Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Blaðsíða 46
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 54 rmæn Gísli Brynjólfsson, fyrrv. bóndi, dvalarheim- ilinu Höfða, varð níræð- ur þann 5. 8. sl. Starfsferill Gísli er fæddur og upp- alinn á Hrafnabjörgum á Hvalfjarðarströnd. Hann var við nám við Bænda- skólann á Hvanneyri 1927-29 auk þess að vinna á búi foreldra sinna og um tíma sem vinnumað- ur á Ferstiklu. Gísli fór á allar vertíðir á Akranesi tímabilið 1936-42 að einni undanskilinni. Hann var bóndi á Miðsandi á Hval- fjarðarströnd 1936-42; bóndi á Súlu- nesi í Melasveit í Borgarfirði 1942-43; bóndi á Mið- sandi og verkamaður hjá hemum 1943-52 og bóndi á Lundi 1952-84. Gísli var oddviti Lundarreykj adalshrepps 1958-70. Hann var stofn- félagi og virkur félagi í Ungmennafélaginu Vísi á Hvalíjarðarströnd. Gísli flutti frá Lundi á Akranes 1984 en til Ein- ars sonar síns í Bæjar- Gísli Brynjólfsson. sveit í Borgarfirði 1986. Hann flutti síðar með honum til Akraness og átti hjá honum heimili til sumarsins 1990 er hann flutti á Höfða. Fjölskylda Gísli kvæntist 30.10. 1937 Sigríði Jónsdóttur, f. 24.8. 1916, d. 8.4. 1986, húsfreyju. Foreldrar hennar voru Jón Pétursson, hreppstjóri og bóndi, og Steinunn Bjamadóttir, húsmóðir á Geitabergi. Börn Gísla og Sigríðar em sex: Einar Bragi, f. 6.10. 1938, húsvörður í Melaskóla í Reykjavík, kvæntur Birnu Bjömsdóttur og eiga þau þrjú böm; Brynhildur, f. 28.10. 1941, sjúkraliði og húsmóðir í Víðidalst- ungu i V-Húnavatnssýslu, gift Ólafi B. Óskarssyni og eiga þau tvær dæt- ur auk þess sem Brynhildur á eina dóttur; Einar, f. 7.11.1944, vélvirki á Akranesi, kvæntur Auði Sigurrós Óskarsdóttur og eiga þau fimm böm; Steinunn, f. 3.4.1950, kennari í Foldaskóla í Reykjavík, gift Jóni Magnússyni og eiga þau þrjú börn; Þorbjöm, f. 15.1.1955, leiðbeinandi á Hvammstanga, í sambúð með Helgu Jónsdóttur og eiga þau tvo syni; Jón, f. 16.1. 1955, bóndi á Lundi í Borgarfirði, kvæntur Kristínu Gunnarsdóttur og eiga þau fjögur böm. Bræður Gísla: Þorvaldur, f. 24.8. 1907, fyrrv. kirkjusmiður, dvalar- heimilinu Höfða; Einar, f. 23.6. 1909, d. 8.7. 1940; Eyjólfur, f. 28.5. 1911, d. 1972; Guðmundur, f. 18.12. 1915, fyrrv. bóndi, Hrafnabjörgum á Hval- fjarðarströnd. Foreldrar Gísla vom Brynjólfur Einarsson, f. 1.10. 1871, d. 17.6. 1959, bóndi, og Ástríður Þorláksdóttir, f. 10.7. 1872, d. 30.3. 1956. Þau voru bú- sett á Hrafnabjörgum á Hvalfjarðar- strönd. Bjöm Sigurðsson, sérleyflshafi og framkvæmdastjóri BSH ehf., Húsa- vík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Bjöm er fæddur og uppalinn á Húsavík og hefur búið þar alla sína tið. Hann gekk þar í skóla og lauk skyldunámi og byijaði síðan ungur með sinn eigin atvinnurekstur, með vörubil og leigubílaakstur. Árið 1974 stofnaði hann ásamt fleiri Drif sf. sem rak vörubíla og vinnuvélar. Árið 1981 tók hann við sérleyfinu Húsavík-Akureyri-Húsa- vík og byrjaði þá méð rúturekstur í eigin nafni. Hanh rak þá tvö fyrir- tæki, Bjöm Sigurðsson og Drif sf. Árið 1990 vora þessi tvö fyrirtæki sameinuð í BSH ehf., Húsavík. Fjölskylda Björn kvæntist 17.6. 