Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Blaðsíða 4
4 éttir j LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 3D"V Rækjuveröiö: Farmanna- samband- ið mót- mælir Stóöhesturinn Baldur frá Bakka fyljar illa: Margar hryssurnar geldar eftir folann Stóðhesturinn Baldur frá Bakka hefur að undanfomu valdið óá- nægju meðal hrossaræktenda á Vesturlandi. Hrossaræktarsamband Vesturlands bauð Baldur til afnota fyrir hrossaræktendur eitt tímabil fyrr i sumar. Tuttugu hryssum var haldið undir hann en í júlí hafa flestar hryssumar verið sónarskoð- aðar og í ljós kom að þær eru allar geldar. „Það er rétt að þær hryssur sem haldið var undir Baldur og hafa ver- ið sónaðar em galtómar. Það er auð- vitað slæmt þegar svona kemur fyr- ir en þetta getur alltaf gerst. Við fengum stóðhestinn frá eigendum á Húsavík í vor. Á fyrra tímabili hestsins fyrir norðan í vor veit ég að aðeins tvær hryssur af 25, sem voru settar undir hann, reyndust í lagi við sónarskoðun. Hinar voru flestar tómar en einhverjar höfðu ekki fengið niðurstöður úr skoðun- inni,“ sagði Bjami Marinósson, for- maður Hrossaræktarsambands Vesturlands, við DV um málið. „Það geta verið margir þættir sem koma til greina. Það er spurn- ing hvort þetta er hesturinn sjálfur eða af mannavöldum, t.d. hvort hesturinn var rétt fóðraður. Það er spuming hvort þetta er ættgengt í hrossastofninum og það þarf að rannsaka nánar. Það er skiljanlegt að fólk sé óánægt með aö flestar hryssur sem koma i sónarskoðun séu tómar. Ég vil þó taka fram að þessi sónarskoðun pfur ekki alveg öruggar niðurstöður. Þetta er annað árið í röð sem viö lendum í þessari stöðu. í fyrra var það stóðhesturinn Viðar frá Viðvík sem gagnaðist hryssunum ilia. Það sem er jákvætt við þetta er að þaö verður ekki of- fjölgun á meðan,“ sagði Bjami. Feiknavinsæll stóöhestur „Baldur hefur verið feiknavinsæll stóðhestur eftir að farið var að temja afkvæmi hans. En nú lítur út fyrir að það sé eitthvað mikið að stóðhestinum. Það þarf að taka sæði og rannsaka betur og við munum fá færustu dýralækna til að aðstoða okkur við að koma hestinum í lag. Það geta verið ýmsar ástæður og við ætlum að fínna þær og laga. Við höf- um lent í sömu vandræðum og þeir á Vesturlandi með stóðhestinn og hann fyljaði einnig illa hér fyrir norðan. Við höfum í mörg ár endur- greitt félagsmönnum okkar folatolla ef hryssurnar reynast ekki með fyli við sónarskoðun og gerum aö sjálf- sögðu svo áfram,“ sagði Guðmund- ur B. Þorkelsson, formaður Hrossa- ræktarsambands Eyfirðinga og Þingeyinga, en þeir eiga helming í Baldri á móti Hrossaræktarsam- bandi Dalamanna. -RR Benedikt Valsson, fram- kvæmdastjóri Farmanna- og fiskimannasambands íslands, segir það ekki rétt að rækja ;i hafl lækkað um allt að 33,8 pró- sent á einu ári eins og kom t fram i samtali við Pétur Bjarna- | son, framkvæmdastjóra Félags rækju- og hörpudisksframleið- enda í DV. Benedikt segir að meðaltals- 1 lækkunin sé 12 prósent ef allt ;j er talið. Hann segir að nú séu : rækjuverkendur að reyna að fá j hráefnisverð til sjómanna i lækkað. Hins vegar hafi það verið svo að þegar rækjuverðið hækkaði jafnt og þétt árin 1993 og 1994 hafl verð til sjómanna | ekki hækkað í takt við afurða- : verðshækkunina. Það hafi tekið marga mánuði að hreyfa hrá- j efnisverðið upp á við. -S.dór Vinna við Blöndulón á undan áætlun: Nær helmings- stækkun lónsins að Ijúka - markar verklok við Blönduvirkjun Steypuvinnu við Blöndulón lauk nú í vikunni eftir mikla töm, en verkið hófst þremur vikum síðar en áætlað var, en lauk viku fyrr en áætlun gerði ráð fyrir. Nú er því búið að hækka stíflugarðinn og yfir- fallið við enda lónsins og aðliggj- andi garða, en alls eru þeir 420 metrar aö lengd og þriggja metra háir. Sjálf steypuvinnan tók alls þrjár og hálfa viku. Verktaki við þessar framkvæmd- ir er Völur hf. i Reykjavík og að þeim loknum stækkar Blöndulón úr 220 gígalítrum í 400 og meiri orka næst út úr Blönduvirkjun með því að mun meiri vatnsforði verður til- tækur allan ársins hring, að sögn Ingvars Björnssonar, verkfræðings hjá Landsvirkjun. Á sínum tíma voru uppi deilur