Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 199.6 imglinga Önnum kafinn unglingur í spjalli hjá DV: Skemmtilegt að hafa mikið að gera Undanfamar vikur hefur mikið verið rætt um unglinga og atvinnu- leysi ásamt drykkju um verslunar- mannahelgina og fleira í neikvæð- um dúr. Það gleymist stundum í umræðunni að margir unglingar vinna hörðum höndum í sumarfrí- inu og með skólanum og komast ekki á útihátíðir vegna vinnu eða hreinlega langar ekki til að veltast um í misjöfnu ástandi. Guðbjörg Guðmundsdóttir er ný- orðin sextán ára en hún hvorki reykir né drekkur og fór ekki á úti- Guðbjörg Guömundsdóttir er önn- um kafin sextán ára stúlka sem nýt- ur þess aö hafa mikið aö gera. hátíð um verslunarmannahelgina heldur þjónaði í brúðkaupi ættingja sinna. Guðbjörg er ímynd heil- brigðra unglinga en hún vann í unglingavinnunni í sumar, passar börn eftir að henni lauk, þjálfar tvö lið í fótbolta auk þess að æfa sjálf fótbolta með Fjölni í öðrum flokki meistaradeildar. Guðbjörg leikur þar hægri bakvörð. „Það hefur hist þannig á að ég hef verið beðin um að hjálpa til í brúð- kaupum hjá ættingjum mínum. Stundum koma tímabil þegar ég hef mjög mikið að gera. Mér þykir það mjög skemmtilegt því annars leiðist mér. Ég hef náttúrlega minni tíma til þess að sinna félögunum en það gerir ekki mikið til þar sem ég fæ félagsskap í gegnum fótboltann," segir Guðbjörg. Guðbjörg þjálfar, auk þess að æfa knattspyrnu, sjöunda flokk karla og sjötta flokk kvenna i sumar. Hún hefur þjálfað annað liðanna í eitt ár. Hvernig lítur annasamur dagur Guðbjargar út? „í sumar fór ég í unglingavinn- una á morgnana og beint þaðan til þess að þjálfa annan flokkinn. Strax þar á eftir þjálfaði ég hinn flokkinn. Þá hafði ég rétt tíma til þess að fara heim og skipta um föt til þess að fara sjáif á fótboltaæfmgu. Á kvöld- in fór ég síðan út til þess að hitta vini mína. Ég hef oftast nær haft svona mikið að gera. Það koma einnig tímabil þegar ég passa börn, til dæmis þegar dagheimili eru lok- uð, en það geri ég núna í tvær vik- ur. Þess á milli passa ég stundum á kvöldin. -em M Guöbjörg passar þá Alexander og Atla Geir Lárussyni á meöan dagmamman er í sumarfríi. DV-myndir JAK Endalaust framhjáhald - hjónaband Micks Jaggers stendur á brauðfótum Mick Jagger er nú hundeltur af einkaspæjara því eiginkonu hans, Jerry Hall, er farið að ofbjóða fram- hjáhald kappans. Einkaspæjarinn hefur þegar skrifað þykkar skýrslur um ferðir stjörnunnar og eru þar m.a. lýsingar af ferðum hans í næt- urklúbba Londonborga'r í fylgd sér mikiu yngri kvenna. Fyrir ein- ungis tveim- ur vikum sást til hans yfirgefa dýrt og fínt hótel eftir að hafa eytt þar nóttinni með fyrir- sætu. Hann skráði sig undir folsku nafni en einkaspæj- arinn náði mynd af honum brosandi út að eyrum við að snæða morgunverð á hótelinu. „Jerry lít- ur út fyrir að verða óhamingjusamari með hverjum deg- inum sem líður. Maður sér hana orðið aldrei brosa,“ er haft eftir ná- granna þeirra hjóna en sagt er að hún sé að fá alveg nóg af kappanum þrátt fyrir að hafa á sínum tíma skrifað Jagger bréf þar sem hún lof- ar að elska hann að eilífu án allra skuldbindinga og gefur honum leyfi til að sænga hjá öðrum konum. „Ég vonaði alltaf að þetta myndi eldast af honum og að hann myndi ekki halda fram hjá mér aftur. Við höfum virkilega lagt okkur fram en það er ekkert jafn niðurlægjandi og að