Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1996, Side 32
L«TT«
i
tiB nflíW/S (yjfi YÍI
’O i
®@®
KIN
FRÉTTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjalst óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1996
Finnur Ingólfsson:
Skil ekki
Lands-
bankann
„Ég átti fundi með forráðamþnn-
um Búnaðarbankans og Landsbank-
ans og skýrði frá niðurstöðum fund-
ar ríkisstjórnar með Seðlabankan-
um. Það er hins vegar ekki okkar að
segja bönkunum fyrir verkum í
þessum efnum en mér þykir miður
að menn skuli ekki hafa nýtt þær
aðstæður sem eru á markaðnum og
lækkað vextina. Búnaðarbanki var
með talsvert lægri vexti en aðrir
fyrir hækkun og við verðum að bíða
og sjá hvað gerist. Vextir í Lands-
bankanum eru hærri og ég skil ekki
af hverju þeir voru ekki lækkaðir.
íslandsbanki reið þó á vaðið og
ákvað að lækka vexti. Ég fagna því
alveg sérstaklega,“ sagði Finnur
Ingólfsson viðskiptaráðherra í sam-
tali við DV um vaxtabreytingar
bankanna í dag en aðeins íslands-
banki lækkar vexti. -bjb
- sjá bls. 6
Óveðrið í morgun:
Dagfari
GK fékk á
sig brot
Loðnuskipið Dagfari GK fékk á
sig brot út af Sandvík, skammt
norðan við Reykjanestána, á átt-
unda tímanum í morgun. Þyrla
Landhelgisgæslunnar var send á
staðinn klukkan 9.57 en óttast var
um skipið um tíma.
Þegar síðast fréttist var þó allt í
lagi um borð og var skipinu haldið
upp í vindinn út af Sandvíkinni.
Dagfari fór fyrir Reykjanesröstina
áfallalaust í morgun með loðnufarm
á leið til Njarðvíkur. Ástndið um
borð var sagt eðlilegt en einn maður
slasaðist lítillega. -GK
Þrennt slasaðist
Þrennt slasaðist í hörðum
árekstri á Hellisheiði síðdegis í gær.
Flutningabíl var ekið aftan á jeppa.
í jeppanum var tvennt fullorðið og
eitt barn.
Hinir slösuðu festust í bilnum og
varð að nota klippur til að ná þeim
út. Jeppinn er ónýtur. Fólkið var
allt flutt á Sjúkrahús Reykjavíkur
til aðhlynningar.
Mikil þoka var á heiðinni þegar
slysið varð og skyggni mjög tak-
markað. -GK
L O K I
Sjávargangur og öldurót víðá við vestanvert landið:
Möl og grjót sópast um
götur í verstu hviðunum
- götum í Reykjavík var lokað í morgun vegna ágangs sjávar
Sjór og grjót gekk á land við Eiðisgranda og víðar í Reykjavík í morgun. Starfsmenn gatnamálastjóra voru við
öllu búnir og ruddu götur þegar féil út í morgun. DV-mynd S
„Það sópast hér möl og grjót upp
á göturnar þegar mest gengur á. Ég
man ekki eftir svona hárri sjávar-
stöðu og það er mjög byljótt. Hvið-
urnar koma eins og byssuskot og
svo dúrar á milli,“ segir Bjöm
Jónsson, lögregluvaröstjóri í Ólafs-
vík, en þar varð veður einna verst
í morgun.
Vestan illviðri hefur gengið yfir
suðvestanvert landið í morgun og
var búist við að það yrði verst á
Vestfjörðum og Norðurlandi vestra
þegar liði á daginn. í Ólafsvík gekk
sjór yfir svokallað fróðarrif og eins
upp á Ólafsbraut í morgun. Vegum
þar var ekki lokað en grjót- og mal-
arburöur var upp á land. Þá
kastaði steinum upp á veginn und-
ir Enni.
í Reykjavík varð að loka Eiðis-
grandanum og eins Faxaskjóli
vegna grjótburðar og sjávargangs.
Allir komust þó til vinnu en nokkr-
ar skemmdir urðu á grjótvörnum.
„Það hefur mðst grjót upp á gö-
turnar og við lokuðum þeim af ör-
yggisástæðum," sagði Baldvin Ott-
ósson, aðalvarðstjóri í Reykjavík,
við DV í morgun.
Þá var veginum í botni Kolla-
fiarðar lokað vegna sjávargangs en
fært var um gamla veginn. Sömu
sögu var að segja uppi á Kjalarnesi
þar sem sjór gekk á land við Vallá
en gamli vegurinn var fær.
í Sandgerði voru menn á vakt í
allan morgun vegna hættu á að
brim gengi inn í höfnina. Á níunda
tímanum i morgun var farið að
falla þar út og hrósuðu menn happi
að ekki varð tjón í höfninni. Er það
þakkað því að veður varð ekki eins
slæmt og spáð hafði verið en sjór
stóð mjög hátt, hærra en sést hefur
þar um langan tíma.
Á Akranesi voru menn einnig í
viðbragðsstöðu en þar varð heldur
ekki tjón svo teljandi væri. Aðeins
reif úr grjótflyllingu við olíutanka
en ekki svo hætta væri á ferðum.
Rafmagn fór af á sunnanverðum
Vestfjörðum og varð að notast við
varaafl. Þegar síðast fréttist var bil-
unin enn ófundin. -GK
Ottó Wathne dreginn út 11
Á flóðinu í gær tókst varðskipi að draga togarann Otto Wathne á flot en hann sat fastur í slipp Stálsmiðjunnar í
Reykjavík eftir að dráttarbrautin brotnaði undan honum. Togarinn liggur nú við bryggju í Reykjavík og eftir því sem
næst verður komist er skipið óskemmt eftir óhappið.
DV-mynd S
Arnarstapi í morgun:
Flæddi yfir
bryggju og
grjótgarð í
fyllingunum
„Það gekk yfir og flæddi yfir
bryggjuna í fyllingunum. Það er
ansi flóðhátt hérna. Sjórinn gekk
yfir grjótgarð sem er hér við bryggj-
una og það flæddi yfir uppfyllingu
sem er á milli,“ sagði Pétur Péturs-
son, sjómaður á Arnarstapa, í sam-
tali við DV í morgun.
Pétur sagði að talsvert stórar fyll-
ingar gengju yfir öðru hverju en þó
væri þetta „ekkert aftakaslæmt".
„Við vorum búnir að gera fyrir-
byggjandi aðgerðir í gær, hækka
bátana upp eins og hægt var. Það
hefur haft sitt að segja. Vindurinn
er það vestlægur hérna þannig að
þetta er ekki mjög slæmt,“ sagði
Pétur Pétursson. -Ótt
Veörið á morgun:
Hvass-
viðri eða
stormur
Á morgun verður suðvestan
hvassviðri eða stormur um allt
land með éljum, einkum um
vestanvert landið.
Veður fer kólnandi.
Veðrið í dag er á bls. 36
Þriðjudagar eru bíódagar
auglýsingar
DV
550 5000