Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Síða 6
mmm
útlönd
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996
Skugga bar á þegar Jeltsín sór stiröur eiö sem forseti Rússlands:
Ráðleysi Rússa algert
í átökum í Tsjetsjeníu
Borís Jeltsín sór í gær eiö sem
forseti Rússlands næstu f]ögur ár.
Var það í fyrsta skipti sem Jeltsín
kom fram opinberlega frá því hann
var kosinn forseti í byrjun júlí.
Jeltsín, sem er 65 ára, var stirður og
stífur við innsetninguna en komst
þó klakklaust í gegnum hana. Hann
stóð einungis 16 mínútur á sviðinu
og talaði ekki nema 45 sekúndur.
Þótti framkoma hans gera lítið til
að slá á efasemdir um heilsufar
hans.
En Jeltsín virtist öruggari með
sig í móttöku eftir innsetninguna,
hélt stutta ræðu og dreypti á kampa-
víni. Rússneskir stjórnmálamenn
sögðu forsetann vera í góðu formi
og tók Helmut Kohl, kanslari Þýska-
lands, undir þau orð. Sagðist hann
stuttar fréttir
Kröfðust lokunar
ísraelar ítrekuðu kröfur sín-
ar um lokun skrifstofu Frelsis-
samtaka Palestínumanna, PLO,
í austurhluta Jerúsalem og
sögðu hana ráðandi um árangur
friðarviðræðnanna. Palestínu-
menn segja hins vegar að lokun
eyði allri von i friðarferlinu.
Dole velur
Bob Dole,
forsetaefni
repúblikana,
hefur ákveðið
varaforseta-
efni sitt, en
þegar blaðið
fór í prentun
hafði hann
ekki tilkynnt hver hefði orðið
fyrir valinu.
Verjast flóðum
Yflrvöld í Kína fluttu 10 þús-
und manns frá heimilum sínum
vegna flóðahættu viö borgina
Tianjin. Var reynt að stækka
vamargarða og beina ánni í
annan farveg.
Froskum fargað
Tilraunir austurrískra aðila
til að bjarga 22 þúsund
júgóslavneskum froskum frá
dauða í ítölskum veitingahús-
um báru ekki árangur. Dýra-
fræðingar sögðu að vistkerfið
biði skaða af ef froskamir
fengju að lifa.
Samhverfir hraustir
Nýjar rannsóknir sýna að
karlmenn með samhverfa (sym-
metrical) líkamsbyggingu séu
hraustari og láti frá sér meira
sæði við samfarir. Þá kemur
fram að samhverfar konur eigi
síður á hættu að fá
brjóstakrabbamein.
Bilið minnkar
Kosninga-
ráðgjafar BUls
Clintons
Bandaríkja-
forseta sögðu
að Bob Dole
ætti eftir að
sækja í sig
veðrið og
ræða reglulega við Jeltsín í síma.
„Við höfum fengið fínan keisara,"
sagði þjóðernissinninn Vladimír
Zhírínovskí eftir móttökuna.
Jeltsín, sem vill stöðugleika í
landsstjóminni, mælti með því að
þingið samþykkti Viktor Tsjerno-
myrdín sem forsætisráðherra næstu
fjögur ár en hann hefur gegnt því
embætti frá 1994. Mun þingið ræða
framtíð forsætisráðherrans í dag.
Tsjernomyrdín verður Jeltsín innan
handar og tekur við forsetaembætti
í þrjá mánuði, eða fram að kosning-
um, reynist Jeltsín ófær um að
stjóma landinu.
En Rússar höfðu í raun litlu að
fagna i gær þar sem uppreisnar-
menn í Tsjetsjeníu höfðu tögl og
hagldir í stríði sínu við rússneska
herinn. Með stórsókn síðustu sólar-
hringa höfðu þeir náð höfuðborg-
inni, Grosní, á sitt vald og lokað
fjölda rússneskra hermanna inni í
borginni.
