Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Blaðsíða 21
JLÞ\í LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996
21
r
m
Vilhjálmur Einarsson hefur náð bestum árangri íslendinga á ÓL:
Silfurverðlaun í Melbourne
Enginn íslenskur íþróttamaður
hefur náð jafn góðum árangri á
Ólympíuleikum og Vilhjálmur Ein-
arsson gerði í Melboume í Ástralíu
árið 1956. Þar náði hann silfurverð-
launum og bætti meðal ann-
ars Ólympíumet. Vilhjálmur
var spurður að því hvemig
hann hefði hagað undirbún-
ingi sínum fyrir leikana.
„Þegar ég var við nám í
Dartmouth College í New
Hampshire i Bandaríkjunum
fékk ég styrk síðara árið
vegna íþróttaiðkunar. Það
gerði mér afskaplega gott og
stuðlaði mjög að framfórum
hjá mér í greininni.
Það var allt annað líf að
geta stundað æfingar nánast
allt árið um kring og skipti
sköpum fyrir mig. Ég var því
að vissu leyti undanfari allra
íslenskra íþróttamanna sem
verið hafa við nám í háskól-
um í Bandaríkjunum og feng-
ið íþróttastyrk, svipað og
Guðrún Arnardóttir nú og
Einar Vilhjálmsson, sonur
minn, á sínum tíma,“ sagði
Vilhjálmur.
Vinna og æfingar
„Þegar heim er komið um
sumarið fer ég að vinna hjá
húsameistara ríkisins á dag-
inn og kvöldvinnu á ágætum
urne. Stökkið mældist 15,83 metrar
en íslandsmetið var 15,25 fyrir þann
tíma.
Ég fékk Ólympíunefndina og ÍR,
sem hafði góð sambönd í Sviþjóð, til
Vilhjálmur Einarsson í lok frægasta stökks lífs síns
þegar hann setti Ólympíumet meö 16,26 metra
þrístökki.
ísbar í Reykjavík. Þar kynntist ég
minni góðu konu. Síðan kostaði ég
nú því til að hætta allri vinnu á
miðju sumri til aö einbeita mér að
æfmgum og keppni. Það byrjaði á
því að íslenskum iþróttamönnum
var boðið á alþjóðlegt mót í Rúmen-
íu í júli ’56.
Ég æfði mjög stíft og með þeim ár-
angri að ég setti Norðurlandamet í
Karlsberg í Svíþjóð. Með því stökki
tryggði ég mér þátttökurétt í Melbo-
að styðja mig til að fá inni fyrir okk-
ar Hilmar Þorbjömsson (sem var
annar íslensku keppendanna í Syd-
ney) á þjálfunarstöð í Svíþjóð. Þar
fékk ég aðstoð hjá Gösta Holmer,
sem skrifað hafði fræga bók um
frjálsar íþróttir. Ég hagaði minni
þjálfun eftir bók hans og hafði
tröllatrú á aðferðum hans.
Svo gerist það sem ef til vill er
kunnara að ég stekk 16,26 metra á
Ólympíuleikunum og set Ólympíu-
met. Þá var ég búinn að bæta þrí-
stökkið um rúman metra á einu
hausti. Síðan gerist það i fimmtu
umferð að einn keppendanna nær
16,36 metra stökki. Ég náði því silf-
urverðlaunum í Melbourne."
Fjögur ár í bætingu
„Síðan bíð ég í ein fjögur
ár eftir bætingu. Ég gifti mig
árið á eftir og stofnaði heim-
ili og hafði nú ekki góðar að-
stæður til æfinga. Sama dag
og Einar sonur minn fæddist,
1. júní, náði ég ólympíulág-
markinu til Róm. Seinna um
sumarið stökk ég 16,70 á
Laugardalsvellinum og jafn-
aði gildandi heimsmet. En
viku áður hafði Pólverji
stokkið 17,03 en ekki var búið
að staðfesta það met enn.
Síðan var nokkurt basl að
komast í úrslitakeppnina í
Róm, en það tókst og ég stökk
16,36 i úrslitum sem nægði í
fimmta sætið og var næst-
besta stökk lífs míns. En það
þótti engum merkilegur ár-
angur, menn hafa sjálfsagt
búist við gulli. Síðasta stór-
mót sem ég keppti í var Evr-
ópumót 2 árum seinna þar
sem ég endaði í 5. sæti.
