Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Síða 25
DV LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996
25
fólk
Bandarísk söngkona og prófessor kynntist íslendingum á Internetinu:
Ég varð ástfangin
af íslenskri tónlist
- segir Judy Gans sem syngur íslensk einsöngslög á tónleikum í september
„Ástæðan fyrir því að ég ákvað að
koma til íslands var að ég kynntist
íslenskum vini í gegnum tölvuna á
Internetinu. Við skiptumst á ýms-
um hlutum úr okkar þjóðlifi og ég
bað hann um að senda mér íslenska
tónlist," segir bandaríski prófessor-
inn og söngkonan frá Texas, Judy
Gans, í símaviðtali við DV. Hún er
fyrrum prófessor við Kristilega há-
skólann í Texas, í Fort Worth. Hún
er nýlega hætt þar sem hún hefur
hugsað sér að snúa sér eingöngu að
tónlistinni.
Judy hefur kynnst fleiri en einum
íslendingi í gegnum Internetið og
fengið áhuga á íslenskri tónlist í
kjölfarið. Nú syngur hún íslensk
einsöngslög og kemur hingað til
lands í september og heldur tón-
leika í Digraneskirkju 14. septem-
ber. Einnig mun hún halda tónleika
á landsbyggðinni þann 12. septem-
ber.
„Ég er að skrifa doktorsritgerð í
tónlist, með bókmenntir sem sérfag,
en samt þekkti ég ekkert til ís-
lenskrar tónlistar þegar vinur minn
byrjaði að senda mér tónlist. Hann
sendi mér fyrst
tónlist fyrir
kóra og síðar
einsöngslög
og ég
varð
ást-
hér í Bandaríkjunum. Ég uni mér
vel við rannsóknir og reyndar líka
við tónlistarflutning og það varð úr
að ég ákvað að koma hingað i smá-
ferðalag og halda tvenna tónleika í
leiðinni," segir Judy.
Síðari hluti ferðarinnar verður
helgaður íslensku tónlistinni og
Judy hyggur á einhverjar rannsókn-
ir á henni. Hún hefur lagt heilmikla
vinnu í það að læra íslensk lög og
eytt miklum tíma í að hlusta á ís-
lenska geisladiska. Hún segir að það
sé nauðsynlegt fyrir sig að skilja
það sem hún er að syngja um og
þess vegna hefur hún þýtt öll lögin
sem hún syngur. Hún þýðir upp úr
orðabókum það sem hún getur og
hefur annars notið aðstoðar frá is-
lenskum vinum.
Krefjandi tungumál
„Tungumálið er mjög krefjandi
og ég eyddi miklum tíma í að hlusta
á geisladiska og einnig hlustaði ég á
vini mina tala islensku við mig í
símann til að ég gæti betur náð tök-
um á hljómfalli og blæbrigðum
málsins. Einnig kynntist ég íslensk-
um nema í framhaldsnámi
við ríkisháskólann í
Austin í Texas.
Hann heitir
Sigurður
Magn-
og hann bauð mér til sín einn dag-
inn til að æfa mig í málinu og ég
gerði það. Ég lærði heilmikið á því.
En ég er ekki viss um að ég beygi öll
orðin alltaf rétt.“
Judy kemur til með að skipta tón-
leikunum á íslandi í tvennt. í fyrri
hluta tónleikanna syngur hún lög
eftir Franz Schubert, Donaudy og
Richard Strauss. Seinni hlutinn er
blanda af bandarískri andlegri tón-
list og íslensku lögunum. Næstu
árin verða helguð tónlistinni og
Judy hyggur á tónleikaferðalag um
öll Bandaríkin. Næstajvor leggur
hún liklega land undír fót og fer til
Ástralíu til að spila þar. Einnig von-
ast hún til þess að komast aftur til
íslands.
„Faðir minn var atvinnuflugmað-
ur í flughernum þannig að ég ferð-
aðist mjög mikið í æsku. Við sett-
umst að lokum að i Texas. Ég fór í
háskólann í Norður-Texas og síðan í
Kristilega háskólann í Texas í fram-
haldsnám. Núna er ég að klára dokt-
orsnámið mitt sem er söngur (vocal
performance) og er komin aftur í
háskólann í Norður-Texas. Maður-
inn minn, Melbourne, vinnur við
varnarmál og sonur minn er í há-
skóla. Svo má ekki gleyma köttun-
um minum tveimur og hundinum,"
segir þessi glaðværa Suðurríkja-
kona sem er farin að hlakka til þess
að sjá land elds og ísa þar sem fólk
talar þetta flókna tungumál sem
hún hefur lært að syngja á.
-em
Bandaríska söngkonan og prófessorinn Judy Gans frá Texas varð ástfang-
in af íslenskum lögum og hefur lært aö syngja þau.
Taktu þátt í spermandi maraþonleik 09 þú
getur átt von á glæsilegum vinningum. ÞaS
eina sem þú þarft að gera er að svara
spurningunum hér að neðan og senda inn
svarseðilinn til DV og þú ert kominn í pottinn.
Vikulega verða dregnir út 5 heppnir
vinningshafar sem fá fría skráningu í
Reykjavíkur maraþonið sem er þann
18. ágúst næstkomandi. Nöfn vinningshafa
munu birtast í Helgarblaði DV.
¥$§íué&§írm \é, áf
4r#fy?ir éí fJ#$ítefir
3 íþróttagallar og bolir frá Mizuno
3 líkamsræktarkort frá líkams-
ræktarstöðinni Mætti
5 kassar af heilsudrykknum Aquarius
frá Vífilfelli
5 Barilla pastakörfur frá SS
2 pitsuveislur fyrir 3 frá Pizza 67
Sendu inn svarseðilinn núna 09 þú ert með í pottinum frá
byrjun. Þú getur sent inn eins marga seðla og þú vilt.
(Ekki er tekið við Ijósritum.) Utanáskriftin er: DV-maraþon,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
l) Hvaða dag er Reykjavíkur maraþon í ágúst nk.?
2) Hvað er skemmtiskokkið margir km?
3) Hvað fá allir þátttakendur í Reykjavíkur
maraþoni þegar þeir koma í mark ?
Nafn:
Heimilisfang:
Póstnúmer/staður:
Kennitala:
* Ath. þetta er ekki skráning í Reykjavíkur marðiþonið
Eftirtaldir hafa unnið sér inn fría skráningu í Reykjavíkur maraþoninu þann 18. ágúst nk.
Bjarni Sæmundsson, Helgi Vi&arsson Margrét Sigurðardóttir, Jóhanna G. Arnardóttir, Sigurður Helgi Mognússon,
'Njólsgötu 110, Gautlandi 5, Lyngneiðill, Árbót- Aðaldal, Blöndubakka ó,
:105 Reykjavík 108 Reykjavík 810 Hveragerði 641 Húsavík 109 Reykjavík
Vinningshafar eru beðnir að hafa samband við skrifstofu Reykjavjkur maraþons