Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Side 36
48 MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995 Leikhús Afmæli LEIKFÉLAG REYKJAVÍ.KUR SÍMI 568-8000 STÓRA SVIÐ: LÍIMA LANGSOKKUR oftir Astrid Lindgren Lau. 2/12 kl. 14, sun. 3/12 kl. 14, sun. 10/12 kl. 14, lau 30/12 kl. 14. LITLA SVIÐ KL. 20: HVAÐ DREYMDI ÞIG, VALENTÍNA? eftir Ljúdmílu Razumovskaju Lau. 2/12, föst, 29/12, lau. 30/12. STÓRA SVID KL. 20: TVÍSKINNUNGSÓPERAN Gamanleikrit með söngvum eftir Ágúst Guðmundsson Aukasýning 2/12. Þú kaupir einn miða, færð tvo! STÓRA SVIÐ KL. 20: VIÐ BORGUM EKKI, VIÐ BORGUM EKKI eftir Dario Fo Aukasýning föstud. 1/12. Þú kaupir einn miða, færð tvol Samstarfsverkefni við Leikfélag Reykjavíkur: Barflugurnar sýna á Leynibarnum kl. 20.30: BAR PAR eftir Jim Cartwright Fös. 1/12, uppselt, iau. 2/12, fáein sæti laus, fös. 8/12, lau. 9/12, lau. 26/12. STÓRA SVIÐ KL. 20.30: Rokkóperan Jesús Kristur SUPERSTAR eftir Tim Rice og Andrew Lloyd Webber Fim. 30/11, uppselt, allra síðasta sýning! Tónleikaröö LR Á stóra sviði, alltaf á þriöjudögum kl. 20.30: Bubbi Morthens þri. 28/11, miðaverð 1.000. Til jólagjafa fyrir börnin: Línu-ópal, Línu-bolir og Línu-púsluspil. Miðasalan er opin alla daga frá kl. 13-20 nema mánudaga frá kl. 13-17, auk þess er tekið á móti miðapöntunum í sima 568-8000 alla virka daga. Greiðslukortaþjónusta. Gjafakortin okkar, frábær tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavíkur - Borgarleikhús Faxnúmer 568-0383. ÍSLENSKA ÓPERAN ---11111 Sími 551-1475 CXRMINA Lau. 2/12 kl. 21.00. mm i BUTTERFLY Sýn. fös. 1/12 kl. 20. Miðasalan er opin kl. 15-19 daglega nema mánudaga, sýningardag til kl. 21. SÍMI 551-1475, bréfasími 552-7384. GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA ÞJÓDLEIKHÚSIÐ STÓRA SVIÐIÐ KL. 20.00: PREK OG TÁR eftir Ólaf Hauk Símonarson Fid. 30/11, uppselt, id. 2/12, uppselt, föd. 8/12, örfá sæti laus, Id. 9/12, örfá sæti laus. GLERBROT eftir Arthur Miller 5. sýn. fös. 1/12, 6. sýn. sud. 3/12, 7. sýn. fid. 7/12. KARDEMOMMUBÆRINN eftir Thorbjörn Egner Ld. 2/12, uppselt, sud. 3/12, uppselt, Id. 9/12, uppselt, sud. 10/12, uppselt, Id. 30/12, uppselt. LITLA SVIÐIÐ KL. 20.30: SANNUR KARLMAÐUR eftir Tankred Dorst Mvd. 29/11, föd. 1/12, næstsíðasta sýning, sud. 3/12, síðasta sýning. SMI'ÐAVERKSTÆÐIÐ KL. 20.00: TAKTU LAGIÐ, LÓA! eftir Jim Cartwright Á morgun, aukasýning, laus sæti, fid. 30/11, uppselt, Id. 2/12, uppselt, mvd. 6/12, laus sæti, föd. 8/12, uppselt, Id. 9/12, uppselt, sud. 10/12, uppselt. Ath. SÍÐUSTU SÝNINGAR. e' Gjafakort í leikhús - sígild og skemmtileg gjöf! LISTAKLÚBBUR LEIKHÚSICJALLARANS Mád. 27/11 kl. 21.00. „Skáldkonur fyrri alda" Dagskrá í umsjá Helgu Kress. Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Einnig síma- þjónusta frá kl. 10 virka daga. Greiðslukortaþjónusta. Fax: 561 1200 SÍMI MIÐASÖLU: 551 1200 SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204 VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ! Fréttir Jólagjafir til barna í Bosníu Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum: Alþjóðastofnunin Friður 2000 hefur fengið til liðs við sig ís- lenska jólasveininn til að safna pökkum og færa stríðshrjáðum börnum í Sarajevo jólagjafir. Send verður þota, sem flugfélag- ið Atlanta lánar tii flugsins, til Bosníu 21. desember með jóla- pakkana. „Með jólagjöfum til Bosníu munum við færa jólaboðskapinn með friði og gjöfum til stríðs- hrjáðra bama sem mörg hafa misst vini og vandamenn í blóð- ugum deilum. Viö munum sýna þeim samhug okkar um þessi jól og gefa þeim framtíðarvon með boðskap okkar og kærleika,“ sögðu jólasveinarnir í gær á Keflavíkurflugvelli. Án efa munu jólapakkarnir gleðja fjölmörg böm í Bosníu sem eiga um sárt að binda eftir hörmungar styrj- aldar sem hefur staðið á fjórða ár. Friður 2000 tekur á móti pökk- um aö Austurstræti 17, Reykja- vík. Einnig opna pakkamóttökur á ýmsum stööum á Reykjavíkur- svæðinu og landsbyggðinni um mánaðamótin. Þá óskar Friöur 2000 eftir sjálfboðaliðum til að- stoðar við undirbúning flugsins og efnir til fundar á Hótel Borg næstkomandi sunnudag kl. 14, Ramanic Cooray Braim Murial Ramanic Cooray sem starfar við heimilis- hjálp, Fífumýri 1, Garðabæ, varð fertug í gær. Starfsferill Ramanic fæddist í Kandy á Sri Lanka og ólst þar upp. Hún er elst níu systkini og varð snemma að gæta systkina sinna. Ramanic giftist er hún var tuttugu og eins árs og á hún tvær dætur. Til að sjá fjölskyldu sinni farborða og mennta dætur sínar hefur hún unnið almenn heimilisstörf sl. tíu ár, langt frá sínum nánustu og sínum heima- högum. Ramanic er mikils metin hjá þeim sem hana þekkja fyrir heið- arleika, traust og gott skap. Fjölskylda Dætur Ramanic eru Renuka Belegala, f. 11.8. 