Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Síða 18
18
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 JjV
Apaköttnr, apaspil . . . hún var
óvenjuljót konan sem heilsaði mér
í speglinum á fóstudagsmorgun-
inn þegar klukkuna vantaöi
fimmtán mínútur í fimm ... að þú
skulir vera til. í heilar þrjár mín-
útúr fannst mér óhugsandi að
nokkur kona í heiminum ætti eins
bágt og ég. En eftir heita sturtu,
tannburstun og kaffi leit lífið
miklu betur út og koddafarið á
vinstri kinninni var svo til horfið.
Ég var komin í vinnuna upp úr
hálfsex eins og venjulega og eftir
tvo kaffibolla í viðbót fannst mér
bara reglulega gaman að lifa, enda
eins gott, langur dagur fram und-
an. Morgunkarlamir mínir, Þor-
geir og Þráinn, voru báðir í sum-
arfríi, þannig að við Jóhann Jó-
hannsson, sem sá um útsending-
una þennan morguninn, vorum
bara tvö þangað til viö heyrðum
kunnuglegt fótatak, Inger Anna
Aikman, sumarstúlka Bylgjunnar,
var mætt og tímabært að fara að
láta hendur standa fram úr erm-
um. Verslunarmannahelgin tók
auðvitað töluvert af tímanum í
morgunþættinum að þessu sinni
og eins og alltaf á föstudegi fyrir
verslunarmannahelgi voru móts-
haldarar fullir bjartsýni.
Eftir að útsendingu lauk var
ekki annað að gera en snúa sér að
næsta verkefni sem var lokaundir-
búningur fyrir útsendingar Bylgj-
unnar um helgina og eftir hádegis-
.. þegar ég kom heim var allt pússaö út úr dyrum, Georg búinn aö kveikja á kertum og kæla rósavín handa sinni
örþreyttu kerlingu ... og þegar ég lagöist á koddann fannst mér óhugsandi aö nokkur kona í heiminum ætti eins
gott og ég“, segir Margrét Blöndal.
Dagur í lífi Margrétar Blöndal:
eftir að þjóðbrautarmenn kvöddu
og að loknum kvöldfréttmn Stöðv-
ar 2 og Bylgjunnar hófst fjörið fyr-
ir alvöru og við vorum að langt
fram á kvöld. Signý, dóttir mín,
sem er „alveg að verða fjórtán"
kom með mér í vinnuna því að eft-
ir útsendingu ætlaði ég að fara
með hana upp í Grafarvog til
Hrafnkels bróður míns, því að
hann og hans góða kona ætluðu að
fara með Börk Halldór, son sinn,
og hana í fjallaferð um helgina.
Við komum við í búð á leiðinni í
Grafarvoginn og þegar ég var búin
að skila táningnum mínum var
hugurinn kominn til Hafnarfjarð-
ar. Á miðri leið uppgötvaði ég að
farsíminn, sem ég þurfti að nota í
þyrlufluginu daginn eftir, var
læstur svo ég fór aftur upp á
Bylgju til að fínna út úr þvi.
Gunnar Smári tækniséní var sem
betur fer ekki farinn að sofa og gat
bjargað mér og þá gat ég loksins
farið heim, enda klukkan farin að
nálgast miðnætti og mæting hjá
Þyrluþjónustunni snemma daginn
eftir.
Oft hefur nú verið gott að koma
heim til sín en sjaldan eins og
þetta kvöld. Sara Hjördís, yngri
dóttir mín, hafði dottið í tiltektar-
stuð með pabba sínum - og þegar
ég kom heim var allt pússað út úr
dynrni, Georg búinn að kveikja á
kertum og kæla rósavín handa
sinni örþreyttu kerlingu . . . og
Erilsöm verslunarmannahelgi í loftinu
fréttir hófst eiginlega þessi helgart-
öm sem ég hafði tekið að mér
ásamt Erlu Friðgeirsdóttur og
Pálma Guðmundssyni.
Um miðjan dag fór að örla á
svolítilli syfju hjá mér og ég ákvað
að skreppa heim og leggja mig að-
eins, en þegar ég var rétt sofnuð
dreymdi mig að Björgvin Halldórs-
son hringdi og spyrði mig hvort ég
hefði ekki verið ráðin í vinnu upp
á laun - ég sneri mér á hina hlið-
ina og lét sem ég tæki ekki eftir
þessu - enda maðurinn aldrei ver-
ið neitt nema ljúfmennskan við
mig - en einhvern veginn kveikti
þetta á samviskubitinu og ég
ákvað bara að drífa mig aftur í
vinnuna.
Við héldum útsendingum áfram
þegar ég lagðist á koddann fannst
mér óhugsandi að nokkur kona í
heiminum ætti eins gott og ég.
Finnur þú fimm breytingar? 371
Ég vil alls ekki fullyröa aö þér séuö einskis viröi, herra Jensen. Þaö
er allavega hægt aö nota yöur sem viti til varnaöar.
Nafn: _
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð sextugustu og
níundu getraun reyndust vera:
1. Elísa Guðrún Elísdóttir 2. Kristrún Jóhannesdóttir
Jörundarholti 25 Núpabakka 21
300 Akranes 109 Reykjavík
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi Funm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafhi þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi, að
verðmæti kr. 7.100, frá Bræðrunum
Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond-bókin
Gullauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fín og rík og liðin lík.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 371
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík