Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1996, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996
Viðskipti________________________________________________ ____________________________pv
Aðeins íslandsbanki lækkar vexti í dag:
Skrautsýning
virkaði ekki
- óbreytt staða frá hækkun, segir Stefán Pálsson
Vaxtabreytingar banka og sparisjóða
- kjörvextir skuldabréfalána 21. jan. - 21. febr. -
9.60
9.40
9.20
9,00
8,80
8.60
8.40
8.20
8,00
7,80
7,60
Þjóðhagsspá fyrir 1996:
3ja prósenta
hagvöxtur
Ný þjóðhagsspá Þjóðhagsstofn-
unar fyrir árið 1996 gerir ráð fyr-
ir 3% hagvexti á árinu. Þrátt fyr-
ir ágætar horfur um ytri skilyrði
í þjóðarbúskapnum varar stofn-
unin við of mikilli bjartsýni.
Stækkun álversins vegur þyngst
í aukinni atvinnuvegafjárfest-
ingu, sem ber uppi hagvöxtinn á
árinu. Aukningin er um 36%
milli ára.
Útgjöld til einkaneyslu eru
einnig talin aukast verulega eða
um 4%. Samtals er spáð 4,6%
aukningu þjóðarútgjalda milli ár-
anna 1995 og 1996. Reiknað er
með að viðskiptajöfnuður verði
neikvæður um 1,3 milljarða
króna á árinu en afgangur hefur
verið af þessum viðskiptum und-
anfarin tvö ár. Spáð er 2,5% verð-
bólgu og gert ráð fyrir að kaup-
máttur ráðstöfunartekna á mann
aukist um 3,5%. Talið er að störf-
um fjölgi um allt aö 2% og at-
vinnuleysi fari úr 5% í fyrra í
4,4% á þessu ári. Að mati Þjóð-
hagsstofnunar eru brýnustu
verkefni hagstjórnar á næstunni
að tryggja að áform fjárlaga um
minni ríkissjóðshalla gangi eftir
og að vextir verði lagaðir að
breyttum efnahagslegum for-
sendum.
Stjórnarkjör í
Verslunarráði
Á aðalfundi Verslunarráðs sl.
fimmtudag var kosið í nýja 19
manna stjórn ráðsins. Eins og
fram hefur komið var Kolbeinn
Kristinsson í Myllunni kjörinn
formaður I sérstakri kosningu,
hlaut 82% greiddra atkvæða.
Þeir sem náðu stjómarkjöri,
taldir upp eftir atkvæðamagni,
eru: Einar Benediktsson í Olís,
Sigurður Helgason hjá Flugleið-
um, Friðþjófur Ó. Johnson frá Ó.
Johnson & Kaaber, Páll Kr. Páls-
son í Sól, Kristinn Bjömsson í
Skeljungi, Gunnar Felixson í
Tryggingamiðstöðinni, Kristín
Guðmundsdóttir hjá Granda, Júl-
íus Vífill Ingvarsson hjá Ingvari
Helgasyni hf. og Bílheimum, Val-
ur Valsson í íslandsbanka, Hjör-
leifur Jakobsson frá Eimskip,
Sigurður Gísli Pálmason í Hofi,
Geir A. Gunnlaugsson í Marel,
Finnur Geirsson í Nóa- Síríusi,
Skúli Þorvaldsson frá Rek, Bogi
Pálsson í Toyota, Jenný Stefanía
Jensdóttir í Plastos, Gunnar Örn
Kristinsson í SÍF og Magnús
Tryggvason í ORA. -bjb
Fundir og ráðstefnur
Höfum
sali sem
henta
fyrir alla
fundi og ráðstefnur
höTETí^Iánd
5687111
Þrátt fyrir fund æðstu toppa rík-
isstjórnarinnar með Seðlabankan-
um sl. föstudag og fund með for-
ráðamönnum Búnaðarbankans sl.
mánudag þá lækkar aðeins einn viö-
skiptabanki vexti sína í dag, þ.e. ís-
landsbanki. Reiknað hafði verið
með að ríkisbankarnir hlustuðu á
áhrínisorð ríkisstjórnarinnar en
þpir virðast hafa látið þau sem vind
um eyru þjóta. Þótt enginn hafi vilj-
að viðurkenna að um handaflsað-
gerðir hafi verið að ræða til að
lækka vexti, þá er ljóst að „skraut-
sýningin", eins og Sighvatur Björg-
vinsson orðaði það, virkaði ekki.