Þó að ég hafi eytt mikilli
orku og tíma í þrístökkið er
greinilegt að í dag eyða menn
KENWOOD
kraftur, gœði, ending
Ármúla 17, Reykjavík, sími
568.r8
840
GeisJandi
BÓKASUJVIAR
f i r \ . &
« ®:1
miklu meiri tíma í þetta og betur er
stutt við bakið á íþróttamönnum í
dag. En menn eru raunsærri í kröf-
um og sjá nú betur að erfitt getur
verið fyrir smáþjóðir að eignast
íþróttamenn í fremstu röð,“ sagði
Vilhjálmur. -ÍS
Valbjörn Þorláksson rifjar upp Ólympíuleikana 1964:
Gutla til þess að
halda mér lifandi
„Eg er nú stundum að gutla við
þetta enn þá til þess að halda mér
lifandi,“ segir Valbjöm Þorláksson,
fyrrum tugþrautarmaður, sem lenti
í sama sæti og Jón Amar Magnús-
son árið 1964 eða fyrir 34 áram. Á
þeim tíma var ekki mikið gert úr
því að menn lentu í tólfta sæti og
varla minnst á það hér heima á
Fróni. Valbjörn keppti á
þrennum Ólympíuleikum,
Róm 1960, Tokyo árið 1964 og
Mexíkó árið 1968. Hann átti * ^
einnig rétt á að fara til
Melbourne en þá
voru ekki til pening-
ar til þess að
senda hann.
Árið 1968 togn-
aði Valbjörn á
kviðnum og
varð að hætta
keppni í heilt ár.
„Menn eru
auðvitað spennt-
ari fyrir því að
vera í þessu eftir
að farið var að
styrkja íþróttina al-
mennilega. Ég þurfti
að leggja
miklu meira á .|js
mig. Ég fór í ™
vinnu og fór á
æfingar á kvöldin. Maður þakkaði
bara fyrir að fá að fara til út-
landa,“ segir Valbjörn.
Stuðningur við íþróttamennina
var enginn en þeir fengu frítt far
á Ólympíuleikana ásamt fæði á
’meðan á leikunum stóð. Þeir
þurftu að útvega sér vasapen-
inga sjálfír. „Það var varla
minnst á það héma heima þegar ég
varð í tólfta sæti en nú ætlar allt að
verða vitlaust þegar Jón Arnar
lendir i tólfta sæti. Maður varð að
lenda í einu af fyrstu sætunum til
að vera hampað. Mér fannst þetta
ekki vera neitt til þess að tala um
eða gera veður út af á sínum tíma
en það hefði verið gaman að æfa
áfram þar sem maður var með
þeim bestu í heiminum.
Þegar við vorum í Tokyo
árið 1964 var ausandi rign-
ing og við urðum renn-
andi blautir. Keppt
var á malarbraut-
um þegar ég
keppti á Ólymp-
íuleikunum.
Þegar ég lenti
í tólfta sæti
sigraði ég í
hundrað metr-
unum í mín-
um riðli, fjögur
hundruð metrunum
og stangarstökkinu.
Mig minnir að ég
hafi verið sjötti í
fimmtán hundruð metr-
unum því ég
var svo ofsa-
lega slappur í
því. Ég held
að keppend-
urnir hafi verið í kringum
36 þá,“ segir Valbjörn.
Valbjörn fylgist að sjálf-
sögðu með tugþrautinni í
dag. Að hans mati hefði Jón
Arnar átt að gera betur og
hefði hæglega getað lent í
fimmta eða sjötta sæti. -em
Valbjörn Þorláksson lenti í tólfta sæti í tugþraut á Ólympíuleikunum í Tokyo
áriö 1963. DV-mynd Pjetur
Hirzlan á nýjum stað!
OPIÐ UM
LAU.kl.10-18
SUN.kl. 13-16
HELGINA
Auðbrekku 19 Kópavogi
Veggsamstæða kr. 33.250 (eins og á mynd)
Margir möguleikar á uppsetnlngu
Skúffuskápur á hjólum
47x45x63 kr.11.500
Skrifborð 160x80x75 kr.10.900
Hornbord 80x80x75 kr.8.950
Skrifborð 120x80x75 kr. 9.500
Vélritunarborð á hjólum
105x40x69 kr. 5.950
Bókahillur verð frá kr. 3.3Q0
Svart / hvítt / beyki/futa
Kommóður verð frá kr. 8.700
Svart / Hvítt / beyki
Skrífboið verð frá kr. 8.600
Svart / hvítt / beyki/fura
Sjónvaipsskápar verð frá kr. 5.900
Svart / hvítt / beyki /fura / mahoni
Hirzlan
Auðbrekku 19 ■
Sími 564 5040
200 Kópavogur
■ Fax 564 5041
I