Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Page 17
LAUGARDAGUR 10. AGUST 1996
Lyfjafræðingur sem stýrir rannsókn á nýrri lyfjameðferð gegn eyðni á íslandi:
Ný von um eðlilegt
með eyðniveir
„Við erum farin að sjá ljós við
enda dimmra ganga í baráttunni við
eyðniveiruna. Búið er að finna þrjár
gerðir lyfja sem reynast mjög vel til
þess að fækka veirunum," segir
Hjörleifur Þórarinsson lyfjafræðing-
ur sem sér um eyðnirannsóknir á
íslandi. Hjörleifur starfar fyrir
stærsta lyfjafyrirtæki í heimi, Glaxo
Wellcome, en það á dótturfyrirtæki
á íslandi þar sem sex starfsmenn
vinna. Fyrirtækið var stofnað 1990
og er eina erlenda lyfjafyrirtækið
með sjálfstæða skrifstofu. Glaxo
Wellcome vinnur meðal annars að
eyðnirannsóknum og setti nýlega á
markað lyf sem lofar góðu í barátt-
unni við eyðni.
Tvö lyf saman lofa góðu
„Við sjáum um markaðssetningu
á lyfjum okkar og samskipti við
heilbrigðisyfirvöld um skrásetningu
lyfjanna. Einnig stundum við rann-
sóknir á nýjum lyfjum. Eyðnirann-
sóknir á íslandi hafa snúist mest
um faraldsfræði. Skoðuð er tíðni,
útbreiðsla og þróun sjúkdómsins á
íslandi,“ segir Hjörleifur.
Að sögn Hjörleifs kynnti Glaxo
Wellcome í fyrravetur í fyrsta sinn
niðurstöður af nýju lyfi sem fyrir-
tækið hafði prófað gegn eyðnivei-
runni. Það var lyfíð epivir sem gef-
ið er með öðru lyfi, AZT. Niðurstöð-
urnar þykja lofa góðu þegar þessi
tvö lyf eru notuð samtímis. Að sögn
Hjörleifs sækja íslenskir læknar
eyðniþing og fylgjast vel með öllu
sem gerist á þessu sviði. Læknar
sem sóttu ráðstefnu í Glasgow í jan-
úar 1995 komu að máli við Hjörleif
og starfsfélaga hans og vildu fá lyfið
til íslands. Gallinn var að lyfið var
enn á rannsóknarstigi og var því
ekki samþykkt af heilbrigðisyfir-
völdum," segir Hjörleifur.
Hröð þróun
Lyfið epivir hefur verið þróað
mjög hratt og geflð með AZT fækkar
það HlV-veirunum í líkamanum. Ár-
angurinn verður einnig sá að
svokölluðum T4 hjálparfrumum
fjölgar. Þær eru auk HlV-veirunnar
taldar þegar meta á árangur með-
ferðarinnar. Þar sem lyfið var hvergi
skráð var erfitt að fá það til landsins.
Glaxo Wellcome hefur þá stefnu að
selja ekki eða dreifa lyfi sem ekki
hefur fengið samþykki heilbrigðisyf-
irvalda. Lyf í rannsóknum ganga í
gegnum nokkur stig. Þegar búið er
að rannsaka lyfið áður en það er gef-
ið fólki taka við fjögur skref. Fyrst er
lyfið gefið heilbrigðum einstakling-
um, sjálfboðaliðum sem oft eru
lækna- eða lyfjafræðinemar. Á öðru
stigi er lyfið gefið tiltölulega litlum
hópi sjúklinga. Á þriðja stigi er lyfið
gefið stórum hópi sjúklinga. Þá
þekkja menn áhrif lyfsins og
skammtastærðir. Fjórða stig tekur
við eftir markaðssetningu lyfsins.
Þessi skref geta tekið frá fjórum
árum upp i tíu ár. Það þarf að vinna
tiltölulega hratt að þróun eyðnilyfja
og það er mikill þrýstingur frá sjúkl-
ingum. Á þriðja stigi er öllum upp-
lýsingum safnað saman og þær send-
ar heilbrigðisyfirvöldum. Að þeim
gögnum skoðuðum eru lyfin sam-
þykkt. íslensk heilbrigðisyfirvöld
fengu gögnin um epivirlyfið í ágúst í
fyrra.
Samþykki fæst í
nokkrum löndum
„Stundum tekur tvö ár að fá lyf
samþykkt. Vonandi gengur það eitt-
hvað fyrr núna. Búið er að sam-
þykkja epivir í Bandaríkjunum,
Brasilíu, Sviss, Nýja-Sjálandi, Ástr-
alíu og Úrúgvæ. Epivir var sam-
þykkt í löndum Evrópusambands-
ins í fyrradag.
Farið er að flytja lyfið til íslands
og sjúklingar geta nú fengið það án
þess að vera þátttakendur í rann-
sókninni. íslensk heilbrigðisyfir-
völd hafa veitt innflutningsleyfi fyr-
ir lyfinu," segir Hjörleifur.
Að sögn Hjörleifs vildu læknarnir
fá lyfið sem fyrst til þess að prófa
það á sjúklingum sínum. Glaxo Well-
come setti þvi í gang rannsóknar-
verkefni sem fólst í því að lyfið var
gefið sjúklingum sem ekki höfðu þol-
að fyrri HIV-lyQameðferð eða höfðu
verið með versnandi sjúkdóm í tólf
mánuði. Þannig fengu læknamir að-
gang að lyfinu. Sjúklingamir fengu
upplýsingar um lyfið og gáfu sam-
þykki sitt til þess að prófa það. Þeir
fóru í læknisskoðun mánaðarlega
þar sem meðál annars vom mældar
T4 hjálparfmmumar en það er einn
mælikvarði á virkni meðferðarinn-
ar. Rannsókninni lauk í júlí.
„Þegar maður tekur þátt í rann-
sókn sem mörg lönd taka þátt í sam-
an er ekki hægt að draga ályktanir
fyrr en búið er að vinna úr öllum
gögnum. Alls tóku 40.000 sjúklingar i
fimmtán þjóðlöndum þátt i þessari
rannsókn, þar af 14 á íslandi. Við lit-
um á það sem okkar verkefni að
hjálpa læknunum til þess að nálgast
lyfið. Leiðin til þess var að setja
þessa rannsókn I gang,“ segir Hjör-
leifur.
Þrýst á um lækningu
Að sögn Hjörleifs em HlV-smitað-
ir sjúklingar mjög meðvitaður hóp-
ur. HlV-jákvæðir mæta á ráðstefnur
sem haldnar em um eyðni og þrýsta
á lækna og lyfjafyrirtæki um að fá
lyf um leið og fréttist af einhverju
nýju á markaðnum. Það nýjasta sem
er að gerast í þessum málum er að
farið er að nota þrjú lyf til þess að
vinna á veirunni. Þriðja lyfið ræðst
að veirunni á öðrum stað en lyf úr
flokki AZT og epivir.
„Um leið og fólk sýkist af
veirunni fer i gang mikil varnarbar-
átta í líkamanum. Milljarðar veira
sækja að varnarkerfi líkamans og
HlV-smitaðir fara að veikjast þegar
varnarkerfi líkamans hættir að hafa
undan. Því er rætt um það í dag að
vænlegast sé að gripa fljótt inn með
lyfjameðferð til þess að fækka veir-
unum svo ónæmiskerfið yfirkeyrist
ekki. Mjög góður árangur hefur
komið í ljós við notkun þriggja lyíja-
meðferða. Þá eru skotmörkin orðin
þrjú og miklu meiri líkur á því að
náist að fækka veirunum. Veiran á
það til að breyta sér og verða ónæm
fyrir meðferð ef einungis er gefið
eitt lyf,“ segir Hjörleifur.
Milliverkanir óþekktar
Þegar verið er að gefa lyf saman í
fyrsta sinn eru milliverkanir þeirra
ekki alltaf þekktar. Sum hafa ein-
hver áhrif á líffæri líkamans.
„Venjulega viljum við vera búnir
að kanna milliverkanir áður en við
mælum með að lyf séu gefin saman.
