Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1996, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996
Fréttir
Sjúklingur með mjög alvarleg brunasár sem kom með sjúkraflugvél frá Akureyri til Reykjavikur:
Beið á flugvelli í lífshættu
í 31 mínútu eftir sjúkrabíl
- mistök, segir slökkviliðsstjóri - þörf á fastari vinnureglum, segir yfirlæknir á Landspítalanum
Sjúkraflugvél frá Akureyri með
sjúkling, sem var með lífshættuleg
brunasár og átti að flytja á gjör-
gæsludeild Landspítalans, varð að
bíða á Reykjavíkurflugvelli í 31
minútu eftir sjúkrabfl í síðustu
viku. Sjúkraflutningabíllinn, al-
mennur sjúkrabíll, lagði ekki af
stað frá slökkvistöðinni út á flugvöll
fyrr en 3-4 mínútum eftir að vélin
lenti en var þá snúið við þegar al-
varlegt útkall barst vegna bruna
sem átti sér stað á Nönnugötu.
Flugmaður vélarinnar hafði beðið
flugturn um að panta sjúkrabíl þeg-
ar hann var staddur yfir Skagafirði
- um 30 mínútum fyrir lendingu í
Reykjavík. Eftir lendingu, sem var
klukkan 3.51 um nóttina, lét hann
tvisvar sinnum hringja í slökkvilið-
ið til að ítreka beiðnina um sjúkra-
bíl. Þá voru báðir hinna tveggja
mönnuðu sjúkrabíla í Reykjavík að
flytja fjögurra manna fjölskyldu úr
brunanum af Nönnugötu á Borgar-
spítalann. Þegar Akureyringurinn
var sóttur var klukkan orðin 4.22.
Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri
sagði við DV að það lægi fyrir að
mistök hefðu átt sér stað með því að
senda ekki sjúkrabílinn fyrr af stað
til að ná í sjúklinginn frá Akureyri.
Hrólfur segir hins vegar að í þessu
tflviki sem öðrum hafi slökkvilið
ekki fengið upplýsingar um hversu
alvarlegt tilfelli væri að ræða.
Bílnum snúið við ... ekki
snúið við
„Ef það hefði legið fyrir hversu
alvarlega sjúklingurinn var slasað-
ur get ég nánast fullyrt að bílnum
hefði ekki verið snúið við og aðrar
ráðstafanir gerðar - þá hefði sjúkra-
bíll beðið vélarinnar,“ sagði Hrólf-
ur.
Aðspurður um þetta atriði sagði
Bjarki Hjaltason flugmaður:
„Það er litið svo á að sjúkraflug
séu áríðandi. Við erum ekki að
fljúga frá Akureyri í 50 minútur til
að bíða síðan á flugellinum í
Reykjavík í hátt í aðrar 50 minút-
ur.“ Læknir fylgdi sjúklingnum í
flugvélinni frá Akureyri til Reykja-
víkur.
Þorsteinn Svörfuður Stefánsson,
yfirlæknir á gjörgæsludeild Land-
spítalans, sagði viö DV að æskilegt
væri að fastari vinnureglu yrði
komið á um samskipti af þessu tagi.
„Ég átta mig ekki á hvemig þetta
gat gerst né þeirri töf sem varð á því
að undirbúa komu sjúkraflugvélar-
innar. Ég taldi það hafa verið gert
eins vel og hægt var,“ sagði Þor-
steinn sem hafði undirbúið komu
sjúklingsins m.a. með því að hringja
í Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
og bæði í flugturninn nyrðra og á
Reykjavíkurflugvelli.
Áttu að láta vita
Þorsteinn sagðist telja að vinnu-
reglan ætti almennt að vera með
þeim hætti að sá sem lætur panta
sjúkraflugvél - yfirleitt sá fagmaður
sem meðhöndlar sjúkling og veitir
fyrstu aðhlynningu - komi upplýs-
ingum til sjúkraflutningsaðila um
ástand viðkomandi sjúklings.
Þorsteinn sagði ljóst að þegar út-
kallið kom frá Nönnugötunni hefði
verið eðlilegt að slökkviliðið léti
flugturn vita um að ekki væri hægt
að senda sjúkrabílinn strax. Þá
hefði læknirinn um borð í flugvél-
inni haft tækifæri til að gera at-
hugasemdir.
Nóttina sem brunasjúklingurinn
var fluttur frá Akureyri og bruninn
varð á Nönnugötunni voru tveir
sjúkrabílar í Reykjavík „mannaðir"
eins og vaninn er að kvöld- og næt-
urlagi. Annar er almennur sjúkra-
bíll sem slökkviliðsmenn aka og síð-
an er neyðarbíll með lækni og
tveimur sérhæfðum sjúkraflutn-
ingamönnum. Fyrir utan þetta eru
4-5 bilar fyrir hendi sem hægt er að
manna almennum slökkviliðsmönn-
um í neyðartilfellum. Neyðarbíllinn
þjónar öllu höfuðborgarsvæðinu.
-Ótt
Minnsta atvinnu-
leysið 42 Vest-
fjörðum
Minnsta atvinnuleysið er nú á
Vestfjörðum og var atvinnuleysi í
apríl minna á flestum stöðum en í
apríl í fyrra. Undantekningar á
þessu eru höfuðborgarsvæðið, þar
sem atvinnuleysi er nú hlutfallslega
mest, og Vesturland.
Atvinnuleysi kvenna jókst um
tæp 5% milli mars og apríl en at-
vinnuleysi karla um 1%.