um Blönduvirkjun og þegar hún var byggð fékkst ekki heimild fyrir stærra lóni en verið hefur við hana fram til þessa. „Með stækkun ísal var hægt að sýna fram á að þörf væri fyrir meiri orku og þá fékkst heimild til að ljúka við virkjunina, en með þessari framkvæmd er nán- ast verið að ljúka við hana,“ segir Ingvar og bætir við, að með þessu aukist afköst Blönduvirkjunar um- talsvert. Nú, þegar steypuvinnunni við garöinn er lokið, er eftir að fylla upp við hvorn enda hans, en því verki og öllum frágangi á að vera lokið 17. september nk. og þá verður hægt að fylla lónið alveg. -SÁ Samherjamenn að kaupa á Eskifirði: Samningar langt j komnir en ekki frágengnir - segir Ragnhildur Kristjánsdóttir „Það er mikið í gangi hjá okk- ur við að selja fyrirtækið. Samn- | ingar eru langt komnir að ég tel I en málið er samt ekki frágengiö. Og á meðan ekki hefur verið skrifað undir er svo sem lítið || meira um það að segja,“ sagði j Ragnhildur Kristjánsdóttir, l í framkvæmdastjóri Friöþjófs hf, sem er útgerðar- og fiskviimslu- fyrirtæki á Eskifirði. Það eru þeir Samherjamenn á Akureyri sem eru að kaupa fyrirtækið. Friðþjófur hf. á eitt skip, Sæljón SU, sem er 250 tonn og hefur stundað mest rækju- og síldveiðar. Skipið á rækjukvóta, sildar- kvóta og svolítinn bolfiskkvóta. Hann er þó svo lítill orðinn að það var ekki talið taka því að gera bátinn út á vetrarvertíð í vetur er leið að sögn Ragnhildar. Auk þess rekur fyrirtækið saltfiskverkun og mikla síldar- verkunarstöð á Eskifirði. Hefur síldarverkunarstöðin verið rekin af miklum krafti undanfarin ár. -S.dór íoooo 9.580 ' Þýskaland Frakkland Bandarikin Bretland Danmóik Svíþjóö Noregur Sviss Holland Austurríki Ítalía Taiwan ________________________________________________________________________________________________________ Þarf verulega aukn- ingu ferðamanna - til að ná nauðsynlegum árangri, segir ferðamálastjóri „Tölurnar um komu erlendra gesta eru ekki stóri sannleikurinn um afkomuna en þær eru vissulega vísbendingar. Það sem skiptir höf- uðmáli þegar upp er staðið eru tekj- umar og afkoman en niðurstöður um það fáum við ekki fyrr en í árs- lok,“ sagði Magnús Oddsson ferða- málastjóri við DV í gær, aðspurður hvemig ferðamannasumarið hafi verið á íslandi í ár. Samkvæmt tölum frá útlendinga- eftirlitinu komu 43.206 útlendingar til landsins í júlí sl. en á sama tíma í fyrra voru þeir 41.569. Þrátt fyrir að um aukningu sé að ræða segir Magnús að þessar tölur hringi ákveðnum viðvörunarbjöllum því það þurfi enn verulega aukningu ferðamanna til að ná þeim árangri sem nauðsynlegur sé í þessari at- vinnugrein. „Það er alveg ljóst að það er um samdrátt að ræða á þeim stóra er- lendu markaðssvæðum sem hafa gefið okkur mest undanfarin ár sem eru Þýskaland og Norðurlöndin. Það þarf aukinn árangur ár frá ári til að ná viðunandi og ásættanlegri nýtingu í allar þær auknu fjárfest- ingar sem er búið að setja í þessa at- vinnugrein. Þetta gefur okkur Erlendir feröamenn í rigningunni í Reykjavík. Verulega aukningu ferða- manna þarf til að nauösynlegur ár- angur náist í íslenskri ferðaþjón- ustu, segir Magnús Oddsson ferða- málastjóri. DV-mynd JAK ákveðnar vísbendingar að við séum ekki að ná þeim árangri sem við þurfum og það hlýtur að vera alvar- legt áhyggjuefni. Það eru ýmsar ástæður að baki eins og að veðurfar erlendis var mjög óhagstætt á stærsta sölutíman- um fyrir íslandsferðir. Efnahagsá- stand hefur líka sitt að segja og það er líka gífurleg samkeppni sem er á markaðnum í framhaldi af því að nýir ferðamannastaðir og lönd eru að opnast. íslendingar meira á ferðinni Það sem er ánægjulegast þegar þessar tölur eru skoðaðar er að við virðumst vera að ná góðum árangri á öðrum svæðum, t.d. Bandaríkjun- um, Frakklandi, Bretlandi og Hollandi. Við höfum líka ástæðu til að ætla að íslenski markaðurinn sé að skila meira en áður. íslendingar virðast vera meira á ferðinni innanlands og hafa tekið vel þeirri áskorun að sækja ísland heim. Það er mjög ánægjulegt þegar horft er yfir feröa- sumarið," sagði Magnús. -RR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.