Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Side 12
>2 erlend bóksjá
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 JjV
Metsölukiljur
I •••••••••••••••
*
i
Bretland
ÍSkáldsögur:
1. Patricla D. Cornwell:
From Potter's Fleld.
2. Nlcholas Evans:
The Horse Whlsperer.
3. Pat Barker:
The Ghost Road.
4. Mlchael Crlchton:
The Lost World.
5. Danielle Steel:
Ughtnlng.
6. Tom Sharpe:
Grantchester Grind.
7. Clare Francls:
Betrayal.
8. Stephen Kfng:
Night Journey.
9. Nick Hornby:
High Fldellty.
10. D. & L. Eddings:
Belgarath the Sorcerer.
Rit almenns eölis:
1. Margaret Forster:
Hldden Uves: A Famlly Memoir.
2. Paul Theroux:
The Pillars of Hercules.
3. Eric Lomax:
The Rallway Man.
4. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
5. Nelson Mandela:
ÍLong Walk to Freedom.
6. John Gray:
Men Are from Mars, Women Are from
Venus.
17. Wlll Hutton:
The State We’re In.
8. Jung Chang:
Wlld Swans.
9. Chrls Ryan:
The One that Got Away.
10. John Sutherland:
Is Heathcliff a Murderer?
Ílnnbundnar skáldsögur
1. John Grlsham:
The Runaway Jury.
2. Terry Pratchett:
Feet of Clay.
3. Kevln J. Anderson:
4. Jilly Cooper:
Appassionata.
X-Flles 4: Rulns.
5. Jeffrey Archer:
The Fourth Estate.
Innbundin rit almenns
eölls:
1. Jack Ramsay:
SAS: The Soldier’s Story.
2. Brlan Scovell:
Dickle.
3. Nlck Pope:
Open Skles, Closed Mlnds.
4. R. Bauval & G. Hancock:
Keeper of Genesls.
5. Brian Johnston:
An Evening with Johnners.
(Byggt á The Sunday Times)
Astarsaga eftir
Francois Mittrerand
Stjórnmálamaðurinn Francois
Mitterrand, sem var forseti Frakk-
lands í hálfan annan áratug, var
ávallt kunnur fyrir gífurlegan
áhuga sinn á bókum, jafnt skáld-
verkum sem fræðiritum. Hann las
mikið alla tíð, safnaði miklum
fjölda bóka og samdi auk þess sjálf-
ur ein sautján rit um pólitísk og
söguleg málefni.
Sjálfur hafði Mitterrand hins veg-
ar aldrei verið kenndur við skáld-
skap. Þess vegna kom það öllum á
óvart þegar handrit að opinskárri
ástarsögu, sem hinn nýlátni fyrrver-
andi forseti samdi sem ungur mað-
ur, lenti allt í einu á uppboði í
Frakklandi.
Hér er um að ræða smásögu sem
Mitterrand mun hafa samið í maí
árið 1940, skömmu áður en Þjóðverj-
ar lögðu Frakkland undir sig, en þá
var hann liðþjálfi í franska hernum.
Handritið er á tíu blaðsíðum í lítilli
minnisbók og fór á jafnvirði hálfrar
milljónar íslenskra króna.
Ástarævintýri sem end-
ar illa
í þessari sögu segir frá skamm-
vinnu ástarævintýri pilts og stúlku
- Phillippe og Elsu. Þau dragast
hvort að öðru og eiga nokkurt sam-
neyti sem lýkur þegar Philippe
ákveður að snúa baki við ástkonu
sinni.
Margir hafa sérhæft sig í æviferli
Mitterrands, og birt um niðurstöður
sínar margar metsölubækur í
Frakklandi hin síðari ár. Þeir full-
yrða að þessi óbirta smásaga sé aug-
ljóslega byggð á ástarævintýri sem
Mitterrand lenti sjálfur í á stríðsár-
Francois Mitterrand: ástarsaga frá
stríðsárunum.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
unum og endaði illa.
Hann kynntist skömmu fyrir
stríðið ungri stúlku, Marie-Louise
Terrasse, sem mörgum árum síðar
varð kunn sem fréttaþulur í franska
sjónvarpinu. Hún varð unnusta
hans skömmu áður en stríðið
braust út á vesturvígstöðvunum. En
þegar Mitterrand særðist á vígvell-
inum og var handtekinn af Þjóðverj-
um sneri hún við honum baki og
hóf ástarsamband við ungan Pól-
verja sem bún giftist síðar. Er full-
yrt að þetta hafi fengið mjög á Mitt-
errand sem aldrei hafi getað gleymt
þessari ástvinu sinni.
Handritinu stolið?
Ekki liggur fyrir hvernig handrit-
ið komst í hendur uppboðshaldar-
ans. Þó er talið líklegast að minnis-
bókinni hafi verið stolið af heimili
foreldra Mitterrands í Jarnac, sem
er í vesturhluta Frakklands. Er því
reyndar spáð að fleiri æskuverk for-
setans fyrrverandi muni dúkka upp
með sama hætti og þessi smásaga.