Búist er við að atvinnuleysi
minnki víðast hvar í maí og geti
orðið á bilinu 4,2% til 4,7%.
-SF
Forseti írlands
í opinbera heim-
sókn til íslands
Mary Robinson, forseti írlands, er
væntanleg i opinbera heimsókn til
íslands þriðjudaginn 28. maí og
dvelur hér með foruneyti til 30. maí.
Forsetinn mun skoða ýmsar
stofnanir í Reykjavík á þriðjudag-
inn og sitja hádegis- og kvöldverðar-
boð forseta íslands. Á miðvikudag
er ráðgerð skoðunarferð til Gullfoss,
Geysis og Þingvalla.
Biskupinn
blessar
ráðherrann
Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, vígði nýja kirkju á Djúpavogi á sunnudag að viðstöddu fjölmenni. Meðal
þeirra var Halldór Ásgrímsson utanríksráðherra ásamt móður sinni, Guðrúnu Ingólfsdóttur, og blessaði biskupinn
þau. Til hægri er Sjöfn Jóhannesdóttir, sóknarprestur á Djúpavogi. DV-mynd Hafdís
Fjórir frambjóðendur:
Meðmæli komin úr öllum fjórðungum
Fjórir væntanlegir forsetafram-
bjóðendur höfðu í gær skilað inn til-
skildum fjölda meðmælenda til kjör-
stjórna í kjördæmunum átta en
lokafrestur er nk. fóstudagskvöld.
Þetta eru að sjálfsögðu Guðrún Agn-
arsdóttir, Guðrún Pétursdóttir,
Ólafur Ragnar Grímsson og Pétur
Kr. Hafstein. Allar líkur eru á að
Guðmundur Rafn Geirdal heltist úr
lestinni en hann hefur ekki náð
nema um 300 meðmælendum. Lág-
marksfjöldi er 1.500 manns, þar af
um 1.200 úr Sunnlendingafjórðungi.
Ástþór Magnússon hefur að und-
anfornu staðið í söfnun meðmæl-
enda. Síðdegis í gær var ekki ljóst
hvað mörg nöfn voru komin en Ást-
þór hefur lýst því yfir að hann
stefni að framboði. -bjb
r ö d d
FÓLKSINS
904-1600
Á að sameina ASÍ og BSRB?
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já _lj
Ne! 2]
Davíð Oddsson forsætisráðherra og Ástríður Thorarensen, eiginkona hans,
taka á móti lögmanni Færeyja, á Reykjavíkurflugvelli í gær. DV-mynd GVA
Lögmaður Færeyja í opinberri heimsókn:
Síldarsamningurinn mikilvægur
Edmund Joensen, lögmaður Fær-
eyja, kom í opinbera heimsókn til
íslands í gær. Á fundi með blaða-
mönnum sagði Davíð Oddsson for-
sætisráðherra Joensen afar kær-
kominn gest og minntist um leið
stórfenglegs framlags Færeyinga
vegna náttúruhamfaranna fyrir
vestan.
Joensen kvaðst kominn til að
styrkja vináttubönd og efla sam-
skiptin milli íslands og Færeyja.
Einna mikilvægast í samvinnu
landanna kvað Joensen samkomu-
lagið um veiðar á Atlantshafssíld-
inni og samvinnu um flökkustofna
og fiskistofna yfirleitt. „Samvinnan
hefur verið mjög einhliða þar sem
Færeyingar hafa fengið kvóta frá Is-
lendingum en núna er að verða
breyting á,“ sagði Joensen .
Stuttar fréttir
Raforka á Nesjavöllum
Reykjavíkurborg vill hefja raf-
orkuframleiðslu á Nesjavöllum.
Samkvæmt RÚV yrði hún lík-
lega helmingi ódýrari en sú orka
sem borgin kaupir af Lands-
virkjun.
Hornið keypt
Vinafélag Þjóðminjasafns,
Minjar og saga, keypti íslenska
drykkjarhomið frá 16. öld sem
var á uppboðinu á Sjálandi á
mánudaginn. Kaupverð hefur
ekki verið gefið upp.
12 togarar út
Útgerðir 12 togara hafa stað-
fest að þeir fari til sfldveiða, eigi
síðar en 20. júní.
Aukinn iyfjakostnaður
Lyfjakostnaður sjúklinga og
Tryggingastofnunar ríkisins
jókst um 13% fyrstu fjóra mán-
uði ársins, miöað við sama tíma
í fýrra. Samkvæmt Mbl. er
ástæðan tilkoma nýrra lyfja og
aukin heimahjúkrun.
Víkingaskip styrkt
íslendingur, víkingaskip
Gunnars Marels Eggertssonar,
hefur fengið styrk Reykjavíkur-
borgar og ríkis til að hefja sigl-
ingar.
Ásókn í Jarðboranir
Hundraö milljónir af hluta-
bréfum Reykjavíkurborgar og
ríkisins í Jarðborunum seldust
upp á fyrsta degi útboðs í gær.
Bensín að lækka?
Horfur eru á að bensínverð á
heimsmarkaði og þar með hér á
landi lækki á næstunni vegna
samkomulags Sameinuðu þjóð-
anna og íraka um að þeir síðar-
nefndu fái að flytja út olíu, í
fyrsta sinn í 6 ár
Tryggingargjöld
hækkuð
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra segir að hækka verði
tryggingargjöld fyrirtækja ef at-
vinnurekendur ráði fólk í hluta-
störf og vísi því svo á atvinnu-
leysisbætur hinn hluta dagsins.
Rikissjónvarpið greindi frá
þessu. -bjb
-IBS