Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Blaðsíða 19
JjV LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 sviðsljós 1» vill vera heima og elda pasta handa Pavarotti Samband hins ástsæla söngvara Lucianos Pavarottis og hinnar ungu Nicolettu Mantovani hefur tekið talsvert pláss í heimspressunni. Þau virðast yfir sig hamingjusöm og Nicoletta telur enga þörf á því að reyna að grafast fyrir um ástæðuna fyrir því að hún varð ástfangin af stórsöngvaranum fræga. Hún heill- aðist af sterkum persónuleika hans og honum tekst enn þá að gera hana orðlausa með gjöfunum sem hann kemur henni á óvart með. Hjónaleysin búa á sveitasetri fyr- ir utan Modena á ítaliu þangað til þau flytja inn á sitt eigið heimili á næsta ári. Þau sjá enga ástæðu til þess að fara í felur með ástarsam- band sitt lengur og líður eiginlega betur eftir að það varð opinskátt. Fyrir tveimur árum fóru tilfinn- ingar stórsöngvarans til Nicolettu að aukast og blossuðu loks upp þannig að hann gat ekki falið þær lengur fyrir henni. Hann gat ekki lengur logið að sjálfum sér og viður- kenndi ást sína fyrir Nicolettu sem tók því afar vel. Nú er hún umboðs- maður tenórsins og stendur sig frá- bærlega í því starfi, að hans sögn. Það sem Pavarotti líkar best í fari Nicolettu er hversu vel gefin og blíðlynd hún er. Þegar hún á að lýsa Pavarotti nær hún ekki andanum yfir því hversu stórkostlegur og sterkur persónuleiki hann er. Hon- um tekst að koma henni á óvart á hverjum degi með einhverjum glaðningi. Nicoletta kærir sig ekki um að lifa eins og milljónamæringur held- ur vill hún vera heima og elda pasta handa stórsöngvaranum. Hún reyn- ir þó, með misjöfnum árangri, að halda í við hann. Það gengur lítið því að Pavarotti segir hana hreina hörmung í eldhúsinu, sem geri það að verkum að hann eldi oftast nær Carey otj Holly saman á ný Allt virðist vera fallið í ljúfa löö hjá gamanleikaranum Jim Carey og leikkonunni Lauren Holly en þau slitu sambúð sinni í þrjá mánuði. Þau felldu hugi saman við upptökur á kvik- myndinni Dumb and Dumber fyrir tveimur árum og að sögn Peters Fallellys, leikstjóra þeirrar myndar, sem fylgdist með ástinni blómstra flugu neistar á milli þeirra. Carey hefur skotið hratt upp á stjörnuhimininn eftir kvik- myndina Ace Ventura sem hann sýndi frábæran leik í. Nýjasta mynd hans var frum- sýnd í júní, The Cable Guy. Um er að ræða gamanmynd, hvað annað? Carey þykir mjög fjöl- hæfur leikari en bestur í gam- anleik og er hann frægur fyrir andlitsgrettur sínar. Carey er yngstur í fjögurra systkina hópi og var oft einmana. Foreldrar hans voru fátækir og um tíma voru þau heimilislaus. Carey þarf ekki að kvíða peningaleysi í framtíðinni þvi myndir hans hafa gefið af sér dágóða summu og hann fær talsvert í sinn hlut. Carey var giftur Melissu Womer Carey í sjö ár en skildi við hana árið 1991, sama ár og móðir hans dó. Árið 1994 lést faðir hans skyndilega en þeir voru mjög nánir þannig að Ca- rey hefur fengið að kynnast ein- manaleikanum. sjálfur. Þeim líkar illa að borða á veitingastöðum þar sem þau eru sjaldan ein þar. Pavarotti á tvö önnur heimili, í New York og Pesaro, og honum líð- ur best um þessar mundir í íbúð- inni í New York. Húsið í Pesaro er of uppfullt af minningum en þau ætla að dvelja þar í sumar eftir að tónleikmn tenóranna þriggja lýkur. Nicoletta lítur helst á húsið í Modena sem heimili sitt þar sem verið er að gera það upp fyrir þau. Gifting hefur ekki verið ákveðin enda taka hjónaleysin einn dag fyr- ir í einu og eru ekki komin svo langt. Nicolettu langar til þess að eignast börn en hún segist ekki vera ófrisk eins og sums staðar hafa ver- ið getgátur um. STORBORGAR PLUS NEWCASTLE EIN AF10 VINSÆLUSTU BORGUM HEII - þegar skemmtanalífið er annars vegar! MR ERl STÆRSTll VERSLIARMIBSTÖBVAR BRETLANÐS Þessa borg verður maður að heimsækja. Sagan, götulífið, verslanimar, veitingahúsin, krámar og skemmtistaðimir. Það er allt sem mælir með þessari sérstöku borg. Fyrsta flokks hótel, víðfræg söfn og skoðunarferðir á spennandi staði. - þegar gera á góð kaup. Fl ugfj/tf? Gisting Verð pr. mannfrá kr: Ógleymanleg ferð, ótrúlegt verð, hvort heldur sem helgar- eða vikuferð. Innifalið: Flug, flugv.skattar og gisting (2ja m. herb.með morgunverði 2 fullorðnir, 3 nœtur. Brottfarir: 30. september, 7. og 14. október. BILL UND AIKAFLUC 4. SEPTEMBER 23.175.- pr. mann, 2 fullorðnir og 2 börn 2-11 ára. Innifalið: Flug og flugv.skattar. Flogið til Billund 4. sept og heim frá Kaupmannahöfn í september pr. mann, 2 fullorðnir. 27.41- Innifalið: Flug ogflugv.skattar. Flogið til Billund 4. sept og heim frá Kaupmannahöfn í september V/SA SJÓVÁ-ALMENNAR (S) Nánari upplýsingar hjá sölumönnum. OPIÐ ÁLAUGARDÖGUM kl.: 10-14 Farþegar PLÚSferða fljúga eingöngu með Flugleiðum. FERÐIR Faxafeni 5 108 Reykjavík. Stmi: 568 2277 Fax: 568 2274
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.