1972 Margréti Helgu Hannesdóttur, f. 10.4. 1941, skrifstofumanni og hjúkrunarfræðingi. For- eldrar hennar voru Hannes Sigurðsson, f. 21.10. 1910, d. 7.8. 1989, og k.h., Sæunn Magnúsdótt- ir, f. 21.4.1907, d. 2.5.1975. Börn Björns og Mar- grétar: Guðný Sigríður, f. 21.5. 1972, í sambúð með Víði Svanssyni og eiga þau eitt barn; Sæunn Helga, f. 12.3. 1975, í sam- búð með Þorláki Þorlákssyni og eiga þau eitt barn; Elín Guðrún, f. 18.5. 1977, í sambúð með Hlyni Angantýs- syni. Sonur Margrétar er Hannes Pétursson, f. 12.10. 1960. Albræður Bjöm eru Sigurður, f. 9.12. 1940, búsettur á Húsavík, og Þórður, f. 19.6. 1954, bú- settur á Húsavík. Hálf- systkini Björns sam- feðra: Páll Kröyer, f. 28.6.1917, nú látinn; Eg- ill, f. 20.1.1919, búsettur í Reykjavík; Amþrúð- ur, f. 17.1. 1920, búsett í Reykjavík; Rakel Jó- hanna, f. 8.4. 1921, nú látin; Jóhann Egill, f. 24.10. 1923, búsettur í Reykjavík; Gunnar, f. 23.10. 1924, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Björns voru Sigurður Egilsson, f. 11.8. 1892, d. 30.9. 1969, húsasmiður og kennari, og Petrea Guðný Sigurðardóttir, f. 22.6.1914, d. 7.4.1972, húsmóðir. Þau vora búsett á Húsavík. Ætt Sigurður var sonur Egils Sigur- jónssonar, bónda á Laxamýri í S- Þingeyjasýslu, og k.h., Arnþrúðar Sigurðardóttur frá Ærlækjarseli í Axarfirði. Petrea var dóttir Sigurðar Þórðarsonar, bónda á Núpseli í Mið- firði, og k.h., Þuríðar Salóme Jak- obsdóttir. Bjöm tekur á móti gestum kl. 17.00-20.00 laugardaginn 10.8. í Fé- lagsheimili Húsavíkur, sal á 2. hæð. Björn Sigurösson. Ólafur Jónsson málarameistari, Brautarlandi 14, er 75 ára í dag. Starfsferill Ólafur er fæddur í Reykjavík og ólst þar upp. Hann hóf nám í mál- araiðn i júlí 1939 hjá málarameistur- unum Ósvaldi og Daníel, lauk prófi i iðninni 1943, sveinsprófi ári síðar, og fékk meistarabréf 1947. Ólafur stofnsetti málningarfyrir- tækið Hörður og Kjartan hf. þann 12.4. 1944 ásamt Hauki Hallgríms- syni o.fl. og ráku þeir það saman i 50 ár, eða þangað til 12.4. 1994. Ólafur hefur starfað mikið í fé- lagsmálum iðnaðarmanna. Hann gekk i Málarafélag Reykjavíkur 1944, var í stjóm þess 1945-46 og gekk þá í Málarameistarafélag Reykjavíkur í upphafi árs 1947. Hann sat i stjórn M.M.F.R. sem rit- ari 1953-54; gjaldkeri 1958 og formað- ur þess nær óslitið tímabilið 1962-82. Ólafur sat lengi í samninga- nefndum, lengst frá 1956. Hann sat í stjórn mælingastofu málara 1958-70; var kennari við málaraskólann 1978-84; var í sambandsstjórn Landssambands iðnaðarmanna og í stjóm Meistarasambands bygginga- manna um árabil. Ólafur var borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins 1970-72 og í stjórn Innkaupastofnunar Reykjavíkur um 20 ára skeið. Hann vann fyrir Húsa- mat Reykjavíkur um 10 ára skeið og hefur verið í Rotaryklúbbi Reykja- víkur frá 1976. Fjölskylda Eiginkona Ólafs er Birna Benjamínsdóttir, f. 12.8. 