Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1996, Síða 13
FÖSTUDAGUR 15. MARS 1996
13
Sviðsljós
Ifhrm
Hreinskilnisleg játning hjartaknúsarans Brads Pitts:
Sting syngur og
leikur fyrir rússn-
eska aðdáendur
Breski tónlistarmaöurinn Sting
hefur verið á tónleikaferö að undan-
fórnu. í vikunni gátu rússneskir að-
dáendur kappans kæst en hann hélt
tvenna tónleika í Moskvu, nánar til-
tekið í fundar- og ráðstefnuhöll
Kremlar. Ekki er vitað annað en
tónlist Stings hafi fallið vel í kramið
hjá Rússum. Þeir fjölmenntu á tón-
leikana þrátt fyrir að hver miði
hefði kostað hvorki meira né minna
en 300 dollara eða um 20 þúsund ís-
lenskarkrónur.
Sting syngur í Moskvu.
Símamynd Reuter
Brad Pitt þykir einhver myndar-
legasti leikarinn af ungu kynslóð-
inni í Hollywood, sannkallað kyn-
tröll ef slíkt fyrirbæri hefur ein-
hvern tímann verið til. Það hlýtur
því að vera áfall þeim mörgu stulk-
um sem dreymir um eldheitar ástar-
nætur með hjartaknúsaranum þeg-
ar hann viðurkennir: „Ég mundi nú
ekki segja að ég væri neitt stórkost-
legur í rúminu. Ég er bara ósköp
meðal.“ -En þannig er það nú.
„Hjartaknúsarar eru eins og mý á
mykjuskán. Óskastaðan er að vera
átrúnaðargoð af hvíta tjaldinu í sjö
mínútur. Það er aðeins lengur en í
fimm mínútur en miklu styttra en í
tíu mínútur," segir Brad, hreint
ekki yfir sig hoppandi yfir stöðu
sinni sem hjartaknúsari númer eitt,
samkvæmt einhverri skoðanakönn-
uninni.
Fyrirsæturnar kunnu, Carla Bruni, t.v., og Nadja Auermann, sýna hér rauð-
leita silkikjóla úr safni Brasilíumannsins Ocimars Versolatos á sýningu í Par-
ís í vikunni. Símamynd Reuter
En það er ekkert nýtt að Brad fái
hjörtu ungu stúlknanna til að slá ei-
lítið hraðar en þetta venjulega lull
sem annars er á þeim. Þannig áhrif
hefur hann alltaf haft, allar götur
frá því hann var að alast upp í
Springfield í Missouri. Það var í
heimabæ sínum að hann glataði
sveindóminum í faðmi fallegrar
prestsdóttur. Hann var átján og þau
höfðu verið að drekka kampavín
alla nóttina.
En nú er Brad heitbundinn hinni
fógru Gwyneth Paltrow, sem lék
meðal annars á móti honum í mynd-
inni Sjö um jafn margar höfuðsynd-
ir. Ást og losti við fyrstu sýn, segir
hann, ekkert feiminn.
„Við Gwyneth höfðum hist fyrir
tilstilli vina nokkrum mánuðum áð-
ur en við gerðum Sjö og ég féll þeg-
ar í stað fyrir henni,“ segir Brad um
stúlkuna sem hann er nú trúlofaður
og þráir einna heitast að eignast
með barn.
Gwyneth sá strax og þau fóru að
leika saman að þarna var ungur
piltur sem vert væri að gefa nánari
gaum. „Ég vissi að hann var hræði-
lega myndarlegur en ég varð svo
hissa þegar ég komst að því hvað
hann var tillitssamur og elskuleg-
ur,“ segir Gwyneth, sem lék eigin-
konu hans í Sjö. „Ég skemmti mér
stórkostlega við að kyssa hann. Ég
meina, það er ekki sko erfitt að
kyssa Brad.“
Samstæða með geíslaspilara,
kassettutæki, 80W. surround
magnara, tónjafnara, útvarpi,
hátölurum og fjarstýringu.
Fyrirsætur í klæðnaði frá belgíska hönnuðinum Dries Van Noten ganga hér
fylktu liði eftir sýningu í París. Van Noten er undir blönduðum áhrifum frá
fatatísku Vesturlanda og fjarlægra menningarsvæða. Símamynd Reuter
Brad Pitt og kærastan, Gwyneth Paltrow.
Panasonic
hljómtækjasamstæða SC CH32
Nettol ^ ASKO (CnsmD) Qmvkm 0TURBO nilfisk emide
o 1— U— > C/3 VELKOMIN í FÖNIX OG GERIÐ cz ~ö ~a xr < O —1
m Q —J LLl cc < z LL_ REYFARAKAUP 1 m- i— > DO
=0 —> CD Við bjóðum allt sem þig vantar ö
i > m cc •n INNRÉTTINGAR OG RAFTÆKI < m- i— > ~n
cp cc O CQ í eldhúsið, baðherbergið, þvottahúsið og að auki fataskápa í svefn- herbergið, barnaherbergið og anddyrið. >! o xr cz
ZD —1 LU n= SÖLUSVNING UM HELGINA co co
cc < INNRÉTTINGAR OG RAFTÆKI Á TILBOÐSVERÐI 5> co
z U_ o BOTNFROSIÐ VERÐ - ALLT AÐ 30% AFSLÁTTUR cö' oo
cr < 'LU Q _J LU Q= Velkomin í Fönix. Heitt á könnunni og ís fyrir börnin. Þeir sem versla fyrir kr. 10.000,- eða meira, geta tekið þátt í lau- fléttri Fönix-getraun og unnið Nilfisk-ryksugu að verðmæti kr. 31.350,- eða einhvern 5 aukavinninga. s* 00 00 < cn cz o o
< CD Z 1— 1- 'LU cc 2! ARIA LAUGARDAG 10-16 B'%#’ OPIÐsunnudag 12-17 " Ul ® AÐRA DAGA 9-18 HÁTÚNI6A REVKJAVÍK SÍMI552 4420 00 cn S 75
EMIDE NILFISK Oturbo Cmmm (dl)) ASKO Nettolu^
Er bara venj u-
legur meðalj ón
í rúminu