Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1996, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR. 20 FEBRÚAR
13
DV
Fréttir
Samkeppnisráð:
Samráð eggjafram-
leiðenda um verð
- gagnrýnir athafnaleysi landbúnaðarráðherra
Samkeppnisráð telur sannað að
Félag eggjaframleiðenda hafi hvatt
til samráðs um verð og afslátt á
eggjum, haft forgöngu um skiptingu
markaða eftir svæðum eða við-
skiptavinum og reynt að takmarka
aðgang nýrra aðila að markaðnum.
Félag eggjaframleiðenda varð við
beiðni um að afhenda fundargerðir
og bréfaskriftir frá árunum 1994 og
1995. Það er meðal annars af þessum
gögnum og verðkönnunum sem
Samkeppnisráð dregur ályktun
sína.
Verðkönnun, sem gerð var í árs-
lok 1994 á landbúnaðarvörum og
fleiri vörum í Reykjavík, Kaup-
mannahöfn og Ósló, sýndi að egg
voru allt að 110 prósentum dýrari í
Reykjavík en Kaupmannahöfn en
þau höfðu verið á svipuðu verði fyr-
ir 5 árum.
í kjölfar þessarar könnunar hóf
Samkeppnisstofnun athugun á verð-
myndun og viðskiptaháttum á
eggjamarkaðnum. Verðkannanir
Samkeppnisstofnunar sýna að verð-
dreifing á eggjum í matvöruverslun-
um er alla jafna lítil. í verðkönnun,
• sem gerð var í desember 1995 í 21
verslun, kemur fram að mismunur
á lægsta og hæsta verði var 22 pró-
sent.
Þann 1. desember síðastliðinn gaf
fimmmannanefnd heildsöluverð á
eggjum frjálst en afurða- og heiíd-
söluverð hafði verið ákveðið sam-
kvæmt ákvæðum búvörulaga. Hins
vegar þykir ljóst að eggjaframleið-
endur og verslanir hafa ekki farið
eftir opinberu verði fyrir þann tima
og þannig brotið gegn búvörulögum.
Athafnaleysi landbúnaðarráð-
herra
Samkeppnisráð bendir á að ekki
sé að sjá að landbúnaðarráðherra
hafi haft virkt eftirlit meö því að
farið hafi verið að búvörulögum.
Vegna athafnaleysis stjórnvalda
hafi skapast það ástand að verð á
eggjum hafi í reynd verið frjálst og
undir þeim kringumstæðum sé með
öllu óviðunandi að Félag eggjafram-
leiðenda hafi komist upp með að
grípa til aðgerða sem hamla gegn
verðsamkeppni.
Samkvæmt samkeppnislögum er
Samkeppnisráði heimilt að leggja
Félag eggjaframleiðenda hvatti til samráðs um verð og afslátt á eggjum að mati Samkeppnisstofnunar. Stofnunin
segir og að eggjaframleiðendur hafi haft forgöngu um skiptingu markaða og reynt að takmarka aðgang nýrra aðila
að markaðnum. Eggjaframleiðendur neita þessu.
stjórnváldssektir á samtök fyrir-
tækja sem brjóta gegn bannákvæð-
um laganna. Sektir geta numið frá
50 þúsundum til 40 milljóna króna
en þó allt að 10 prósentum af veltu
síðastliðins almanaksárs af þeirri
starfsemi sem í hlut á ef sannanleg-
ur ábati af broti gegn samkeppnis-
lögum hefur numið hærri fjárhæð
en 40 milljónum króna.
í ákvörðun Samkeppnisráðs segir
hins vegar að það skipti máli að
tengsl samkeppnislaga og búvöra-
laga geti virst óljós og því sé ekki
hægt að útiloka að um hafi verið að
ræða afsakanlega vanþekkingu eða
misskilning á viðkomandi réttar-
reglum. Einnig beri að hafa hugfast
að Félag eggjaframleiðenda hafi í
vissum skilningi notið samþykkis
landbúnaðarráðuneytis fyrir hluta
af þeim aðgerðum félagsins sem
lutu að markaðsskiptingu. Félagið
fékk vilyrði ráðuneytisins til þess
að nota endurgreiðslur til eggja-
framleiðenda á sérstöku fóðurgjaldi
til þess að kaupa tiltekna framleið-
endur út úr rekstri og skipti síðan
mörkuðum þeirra. Þess vegna verð-
ur Félag eggjaframleiðenda ekki
sektað að svo stöddu. -IBS
Framkvæmdastjóri Félags eggjaframleiðenda:
Teljum okkur ekki
hafa brotið lög
„Við teljum okkur ekki hafa brot-
ið nein lög. Við teljum okkur hafa
verið að reyna að fara eftir búvöru-
lögum,“ segir Bjami Stefán Kon-
ráðsson, framkvæmdastjóri Félags
eggjaframleiðenda.
