Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1996, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1996, Page 16
16 MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 1996 Fréttir i>v Mál íslendingsins sem kynnti sumarhús á Spáni: Sýknaður fyrir fjár- svik við fasteignasölu í gær var kveðinn upp héraðs- dómur í máli manns sem geflð var að sök að hafa á árunum 1989 og 1990 framið fjársvik upp á 15!4 milljón með orlofshúsasvikum. Hann var sýknaður af ákærunni og málskostnaður greiddur úr ríkis- sjóði. Maðurinn átti að hafa fengið 13 aðila hérlendis til að kaupa fast- eignir á Spáni sem aldrei voru af- hentar vegna gjaldþrots þarlendra byggingaraðila. Þá var hann sakað- ur um að hafa greint ranglega frá því að erlent tryggingafélag ábyrgð- ist hugsanlegar vanefndir seljanda. í niðurstöðu dómsins segir að ákærði hafi aðeins tekið að sér kynningarstarfsemi fyrir bygging- arfélagið spænska en ekki stundað fasteignasölu. Þá hafi hann kynnt sér rekstur félagsins áður en hann fór út í samstarf með því og hafi það virst standa traustum fótum. Meirihluti fóiksins, sem festi kaup á húsum, gekk frá kaupsamningum á Spáni og var öllu fólkinu ljóst að húsin voru á byggingarstigi en al- kunna er að byggingarframkvæmd- ir tefjast iðulega. Einnig kom það til athugunar að öllu fólkinu var boðið í ókeypis kynningarferð til Spánar til þess að skoða fram- kvæmdir, þó að ekki hefðu allir nýtt sér það, og var því í lófa lagið að grafast fyrir um áreiðanleika fyrirtækisins þar. Ósannað þótti að maðurinn hefði fengið fólkið til þess að kaupa fas- teignimar með því að nýta sér ranghugmyndir þess um bygging- araðilann og tryggingarfélagið með refsiverðum hætti og var hann því sýknaður. -SF Bílvelta í Öxnadal DV, Akureyri: Kona og tveir farþegar hennar voru flutt á sjúkrahús á Akur- eyri á laugardag eftir að bifreið þeirra hafði oltið út af veginum á móts við Hóla í Öxnadal. Bifreiðin fór 2-3 veltur og hafnaði á hjólunum, en meiðsli þremenninganna reyndust ekki alvarleg og fengu þeir að fara heim að lokinni skoðun á slysa- deild. Lögreglan á Norðurlandi var með umferðarátak sL föstudag og kannaði m.a. notkun öryggis- belta. Akureyrarlögreglan stöðv- aði 328 bifreiðar utan bæjarins og reyndist þurfa að kæra í 18 tilfellum þar sem öryggisbelti höfðu ekki verið notuð. -gk Krókaleyfisbátarnir: Meirihluti smábáta- eigenda valdi þorskaflahámarkið - fæstir velja kerfið handfæri-línuveiðar saman Smábátaeigendum buðust þrír kostir varðandi hvernig veiðistjórn- un þeir vildu velja sér innan hins nýja kerfis sem þeir vinna nú eftir. Langflestir, eða 556 menn, völdu svokallað þorskaflahámark, sem er bara kvótakerfi. Þeirra hlutur úr heildarkvóta smábátanna er 17.237 lestir. Handfæraveiðar eingöngu, sem er sóknardagakerfi, voru næstvinsæl- astar en það völdu eigendur 291 báts. Aflahlutdeild þeirra í kerfinu i ár er 2.107 lestir. Loks völdu 193 smábátaeigendur þann flokk sem kallast handfæri og línuveiðar, sem líka er sóknardaga- kerfi, og eru þeir með 1.510 lestir á bak við sig. Sóknardagabátamir mega veiða 84 daga á ári. Pottur þeirra í ár nemur rúmum 3.600 lestum, sem fyrr segir. Á næsta ári eykst hann um 20 prósent eins og í kvótakerf- inu. Ef þeir veiða samanlagt meira en nemur þeim 4.300 lestum sem þeim eru ætlaðar á næsta ári fækk- ar sóknardögum þeirra eftir ákveðnu kerfi fiskveiðiárið 1997/1998. Að sögn Þorsteins Þorsteinssonar verður heildarafli krókabáta á næsta fiskveiðiári rúmar 25 þúsund lestir. Og nú hafa smábátaeigendur endan- lega valið innan hvaða veiðikerfis þeir vilja vera í framtíðinni. -S.dór ifel tmáfeftiil r |íu( »■ | t ■ - á veiðistjórnun innan nýja kerfisins - Fjöldi þeirra sem völdu I I handfæri og línuveiðar 29i handfæraveiðar eingöngu Aflahiutdeild 1510 : 2107 556 þorskaflahámark 17.237 1000 20.000 10.000 Fjöldi manna Lestir Bætt afkoma hjá vernduðum vinnustað á Vesturlandi DV, Akranesi: Afkoman batnaði heldur hjá vemduðum vinnustað á Vestur- landi á síðasta ári miðað við árið áður, að sögn Þorvarðar Magnús- sonar ffamkvæmdastjóra. Hallinn á síðasta ári var 1,5 mÚljónir en árið áður 2,9 milljónir sem skýrist aðal- lega af hagræðingu í rekstri, svo sem með tímabundinni fækkun starfsmanna og auknum ffamlög- um stjórnvalda. „Ég er ekki bjartsýnn á þetta ár nema til komi aukin framlög óg býst við að hallinn verði sambæri- legur nema menn auki tekjurnar eða framlögin sem er áhyggjuefhi. Stjórnvöld bættu um betur á síð- asta ári en það þarf að fylgja því betur eftir og taka ákvörðun um launa- og kjaramál starfsmanna á vernduðum vinnustöðum sem eru í algjörum ólestri hjá stjórnvöldum þó þau séu í góðu lagi hér.“ Þann 1. apríl sl. var nafni Vemd- aðs vinnustaðar á Vesturlandi breytt í Fjöliðjuna. Þar störfuðu um áramótin 23 fatlaöir starfsmenn ffá Borgamesi og Akranesi. -DÓ Sherman Bearnson, áður Björnsson, ásamt fósturbróður sínum Paul Valgardson og Thoru Leifsson sem ættuð er úr Vestmannaeyjum. Vestur-íslendingar frá Spanish Fork: Fundu ættingja víða um land - boröuöu kvöldverð meö 28 Johnson og systur sinni Vina John- son Foster. Gat talað íslensku í æsku „Foreldrar mínir vom islenskir í báðar ættir, þannig að ég skildi og gat talað íslensku þegar ég var lítill en í dag skil ég ekki orð, því miður. Þetta hefur verið yndislegt og það er frábært að sjá landið sem afi og amma fæddust og bjuggu í og að hitta ættingja sem maður hafði ekki hugmynd um að væru til,“ sagði Sherman Beamson sem áður var Bjömsson en nafninu var breytt því hið ytra áttu menn í vandræðum með að bera það fram. Hópurinn hefur ferðast víða og m.a. til Vestmannaeyja, þar sem stofnað var til vinabæjasambands en margt af þessu fólki virðist ættað þaðan. Og eitt er víst, að margir úr hópnum ætla sér að koma aftur til íslands og styrkja böndin. „Ég talaði við ffænku mína í Vestmannaeyjum í morgun sem er skyld mér í móðurætt," sagði Lil Johnson Sheperd, einn 38 Vestur- ís- lendinga sem komu hingað til lands frá Spanish Fork í Utah í þeirri von að finna einhverja ættingja. „Við erum öll í sjöunda himni því að flest höfum við fundið einhver skyldmenni og ég fer heim með fulla tösku af pappírum með upplýsing- um um mitt fólk. Við borðuðum í fyrrakvöld með 28 ættingjum okkar og í gær heimsóttum við sex aðra, þannig að þetta er eins og í draumi," sagði Lil sem kom ásamt foður sínum Arthur Sig- urði Mildred Leifsson ætlar að baka pönnukökur að íslenskum sið þegar hún kemur heim og á tveimur pönnum, að sjálfsögðu. þeirra Myndin er af loftpressu af mjög svipaðri gerð og sú sem hvarf. Loftpressu stolið frá Suðutækni Loftpressa af gerðinni Inger- soll-Rand P130G hvarf á tímabil- inmu klukkan níu á miðviku- dagskvöld til tvö um nóttina af vinnusvæði á homi Reykjahlíð- ar og Eskihlíðar í Reykjavík. Loftpressan er í eigu Suðu- tækni sem er verktaki á vegum Hitaveitu Reykjavíkur á um- ræddum stað. Loftpressan er engin léttavara, um 800 kíló að þyngd, og eins og sést á mynd- inni er ekki hægt að tengja hana við venjulegan krók á bíl. Hvarf pressunnar er mjög al- varlegt mál fyrir fyrirtækið eins og gefur að skilja. Þeir sem kynnu að hafa orðið varir við umrætt tæki em beðn- ir að hafa samband við lögregl- una í Reykjavík. -ÞK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.