Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1995, Page 40
52
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1995
Okkar maður í NATO, Uffe Elle-
mann-Jensen.
Að finna ein-
hvern annan
„Við stöndum við okkar stuðn-
ing við Uffe Ellemann. Það geng-
ur ekki til lengdar að einstaka
NATO-þjóðir séu að reyna að
finna einhvem annan bara til að
finna einhvern annan.“
Halldór Ásgrímsson, ÍTímanum.
Blóðugir upp að öxlum
Meðan ráðamenn eru blóðugir
upp að öxlum við slátrun á þeim,
sem hlustuðu, trúðu og fram-
kvæmdu, heyrist að skinnaverð
sé á uppleið."
Tryggvl Skjaldarson, í Alþýðublaðinu.
Ummæli
Orkestri
Ravel þykir einn mesti or-
kestri (vonandi er slettan brúk-
leg; ekki er hljómsveitarbúnings-
færandi skárra).“ ,
Ríkarður Örn Pálsson, í Morgunblað-
inu.
Hetjusaga
„Líklega er eins mikið til í að
Halldór Laxness sé söguhetja
þarna og að Ólafur Thors hafi
verið söguhetja í Atómstöðinni."
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
í Tímanum.
Heill kvennakór
„Er ekki heill kvennakór
nefndur? Það er engin farin að
syngja sóló ennþá.“
Guðrún Pétursdóttlr, um forsetafram-
boð, í Alþýðublaðinu.
Belgaum var einn síðasti síðu-
togarinn sem keyptur var til
landsins á þriðja ártug aldarinn-
ar.
Fyrstu togarar
á íslandi
Það var 1899 sem togaraútgerð
hefst hér á landi. Það ár gerði
enskur maður, Pike Ward, út
togarann Utopiu frá Hafnarfirði.
Sama ár tók útgerðarfélagið ísa-
fold til starfa. Það hafði aðal-
bækistöð á Akranesi og gerði út
sex togara. Þessi útgerð var al-
mennt kölluð Vidalínsútgerðin
því að aðalmaður hennar hér á
landi var Jón Vídalín konsúll.
Fyrsta tilraun íslendinga til
togskipaútgerðar var gerð
1901-1902. Að henni stóð Valgarð
Ólafsson Breiðijörð sem keypti
90 rúmlesta seglskip á Englandi
Blessuð veröldin
vorið 1901 ásamt botnvörpubún-
aði. Nefndi hann skipið Önnu
Breiðfjörð. Árið 1905 keyptu
nokkrir útgerðarmenn tólf ára
gamlan togara, Coot, 151 brúttó-
lest að stærð og gerðu út í Hafn-
arfirði. Hann var fyrsta botn-
vörpuskipið í íslenskri eign.
Á meðan á heimsstyrjöldinni
fyrri stóð steðjuðu ýmsir erfið-
leikar að útgerðinni, einkum var
erfitt um útvegun útgerðarvöru.
Fremur kalt í veðri
Yfir landinu og hafinu umhverfis
er hægfara 1025 mb háþrýstisvæði
en yfir Bretlandseyjum 988 mb
lægð. Það er ekki gert ráð fyrir
miklum breytingum í veðri næsta
sólarhringinn, áfram hægviðri og
úrkomulaust, en fremur kalt verður
skýjað, frost 4 til 9 stig. Gert er ráð
fyrir að fyrri part vikunnar verði
hægviðri og að mestu úrkomulaust
á landinu, en þegar líða tekur á vik-
una gengur í vaxandi suðvestan- og
síðan sunnanátt með snjókomu eða
slyddu vestast á landinu.
Veðrið í dag
í veðri, einkum í innsveitum. Á höf-
uðborgarsvæðinu verður austan-
gola eða hægviðri og lengst af létt-
Sólarlag í Reykjavík: 15.58.
Sólarupprás á morgun: 10.35.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 12.11,
Árdegisflóð á morgun: 10.40.
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 12 í gær:
Akureyri
Akurnes
Bergsstaðir
Bolungarvík
Egilsstaðir
Keflavíkurflugvöllur
Kirkjubœjarklaustur
Raufarhöfn
Reykjavíic
Stórhöfói
Bergen
Helsinki
Kaupmannahöfn
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
Amsterdam
Barcelona
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
Los Angeles
Lúxemborg
Madrid
Malaga
Mallorca
New York
Nice
Nuuk
Orlando
París
Róm
Valencia
Vín
Winnipeg
alskýjað
alskújað
skýjaó
alkýjaó
alskýjaó
hálfskýjaö
léttskýjað
skýjað
léttskýjað
skýjað
rigning
súld
þokumóða
þokumóða
þokumóða
alskýjað
léttskýjað
léttskýjað
skýjað
þokumóða
skýjað
þokumóða
þokumóöa
rigning
þokumóða
skýjað
skýjaö
skýjað
léttskýjað
skýjaó
skýjað
skýjað
þokumóða
rigning
skýjað
léttskýjað
frostúði
skýjað
-8
0
-8
1
-P
-4
-2
-4
-6
1
8
1
5
7
4
4
12
16
-3
8•
4
6
4
10
14
7
9
15
16
3
12
-2
8
10
15
17
-2
-10
Logi Úlfarsson, framkvæmdastjóri íslensks markaðar:
Spurningin er aðeins hvenær
stöðin verður einkavædd
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
„Það er mín skoðun að flugstöð-
in verði einkavædd. Spumingin er
aðeins hvenær. Hún er mun betur
komin í höndum einkaaðila. Ég
vona að í þessari umræðu verði
stigin nokkur skref í rétta átt,“ seg-
ir Logi Úlfarsson, framkvæmda-
stjóri íslensks markaðar í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflug-
velli.