Islandsbanki lækkar útlánsvexti
að meðaltali um 0,5 prósentustig og
er í dag með svipaða vexti, ef ekki
hærri, og fyrir hækkunina um-
deildu 11. febrúar sl. Þannig eru
óverðtryggðir kjörvextir almennra
skuldabréfalána 0,1 prósentustigi
hærri en fyrir hækkun hjá íslands-
banka.
Á meðfylgjandi grafi sést nánar
hvernig kjörvextir almennra
skuldabréfalána hafa þróast hjá
bönkum og sparisjóðum undanfar-
inn mánuð. Þann 1. febrúar hækk-
uðu allir vextina nema íslands-
banki. Landsbanki hækkaði sig um
1 prósentustig, Búnaðarbanki um
0,5 stig og sömuleiðis sparisjóðirnir.
Þann 11. febrúar hækkuðu allir
nema Landsbanki. íslandsbanki
hækkaði um 0,6 prósentustig, Bún-
aðarbanki um 0,25 stig og sparisjóð-
irnir um 0,5 stig. Eftir þessa breyt-
Viðskipti með hlutabréf sem fóru
um Verðbréfaþing íslands og Opna
tilboðsmarkaðinn í síðustu viku
námu tæpum 52 milljónum króna.
Það eru talsvert minni viðskipti en
verið hafa síðustu vikur. Viðskipti
frá 5-7 milljónum króna voru í félög-
um eins og íslandsbanka, Flugleið-
um, Eignarhaldsfélagi Alþýðubank-
ans, Olíufélaginu og Olís. Upplýs-
ingar um utanþingsviðskipti síð-
ustu viku lágu ekki fyrir í gær en
þau munu hafa verið óveruleg.
Þingvísitala hlutabréfa náði sögu-
legu hámarki í síðustu viku og fór í
ingu var Landsbanki enn með
hæstu kjörvextina, 9,5%, en íslands-
banki með þá lægstu, 9,1%. I dag er
það síðan íslandsbanki sem einn
lækkar vextina og fara kjörvextir
skuldabréfalána niður í 8,6%.
Ekki náðist á forráðamönnum
Landsbankans og sparisjóðanna en
Stefán Pálsson, bankastjóri Búnað-
arbankans, sagði við DV að ekkert
hefði breyst í umhverfinu frá því
ákveðið var að hækka vexti 11.
1528 stig. Talan lækkaði niður í 1514
stig þegar leið á vikuna en hækkaði
aftur í 1518 stig sl. mánudag. Mest
áhrif hafði hækkun á gengi íslands-
bankabréfanna um þaö leyti sem af-
komutölur bankans voru birtar.
Hagnaðurinn, 330 milljónir, reynd-
ist þó minni en reiknað hafði verið
með.
Lækkandi álverð
Álverð á heimsmarkaði lækkaði
lítillega í síðustu viku en stað-
greiðsluverðið var um 1.600 dollarar
tonnið á markaði í London í gær-
febrúar siðastliðinn. Staðan yrði
næst metin þegar nýjar vísitölur
yrðu birtar 10. mars nk.
„Ástæða þess að við hækkuðum
vexti er sú að spár og vísitölur
sýndu að ársverðbólga yrði um pró-
sentustigi hærri en í fyrra. Við telj-
um það skyldu okkar að láta ekki
óverðtryggð innlán brenna upp, þau
verða að fylgja vísitölunni,“ sagði
Stefán.
morgun. Birgðir stærstu framleið-
enda hafa verið að aukast og því er
reiknað með lækkandi álverði á
næstunni.
Gengi helstu gjaldmiðla gagnvart
íslensku krónunni hefur haldist
svipað undanfarna daga. Sölugengi
dollars var 66,23 krónur í gærmorg-
un í skráningu Landsbankans,
pundið var 102,14 krónur, markið
45,46 krónur og jenið 0,6248 krónur.
Upplýsingar um skipa- og gáma-
sölur lágu ekki fyrir í gær hjá Afla-
miölun LÍÚ.