1927 á ísafirði. For- eldrar hennar voru Benj- amín Ágúst Jensson frá Bolungarvík og Jóna M. Pétursdóttir frá Súðavik. Þau eru bæði látin. Böm Ólafs og Birnu eru: Gyða Jónína, f. 1.2. 1946; Margrét, f. 28.2. 1948; Birna, f. 6.12. 1953, og Jón Ólafur, f. 9.6. 1958. Barnabömin eru 8 og eitt bamabamabarn. Systkini Ólafs: Guðlaug Lára, Áslaug, og Jón Pétur. Þau eru öll látin. Foreldrar Ólafs voru Jón Magnússon, f. 1895, skipstjóri frá Hvaleyri við Hafnar- flörð, og Margrét Jóna Jónsdóttir, f. 1898, d. 1976. Jón fórst með togaranum Fiecherald Robertson á Halamiðum 7.-8. 1925. Ólafur verður að heiman á afmælisdag- staðgreiðslu- og greiðslu- kortaafsláttur og stighœkkandi birtingarafsláttur <jt\\ millí h % Smáauglýsingar iitrai 5505000 711 hamingju með afmælið 10. ágúst 85 ára Vigfúsína Erlendsdóttir, Miðtúni 19, Reykjavík. Gunnþórunn Erlingsdóttir, Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík. 80 ára Jón Benediktsson, Freyjugötu 40, Reykjavík. Gréta S. Jónsdóttir, Villingaholti I, Villingaholtshreppi. Unnur Halldórsdóttir, Kambi I, Reykhólahreppi. Einar Sigvaldason, Laugarnesvegi 78, Reykjavík. Einar og eiginkona hans, Sigriður Ólafsdóttir, taka á móti gestum í Reykási 15 á afmælisdaginn milli kl. 15.00 og 18.00. 75 ára Margrét Valdimarsdóttir, Kirkjuvegi 20, Selfossi. Guðrún Árnadóttir, Hverahlíð 17, Hveragerði. Guðmundur Jón Mikaelsson, Hvassaleiti 8, Reykjavík. Guðmundur Jón Mikaels- son verslun- armaður og eiginkona hans, Asta Snorra- dótti húsmóðir, veröa að heiman á afmælisdaginn. 70 ára Níels P. Björgvinsson, Brekkustíg 16, Sandgerði. Harry K. Kjæmested, Suðurgötu 31, Reykjanesbæ. Sigurður Steindórsson, Hringbraut 97, Reykjanesbæ. 60 ára Esther Britta Vagnsdóttir, Melgerði 1, Akureyri. Hjördís Þorgeirsdóttir, Háukinn 1, Hafnarfirði. Marteinn Árnason, Keilugranda 2, Reykjavík. Kristján Karl Reimarsson, Fiskakvísl 3, Reykjavík. 50 ára Vilborg Einarsdóttir, Stórateigi 13, Mosfellsbæ. Pálmar Guðmundsson, Bleikjukvísl 12, Reykjavík. Sævar Ámason, Suðurvöllum 4, Reykjanesbæ. Branddís Benediktsdóttir, Raftahlíð 40, Sauðárkróki. Aðalsteinn Valdemarsson, Fífumóa 3b, Reykjanesbæ. Páll Sigurðsson, Fífuhvammsv. Sólvangi, Kópavogi. Eygló Kristjánsdóttir, Brekkubraut 11, Reykjanesbæ. Unnur Magnea Sigurðardóttir, Heiðarholti 30c, Reykjanesbæ. Guðmundur Hreinn Emanúelsson, Flúðaseli 88, Reykjavík. 40 ára Jósef Valgarð Þorvaldsson, Fremri-Víðivöllum, Fljótsdalshreppi. Guðlaug Gísladóttir, Hamratanga 11, Mosfellsbæ. Helga Lára Ámadóttir, Hábergi 7, Reykjavík. Inga Fanney Egilsdóttir, Dverghömram 34, Reykjavík. Margrét Gísladóttir, Selvogsgötu 16, Hafnarfirði. Bára Andersdóttir, Lyngmóa 4, Reykjanesbæ. Ólöf H. Aðalsteinsdóttir, Aðalstræði 122, Vesturbyggð. Leifur Agnarsson, Urðarbakka 6, Reykjavík. Svavar Halldórsson, Fagrahjalla 8, Vopnafirði. Ragnheiður Elísabet Jónsdóttir, Heiðarholti 4h, Reykjanesbæ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.