elska hann svo mikið að maður fyrirgefi þessa lesti hans,“ sagði Jerry í viðtali nýlega. Hinn 52 ára Mick, sem er fimm barna faðir og á tvö barnabörn, hafði lofað að hætta að fara á bak við konu sína eftir framhjáhaldið með hinni gullfallegu ítölsku fyrir- sætu, Cörlu Bruni, sem er 12 árum yngri en kappinn. Hann flaug m.a. til Taílands til að hitta Cörlu daginn eftir að Jerry fæddi dóttur þeirra, Georgiu. Þá hringdi Jerry í Cörlu og sagði henni að láta eiginmann sinn í friði en sú síðarnefnda skellti á. Haft var eftir Jerry að henni fyndist lágmark að eiginmaður væru við hlið konu sinnar þegar hún væri nýbúin að eignast barn. Þótt Mick Jagger hafi veriö með eiginkonu sinni í næstum 20 ár er ekki þar meö sagt aö hann hafi verið henni trúr. w hliðin Ég hata að tala í símann - segir Emilíana Torrini Emilíana Torrini er eitt „heitasta" poppgoðið þessa dagana en hún syngur eitt aðalhlut- verkið í söngleiknum Stone Free sem notið hefur gífurlegra vin- sælda. Geisladiskurinn rýkur út eins og heitar lummur og Emilíana hefur i nógu að snúast. Hún sýnir hér á sér hina hliðina. Fullt nafn: Emilíana Torrini. Fæðingardagur og ár: 16. maí 1977. Maki: Enginn. Börn: engin. Bifreið: engin. Starf: Tónlistarmaður. Laun: Voðalega mis- jöfn. Stundum ekkert og stundum fullt. Áhugamál: Útilegur og allur matur, gaman að prófa eitthvað nýtt. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Já fullt. Ég vinn alltaf ef ég tek þátt. Ég vann einu sinni rúmar 6 þús- und krónur þrisvar í röð og einu sinni tólf þúsund. Ég er þó alfarið á móti þessu. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Borða mat, fara í útileg- ur og vera með skemmtilegu fólki. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Tala við leiðinlegt fólk, versla og að tala í síma. Ég hata að tala í sima og sjá ekki fólkið sjálft og viðbrögð þess. Ég fríka alveg út. Uppáhaldsmatur: Kolkrabbi i tómat á ítalska vísu. stjórninni? Bæði og. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Divine. Uppáhaldsleikari: Eng- inn. Uppáhaldsleikkona: Engin. Uppáhaldssöngvari: Tom Waits. Uppáhaldsstjórnmála- maður: Enginn. Uppáhaldsteikni- myndapersóna: Ég man ekki hvað hún heitir. Hún er í japönsku teikni- myndunum. Uppáhaldssjónvarps- efni: X-Files og dýralífs- þættir. Uppáhaldsmatsölu- staður/veitingahús: ítalia og Thailand. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Kóraninn á íslensku. Ég er að ljúka við Hringadróttinssögu. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? X-ið. Uppáhaldsútvarpsmað- ur: Fossi. Hvaða sjónvarpsstöð horfir þú mest á? Discovery Channel. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Enginn. Uppáhaldsskemmtistaður/krá: Proto-X í Frankfurt, Þýskalandi. Uppáhaldsfélag i íþróttum: Ekk- ert. Stefnir þú að einhverju sér- stöku í framtíðinni? Að syngja. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég fór til Napólí og Frankfurt í mai. -ingo Uppáhaldsdrykkir Emilíönu Torrini eru vatn, léttvín og viskí. DV-mynd PÖK Uppáhaldsdrykkur: Vatn, léttvín og viskí. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Ég er antisportisti. Uppáhaldstímarit: Ég les yfirleitt aldrei tímarit, bara bækur. Hver er fallegasti karl sem þú hefur séð? Alexander Nemov, einn af Rússunum á Ólympíuleik- unum, og leikarinn Tim Roth. Ertu hlynnt eða andvíg ríkis-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.