Það var gamall vinur Mitterrands
sem keypti handritið og sagðist telja
það „vinargreiða."
Mazarine Pingeot, sem forsetinn
fyrrverandi átti utan hjónabands
fyrir 21 ári, fékk það hlutverk við
andlát föður síns að gæta höfundar-
réttar fyrir hönd dánarbúsins.
Henni tókst fyrir skömmu að fá
stöðvaða dreifingu bókar sem einka-
læknir Mitterrands hafði skrifað
um forsetann fyrrverandi en gat
hins vegar ekki komið í veg fyrir að
smásagan færi á uppboð.
Þess má geta að það hefur lengi
þekkst í Frakklandi að stjórnmála-
menn fáist við skáldskap. Síðasta
kunna dæmið um þetta er Valery
Giscard d’Estaing, sem var forseti
Frakklands þar til Mitterrand lagði
hann að velli í kosningunum árið
1981. Hann sendi frá sér skáldsögu
árið 1994. Hún seldist í meira en
hundrað þúsund eintökum þótt
gagnrýnendur væru lítt hrifnir.
Metsölukiljur
I •••••••«#♦♦•«•••••••
1
:■ ■ ■ ■ ... ;
Bandaríkin
Skáldsögur:
I. Stephen Klng:
The Green Mlle: The Bad Death of
Eduard Delacroiz.
2. Patrlcla Cornwell:
From Potter’s Field.
3. Danielle Steel:
Llghtnlng.
4. Pat Conroy:
Beach Muslc.
5. Rosamunde Pilcher:
Coming Home.
6. Stephen King:
|: The Green Mile: Coffey’s Hands.
7. David Guterson:
Snow Falling on Cedars.
8. Sandra Brown:
The Witness.
9. Dean Koontz:
The Eyes of Darkness.
10. Nora Roberts:
Darlng to Dream.
II. Jouh Saul:
Black Lighting.
12. Stephen King:
The Green Mile: The Mouse on the
Mlle.
13. Stephen King:
The Green Mile: The Two Dead Girls.
14. John Grlsham:
The Rainmaker.
15. Richard Ford:
Independence Day.
Rlt almenns eðlis:
1. Mary Plpher:
Revlvlng Ophelia.
2. Mary Karr:
The Llar's Club.
3. John Felnstein:
A Good Walk Spoiled.
4. Thomas Cahill:
How the Irlsh Saved Civlllzatlon.
5. Jack Miles:
God: A Blography.
6. J.M. Masson & S. McCarthy:
When Elephants Weep.
7. B.J. Eadie & C. Taylor:
Embraced by the Light.
8. Isabel Allende:
Paula.
9. Colin L. Powell:
My Amerlcan Journey.
10. D. Hays & D. Hays:
My Old Man and the Sea.
11. Thomas Moore:
Care of the Soul.
12. James Carvllle:
We’re Rlght, They’re Wrong.
13. Helen Prejean:
Dead Man Walklng.
14. Gall Sheehy:
New Passages.
15. Maya Angelou:
I Know Why the Caged Bird Sings.
(Byggt á New York Times
Book Revlew)
Fólínsýran hjartagóð
Þeir sem borða grænmetið sitt
i og aðra fiæðu sem er auðug að
fólínsýru eiga mun síður á hættu
að verða hjartasjúkdómum að
bráð en hinir sem gera það ekki.
Þetta er niðurstaða sem
kanadíski vísindamaðurinn
Howard Morrison komst að við
rannsókn á örlögum 5056 þátttak-
enda í næringarfræðikönnun
; sem gerð var í Kanada á árunum
1970 til 1972.
Morrison segir að fjórðungur
þeirra sem voru með minnst
magn fólínsýru 1 blóðinu sé 69
prósent líklegri til að deyja úr
hjartasjúkdómum en þeir sem
voru með mest magn vítamínsins
í blóðinu.
Gáfurnar frá
mæðrunum
Karlar ættu ekki að láta horm-
| ónana bera skynsemina ofurliði
{ þegar þeir velja sér móður vænt-
anlegra barna sinna. Þeir eiga að
láta gáfur konunnar skipta sig
meira máli en fríðleika. Það er
nefnilega þannig að bömin erfa
gáfurnar frá móður sinni en ekki
; fóður. Konumar bera gáfnagenið
í X litningi sínum.
Það er ástralski erfðafræðing-
: urinn Gillian Tumer sem heldur
þessu fram i ritgerð í læknablað-
inu Lancet. Hún segir að það séu
; því konumar sem geti valið sér
maka útlitsins vegna.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Eldsneyti úr sykri kannski
notað á bíla framtíðarinnar
Sykur á bílinn?
Kannski ekki beint, en
bandariskir og breskir
vísindamenn hafa upp-
götvað aðferð til að búa til
hreint eldsneyti úr sykri.
