Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Qupperneq 30
38 útlönd LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996 Málaferlin gegn nasistanum Erich Priebke klúðursleg og þykja lykta af samsæri: Mikil reiði og hneykslan braust út á Ítalíu og víðar um heiminn þeg- ar herréttur ákvað að láta mál Er- ichs Priebkes, fyrrum SS-foringja nasista, niður falla og sleppa honum lausum. Erich Priebke, 83 ára, var ákærður fyrir aðild að einu mesta grimmdarverki nasista á Ítalíu í seinni heimsstyrjöldinni, þegar 335 karlmenn, bæði fullorðnir og ung- lingar, voru myrtir I Ardeatine- hellunum nærri Róm. Hann fór ekki leynt með aöild sína að morðunum og var fundinn sekur. En dómari mat það svo að málið félli undir 30 ára fymingarreglu og lét það niður falla. Reyndar er dómsúrskurður- inn svo flókinn að hann verður ekki birtur í heild fyrr en eftir 3 mánuði. I kjölfar þessara málaloka risu áleitnar spurningar um áreiðan- leika ítalska dómskerfisins. Var úr- skurður dómarans álitinn köld vatnsgusa framan í verði réttarör- yggisins. Ítalía er eitt sjö landa þar sem herdómstóll er enn starfandi. Var þrýstingi beitt á ítalska þingið að leggja þessar leifar stríðsáranna niður, hefðbundinn borgaralegur dómstóll hefði verið mun betur til þess fallinn að fjalla um ákærurnar á hendur Priebke. Þá þykir málið hafa vakið upp óþægilegar minning- ar um fasíska fortíð Ítalíu sem forð- ast sé að taka á með afgerandi hætti. Úrskurður dómara sé lýsandi dæmi. Erfiðleikar við framsal Priebke var handtekinn skömmu eftir dómsúrskurðinn og er enn í haldi þar sem Þjóðverjar hafa til- kynnt að þeir munu reyna að fá hann framseldan svo sækja megi hann til saka fyrir stríðsglæpi þar i landi. En ljón eru í veginum. Priebke var áður búsettur í Argent- ínu og í samningi milli stjórnvalda þar og italskra stjómvalda er skýrt ákvæði um að ekki megi framselja hann til þriðja landsins. Þá kveða reglur Evrópusambandsins á um að ekki megi framselja Priebke þar sem hann hafi í raun verið sýknað- ur af ákænnn í öðra sambandsríki. Saksóknari í Þýskalandi hefur 40 daga til að fá framsalskröfu sam- þykkta. Priebke er með harösnúið lið lög- manna á sínum snærum og hyggst beita öllum ráðum til að forðast framsal. En hann getur þó ekki snú- ið aftur til síns heima þar sem Argentínumenn hafa neitaö honum um landvistarleyfi. Er vinna hafin á ítaliu við að fá málaferlin fyrir her- dómstólnum dæmd ógild svo rétta megi í málinu að nýju. Skotnir í hnakkann Áður en lengra er haldið er rétt að hverfa 52 ár aftur í tímann, til Rómar stríðsáranna. Síðari hluta 23. mars 1944 sprengdu andófsmenn sprengju í miðborg Rómar sem varð 33 hermönnum nasista að bana. Sprengjan hafði verið falin í rusla- fotu. Adolf Hitler reiddist mjög yfir til- ræðinu og fyrirskipaði strax að í hefndarskyni skyldu 50 ítalir drepn- ir fyrir hvern nasista sem fórst. Yfirmanni þýsku herjanna á Ítalíu, Kesselring marskálki, tókst þó með herkjum að fá Hitler til að sætta sig við 10 ítali fyrir hvem nasista. Næstu nótt var unnið hörðum höndum við að finna fómarlömb. Með dyggri aðstoð Carusos, lög- reglustjóra fasista, tókst að finna 330 karlmenn frá 15 ára aldri. Þar á meðal voru 55 gyðingar og 50 fang- elsaðir glæpamenn auk óbreyttra borgara sem voru handteknir nærri tilræðisstaðnum deginum áður. Klukkan tvö næsta dag var byrjað að ferja fómarlömbin að Ardeatine- hellunum í nágrenni Rómar. Menn- imir vom leiddir inn í botn hell- anna, hver í fylgd SS-sveitarmanns. Þar vom þeir neyddir til að krjúpa og skotnir i hnakkann. Þannig gengu aftökurnar fyrir sig fram eft- ir degi og uröu síðustu fórnarlömb- in að skríða yfir líkin á leið til af- töku. Sá sem merkti við á nafnalistan- um og fylgdist með að allt gengi samkvæmt áætlun var Erich Priebke. Hann hefur viöurkennt að hafa sjálfur skotið tvo eða þrjá fanga. Áthygli vekur að fómarlömb- in voru 335 en ekki 330. Priebke, sjálfur bókhaldari fjöldamorðanna, segir reikningsskekkju hafa valdið fjölguninni en leitt er að því getum að Priebke hafi bætt við listann af illgimi einni saman. Erlent fréttaljós á laugardegi Eftir aftökurnar reyndu nasistar að sprengja hellana til að fela sönn- unargögnin en sú aðgerð tókst ekki sem skyldi. Flúði til Argentínu Priebke lenti í fangabúðum Breta í Rimini en slapp þaðan 1948 og hvarf. Allan tímann tókst honum að halda aðild sinni að morðunum