1979, og Harsani Ramanic Cooray. Belegala, f. 13.10. 1982. Systur Ramanic hér á landi eru Sirani Cooray, f. 15.10. 1961, og Manel Cooray, f. 13.2.1966. Foreldrar Ramanic: Cystopar Martinu Cooray, f. 16.7. 1934, d. 22.8. 1983, smiður, og Nandawathi Cooray, f. 8.4.1936, kennari. Menning Nýju fötin keisarans I Háskólabíói voru haldnir tónleikar með Sinfóníuhljómsveit ís- lands síðastliðið fimmtudagskvöld. Á efnisskránni voru verk eftir Ravel, Beethoven og Haydn. Stjómandi var Keri-Lynn Wilson en einleikari á píanó Frederick Moyer. Nokkra eftirtekt vakti í fjölmiðlum fyr- ir þessa tónleika að hljómsveitarstjórinn var kvenkyns. Enda var troðfullt í salnum; hingað til hafa karlár nefnilega svo til einok- að stéttina. Það er að- eins nú hin síðari ár að ein og ein kona hef- ur verið að hasla sér völl á þessum vett- vangi. Strax í upphafi tón- leikanna var greinilegt að Keri-Lynn Wilson er enginn viðvaningur. Hún hélt á tónsprotanum með styrkri hendi og vissi nákvæmlega hvað hún var að gera. Fyrsta verk efnisskrárinnar var líka ágætlega flutt en það var sinfónía nr. 96 eftir Jósef Haydn. Túlkun Wilsons var lífleg og kraftmikil; þar var hvergi dauðan punkt að finna. Um leið var nákvæmnin í fyrirrúmi, og var unaður á að hlýða. Næst á dagskrá var Le tombeau de Couperin eftir Maurice Ravel. Verkið er upphaflega samið fyrir píanó en Ravel umskrifaði það fyrir hljómsveit, eins og hann gerði reyndar við fleiri pianóverk - bæði sín og annarra. Almennt má segja um Frederick Moyer lék einleik á píanó með Sin- fóníuhljómsveitinni. Tónlist Jónas Sen tónlist hans aö hún sé mjög glæsi- leg en að líka megi skynja í henni ákveðna tilfinningalega fjarlægð. Einmitt þetta var einkennandi fyr- ir flutning Sinfóníunnar umrætt kvöld; leikur hennar var tær og dá- lítið kuldalegur, sem er við hæfi þegar þessi tónlist er annars vegar. Mikið mæðir á blásurunum í verkinu og stóðu þeir sig með stakri prýði. Síðasta atriöið á efnisskránni var svo píanókonsert nr. 5 opus 73 eft- ir Beethoven. Hann er gjaman kallaður Keisarakonsertinn því um hann hefur verið sagt að hann sé keisari allra píanókonserta. í öllu falli er hann geysilega vinsæfl, eins og flest annað eftir Beethoven. Því er orðið háflhættulegt að spila hann opinberlega; hann hefur verið leikin svo oft af fremstu píanóleikurum heims að erfitt er að gera betur en þeir. Frederick Moyer er reyndar ágætur á slaghörpuna; hann hefur mikla leiktækni en er dálítið meðvitaður um hana. Að minnsta kosti kaus hann að leika fyrsta og síðasta þátt konsertsins hraðar en oft heyr- ist, og með miklum göslagangi. Væntanlega ætlaði hann þannig að „slá í gegn“ og sýna landanum hversu flinkur hann væri. En því miður'- flutningurinn varð bara yfirborðskenndur; maður fann ekki fyrir dýpt- inni sem einkennir tónlist eins mesta snillings sem uppi hefur verið. f&íll ðSÍIl 9 0 4 -17 0 0 Verð aðeins 39,90 mín. 2J Handbolti 3 j Körfubolti 4 j Enski boltinn _5j ítalski boltinn 6 j Þýski boltinn 7 j Önnur úrslit 8 NBA-deildin JLJ Vikutílboð stórmarkaðanna 2 Uppskriftir 1 [ Læknavaktin H Apótek 1\ Dagskrá Sjónvarps 2| DagskráStöðvar2 3j Dagskrá rásar 1 41 Myndbandalisti vikunnar -topp 20 _5j Myndbandagagnrýni 6 j ísl. listinn -topp 40 7 [ Tónlistargagnrýni 8 Nýjustu myndböndin 9 i Gervihnattardagskrá Al Krár 21 Dansstaðir 3 j Leikhús 4j Leikhúsgagnrýni _5j Bíó 61 Kvikmyndagagnrýni iMfiffltiiSBM ry Lotto _2j Víkingalottó 31 Getraunir 904-1700 Verð aðeins 39,90 mín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.