Eins og nærri má geta
kynni það að valda gjör-
byltingu í orkuiðnaðin-
um.
Aðferðin byggir á því
að nota lífhvata eða ensim
úr örveram sem þrífast
nærri hitaútstreymi neð-
ansjávar til að breyta
glúkósa í vetni og vatn.
Vísindamenn hafa
lengi leitað að hreinlegri
og ódýrri leið til að fram-
leiða hreint vetni sem
gæti komið í staðinn fyrir
jarðefnaeldsneyti og
kjarnorkuver, sem era
mengandi.
Michael Danson, líf-
efnafræðingur við háskól-
ann í Bath á Englandi,
segir að einnig sé hægt að
beita aðferðinni á sellu-
lósa, sem er grunnefni
plantna, þar á meðal
grass.
„Vetni er eldsneyti 21. aldarinn-
ar,“ segir Jonathan Woodward, sem
starfar við Oak Ridge National til-
raunastöðina í Tennessee og einn
þátt’.akenda í rannsókninni. „Loka-
takmarkið er að umbreyta endur-
nýjanlegum auðlindum í vetnisgas."
Woodward, sem er sérfræðingur í
ensímum, segir að vetni kunni ein-
hvem tímann að vera notað sem
eldsneyti á bíla á næstu öld.
Önnur aukaafurð af völdum efna-
hvarfsins er glúkonaði eða glúkósa-
sýra, sem nokkuð algengt er að not-
uð sé í lyfjaframleiðslu og málmiðn-
aði. Ekkert koldíoxíð myndast við
aðferð þessa, en það er sú aukaafurð
jarðefnaeldsneytis sem kennt er um
gróðurhúsaáhrifin svokölluðu.
„Það er hægt að taka sykur
eins og glúkósa og breyta
honum í efni sem heitir
glúkónaði og framleiða vetni.
Umbreytingin er hundrað
prósent," segir Michael
Danson. Hann segir að auð-
velt sé að nálgast sykurefni
eins og glúkósa
Danson er sérfræðingur í
hitakærum örverum, bakter-
ium sem hafa uppgötvast til-
tölulega nýlega og þrifast við
mjög erfið skilyrði, svo sem
eins og í heitum hverum eða
við eldfjallarásir á hafsbotni.
„Ensimin tvö sem við notum
hafa verið einangruð úr hita-
kæram örverum,“ segir
Danson. Önnur þrífst við 60
gráður á selsíus en hin við
suðurmark vatns.
„Önnur þessara örvera fram-
leiðir svo lika vetni sjálf,“
bætir hann við.
Hann og Woodward hreins-
uðu ensímin úr örverunum
tveimur og fylgdust með því
hvemig þau gengu í sam-
band við glúkósa, sem er ein-
falt efni úr vetni, súrefni og
kolefni. Efnahvörfin voru hrein og
skilvirk og úr varð vetni. Vegna
þess hve verurnar starfa við mikinn
hita eru ensím þeirra mjög stöðug.
Danson og Woodward segja að
rannsóknir þeirra hafi verið ein-
skorðaðar viö tilraunastofuna, og í
litlum mæli, og frekari rannsókna
væri því þörf.
Mengunin er sak-
laus
Læknar hafa nú hreinsað loft-
mengun af áburði um að valda
í auknum íjölda asmatilfella í heim-
i inum. Þeir segja að vandinn kuimi
S þess í stað að hefjast þegar í frum-
bemsku, jafnvel fýrir fæðingu.
Sérfræðingar sögðu á ráð-
stefnu í London fyrr í sumar að
; reykingar, mataræði og of hrein
; hús, sem væra einangruð frá um-
hverfinu, væra mikilvægir þætt-
s ir sem þyrfti að rannsaka frekar.
Stephen Holgate, læknaprófess-
: or við háskólann í Southampton,
segir að svo virðist sem tvær
rannsóknir hafi sýknað loftmeng-
unina. „Loftmengun hefur minnk-
að til muna frá 6. áratugnum og á
sama tíma hefur asmatilfellum
fjölgað," segir hann.
Testósterón og
lærdómur
Karlakynhormónið testósterón
kann að hafa einhver áhrif á það
hvemig körlum gengur í stærð-
fræði og móðurmálinu.
Vísindamenn við Johns Hopk-
; ins háskólann í Bandaríkjunum
! rannsökuðu ellefu karlmenn með
! lágt testósterón og komust að því
! að ef þeir fengu ekki hormóameð-
ferð áttu þeir í erfiðleikum með
að muna lögun hluta. Þeim gekk
í þó 25 prósent betur í prófum um
! uppbyggingu setninga.
„Það er ekki þar með sagt að
við ættum að gefa testósterón
! stúlkum sem vilja verða arkitekt-
j ar og estrógen körlum sem vilja
verða stjórnmálamenn,” segir
;; Adrian Dobs, aðalhöfundur rann-
i sóknarinnar.