„Það hefur verið opinbert verð á
grundvallarstiginu og heildsölustig-
inu á eggjum. Þar sem frávik hafa
verið höfum við reynt að koma í veg
fyrir að þau verði of mikil. Sam-
keppnisstofnun virðist túlka þetta
þannig að við heyrum undir bú-
vörulög, sem við auðvitað gerum,
en um leið og við víkjum frá þeim
heyrum við undir samkeppnislög,"
bendir Bjami á.
Hann telur þessa túlkun vekja
upp ýmsar spurningar. „Hversu
mikil mega frávikin vera frá lögun-
um til þess að við hættum að heyra
undir búvörulög og íorum að heyra
undir samkeppnislög? Hver ætlar
að draga þau mörk og setja þau lög?
Og þetta snertir ekki bara egg:
Þetta mál snýst einnig um það
hvort Samkeppnisstofnun hefur
yfirleitt heimild til að kalla inn
fundargerðir frjálsra félaga og sam-
taka og tína allt upp sem menn
segja, óháð þvi hvort það er sam-
þykkt eða ekki, og túlka það sem
brot á samkeppnislögum eða sam-
keppnishamlandi á einhvern hátt,“
leggur Bjarni áherslu á.
- En Samkeppnisstofnun styðst
einnig við verðkönnun:
„Við vitum náttúrlega hvernig
þessi könnun var framkvæmd. Hún
var framkvæmd af hálfu Samkeppn-
isstofnunar og Neytendasamtak-
anna þó þau hafi hvergi viljað láta
nafns síns getið í þessari könnun.
Könnunin fór meðai annars þannig
fram að fulltrúi frá Neytendasam-
tökunum, aðila sem átti hagsmuna
að gæta, labbaði inn i einhverjar
búðir í Kaupmannahöfn og tók upp
eitthvért verð á ákveðnum landbún-
aðarvörum. Sú könnun er engan
veginn marktæk. Skömmu seinna
gerðum við lauslega könnun á verði
á eggjum í Danmörku og tókum
Irma-verslunarkeðjuna. Þá var mun
minni verðmunur á eggjum í Hag-
kaupi og Irma-verslunum heldur en
kemur fram í könnun Samkeppnis-
stofnunar og Neytendasamtakanna.
Það eru ódýr og létt rök að draga
verðkönnun inn í þetta mál. Það er
líka algjör þversögn að þessi áfellis-
dómur á eggjaframleiðendur skuli
koma rétt eftir að fimmmannanefnd
ákveður að hætta að ákvarða opin-
bert verð á eggjum vegna þess að
hún telur nægilega samkeppni vera
fyrir hendi.“
-IBS
Ford Esplorer XLT ‘91, rauður, ssk.,
óvenju gott eintak., ek. 98 þús. km.
TILBOÐSVERÐ kr. 2.150.000.
Cherokee Laredo ‘85, 6 cyl, ssk.,
leðursæti, rafm. í rúðum og sætum,
ný dekk. Verð 690.000.
MMC Pajero, langur ‘88, bensín,
beinsk., vökvast., rafm. í rúðum,
gullsans., ek. 130 þús. km.
Verð 980.000.
Ford Aerostar Cargo ‘89, ssk.,
vökvast. kafteinstólar, álf., litað gler.,
hvítur., ek. 140 þús. km.
Verð 850.000.
&511 42 42
BORGARTÚNI 1 • 105 REYKJAVÍK
Hver er bestur!!!
Bílamarkaöurinn
Dodge Grand Caravan 191,4x4 ssk.
vökvast. rafm í öllu, 7 farþ. litað gler,
álf., hvítur. Verð 1.980.000
VW GOLF 1,4 station ‘94, blár, 5 g.,
rafm. í rúðum, dráttrk. ofl.
ek. 32 þús. km. Verð 1.150.00.
MMC Lancer L-200 D.Cap disil, ‘91,
grár, 5 gíra. lend skúffa, 32" dekk,
álf. með spili, kastara ofl.
ek. 98 þús. km. Verð 1.350.000
Cherokee LTD .4.0 I ‘87, ssk.
vökvast. leðurkl., álf., topplúga,
steingrár. Verð 1.280.000
Fjallabíll. Ford Bronco XLT ‘79, 44"
dekk, no-spin, framan/aftan, mikið
tjúnuð 351CL., mjög gott eintak. Gott
boddý. Sérstakur jeppi. Verð 690.000
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, sími
567-1800 ^