Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.1996, Side 14
14
íþróttir
Birgir Leifur Hafþórsson, GL, lék stórkostlegt golf í Eyjum í gær og hefur náö yfirburöaforskoti í meistaraflokki
karla. Birgir Leifur setti glæsilegt vallarmet í gær og lék á 66 höggum. DV-mynd ÞoGu
Birgir að
stinga af
DV, Eyjum:
Birgir Leifur Hafþórsson úr GL,
lék án efa besta golfhring í lífí sínu
í gær. Hann lék á 64 höggum sem
er aö sjálfsögðu vallarmet og
jafnframt lægsta skor sem fengist
hefur á landsmóti frá upphafi.
Þegar mótiö er hálfnað í
meistaraflokkunum hefur Birgir
Leifúr 8 högga forystu á Björgvin
Þorsteinsson, GA. Birgir hefur
leikið á 133 höggum en Björgvin á
141 höggi. Þorsteinn Hallgrímsson,
GV, kemur svo í þriöja sætinu, lék
á 74 höggum í gær og er á samtals
144 höggum. Sigurpáll Geir
Sveinsson, GA, lék vel í gær, kom
inn á 71 höggi og bætti sig um 10
högg frá fyrra degi.
Ekkert virðist geta komið í veg
fyrir að hinn 19 ára gamli
Skagamaður verði íslandsmeistari
í fyrsta sinn. Hann kórónaði
hringinn með því að fara 18.
holuna á tveimur undir pari.
Birgir fékk fímm fugla (einn undir
pari), á 1. 5. 8. 10. og 16. holu.
Allt getur gerst
„Það gekk altt upp hjá. mér, ég
lék alveg eins og ég geri hest,
sérstaklega gekk vel að pútta. En
mótið er bara hálfnað og allt getur
gerst. Ekkert er hægt að bóka
fyrirfram," sagði Birgir eftir
hringinn í gær.
Birgir á titilinn skilinn
Björgvin Þorsteinsson sagði að
Birgir hefði spilað stórkostlega og
erfitt væri að eiga við hann í
þessum ham. Birgir ætti titilinn
skilinn og því setti hann stefnuna á
2. sætið. Björgvin hélt í við Birgi
framan af en gaf eftir á seinni níu
holunum þar sem hann fékk skolla
á 11. 14 og 15. holu. Meistarinn frá
því í fyrra, Björgvin
Sigurbergsson, GK, lék á 75
höggum og er í 6. sæti á 146
höggum.
Staða efstu manna:
Birgir L. Hafþórsson, GL .........133
Björgvin Þorsteinsson, GA ........141
Þorsteinn Hallgrímsson, GV.......145
Þóröur E. Ólafsson, GL ...........145
Kristinn G. Bjamason, GL .........145
Björgvin Sigurbergs, GK ..........146
Viggó H. Viggósson, GR ...........147
Guðmundur Hallgríms, GS..........147
örn Æ. Hjartarson, GS.............148 •
Hjalti Pálmason, GR...............149
Sveinn Sigurbergsson, GK .........149
Ivar Hauksson. GKG................149
Gunnlaugur Sævarss, GG............150
Þorkell S. Sigurðsson, GR.........151
Ásgeir J. Guðbjartsson, GK.......151
Karen langt frá sínu besta
Hjá meistaraflokki kvenna er
Karen Sævarsdóttir, GS, með
forystuna þrátt fyrir að vera langt
frá sínu hesta í gær. Hún lék á 80
höggum og er meö samtals 155
högg. í 2. sæti er Ragnhildur
Sigurðardóttir, GR, á 159 höggum
en hún lék á 74 höggum í gær og
átti frábæran dag.
Staðan í kvennaflokki:
Karen Sævarsdóttir, GS ............155
Ragnhildur Sigurðard, GR...........159
Ólöf M. Jónsdóttir, GK ............160
Þórdis Geirsdóttir, GK ............161
Herborg Amarsdóttir, GR............164
Hildur og Kjartan
Islandsmeistarar
Kepnni lauk í 2. flokki kvenna í
gær og í 3. flokki karla. Hildur Rós
Símonardóttir, GA, sigraði í 2.
flokki kvenna. Hún sigraði
Sigrúnu Rögnu Sigurðardóttur,
GG, í bráðabana en báðar léku þær
- á 392 höggum. í 3. sæti varð Kristín
Guðmundsdóttir, GR, á 403
höggum.
í 3. flokki karla varð Kjartan S.