Logi hóf störf hjá fyrirtækinu
1987 og sá meðal annars um bók-
Maður dagsins
hald. Hann tók við stööu fram-
kvæmdastjóra 1990: „Starfið er
mjög skemmtilegt og krefjandi,
alltaf eitthvað spennandi að gerast.
Ég er með úrvalsmannskap og
góða stjórn sem gerir starfið enn
áhugaverðara. Þetta er mjög sam-
stilltur og góður hópur sem er bú-
inn að vinna lengi saman.“
íslenskur markaður er eingöngu
með íslenskar vörur. Logi segir
það bundið í samningi og skýrt
tekið fram að í íslenskum markaði
séu eingöngu íslenskar vörur. Frí-
höfnin sé hins vegar með erlendar
vörur. Logi segir verslunina hafa
gengið mjög vel undanfarin ár:
„Selt er fyrir 270 milljónir á ári.
Það var minni sala í byrjun eftir
að við fluttum í flugstöðina en meö
fjölgun farþega og fjölbreyttara úr-
vali hefur þetta veriö upp á við.“
Logi er mjög ánægður með þær
íslensku vörur sem þeir selja. „Við
finnum greinilega fyrir því að við-
skiptavinir okkar eru ánægðir
með verslunina og þær vörur sem
eru á boðstólum þar, en það má
segja að íslenskar vörur sem seld-
ar eru hjá okkur séu upp til hópa
úrvalsvörur."
Eins og gefur að skilja höfðar
verslunin fyrst og fremst til útlend-
inganna en Logi segir að breyting-
ar hafi átt sér stað: „Það er mjög
ánægjulegt að sjá hvað íslendingar
eru famir að versla mikið hjá okk-
ur og það er alltaf séð fyrir því að
eitthvað sé til sérstaklega fyrir þá.
Draumur okkar er að stækka
verslunarplássið og auka vöruúr-
val.“
Áhugamál Loga er körfubolti en
hann er stjórnarmaður í
Körfuknattleiksdeild Njarðvikur.
Þá fer hann mikið á skíði og hefúr
ánægju af að vera með fjölskyld-
unni. Eiginkona hans heitir
Brynja Vermundsdóttir, leikskóla-
fulltrúi hjá Reykjanesbæ, og eiga
þau þrjá syni, Bjarka, 17 ára,
Breka, 13 ára, og Boða, 7 ára.
Myndgátan
DV
Myndir
Sölva
á Sóloni
Á Sóloni íslandusi stendur yfir
sýning sem hefur yfirskriftina
Gull og gersemi eftir Sölva
Helgason (Sólon íslandus). Er
um að ræða litla myndaröð sem
er á veggjum neðri hæðar veit-
ingastaðarins. Sýning þessi er
sett upp í tilefni þriggja ára af-
Sýningar
mæli veitingahússins og þaö að
100 ár era frá því Sölvi Helgson
lést.
Verkin eru öll í einkaeign fjöl-
skyldu í Reykjavík. Myndheimur
Sölva er afar sérstæður,
mynsturkenndur og finlegur.
Þess má geta að málverk eftir
Sölva fyrirfinnast einnig á Þjóð-
minjasafni íslands.
Skák
Svörtum nægði einn leikur til
vinnings í meðfylgjandi stöðu, sem
er frá opnu móti í Forli á Ítalíu fyr-
ir skömmu. Sigurvegari mótsins,
rússneski stórmeistarinn Igor
Naumkin, hafði svart og átti leik
móti ítalska alþjóðameistaranum
Sarno. Kemur þú auga á vinnings-
leikinn?
38. - Hf3! og hvítur gafst upp.
Jón L. Árnason
Bridge
Af sex, pörum sem enduðu í fjór-
um spöðum á þessu spili í Politiken
stórmótinu í Danmörku, voru þrjú
sem fóru niður. Tvö pör spiluðu 4
hjörtu sem stóðu og eitt þrjú grönd
sem fór niður vegna þess að útspilið
var lauf. Ef vörnin sækir ekki
hjartastungu i fjórum spöðum bygg-
ist spilið fyrst og fremst á því að ör-
yggisspila spaðalitinn og missa ekki
nema einn slag á litinn. Þegar Dan-
inn Jens Auken var sagnhafi í fjór-
um spöðum í suður var hann fljótur
að spila spilinu niður. Útspil vest-
urs var laufgosi:
é ÁG54
V ÁKD92
* K5
4 32
* 2
V 8754
♦ G74
* KG1054
* K973
* G63
* Á93
* D76
Austur yfirdrap laufgosa á ás og
spilaði meira laufi, Auken setti
drottninguna heima og vestur drap
á kóng. Vömin spilaði þá tígli sem
Auken drap á kónginn í blindum.
Hann spilaði strax spaða á kónginn
og síðan meiri spaða og var þar með
búinn að tapa spilinu. Vandamálið
er að veija sig fyrir 4-1 legunni með
DlOxx hjá öðrum hvorum andstæð-
inganna. Ekki dugar að leggja niður
spaðaásinn og spila síðan spaða að
níunni. Sú spilamennska dugar ekki
ef vestur á DlOxx, því hann getur
spilað sig út á laufi og stytt blindan.
Hin rétta öryggisspilamennska er að
leggja niður spaðaásinn, spila sig
heim á tígulásinn og spila spaða að
gosanum. Sú spilamennska tryggir 3
slagi á spaða, án tillits til þess hvor-
um megin fjórliturinn liggur. í
þessu tilfelli verður svinað í gegn-
um spaðatíu austurs til að tryggja tí-
unda slaginn.
J
Fjallsrætur
Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn.
ísak Örn Sigurðsson