Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1996, Side 14
i4 $ffveran
Notuð föt:
Tiskunnar vegna
eða peninganna
Fyrir sumt fólk eru fatakaup ekki
vandamál. Verslaö er í sömu búðun-
um ár eftir ár. Þessar verslanir
bjóöa þá gjarnan upp á tískufatnað
og mörgum finnst þægilegast að
fylgja tískustraumunum í fatavali.
Tískan er að sjálfsögðu breytileg og
breytist stundum svo ört að fata-
kaup verða nauðsynleg löngu áður
en síðast keyptu flík er slitið. Fyrir
þá sem staðráðnir eru í því að tolla
í tískunni getur þetta þvi kallað á
nokkur fjárútlát. Hitt er svo jafn
víst að sumar tískulínur koma aftur
og þá getur komið sér vel að komast
yfir gömul föt. Hvort tveggja er að
mun ódýrara getur verið að nálgast
notuð fot heldur en að kaupa ný
með „gömlu" sniði og einnig er það
óneitanlega frumlegra.
Nokkrir markaðir í
Reykjavík
í Reykjavík er að finna nokkrar
verslanir sem selja notuð föt, mis-
gömul. Þau eru yfirleitt mjög ódýr.
Sumir versla þó með notaðan fatnað
sem er í tísku, svo mikið í tísku að
markaður er fyrir fötin þrátt fyrir
að þau séu ekki í ódýrari kantinum.
Á hinum vikulega markaði i Kola-
portinu má gera góð fatakaup eins
og fram kemur annars staðar á síð-
unni. Hjá Fríðu frænku við Vest-
urgötuna má finna gömul föt af
ýmsum gerðum frá 300 krónum til
30.000. Fyrir 30 þúsundimar fæst
perlusaumaður kjóll frá 1920. Svona
dýrar flíkur eru þó ekki algengar
hjá Fríðu frænku.
Fatamarkaður hefur löngum ver-
ið stór liður í starfsemi ýmissa góð-
gerðarfélaga. Kattavinafélagið hefur
alltaf selt nokkuð af notuðum fötum
og í Kattholti er daglega opinn fata-
markaður. Frægastur flóamarkaða
hér á landi er örugglega markaður
Hjálpræðishersins við Garðastræti.
Þar er hægt að
fata sig fyrir
lítinn pening.
Úrvalið er
mismikið
al-
gjör-
lega
Hverjir eru kúnnarnir?
undir
gefend-
um
komið.
Að sögn starfsmanna eru þeir úr
öllum aldurshópum og af báðum
kynjum - karlmenn síst færri.
Ástæður þess að fólk kaupir á flóa-
mörkuðum eru margvíslegar. Sum-
ir hafa ekki efni á öðru, aðrir em að
leita að einhverju ákveðnu sem
helst er að finna innan um gamalt
dót, enn aðrir era hreinlega áhuga-
menn á þessu sviði og era næstum
háðir því áð gramsa í gömlum föt-
um.
Hjá Hjálpræðishemum kostar allt
innan við 1000 krónur, leður- og
annar skinnfatnaður dýrastur. Pils
fást á 300 krónur, kjólar á 600 krón-
ur og handtöskur á 200-300 krónur,
svo dæmi séu tekin. Linda Jónsdótt-
ir fór með ljósmyndara DV og fann
ýmislegt sem gæti komið sér vel.
Árangurinn getur að líta hér á síð-
.. . . unni.
Linda fann
þessa
Levi’s
skyrtu og
kostaði hún
200 krónur.
-saa
Svona kápu
geta margir
fundið í
geymslu heima
hjá sér. Aðrir
geta fengið þær
hjá Hjálp-
ræðishernum
fyrir 700 krónur.
Mest
ber á göml-
um fötum
sem ekki
er ólík-
legt að
komi úr
dánarbú-
um. Inn á
milli slæðist
tískufatnaður sem
hefur þurft að
víkja úr fata-
skápnum fyrir
nýrri tískufatnaði.
Töluvert af barna-
fötum er til hjá
Hemum.
Rakel Ýr:
Verðið skiptir máli
um hvort hún myndi nota hann
mikið svo það varð úr að þær
keyptu hann saman.
Rakel fer reglulega í Kolaportið
og stundum í- Hjálpræðisherinn.
„Svo hef ég verið í Danmörku tölu-
vert og þá er ég dugleg að fara í
verslanir Hjálpræðishersins og þar
er miklu meira úrval en hér. Ann-
ars fer ég mikið til ættingja og gref
eitthyað upp sem þeir eru hættir að
nota,“ segir Rakel. Hún segir verðið
líka skipta máli. Jakkann áður-
nefnda hefði hún til dæmis ekki
keypt dýru verði enda var prúttað.
Meðal annars þess vegna éru ætt-
ingjaheimsóknimar góður kostur.
Þær flíkur sem helst verða fyrir val-
inu á flóamörkuðum eru aðallega
skyrtur, blússur og buxur. Rakel
hefur aldrei keypt notaða skó. „En
ég á alveg geðveika skó sem ég fékk
hjá ömmu,“ segir hún og er það á
henni að heyra að skókaup á flóa-
markaði séu ekki fráleitur mögu-
leiki.
-saa
„Ég hef svo gaman af kompu-
dóti,“ segir Rakel Ýr ísaksen,
ein þeirra sem sækja flóa-
markaði reglulega, er hún
er spurð hvers vegna hún
hefði keypt notaðan
jakka í Kolaportinu á
dögunum. Verðið var
1500 krónur upphaf-
lega en Rakel prút-
taði það niður í
1300. Það var
reyndar vin-
kona Rakelar
sem ætlaði
kaupa
jakkann
var
viss
Rakel í hlýrri flík sem kostaði 1300 krónur.
DV-mynd GS
ÞRIÐJUDAGUR 25. JUNÍ 1996
Jakkaföt með vesti eru
seld á 800 krónur og
hvítar herraskyrtur á
200 krónur. Fötin eru að
vísu á herra en Lindu
fannst það ekki verra.
DV-myndir GS
F
I hc irfiol/n ■II nni
I ffllC HIISKU nni
Patrick Þór Kristinsson og Ásgeir Pór Sigurðsson, báðir 16 ára, líta inn á
markað Hjálpræðishersins næstum vikulega. Þeir segja að þar fáist ódýrar
skyrtur með stífum kraga sem fellur í kramið hjá þeim þessa dagana.
DV-myndir GS