Kristjánsson, GKG,
íslandsmeistari. Hann lék á 341
höggi. í 2. sæti var Ólafur Jónsson,
GR, á 342 höggum og í 3. sæti
hafnaði Hjörleifur Þórðarson, GV,
á 342 höggum en Ólafur vann hann
í bráðabana um 2. sætið.
Staðan í 2. flokki karla:
Davið Viðarsson, GS...............240
Andri G. Viöarsson, GHD...........241
Guðjón Grétarsson, GV.............244
Bjöm Halldórsson, GKG.............244
Egill Þ. Sigmunds, Gí.............246
Þrjú högg uröu aö sex
Fram að þessu höfum við
einungis birt hrakfallasögur af
kylfingum úr lægri flokkum. En
sjálfir meistaraflokksmennirnir
geta einnig gert rósir eins og
geröist í gær. Þá var einn úr þeirra
hópi búinn að slá fallega inn á flöt,
svo sem þrjú fet frá holu, og bjó sig
undir að að pútta fyrir fuglinum
sínum og fá töluna þrjá á
skorkortið.
En púttið rataði ekki ofan í og
boltinn staðnæmdist tæplega fet
frá holu. Okkar maður ætlaði að
reka endahnútinn á þetta og
tryggja sér parið en þá vildi ekki
betur til en svo að hann, í
einhverju kæruleysi, púttaði
boltanum í tána á skónum sínum
og fékk þar með þrjú högg til
viðbótar í víti.
Ekki fór boltinn að heldur niður
í því höggi en vel var vandað til
næsta pútts sem rataði rétta leið.
En súrt þótti okkar manni að fá
töluna 6 skráða á kortið sitt í
staðinn fyrir 3 eins og allt stefndi
að í upphafi.
-ÞoGu
8,4 milljónir miða
hafa verið seldar
Skipuleggjendur Ólympíuleikanna
segja að 8,4 milljónir miða hafi verið
seldar fram til þessa á hina ýmsu
íþróttaviðburði í Atlanta. Bara í þessari
viku hafa verið seldir miðar fyrir 458
milljón Bandaríkjadali og búist er við að
heildarsalan á miðum verði 1,7
milljarðar dollarar.
Mutombo kom
til hjálpar
Dikembe Mutombo
körfuknattleiksmaðurinn snjalli sem
leikur með Atlanta Hawks í NBA-
deildinni, kom löndum sínum til
hjálpar. Mutombo, sem er frá Zaire, og
gerði nýverið samning við Atlanta upp á
56 miÚjónir dollara, ákvað að gefa
kvennalandsliði Zaire í körfúknattleik
íþróttafatnað og skóbúnað fyrir 15.000
dollara.
Michelle Smith með
hreint borð
Niðurstaða er kominn úr lyíjaprófi
sem írska gulldrottningin Michelle
Smith gekkst undir eftir að. hún nældi
sér í sín fyrstu gullverðlaun á leikunum.
Ekkert kom fram í prófinu sem bendir
til lyfjaneyslu en margir keppinautar
hennar hafa talið fullvíst að hún væri
ekki með hreint borð í þessum málum.
Hitinn leggur
marga í rúmið
Hinn mikli hiti sem hefur verið í
Atlantaborg síðan leikamir hófust hefúr
komið mörgum í rúmið. Bæði
áhorfendur og keppendur hafa fengið
hitakrampa og sumir hafa átt erfitt með
öndun. 35-ÁO stiga hiti hefur verið í
Atlanta undanfama daga og rakinn
rnikill.
Fer allt í steik
um helgina?
Umferðin í Atlantaborg hefur ekki
gengið sem skyldi frá því leikamir
hófust og miklar tafir orðið á
samgöngum. Skipuleggjendur hafa verið
harðlega gagnrýndir fyrir skipulagsleysi
en allra síðustu dagana hefur þeim
tekist að greiða að mestu úr flækjunni.
Menn óttast nú að allt fari í steik um
helgina en þá hefst keppnin í frjálsum
íþróttum. Þrisvar á dag mun
frjálsíþróttavöOurinn fyllast, 80.000
manns, og þegar þeir koma og fara má
búast við umferðaröngþveiti.
Engir stórglæpir
Lítið hefur verið um stórglæpi í
Atlanta frá því leikarnir vom settir um
síðustu helgi, að sögn lögregluyfirvalda.
Svo virðist sem glæpamennimir í
borginni uni hag sínum vel innan allt
ólympiustússiö og fylgist frekar með
keppninni en að stimda vafasama iðju.
