Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Blaðsíða 10
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 - segir Steinþór Skúiason, íslandsmeistari í svifflugi „SviBlugusportið er á uppleið og er það svolítið í takt við nýja tíma. Því fylgir enginn hávaði eða læti, einungis kyrrð og friður. Svifflugan mengar ekki. Maðurinn tekst á við náttúruöflin og notar veðurkerfin til þess að komast áfram án þess að nota utanaðkomandi orkugjafa," segir Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands og nýbak- aður íslandsmeistari í svifflugi. Hann er sonur Skúla Steinþórsson- ar, fyrrum flugstjóra, og bróðir Ólafar Rúnar Skúladóttur. Yngri systir hans heitir Brynja Sif. Steinþór er kvæntur Hönnu Kristínu Pétursdóttur fótaaðgerða- fræðingi og eiga þau saman dæturn- ar Snædísi, sjö ára, Hildi, sex ára, og Steinunni, þriggja ára. Hann sett- ist í forstjórastól Sláturfélags Suður- lands fyrir átta árum, aðeins 29 ára gamall, og vakti það talsverða at- hygli á sínum tíma. Fyrirtækið átti þá í erfiðleikum en honum og hans fólki tókst að snúa vöm í sókn. Steinþóri þykir svifflugið hæfa sér vel og telur að allir þurfi að eiga sér áhugamál, sama hvaða stöðu þeir gegni. Sjálfur segist hann eiga of mörg áhugamál til að geta sinnt þeim öllum. Sviffluginu sinnir hann á sumrin en dyttar að vélinni á vet- uma og stundar skíði, vélsleða og fótbolta. Eitthvað hefur hann komið nálægt skotflmi líka en hefur þurft að skera niður í áhugamálunum. Sviffluguna TF SÍS á Steinþór ásamt Magnúsi Óskarssyni, framkvæmda- stjóra OS. Samhæfing hugar og handa „Að fljúga svifflugu er eins og að leysa þraut. Maður þarf að gjör- þekkja flugvélina og þekkja bestu leiðina sem maður ætlar að fara. Svifflugið er samhæfing hugar og handa og flugmaðurinn þarf að finna út hvaða aðferðir hann á að nota til þess að verða á undan hin- um,“ segir Steinþór. „Eins og alla flugsfjórasyni lang- aði mig til þess að verða flugmaður. Ég gat það ekki því ég greindist með lítils háttar litblindu. Ég átti að sjá myndir í bók en sá aldrei neitt því var mér sagt að ég væri litblindur. Það var sárt á sínum tíma en ég sé ekki eftir því í dag,“ segir Steinþór sem hefur flogið svifflugu í tuttugu ár eða frá átján ára aldri. Hann er meðlimur í Svifflugfélagi Is- lands sem á sextíu ára afmæli i dag og í því tilefni ' verður haldin af- mælisveisla á Sand- skeiði kl. 13. Einnig verður boðið upp á flug- sýningu kl. 14. Lent í kartöflu- og kálgarði „íslandsmótið var mjög óvenju- legt og skemmtilegt. Við vorum heppnir með veður og fengum fimm gilda flugdaga. Fyrsta daginn var flogið frá Hellu að Búrfellsvirkjun yfir að Torfastöðum og til baka að Hellu. Fjórir komust hringinn en sá sem var í öðru sæti fékk ógilt því myndavélarnar brugðust hjá hon- um. Flugmaðurinn tekur myndir til hafi verið svona jafnt og spennandi áður,“ segir Steinþór. Steinþór lenti í fyrsta sæti en í öðru sæti varð Þorgeir Árnason og í því þriðja Fannar Sverrisson. Stein- þór segist geta haldið lengi áfram því víða eru bestu svifflugumenn ekki endilega mjög ungir heldur menn um fertugt eða fimmtugt. „Þetta er ekki líkamleg íþrótt heldur samhæfing hugar og handa. Ég horfi glaður fram á það að ég geti átt minn besta tíma eftir. Ég hef flogið erlendis en ekki keppt. Það er erfitt að meta hvemig íslendingar standa sig á alþjóðavettvangi því að- stæður eru svo mismunandi. Við búum við töluvert aðrar aðstæður en gerist erlendis. Það er mjög langt síðan íslendingar hafa keppt erlend- is og við erum örugglega góðir mið- að við okkar aðstæður," segir Stein- þór. í Sviffluguklúbbi íslands eru kon- ur fáséðar en klúbburinn auglýsir hér með eftir þeim. Steinþór segir að þetta sé dæmigert sport þar sem karlmenn þurfi ekki að hafa yfir- burði. Útskrifaður frá Stanford Steinþór er menntaður vélaverk- fræðingur frá Háskóla íslands og út- skrifaðist með mastersgráðu úr iðn- aðarverkfræði frá Stanford háskól- anum í Norður-Kaliforníu. Hann segir vélaverkfræðina á íslandi mjög góðan bakgrunn að stjórnun i fyrirtækjarekstri. I framleiðslufyr- irtæki þar sem tæknivæðing er mikil nýtist það mjög vel. „Það er ekki hægt að ímynda sér skemmtilegri stað heldur en Stan- ford í Bandaríkjunum. Skólinn er mjög góður og hann er orðinn nokk- uð vinsæO meðal íslendinga." -em Steinþór með sviffluguna sína TF SÍS í baksýn ásamt dætrunum Steinunni, Snædísi og Hildi. flug- maður í kálgarði nálægt Geysi. Auðvitað fékk hann að heyra sömu brand arana og við Steinþór á skrifstofu sinni hjá Slát- urfélagi Suðurlands. Keppendur í svifflugi á móti sem haldið var á Sandskeiði 6.-14. júlí. Frá vinstri, efri röð, Theodór Bl. Einarsson, Steinþór Skúlason, Sigmundur Andrésson, Þórður Hafliðason og Kristján Sveinbjörnsso. Fremri röð frá vinstri Þorgeir Árnason, Fannar Sverrisson, Jón Sigurðsson og Karl Norðdahl. vorum með á hreinu að þeir gætu framleitt salat saman,“ segir Stein- þór Jöfn keppni Síðasti dagur mótsins var mjög sérstakur að mati Steinþórs. Fyrir þennan dag voru þrír keppendur mjög jafnir. Flugmenn fá þrjár tO- raunir til þess að komast vegalengd- ina á sem bestum tíma en það er mjög sjaldgæft að þeir komist oftar en einu sinni. Fyrsti flugmaðurinn fór á 1 klst. og 50 mín. Þá kom Stein- þór á 1 klst. og 2 mín. og hélt hann að hann væri búinn að vinna mótið. Svo reyndist þó ekki. Eftir það fór Fannar á 53 mínútum, Steinþór á 52 mínútum og Þorgeir á 48 mínútum. Þeir héldu allir að þeir væru búnir að vinna. „í síðasta fluginu fór ég á 40 mín- útum en það réð úrslitum. Menn muna ekki eftir því að íslandsmót þess að sanna að hann hafi flogið yfir svæðið sem tilgreint er. Sigurvegari annars dagsins komst næstum því aOa leið en lenti í kartöflugarði frekar en að fljúga mjög lágt að veOinum. garði. Félag- amir gerðu grín að því að hann hefði þurft að kaupa stóran hluta uppskerunnar til þess að bæta fyrir skemmdirnar á kartöflugarðinum. Þriðja dag- inn lenti annar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.