Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1996, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1996, Qupperneq 32
Tvöfaldur I. vinningur Vertu viðbúinín) vinningi Fimmtudagur 14.3/96 ®®@© 20){2Í)(25) KIN FRETTASKOTIB SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Fýrsta viðtalið eftir árásina í helgarblaði DV á morgun birtist viðtal við foreldra stúlkunnar á Akranesi, sem lá lengi meðvitund- arlaus á sjúkrahúsi eftir barsmíðar vinkvenna sinna. Þetta er fyrsta viðtalið eftir árásina. í helgarblaðinu verður einnig við- tal við aðalleikara í kvikmyndinni Draumadísir, sem verður frumsýnd í næstu viku, rætt verður við konu sem lært hefur nálastungulækning- ar og fjallað um barnasöng. -GHS Biskup Islands á fund í Strasborg Fer síðan í ótímabundið frí erlendis - vígslubiskupar staðgenglar hvor í sínu stifti „Vígslubiskupar eru staðgengl- ar biskups íslands hvor í sínu stifti en það er enginn settur í embætti biskups íslands þegar hann fer í frí,“ segir Baldur Krist- jánsson biskupsritari en bisk- upinn, herra Ólafur Skúlason, fer utan til Strasborgar á þriðjudag- inn kemur og mun sitja undirbún- ingsfund fyrir heimsfund bisk- upa. Að þinginu loknu hefur bisk- up ákveðið að taka sér frí um ótil- tekinn tíma. Ríkissaksóknari ákvað í gær að láta rannsaka ásakanir á hendur biskupi um kynferðislega áreitni. Biskup hefur skilað ríkissaksókn- ara ítarlegri greinargerð um mál- ið ásamt kröfu um opinbera rann- sókn vegna rangra sakargifta og ærumeiðinga í sinn garð. Biskup hafði áður farið fram á opinbera rannsókn á sakaefnum sem á hann hafa verið borin. Ríkis- saksóknari vísaði málinu þá frá. Að sögn biskupsritara í morg- un hafa viðbrögð presta landsins við bréfi því sem biskup skrifaði þeim á dögunum verið nokkur, einkum simleiðis. Nokkrir 150 presta þjóðkirkjunnar hafa þegar svarað bréflega, einkum þeir sem gagnrýnir eru á innihald bréfsins frá biskupi. Prestar sem rætt var við í morgun sögðu að svo virtist sem þá sem sáttir voru verið efni bréfs biskups væri einkum að finna á höfuðborgarsvæðinu. Nokkur hreyfing væri meðal þeirra sem gagnrýndu viðbrögð biskups að samræma innihald svarbréfa sinna. DV reyndi ítrekað að ná sambandi við biskup í morgun en án árangurs. SÁ Slapp ómeidd- ur úr 10 metra falli Ölvaður maður féll í nótt af þaki gamla Landsbókasafnsins við Hverf- isgötu og slapp nær ómeiddur þótt fallið væri um tíu metrar. Lögreglan var kölluð til laust eft- ir klukkan tvö og lá maðurinn þá i garðinum við húsið. Hann kvartaði undan eymslum í mjöðm en var óbrotinn. Maðurinn var mjög drukkinn og er óljóst hvernig honum tókst að komast upp á þakið. Hann verður yfirheyrður í dag og beðinn um skýringar á uppátæki sínu. -GK Stjórn UMFF: Lögmaður til að innheimta snjótroðaraféð Stjórn Ungmennafélags Fljóta- manna samþykkti einróma á fundi í gærkvöldi að ráða lögfræðing til að krefja Trausta Sveinsson á Bjarnar- gili, hjá skíðadeild félagsins, um þær 4 milljónir króna sem hann varði nýlega til kaupa á nýjum 9 milljóna króna snjótroðara án fé- lagslegrar heimildar. Einnig verður leitast við að losa félagið undan skuldbindingu á 5 milljóna króna láni hjá Glitni sem Trausti stofnaði skiðadeildinni í, og þar með félag- inu, samkvæmt áliti stjórnarinnar. -Ótt Símastúlkurnar á upplýsinganúmerinu 118 hjá Pósti og síma, áður 03, fengu óvæntan glaðning í gær þegar Sigurð- ur S. Bjarnason, framkvæmdastjóri bílaleigunnar Hasso-ísland, birtist ásamt syni sínum með konfektkassa á línuna frá Hasso Schutzendorf, alls 60 stykki. Hér tekur Oddný Jónsdóttir við sínum kassa úr hendi Geirs Gunnars Sigurðs- sonar, 4 ára. DV-mynd GVA Bílaleiga Hasso Schutzendorf á Mallorca: Bjaðaúrklippa frá íslandi skilyrði fyrir fríum bíl - símastúlkurnar í 118 fengu 60 konfektkassa Sigurður S. Bjarnason, fram- kvæmdastjóri bílaleigunnar Hasso- ísland, kom færandi hendi í gær til símastúlknanna í gamla upplýsinga- númerinu 03 hjá Pósti og síma, nú 118. Hann hafði meðferðis hvorki fleiri né færri en 60 konfektkassa eða kassa á hverja símastúlku. Þessi rausnargjöf kom til af frum- kvæði auðkýfingsins Hasso Schutz- endorf þegar Sigurður sagði honum frá þjónustulipurð símastúlknanna þegar bílaleigan hóf starfsemi á ís- landi í ársbyrjun. Mikið var hringt í 118 og spurt um númer leigunnar. Sigurður sagði að þeir Hasso hefðu fyrst haldið að 3-4 stúlkur störfuðu hjá gamla 03 en þegar Sig- urður upplýsti Hasso um að þær væru 60 sagði hann það engu máli skipta. Þær skyldu allar fá konfekt- kassa! Guðbjört Erlendsdóttir, vaktstjóri í 118, sagði við DV að gjöfln frá Hasso væri einstaklega ánægjuleg og sjald- gæft í seinni tíð að þeim væri þökk- uð þjónustan svona rausnarlega. Hún sagði að fyrst eftir að bíialeigan tók til starfa hefðu tugir fyrirspurna komið á degi hverjum um símanúm- er hjá Sigurði. „Bílarnir tíu hafa ekki stoppað frá þvi leigan hóf rekstur. Hasso hefur samþykkt að fjölga bilum og eru nokkrir á leiðinni til landsins," sagði Sigurður í samtali við DV. Hann vildi minna á að tilboð Hasso til íslendinga um ókeypis bílaleigu- bíl á Mallorca stæði út þetta ár en núna væri komið eitt litið skilyrði.' Til að fá fría leigu þyrftu íslending- ar að koma með blaðaúrklippu með sér frá íslandi af grein um Hasso. -bjb JÆJA, HVAR ERU SKÆRIN? Veðrið á morgun: Rigning eða slydda Á morgun verður suðaustan- átt um allt land, sums staðar allhvöss við suðaustur- og aust- urströndina en hægari annars staðar. Norðvestan- og vestan- lands verður að mestu úrkomu- laust en rigning eða slydda í öðrum landshlutum. Hitinn á landinu verður í kringum 5 stig, kaldast á Vestfjörðum. Veðrið í dag er á bls. 36 _Brook 0 (rompton g I RAFMOTORAR Powlsen Suðurlandsbraut 10. S. 568 6499 Ókeypis heimsending

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.