Svíar ætla sér
gullverðlaunin
Æðsti draumur Bengts Johannssonar,
landsliðsþjálfara Svía í handknattleik,
og strákanna hans í landsliðinu er að
hampa ólympíugullinu. Johannsson og
flestir leikmenn liðsins eiga þennan titil
bara eftir í saftiið og þeir geta ekki
skiliö sáttir við liðið nái þeir ekki
takmarki sínu. Svíar vom ekki ýkja
bjartsýnir fyrir leikana vegna meiðsla
lykilmanna en eftir úrslitin í gær, þar
sem þeir unnu Svisslendinga á ömggan
hátt, gæti draumur þeirra orðið að
veruleika.
-GH
FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1996
FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1996
DV I>V
Popov einstakur
- fyrsti sundmaðurinn í sögu ÓL sem vinnur 50 og 100 m skriðsund tvenna leika í röð
Á næstsíðasta keppnisdegi
í sundi á Ólympíuleikunum
í Atlanta í nótt unnu
Bandaríkjamenn og
Ungverjar til tvennra
gullverðlauna. Rússinn
Alexander Popov
undirstrikaði enn eina
ferðina að hann er einn
sterkasti sprettsundsmaður
sem uppi hefur verið. Hann
hefur sigrað í 50 og 100 metra
skriðsundi á leikunum í
Atlanta og það gerði hann
einnig í Barceloma fyrir
fjórum árum. Þetta voru
fimmtu gullverðlaun hans á
Ólympíuleikum.
Popov sigraði örugglega í
50 metra skriðsundinu en
hann hefur ekki tapað sundi
í fjögur ár. Þetta er
íþróttamaður í fremstu röð.
Hann ætlaði að bæta
heimsmet sitt en það gekk
ekki eftir í þetta skipti.
Hin 16 ára gamla
bandaríska stúlka Brooke
Bennett sigraði með
yfirburðum í 800 metra
skriðsundi kvenna. Sundið
var vel útfært hjá henni og
áttu keppinautar hennar
aldrei möguleika í hana.
Janet Evens má mun sinn
fifil fegri. Evans, sem á
heimsmetið í greininni, varð
að gera sér sjötta sætið að
góðu. Frammistaða hennar á
heimavelli hefur valdið
löndum hennar miklum
vonbrigðum.
Krisztina Egerszegi frá
Ungverjalandi sigraði í 200
metra baksundinu þriðju
Ólympíuleikana í röð. Hún
var 14 ára gömul á leikunum
í Seoul þegar hún sigraði í
fyrsta sinn. Ástralska
sundkonan Dawn Fraser lék
sama leik í 100 metra
skriðsundi á leikunum 1956,
1960 og 1964.
í sundinu í nótt voru
merki á lofti um tíma að hún
ætlaði að bæta heimsmet sitt
frá Evrópumótinu í Aþenu
1991. Hún var ekki svo fjarri
því en það hefði örugglega
gerst ef hún hefði fengið
meiri keppni, yfirburðir
hennar í súndinu komu i veg
fyrir það.
Finnar voru fiölmargir á
áhorfendapöllunum þegar að
200 metra fiórsundinu kom.
Þar var þeirra maður Jani
Sievinen mættur til leiks og
báru Finnar þá von í brjósti
að hann yrði annar Finninn
sem ynni til gullverlauna í
sundi á Ólympíuleikum.
Finnum varð ekki að ósk
sinni heldur stal Ungverji
nokkur, Atilla Czene,
senunni með því að sigra
öllum að óvörum. Flestir
tippuðu á heimsmethafann
frá Finnlandi enda synti
hann mest allra í
undanrásum fyrr um daginn.
Sievinen synti einfaldlega
illa í úrslitasundinu og það
viðurkenndi hann einnig
eftir sundið. Finn.ar áttu þá
von heitasta að Sievinen
kæmi heim frá Atlanta með
gullverðlaun um hálsinn.
Sievinen var óánægður með
sjálfan sig eftir sundið. „Ég
synti fyrstu 200 metrana alls
ekki nógu vel og það kom í
veg fyrir að ég sigraði í
sundinu," sagði Finninn.
Bandarísku
sundmennirnir halda áfram
að sópa til sín verðlaunum. í
nótt bættu þeir tvennum
gullverðlaunum í safnið sitt
og eru því gullpeningamir
orðnir tíu talsins. Tíunda
gullið vann bandaríska
kvennaboðsundssveitin í
4x200 metra skriðsundi.
Þýska sveitin tók forystu í
byrjun en bandarísku
stúlkurnar tóku síðan
forystuna og sigruðum að
lokum mjög örugglega.
