Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1996, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1996, Síða 19
MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 1996 31 Menning Ur sýningu Leikfélags ísiands á Stone Free. Hippar á rokkhátíð Verk Jims Cartwright hafa notið mikilla vinsælda hér á landi að undanförnu, þannig að það er vel við hæfi að tryggir aðdáendur fá nú fyrstir að njóta upp- færslu á nýju verki hans eins og rækilega hefur ver- ið kynnt að undanfornu. Stone Free er reyndar ekki leikrit í eiginlegum skilningi því að verkið lýsir rokkhátíð i lok sjöunda áratugarins og byggist að jöfnu upp á flutningi vinsælla laga frá þeim tíma og smámyndum sem lýsa tíð- aranda og víðfrægum viðhorfúm hippanna á þessu tímabili. Höfundareinkennum Cartwrights bregður fyrir 1 lýsingu á fólki og stemningu, en tónlistin er svo veigamikill þáttur í sýningunni að ekki er um eiginlega samfellu að ræða I persónulýsingum. Hippamenningin er í algleymingi, ungmenni streyma hvaðanæva að og njóta frelsis í grænu grasi umvafln hassreyk og drynjandi músík. Sumir eru orðnir töluvert verseraðir í þessum nýja lífsstíl en aðrir koma þarna sakleysið uppmálað. Friður og ást eru útgangsorð samkomunnar en inn- an um leynast harðsviraðir vítisenglar og sjálfsagt dópkaupmenn líka þó að þeir séu ekki beinlinis leidd- ir fram á svið í sýningunni. Það er freistandi að ímynda sér hvernig hægt hefði verið að gegnumlýsa þetta tímabil og eftirleikinn aðeins nánar því að all- ur efniviðurinn er þama fyrir hendi. En Stone Free er fyrst og fremst lýsing á stemn- ingu og andrúmslofti. Cartwright sleppir algjörlega öllum öðrum útlistunum og predikun er víðs fjarri. Áhorfendur eru einfaldlega staddir á þessari útihá- tíð og fá þar að njóta hörkugóðrar og kraftmikillar tónlistar í flutningi músíkanta sem kunna sitt fag. Lögin eru gamalkunn frá þessum tíma en útsetning- arnar taka mið af nútímanum. Jón Ólafsson er tón- listarstjóri og af söngvurum taka þau mest á sig Em- ilíana Torrini og Daníel Ágúst Haraldsson, sem glansa þarna í nokkrum lögum. Magnús Geir Þórðarson leikstjóri vinnur hér fmmraun sína á stóru sviði og fer vel frá henni þó að i mörg horn sé að líta. Sviðsnýtingin er frumleg, hluti áhorfenda situr í „brekkunni" uppi á sviðinu og myndcu: þannig lifandi hluta leikmyndar, sem að öðru leyti er fábrotin og raunsæ. Ein ábending: Ungu stúkurnar sem sitja næst hljómsveitarpallinum mættu hreyfa sig meira og vera mun virkari til að skapa líflegra yfirbragð. Leikaramir halda vel utan um þær persónulýsing- ar, sem brugðið er upp í hálfgerðum augnabliks- myndum og sumir fara á kostum. Ég verð þó að við- urkenna að ég hefði alveg eins viljað sjá meira til þeirra, bitastæðara handrit og meiri úrvinnslu á persónum hefði verið spennandi. Ingvar E. Sigurðsson er ófyrir- leytinn vítisengill og mátti varla kraftmeiri vera þegar mest gekk á fyrir honum. í hlutverki hippa- ferðalangsins var hann aftur á móti rólegur og syndandi í hassvímunni. Eggert Þor- leifsson kreisti safann úr hlutverki kynnis, Jóhann G. Jóhannsson fór svolítið offari i byrjun, en náði svo góðu sambandi við „saklausa" strákinn, og litla ást- arævintýrið var fallega unnið. Emilíana Torrini var indæl og ofurfalleg í hlutverki stúlkunnar. Margrét Vilhjálmsdóttir og Guðlaug Elísabet Ólafs- dóttir lífguðu upp á sýninguna með glæsilegum tökt- um í hlutverkum hippameyja en Daníel Ágúst átti svolítið bágt með að finna út úr sinni persónu, þang- að til hann fór með ljóðið Stríðsfréttir. Þar sló hann góðan tón. Kjartan Guðjónsson og Gísli Rúnar Jónsson léku þrælfúla og hneykslaða fulltrúa hins almenna borg- ara og léku á kómísku nótunum, áhorfendum til óblandinnar ánægju. Búningar Þórunnar Elísabetar Sveinsdóttur eru skemmtilega samansett flóra og eiga stóran þátt í að skapa sýningunni rétt yfirbragð. Uppsetningin er fyrst og fremst kraftmikil tónlist- arupplifun og gefur innsýn í hippatímann, sem marg- ir góðborgarar líta til með eftirsjá í dag. Leikfélag íslands sýnir á Stóra sviði Borgarleikhúss: Stone Free eftir Jim Cartwright Þýðing og leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson Tónlistarstjórn: Jón Ólafsson Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannesson Búningar: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir Lýsing: Lárus Björnsson Hljóðhönnun: Gunnar Árnason Leiklist Auður Eydal KENWOOD kraftur, gœði, ending Ármúla 17, Reykjavík, simi 568-8840 Sumarleyfi - lokun Viöskiptavinir vinsamlega athugiö. Vegna sumarleyfa starfsmanna veröur fyrirtækiö lokaö frá og meö 20. júlí til 6. ágúst. Ðón- og þvottastöðin ehf. Sigtúni 3 (Sóltúni) Blaðberar óskast á Lindarflöt, Smáraflöt, Stekkjarflöt og Hagaflöt í Garðabæ. Uppl. í síma 550 5777 DV Fáskrúðsfjörður k\V\\\\\\\\\\\\\ Nýr umboösmaöur DV Kjartan Reynisson Álfabrekku 6 - Sími 475 1248 Askrifendur fá aukaafslátt af a\\t mll/l hlmi, Smáauglýsingar smáauglýsingum DV DV SS0 5000 fsetning og innsiglun Bjóðum nýja ökurita fra VR ásamt ísetningu og innsiglun á öllum gerðum rafdrifinna ökurita. HEKLA véladeild Laugavegi \7(y\7Á, sími 569 5500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.