30 milljóna
hagnaður Flug-
félags Norður-
lands
Flugfélag Norðurlands velti 300
milljónum króna á síðasta ári og
náði 10% hagnaði af veltu, þ.e. 30
milljónum. Eigið fé var 111 millj-
ónir í árslok og veltuöárhlutfall
1,22. Þetta kom fram á aðalfundi fé-
lagsins á dögunum.
Fjöldi farþega í áætlunarflugi
var svipaður og árið áður eða um
23.500. Flogið var til 9 ætlunarstaða
innanlands og Kulusuk á Græn-
landi. Samtals voru flutt 315 tonn af
vörum og pósti. Á síðasta ári varð
talsverð aukning á leiguflugi og á
sú starfsemi verulegan þátt í góðri
rekstarafkomu. Félagið á 5 flugvél-
ar með sæti fyrir samtals 75 far-
þega auk smærri flugvéla sem aðal-
lega eru notaðar til flugkennslu.
Hjá félaginu unnu að meðaltali 30
starfsmenn á síðasta ári.
Ný stjórn ÁTVR
Fjármálaráðherra hefur skipað
nýja stjórn ÁTVR til næstu tveggja
ára. Stjórnarformaður hefur verið
skipaður Hildur Petersen, fram-
kvæmdastjóri Hans Petersen, vara-
formaður stjórnar er Þórarinn
Sveinsson læknir og þriðji aðalm-
aður í stjórn er Árni Tómasson
endurskoðandi. Varamenn hafa
verið skipaðir Dögg Pálsdóttir lög-
fræðingur, Sigurður M. Magnússon
eðlisfræðingur og Anna Margrét
Jóhannesdóttir stjórnmálafræðing-
ur.
Tveir náms-
styrkir Verslun-
arráðs
Á aðalfundi Verslunarráðs ís-
lands í síðustu viku voru afhentir
tveir námsstyrkir til íslendinga í
framhaldsnámi erlendis. Alls barst
51 umsókn en styrkina hlutu Ragn-
hildur Geirsdóttir verkfræöingur
og Höskuldur Tryggvason við-
skiptafræðingur. Þau hlutu 195 þús-
und krónur hvort. Ragnhildur
stundar nám til meistaragráðu 'i
iönaðarverkfræöi í Madison í
Bandarikjunum en Höskuldur er í
meistaranámi í rekstrarhagfræði í
Göttingen i Þýskalandi.
Góð sala hús-
næðisbréfa
Sölu úr fyrsta áfanga á húsnæð-
isbréfum Byggingarsjóðs verka-
manna lauk nýlega en alls seldust
bréf fyrir 1.300 milljónir króna.
Verðbréfamarkaður íslandsbanka,
VÍB, sá um söluna fyrir hönd sjóðs-
ins, að undangengnu útboði. Upp-
haflega átti salan aö standa yfir frá
15. janúar til 15. mars en hún gekk
það vel að henni lauk rúmlega
mánuði fyrr en reiknað var með.
Sölunni var skipt upp í fjóra áfanga
á þessu ári og hefst sala úr öörum
áfanga um mánaðamótin mars-apr-
0.
Útboðum ríkis-
víxla breytt
Að höfðu samráði við helstu
kaupendur ríkisvixla hefur Lána-
sýsla ríkisins ákveðiö að breyta
fyrirkomulagi útboða ríkisvíxla.
Ein breytinganna er sú að útboð
3ja, 6 og 12 mánaða ríkisvíxla, sem
hefur verið fyrsta miðvikudag í
byrjun mánaðar, flyst fram í miðj-
an mánuð og verður 16. hvers mán-
aöar.eða á næsta virka degi beri 16.
dag upp á helgidag. Þá fer útboðið
fram kl. 11 í staö kl. 14 áður. Fyrsta
útboð samkvæmt breyttu fyrir-
komulagi fór fram sl. fóstudag.
Meöal annarra breytinga er sér-
stakt útboð ríkisvíxla fyrir stóra
fjárfesta sem fer fram fyrsta virkan
dag hvers mánaöar. Útboö ríkis-
bréfa og spariskírteina verða áfram
með hefðbundnum hætti, þ.e. útboö
ríkisbréfa á miðvikudögum i
annarri viku mánaðar og útboð
sparskírteina á miðvikudögum í
fjórðu viku mánaðar. -bjb
Óveruleg viðskipti með
hlutabréf í síðustu viku
— mest keypt af bréfum íslandsbanka