-JKS
Körfubolti kvenna
Rússland-Ítalía.............75-70
Bandarlkin-Zaire ..........107-47
S-Kórea-Úkraína ............72-67
Ástralía-Kúba ..............75-63
Brasilia-Japan ............100-80
Handbolti karla:
A-riðill:
Svíþjóö-Sviss ............26-19
Kúveit-Króatía............22-31
B-riðill:
Frakkland-Alsir...........33-22
Spánn-Þýskaland...........22-20
Egyptaland-Brasilía.......31-20
Rússland-Bandarikin.......31-16
Blak karla:
Argentína-Búlgaria..........3-1
Italía-Holland .............3-0
Brasilía-Pólland ...........3-0
Knattsovma kvenna:
Sviþjóð-Danmörk ............3-1
Bandaríkin-Kina.............0-0
Brasilia-Þýskaland .........1-1
Noregur-Japan ..............4-0
Knattsnvrna karla:
Brasilía-Nígería ...........1-0
Japan-Ungverjaland .........1-1
Ítalía-Suður-Kórea..........2-1
Ghana-Mexíkó................1-1
Magnus Wislander og Staffan Olson taka hér á Svisslendingnum Roman
Brunner í leik þjóðanna í nótt. Símamynd Reuter
Handknattleikur karla:
Sprækir Svíar
Svíar sýndu og sönnuðu í gær að
þeir ætla sér langt í handboltakeppni
Ólympíuleikanna. Svíar unnu sann-
færandi sigur á Svisslendingum,
26-19, eftir að hafa haft yfir í hálfleik,
14-8.
Króatar unnu öruggan sigur á
Kúveit, 31-22, þar sem Patrík Javar
skoraði átti mjög góðan leik og skor-
aði 10 mörk fyrir Króata.
Alsírmenn komust í 5-1 gegn
Frökkum en þá tóku heimsmeistar-
amir loks við sér. Þeir náðu yfir-
höndinni, höfðu yfir í hálfleik, 13-10,
og sigmðu með 10 marka mun, 33-22.
Markvörður Frakka setti í lás og Al-
sírmenn skoruðu aðeins 3 mörk
fyrsta korterið í síðari hálfleik.
Stephane Stoecklin skoraði 9 mörk
fyrir Frakka.
Spánverjar héldu sér inni í keppn-
inni með því að bera sigurorð af
Þjóðverjum í hörkuleik, 22-20, eftir
tap í fyrsta leik gegn Frökkum.
-GH
Aleksandr Popov, fyrir miðju, með gulliö í Atlanta í nótt. Silfrið vann Gary Hall
frá Bandaríkjunum og bronsið fór til Fernando Sherer frá Brasilíu.
Krisztina Egerszegi frá Ungverjalandi fagnar mikum yfirburöasigri í 200
metra baksundi kvenna í nótt. Símamyndir Reuter
Knattspyrna:
Brasilíumenn
lögðu Nígeríu
Brasilíumenn komust í 8-liða úr-
slitin í nótt þegar þeir sigruðu Ní-
geríu, 1-0, í lokaumferð D-riðils.
Hinn 19 ára gamli Ronaldinho skor-
aði sigurmarkið eftir korter.
Brasilía og Nígería halda því
áfram úr riðlinum en þjóðirnar
fengu 6 stig hvor. Japan, sem vann
Brasilíu í fyrstu umferðinni, gerði
1-1 jafntefli við Ungverja og situr
eftir með 4 stig en Ungverjar fengu
eitt stig.
ítalir kvöddu með sigri í C-riðlin-
um, 2-1 gegn Suður-Kóreu. Marco
Branca skoraði bæði mörkin.
Kóreubúunum dugði jafhtefli til að
komst í 8-liða úrslitin en verða nú
að hverfa heim eins og Ítalír.
Mexikó tryggði sér sigur í riðlinum
með 1-1 jafntefli við Gana og stigið
reyndist duga Gana til aö ná öðru
sætinu fyrst Suður-Kórea tapaði.
Mexíkó fékk 5 stig, Gana 4, Suð-
ur-Kórea 4 og Ítalía 3 stig.
í knattspyrnu kvenna gengur
Evrópuliðunum illa og eru öll úr
leik nema eitt, Noregur. Norsku
stúlkurnar unnu Japan í nótt, 4-0,
og fara áfram úr sínum riðli. Þýska-
land gerði jafntefli við Brasilíu, 1-1,
og þar með komust brasilísku stúlk-
urnar áfram, á kostnað þeirra
þýsku. Bandaríkin og Kína fara
áfram úr hinum riðlinum en Dan-
mörk og Svíþjóð hverfa heim á leið.