Heimildir innan rússneska hers-
ins sögðu algert stjórnleysi ríkja í
Tsjetsjeníu. Innikróaðar hersveitir
Rússa reyndu ekki einu sinni að
veita mótspyrnu heldur stunduðu
þær óvirka varnarbaráttu.
Fréttastofan Interfax sagði upp-
reisnarmenn ráða öllum helstu sam-
gönguleiðum borgarinnar, þar með
töldum flugvellinum. Orðrómur um
að uppreisnarmenn væra aö hörfa
undan rússneksum liðsstyrk fékkst
ekki staðfestur.
Uppreisnarmenn réðust inn i
Grosní á þriðjudag og hófust þá
hörðustu átök í borginni frá því
rússneski herinn fældi uppreisnar-
menn þaðan snemma árs 1995. Ekki
er búist við að uppreisnarmenn,
sem krefjast sjálfstæðis Tsjetsjeníu,
haldi Grosní lengi á valdi sinu. En
uppreisnarmenn segja að takmarki
þeirra sé náð, að afhjúpa sviksemi
Jeltsíns þar sem hann lét umsamið
vopnahlé frá því fyrir kosningár
renna út í sandinn.
Yfir 30 þúsund manns hafa týnt
lífi síðan átök hófust í Tsjetsjeníu í
desember 1994. Átök síðustu daga
þykja hafa undirstrikað ráðleysi
rússneskra stjómvalda og eru talin
munu setja sterkan svip á nýhafið
kjörtímabil Jeltsíns.
Reuter
minnka forskot Clintons í skoð-
anakönnunum, óháð því hvern
Dole veldi sem varaforsetaefni.
Breyta gönguleið
Kaþólikkar í Londonderry á
Norður-írlandi féllust á að
breyta leið fyrir mótmæla-
göngu en lögregla og borgarbú-
ar höfðu óttast átök göngu-
manna við mótmælendur.
Reuter
Enn er leitað fórnarlamba aurskriðunnar sem féll yfir tjaldstæði á Norður-Spáni og varð a.m.k. 76 manns að bana. Á
myndinni ieita spænskir heimavarnarliðar að fórnarlömbum í lóni um 15 kílómetra frá tjaldstæðinu. Á lóninu flýtur
alls kyns brak úr hamförunum. Símamynd Reuter
Bófaflokkar ógna öryggi útlendinga í Suður-Afríku:
Þremur ferðamönnum rænt
Þremur ferðamönnum var rænt í
Suður-Afríku í gær og hefur ekkert
til þeirra spurst. Lögregla hefur
fundið lítinn fólksflutningabíl sem
mennimir voru í þegar ránið var
framið en hann stóð mannlaus í
hverfi blökkumanna í Jóhannesar-
borg.
Mennimir, sem allir eru á þrí-
tugsaldri, leigðu bíl og bílstjóra á
flugvellinum i Jóhannesarborg. En
vopnaður bófaflokkur stöðvaði bíl-
inn á leið til hótelsins, neyddi bíl-
stjórann út, rændi af honum vesk-
inu og ók á brott með skelfingu
lostna ferðamennina.
Ekki er vitað hverjir ferðamenn-
irnir þrír era en bílstjórinn sagði í
yfirheyrslum að þeir hefðu talað
mjög góða ensku en verið ókunnug-
ir í Jóhannesarborg. Virtist sem
þeir hefðu verið í viðskiptaerind-
um.
Lögreglu þykir undarlegt að bíll-
inn skyldi finnast en mennimir
ekki. Ekkert er vitað um afdrif
þeirra en menn óttast hið versta.
Rán og gripdeildir era mjög algeng-
ar í Suður- Afríku og verða erlendir
ferðamenn oftar en ekki fyrir barð-
inu á glæpagengjum. Bílstjórinn
sagði að töluverð umferð hefði ver-
ið þegar ránið átti sér stað en eng-
inn hefði hirt um að koma til hjálp-
ar.
Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis I
Foreldrar
franskra fórn-
arlamba í mál
Foreldrar þriggja ungra
Frakka, sem fórast þegar TWA-
þotan fórst undan austurströnd
Bandaríkjanna með 230 manns
innanborðs, hafa höfðað mál í
Frakklandi í tilraun til að
neyða bandaríska rannsóknar-
aðila til að gefa meiri upplýs-
ingar um niðurstöður af starfi
sínu. Vilja foreldrarnir að
Frakkar taki einnig þátt í rann-
sókn slyssins samkvæmt
frönskum reglum.
Talsmaður foreldranna segir
að misvísandi yfírlýsingar um
orsök flugslyssins hafi valdið
foreldrunum ómældum sárs-
auka. Hann heldur því fram að
Frakkar hafi lögsögu í öllum
sakamálum gegn frönskum
borgurum í flugvélum og gildi
einu hvar þær séu skráðar.
Reknir fyrir að
þiggja mútur
DV, Kaupmannahöfn:
Fjölmargir starfsmenn
danska sendiráðsins í Pakistan
hafa verið reknir fyrir aö gefa
falska stimpla í vegabréf gegn
greiöslu. Starfsemin hefur við-
gengist í fjölda ára í sendiráð-
inu í Islamabad og ótölulegur
flöldi starfsmanna tekið þátt í
svindlinu.
Ekki er vitað um hve mikla
peninga er að ræða en um er að
ræða fólk sem vann í sjálfu
sendiráðinu og fékk greitt fyrir
að gefa út falska stimpla. Um-
ræddir starfsmenn eru allir
Pakistanar en mútuþægni er
viðurkennt vandamál í landinu
enda laun lág.
Pakistanar standa nú marga
daga í röð fyrir utan sendiráð
Dana í von um vegabréfsáritun.
Röðin skýrist af því aö Danir
hafa skilgreint Pakistan sem
flóttamannaland og óttast að
allir sem fá að ferðast til Dan-
merkur muni sækja um varan-
legt dvalarleyfi. -pj
Kylfusveinar
reknir í síðbuxur
Kylfusveinar gylfinganna
Steve Jones og Toms Lehmans,
sem taka þátt í PGA-golfmótinu
i Bandaríkjunum, ollu óvæntu
uppnámi á mótinu í gær þegar
þeir ákváðu að klæðast stutt-
buxum. Mjög heitt var í veðri
og sáu þeir fram á erfiðan dag.
En ekki leið á löngu áður en
umsjónarmaður mótsins, full-
trúi gamalla hefða og ná-
kvæmra hegðunarreglna iþrótt-
arinnar, birtist afar strangur á
svip. Skipaði hann kylfusvein-
unum að fara í síðbuxur, að
öðram kosti yrðu þeir frá að
hverfa. Kylfusveinarnir virtust
hafa reiknað með þessum við-
brögðum, höfðu síðbuxur við
höndina og skiptu frammi fyrir
um 50 áhorfendum. En kylfu-
sveinn Nicks Faldos fékk að
vera í sínum stuttbuxum.
Sveinninn var nefnilega kona
og um þær gilda ekki sömu
reglur varðandi klæðnað.
Laganemi
myrti fjöl-
skyldu sína
Grískur laganemi viður-
kenndi í gær að hafa myrt for-
eldra sína og þrjá aðra fjöl-
skyldumeðlimi og hlutað lík-
ama þeirra í sundur með keðju-
sög. Theophilos Sehidis, 24 ára,
sagði við yfirheyrslur að hann
heföi myrt fjölskyldu sína á
fimm dögum á eynni Thasos.
Hann setti sumar likamsleif-
anna í ruslapoka, flutti þá á
fastalandið og henti þeim á
ruslahauga. Lögreglan segir að
Sehidis sé andlega vanheill.
Reuter
-• t ;*•»
X X