gísli
Sverrir Árnason, forseti bæjar-
stjórnar, við DV.
Skólaskrif-
stofa í Eyjum
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum:
Vegna væntanlegrar yfirfærslu á
rekstri grunnskóla frá ríki til sveit-
arfélaga, sem Alþingi hefur sam-
þykkt að eigi sér stað 1. ágúst 1996,
hefur bæjarráð Vestmannaeyja sam-
þykkt að koma á fót skólaskrifstofu.
Gengið er þá út frá því að samn-
ingar takist við ríkisvaldið sem
tryggi viðunandi fjárveitingar eða
tekjustofna til að mæta auknum
verkefnum sveitarfélaganna í land-
inu.
„í þessu felst að Vestmannaeyja-
bær verður ekki aðili að rekstri
Fræðsluskrifstofu Suðurlands eftir
að yfirfærsla á grunnskólum til
sveitarfélaga hefur komið til fram-
kvæmda," segir í tillögunni.
Arnar Sigurmundsson, formaður
skólanefndar grunnskóla, sagði
þetta mjög jákvætt. „Flutningur
grunnskóla frá ríki á eftir að efla
skólastarf í Vestmannaeyjum og það
er eðlilegt framhald af því að hér
verði sett á stofn skólaskrifstofa.
Við stofnun skrifstofunnar verða til
eitt til tvö störf sem er mjög mikil-
vægt fyrir okkur,“ sagði Arnar.
-----------7//,
lilboð yikunnar
* Tímamótatilbofi vepð með VSK.
PREDATOR
LEO
ÞaíS skiplir máli
\ ift kaiip á mur<'nii(\limurtölvii
aft (liskiiriiui sr nójíii (illiijíiir...
Ilrr hjnóiiin viö Sra"ali* (lisk
mró 5100 siiiniiii^iiin
á míii(itii (\\l*M)
<mrö snknarliraúa 10.5 msrk.
Pentium 90Mhz
8 MB RAM
1080 MB diskur
15" litaskjár
105 hnappa Windows'95
lyklaborð
Mús
Meiriháttar Creative SBL4X
margmiðlunarpakki-12 titlar
Verð aöeins
Clmrk Yrajírr's Air ('onihat
lloiljj; Knn«í Mahjnil'í l*rn
Hoptlloiis II
Tlir Svajír Kinpire
Srvrn (’itirs nl' (told
Shadowrastrr
Sparr Hnlk
liltima VII-Tlir Bluek Catr-
Ultiina Undrrworld
Wiiijí (iOiiiniaiidiM'- \radrmy
Grolirr Midtimrdia Knryrloprdia
Creative Utilitv
MEDALIST
Elsta tölvufyrírtæki á Islandi
MULTlMEDIAffC41>F
Á L L Y
Hannað fyrir
Microsoft
Windows 95