-VS
Miskunnarlaus dagblöð
Dagblöð um allan heim fara ekki ljúfúm höndum um skipuleggjendur
Ólympíuleikanna í Atlanta. Ian Macleod hjá the London Daily Telegraph
sagði að hið almenna viðhorf í Atlanta væri „að ástandið hlyti að batna“.
Fyrirsögn blaðsins var: „Hjólin rúOa af Ólympíuleikunum".
Britains Daily Express hafði þetta að segja: „Skipuleggjendumir
göbbuðu heiminn þegar þeir sögöu að þessi „gamli kántríbær" gæti hald-
ið stærsta íþróttaviðburð í heiminum." Þýska blaðið Sueddeutsche Zeit-
ung hafði lika sitt að segja. „Þúsundir sjálfboðaliða, sem eru jafn vinsam-
legir og þeir em utan við sig, hafa ekki hugmynd um hvert starf þeirra
er.“ The Indian Express, „Klúðurveisla á ziOjón doOara Ólympíuleikun-
um.“ Dagblaöið franska, France-Soir, sagði: „GuOverðlaun fyrir ringul-
reið,“ og bættu þeir einnig við: „RútubOstjórar segja upp, símar bOa,
rútustöðvar era yfirfuOar og tölvurnar þola ekki álagiö." AOt saman satt,
játa yfirmenn leikanna, en þeir era að vinna í því að leysa vandamálin.
-JGG
íþróttir
Sund:
800 m skriðsund kvenna:
1. Brooke Bennett .8:27.89
2. Dagmar Hase . 8:29.91
3. Kirsten Vlieghuis 8:30.84
4. Kerstin Kieglass, 8:31.06
5. Trenft Dalhv
50 metra skriðsund karla:
1. Alexander Popov . . 22.13
2. Gary Hall . . 22.26
3. Femando Scherer . . 22.29
4. Chegji Jiang . . 22.33
5. Brendon Dedekind . . 22.59
200 metra baksund kvenna:
1. Krisztina Egerszegi .... 2:07.83
2. Whitney Hedgepeth .... 2:11.98
3. Cathleen Rund 2:12.06
4. Anke Scholz 2:12.90
5. Miki Nakao 2:18.57
200 metra fjórsund karla:
1. Atilla Czene 1:59.91
2. Jani Sievinen 2:13.00
3. Curtis Myden 2:01.13
4. Marcel Wouda 2:01.45
5. Matthew Dunn 2:01.57
4x200 m boðsund kvenna:
1. Bandaríkin .........7:59.87
2. Þýskaland .
3. Ástralía ...
4. Japan . ...
5. Kanada . ..
. 8:01.55
8:05.47
8:07.46
8:08.16
Boðið til veislu
Guðrún Cliusield, aðalfylgdar-
maður íslensku íþróttamann-
anna í Atlanta, bauð hópnum tO
mikillar veislu á heimilinu sínu
í gær. Guðrún hefur búið í Atl-
anta í áratugi.
Clinton fór víða
BiO Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, fór víða um á ólympíu-
svæðinu í Atlanta í gær.
Hann fylgdist meðal annars
með fimleikum og sundi. Hann
tók fólk að tali en þeim hópi
voru Logi Jes Kristjánsson sund-
maður og Magnús Tryggvason
sundþjálfari.
4 Voíðlatm 'CQp' - eftir Þjððum - j» a i m Þjoðir W W W
Rússland 13 7 5
Bandarikin 12 16 4
Frakkland 7 4 7
Kina 5 5 6
Pólland 5 3 2
Ítalía 5 4 4
Kúba 3 4 5
Suður-Kórea 3 4 2
Ástralía 3 2 7
Tvrkland 3 0 1
írland 3 0 0
Ungverjaland 3 2 5
Þýskaland 3 8 11
Japan 2 3 2
Belgia 2 1 2
Nýja-Sjáland 2 0 1
Suður-Afrika 2 0 1
Úkraína 2 0 2
Rúmenía 1 2 3
Júgóslavía 1 0 1
Armenía 1 0 0
Kosta Rika 1 0 0
Kasakhstan 1 1 1
Hvíta-Rússland 0 3 2
Grikkland 0 2 0
Búlgaría 0 2 4
Brasilía 0 1 4
Kanada 0 1 3
Norður-Kórea 0 1 1
Spánn 0 1 1
Svíþjóð 0 1 1
Austurriki 0 1 0
Bretland 0 1 0
Finnland 0 2 0
Úsbekistan 0 1 0
Holland 0 0 5
Georgia 0 0 1
Moldavia 0 0 1
Slóvakía 0 0 Ath.: 2 brons í júdó og hnefaleikum. 1