Alnæmi er alvarlegur sjúkdómur og
því eru læknar og sjúklingar ekkert
sérstaklega viðkvæmir fyrir því þó
allar upplýsingar um milliverkanir
séu ekki þekktar á þessu stigi,“ seg-
ir Hjörleifur.
nýtt eyðnilyf til Islands í vikunni
Dregið úr smiti fóstra
Nú þegar hefur dregið úr HIV-
smiti hjá samkynhneigðum því þeir
eru orðnir meðvitaðri um sjúkdóm-
inn. Einnig hefur dregið úr smiti
hjá nýburum HlV-jákvæðra mæðra
sem fengu AZT á meðgöngunni.
Veirunum fækkaði við meðferðina
og börn smituðust síður i móður-
kviði og við fæðingu.
„Önnur lyf eru einnig á markaðn-
um en það er ekki sama hvernig
þriggja lyfja meðferðin er samsett
fyrir sjúklinga. Það sem verkar á
einn verkar kannski ekki á annan.
Menn eru alltaf að þróa ný lyf. Ver-
ið er að vinna að lyfi sem hjálpar til
við fjölgun hvítu blóðkornanna til
þess að byggja upp varnarkerfi lík-
amans og verið að vinna að þróun
bóluefnis," segir Hjör-
leifur.
Endanleg lækning á *.
þessum voðalega sjúk-
dómi er langt i frá í sjón-
máli en þó er mögulegt að
HlV-smitaðir og eyðnismit-
aðir gætu lifað með veiruna
í sér ef henni væri haldið
niðri með lyfjum. Auðvitað
gera menn sér alltaf vonir um
að geta upprætt veiruna en
það mesta sem menn þora
að vona í dag er að hægt
sé að koma í veg fyrir
að hún yfirkeyri
ónæmiskerfið og
fólk gæti lifað með
henni vel eins og
hægt er.
-em
PIONEER PIONEER PIONEER PIONEER PIONEER PIONEER PlONEER PlðF
r u) rasorui
mmvm
...í gæðaflokki!
N-760Á
N -460 A
• Magnari: 2x70w (RMS, 1kHz, 6£2)
• Útvarp: FM/AM, 24 stöðva minni
• Geislaspilari: Einfaldur „Slot ln“
• Segulbandstæki: Tvöfalt Dolby B
• Hátalarar: Tvískiptir 70w (DIN)
N -160 >
• Magnari: 2x35w (RMS, 1kHz, 6£1)
• Útvarp: FM/AM, 24 stöðva minni
• Geislaspilari: Einfaldur „Slot ln“
• Segulbandstæki: Tvöfalt Dolby B
• Hátalarar: Tvískiptir 35w (DIN)
49.900,-
• Magnari: 2x1 OOw (RMS, 1kHz, 80)
• Útvarp: FM/AM, 24 stöðva minni
• Geislaspilari: Tekur ■bÞT-lHIFl
• Segulbandstæki: Tvöfalt Dolby B
• Hátalarar: Þrískiptir 100w (DIN)
< N -260
• Magnari: 2x70w (RMS, 1kHz, 60)
• Útvarp: FM/AM, 24 stöðva minni
• Geislaspilari: Einfaldur „Slot ln“
• Segulbandstæki: Tvöfalt Dolby B
• Hátalarar: Tvískiptir 70w (DIN)
39.900,
NS-t A
• Magnari: 2x35w (RMS, 1kHz,) fram, 1x55w (RMS, 100Hz)
• Útvarp: FM/AM, 24 stöðva minni
- Geislaspilari: Einfaldur
• Segulbandstæki: Einfalt „Slot ln“
• Hátalarar: Tvískiptir, auk bassa
NS 60 >
• Magnari: 2x30w (RMS, 1kHz, 60)
• Útvarp: FM/AM, 30 stöðva minni
• Geislaspilari: KriBMEHlHiCl
• Segulbandstæki: Tvöfalt
• Hátalarar: Tvískiptir 30w (DIN)
Umbobsmenn um land ollt
Vesturland: Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. Asubúð.Búðardal
Vestfirðir: Geirseyrarbúöin, Patreksfirði. Laufið, Bolungarvík.Hljómborg, ísafirði. Norðurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi.
Hljómver, Akureyri. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Kf. Hóraðsbúa, Egilsstööum. Verslunin Tónspil, Neskaupsstað. Suðurland: Árvirkinn, Selfossi.
Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn.Keflavík. Rafborg, Grindavík.
Hðnnun: Gunnar Steinþórsson / FÍT / BO-08.96-Pioneer/Hljómtœki