leyndri. Priebke tókst að flýja frá Ítalíu og hélt til Bariloche í Andes- Qöllum í Argentínu. Þar rak hann hótel og kjörbúð sem sérhæfði sig í áleggi og var einn af homsteinum samfélags sem taldi ófáa Þjóðverja. Priebke var nánast gleymdur og grafinn en stofnun nasistaveiðarans Símonar Wiesenthals hafði upp á Priebke í Argentínu. Enda ekki erfitt verk þar sem hann notaði sitt rétta nafn og var skráður í síma- skrána. En nasistaveiðarar töluðu fyrir daufum eyrum þegar þeir reyndu að fá ítali til krefjast framsals Priebkes og að sækja hann til saka fyrir stríðsglæpi. Það var ekki fyrr en lið frá ABC- sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum bankaði upp á heima hjá Priebke fyrir tveimur ámm og sendi út við- tal með honum að hjólin tóku að snúast. I viðtalinu viðurkenndi Priebke að hafa átt aðild að fjöldamorðunum og hafa sjálfur myrt að minnsta kosti eitt fómar- lambanna. Fyrst í kjölfar viðtalsins kröfðust ítalir framsals Priebkes. Hann var síðar handtekinn og flutt- ur til Ítalíu í vor þar sem umtöluð réttarhöld hófust. Ekki neyddur til að hlýða sKÍpunum Priebke heldur því fram að hann hafi einungis verið að hlýða skipun- um, að öðrum kosti hefði hann sjálf- ur verið skotinn. En reglur þýska hersins á þessum tíma veittu her- mönnum tækifæri til að neita að taka fanga af lífi Öll framvinda máls Erichs Priebkes fyrir herdómstólnum hefur vaklö upp spurningar um hlutleysi dómarans. Haft var eftir dómaranum meöan á málaferlunum stóö aö hann áliti aö Priebke heföi aöeins veriö aö framfylgja skipun- um og aö láta ætti hann lausan. Símamyndir Reuter og var sá réttur oftar en ekki virtur af yfirmönnum. í máli Priebkes háttaði þannig til að hermenn her- deildarinnar, sem varð fyrir tilræði andófsmanna, neituðu að taka þátt í hefndarmorðunum og var þeim ekki refsað fyrir. Sú fullyrðing Priebkes að morðin hafi verið lögmæt hefnd- araðgerð en ekki glæpur þykir síð- an afhjúpa hann sem kaldirfjaðan og samviskulausan morðingja. Við bætist að Priebke var þekktur fyrir ákafa sinn í starfi fyrir SS-sveitim- ar og hjálpaði til við pyntingar í að- alstöðvum Gestapo í Róm. Þar beitti hann hnúajárnum á fanga og sagði að þeim væri best að tala. Þeir mundu deyja en gætu sparað sér miklar kvalir. En tveir af þremur dómurum her- dómstólsins ákváðu að líta til góðr- ar hegðunar Priebkes í Argentínu, „minni háttar“ þátttöku hans í fjöldamorðunum og loks aldurs í úr- skurði sínum um niðurfellingu málsins. Beittu þeir fymingará- kvæðum að auki. Röð mistaka í mála- rekstrinum Málaferlin þykja afar klúðursleg og lykta af samsæri. Fróðir menn segja að hjá þessum dómsfarsa hefði mátt komast. í fyrsta lagi hefði ekki átt að sækja Priebke til saka sem fyrrum hermann fyrir herrétti þar sem reglulega er fjallað um brot hermanna. í öðru lagi hefði ekki átt að ákæra hann fyrir fjöldamorð heldur glæpi gegn mannkyninu. Þá hefðu fyrningarákvæðin ekki gilt. Öll framvinda máls Erichs Prieb- kes fyrir herdómstólnum hefur vak- iö upp spumingar um hlutleysi dómarans. Haft var eftir dómaran- um meðan á málaferlunum stóð að hann áliti að Priebke hefði aðeins verið að framfylgja skipunum og að láta ætti hann lausan. Við bætist að dómarinn neitaði að hlusta á fram- burð mögulegra vitna. Eitt vitni, gamall nasisti sem allir héldu dauðan og grafinn, bauðst til að segja frá þátttöku Priebkes í morðunum en honum virðist hafa verið hótað. Reyndi hann að flýja frá hóteli sínu, klifraði út um glugga á annarri hæð en féll niður og mjaðmagrindarbrotnaði. Vitnaði hann í sjúkrahúsi en þá var fram- burður hans skyndilega í samræmi við málflutning verjendanna. Hitler skemmt Mál Priebkes þykir vekja fleiri spumingar en það svarar. Verði hann framseldur til Þýskalands munu vakna spumingar um hvem- ig fyrrum nasistum hefur tekist að lifa góðu lífi i Argentínu og víðar eftir stríðslok. Böndin berast þá að leyniþjónustum' ýmissa landa og þykir kaldhæðnislegt að Mossad í ísrael skuli vera þar á meðal. Priebke heldur því fram að vand- ræði hans nú séu samantekin ráð illgjarnra gyðinga en hann þykir þó hafa sloppið ve), Til merkis um það má geta forsíðu eins dagblaðs á ítal- íu sem birti mynd af hlæjandi Hitler í helvíti á forsíðunni og text- ann: „Ég ætti að láta taka mitt mál fyrir á Ítalíu“. Reuter, Observer, Independent, The Times o.fl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.