Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Síða 26
38
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995
Fréttir
DV
Samningarnir milli bæjarstjóra og formanns bæjarráðs í Kópavogi:
Storka leikreglum og
sýna lítilsvirðingu
Brauðgerð Kr. Jónssonar á Akureyri:
Eitt laufabrauð á hvert
mannsbarn í landinu
„Þessir samningar hafa aldrei
veriö lagðir fram í stjórnkerfi bæj-
arins. Bæjarstjóra hefur aldrei veriö
heimilað að ganga til neinna samn-
inga. Þeir taka þetta bara upp hjá
sjálfum sér og setja það svo niður í
skúffu. Þetta sýnir að þeir storka
öllum venjulegum leikreglum og
æðsta valdi bæjarins, hæjarráði og
bæjarstjóm, er sýnd einstök lítils-
virðing með því að haga sér á þenn-
an hátt,“ segir Kristján Guðmunds-
son, bæjarfulltrúi í Kópavogi.
Á bæjarstjómarfundi í Kópavogi
nýlega voru lögð fram svör við fyr-
irspurnum um þrjá verksamninga
Sigurðar Geirdals bæjarstjóra við
Gunnar I. Birgisson, formann bæj-
arráðs og forstjóra Klæðningar, um
framkvæmdir við Kópavogshöfn.
Þar kemur fram að Klæðning hefur
þegar fengið um 26 milljónir króna
greiddar fyrir verkið án þess að því
sé lokið. Þegar annar samningurinn
var gerður var búið að greiða
Klæðningu um níu milljónir króna
umfram fyrsta samninginn.
„Maður spyr sig að því hvar sé
heimild til slíkra greiðslna. Hún er
ekki fyrir hendi. Mönnum hefði ver-
ið í lófa lagið að kalla saman auka-
bæjarráðsfund og fá það samþykkt í
krafti síns valds þó við væmm á
móti því. Svo hefðu menn getað deilt
um hvort samningurinn væri góður
eða vondur,“ segir Kristján.
„Mér finnst að menn eigi að gæta
sín mjög vel 1 öllum svona viðskipt-
um, hvort sem það eru sveitar-
stjórnarmenn eða menn í opinber-
um stöðum. Það er bara frumregla.
Þess vegna hefur verið fúll sam-
staða um það í Reykjavík að setja
reglur þannig að menn geti stundað
viðskipti með fullum sóma,“ segir
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgar-
fulltrúi og formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga.
í Reykjavik gildir sú meginregla
að verk yfir 500 þúsundum króna
séu boðin út eða verðkannanir gerð-
ar en í sérstökum tilfellum er samið
beint gegnum Innkaupastofnun
Reykjavíkurborgar. Öll verk yfír 30
milljónum króna þurfa staðfestingu
frá borgarráði. -GHS
hjá Brauðgerð Kr. Jónssonar á
Akureyri, en það fyrirtæki er
langstærst á sviði laufabrauðsfram-
leiðslu hér á landi og löng hefð inn-
an fyrirtækisins fyrir þeirri fram-
leiðslu.
Kjartan segir að „laufa-
brauðsvertíðin“ standi yfir frá 20.
nóvember og alveg fram á Þorláks-
messu. „Það hefur tognað úr þessu
eftir að við fórum einnig að selja
laufabrauðið steikt, en ekki einung-
is útflattar kökur sem eftir er að
skera og steikja. Það er mikill áhugi
fyrir steikta laufabrauðinu, bæði
hjá verslunum og veitingahúsum,
og steikta laufabrauðið kemur sem
hrein viðbót hjá okkur,“ segir Kjart-
an.
Hann segir verð á laufabrauði í
verslunum ekki vera á uppleið.
Heildsöluverðið sé það sama og í
fyrra og svo bítist verslanir um að
bjóða sem lægt verð. „í krónutölu
hefur verðið á laufabrauði lækkað
frá því sem var fyrir nokkrum
árum,“ segir Kjartan.
Unnið við steikingu á laufabrauði hjá Brauðgerð Kr. Jónssonar á Akureyri.
DV-mynd gk
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég reikna með að við munum
selja vel yfir 200 þúsund laufabrauð
nú fyrir jólin, og stefnan er að selja
eitt laufabrauð á hvert mannsbarn í
landinu," segir Kjartan Snorrason
Hljómbær • Skeifunni 7 • 533
0PNUNARTILB0D
ðHPIOIMEER'
Verð Afsl. Stagr.
geislaspilari m/fjarstýringu, PD 203 28.200 6.300 21.900
flDpiOMeerrhljómtækjasamstæða, N-250 79.750 19.850 59.900
SHARpferðatæki með geislaspilara, QTCD 24.875 7.975 16.900
SHARPferðatæki, WQT205 13.172 8.272 4.900
SHARpmyndbandstæki, VCA39 43.380 13.480 29.900
VCA 39
WQT 205
Kjallaragrein
Ásthildar
Ólafsdóttur
- röng myndbirting
Þau leiðu mistök urðu við vinnslu
kjallaragreinar eftir Ásthildi Ólafs-
dóttur í DV föstudaginn 24. nóvemb-
er að röng mynd birtist af Ásthildi.
Eru báðar konurnar hér með beðn-
ar velvirðingar. - Hér birtist rétta
myndin af Ásthildi Ólafsdóttur
skólaritara.