Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1996, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 1996
trimm
41
Einn á ferð á
ónýtum skóm
á ystu ströndu
- árleg heimsókn á Hornstrandir endurnýjar lífskraftinn
Hann sagðist heimsækja óbyggðir
íslands til að njóta náttúrunnar og
„endurhlaða orkustöðvar líkamans"
eftir pappírsstörfin í Brussel í Belg-
íu. Jos Rogiers heitir maðurinn og
hefur heimsótt landið ellefu sinnum
á siðustu fimmtán árum. Þar af hef-
ur hann fimm sinnum dvalist og
farið um Homstrandir. Þar rákumst
við á hann við eitt af skýlum Slysa-
vamafélags íslands fyrir nokkm.
Jos var þar einn á ferð og sá er
ferðamáti hans yfirleitt um óbyggð-
ir íslands. Þegar félagar í Trimm-
klúbbi Seltjarnarness ræddu við
hann kom í ljós að sólinn undan
öðrum skónum hafði gefið sig og
svo alvarlega að hann hafði í hyggju
að taka Fagranesið þegar það ætti
næst áætlun. Hann taldi sig raunar
hafa gert þær ráðstafanir að skipið
tæki hann þar sem hann beið. Eftir
að hafa rætt nokkuð við Belgíu-
manninn kvöddu ferðalangar af
Nesinu og héldu áfram. Þeir höfðu
orð á því sín á milli að ekki væri
búnaður hins erlenda manns rík-
mannlegur og ekki þótti neinum
skrítið að skómir gæfu sig enda
greinilega komnir til ára sinna og
vel nýttir.
Segir nú ekki frekar af Belgíu-
manninum Jos Rogiers fyrr en
áðurnefndur hópur var að ganga á
Tunguheiði morguninn eftir að við
hittum hann þar sem hann beið
komu Fagraness með annan göngu-
skóinn sólalausan í hendinni. Þegar
áð var efst á Tunguheiði, dáðst að
útsýninu og dokað við eftir hinum
síðustu í hópnum þá birtist sá belg-
iski og fór hratt yfir enda komiim í
báða skóna. Annar að vísu vafinn
plástri. í ljós kemur að hann hafði
farið á mis við Fagranesið og í kjöl-
far þess ákveðið að ganga yfir að
Þarna bendir Styrmir Geirs einn úr TKS-hópnum á samplástraðann skó Jos
Rogiess. DV-mynd ÓG.
Látrum við Aðalvík og ná í skips-
ferð þaðan. Jos taldi sér ekkert að
vanbúnaði, þáði þó nýjan plásturs-
svafning um bilaða skóinn og auk
þess aukaplástur.
Hann gekk síðan hratt á braut
enda telur þessi hægláti aðdáandi
íslenskra óbyggða ekki þörf á að
íþyngja sér með tjaldi eða viðamikl-
um búnaði. Vel mátti af baksvipn-
um ráða þar sem hann hvarf okkur
eftir heiðartroðningunum að
fimmta heimsóknin á Homstrandir
mundi duga honum vel á komandi
mánuðum við fréttamat og kynn-
ingarrannsóknir fyrir Evrópu-
bandalagið og stórfýrirtæki en við
það starfar Jos Rogiers í Brussel.
Afsláttarflug vegna Reykjavíkur maraþons:
Vaxandi þátttaka
af landsbyggðinni
„Það var einmitt kona að hringja í okkur
frá Kópaskeri og tilkynna þátttöku sína í
hálfu maraþoni," sagði Ágúst Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Reykjavíkur maraþons,
þegar við ræddum við hann fyrr í vikunni.
Þátttaka hlaupara og skokkara af lands-
byggðinni hefur að sögn hans stöðugt farið
vaxandi frá ári til árs og hefur það verið
eitt af því sem fest hefur Reykjavíkur mara-
þonið í sessi. Akumesingar, Akureyringar
og hlauparar af Suðumesjum hafa ávallt
verið fjölmennir og þátttaka ísfirðinga, Sel-
fyssinga, Homfirðinga og Mýrdælinga hef-
ur aukist.
Minni hefð hefur hins vegar skapast á
Austurlandi og víðar fyrir því að skokka
um götur höfuðborgarinnar einu sinni á
ári. Ágúst Þorsteinsson sagðist þó vita að
áhugi á hlaupum og annarri hreyfingu væri
ekki síðri fyrir austan en annars staðar á
landinu.
Samningar hafa tekist við Flugleiðir um
sérstök afsláttarfargjöld fyrir þátttakendur
í Reykjavíkur maraþoni. Gilda þau 16.-19.
ágúst nk. og fást með framvísun þátttökutil-
kynningar á afgreiðslu Flugleiða á Akur-
eyri, Egilsstöðum, Hornafirði, Húsavík,
Sauðárkróki, ísafirði, Patreksfirði, Þingeyri
og Vestmannaeyjum.
Krían er hugrakkur fugl og
lætur ekki hlut sinn fyrir nein-
um, eins og þeir vita sem of
nærri varpstöðum hennar hafa
komið. Þá er „of nærri“ sam-
kvæmt áliti kríunnar en ekki
viðkomandi gests á svæðinu.
En þessi fimi fugl er einnig
þekktur fyrir að vera góður
granni og þær munu vera ófáar
byggðir æðarfugls og annarra
andategunda sem hann ver af
er líka gáfuð og raunsæ. Sam-
vistir við golfara á Suðuraesi
og aðra þá sem þar stunda úti-
vist hefur kennt henni að nokk-
ur vörn er þar af mannfólkinu
og öryggi. Forustumenn Golf-
klúbbs Ness hafa alla tíð lagt
áherslu á friðsamlega sambúð
við kríuna. Enda beggja hagur
að valda sem minnstri röskun
á umhverfinu. Kríunni fer
fjölgandi á Suðurnesi, að sögn
kunnugra.
Eftir að
brautir vora
lagðar um-
hverfis eitt
mikilli elju
grimmd.
Mikið kríuvarp
er á Suðurnesi,
yst á Seltjarn-
amesinu, og
hefur verið
svo lengi
sem elstu
menn muna. Ein-
hverjir hafa borið
ugg í brjósti um að
umgengni félaga í Golfklúbbi
Ness, sem þama hafa aðstöðu,
mundi spilla fyrir fuglalífi á
svæðinu. Gildir það bæði um
kríuvarpið og þær endur sem
kosið hafa sér þar hreiðurstað í
skjóli hennar.
Reynslan hefur orðið, að
sögn staðkunnugra, að krían er
ekki aðeins hugrökk og ákveð-
in, þegar að henni er sótt. Hún
hennar
helsta
varpsvæði
hefur líf þar
aukist yfir varp-
tímann að sögn.
Menn hafa veitt því at-
hygli að krían er fljót að átta
sig þegar tilfærslur verða á
brautum sem leikið er á. Ekki
tekur heilu flokkana nema
skamma stund að færa sig um
set eftir því hvar golfaramir
fara um. Allt byggist þetta þó á
því að mannfólkið virði varp-
svæðin sjálf. Ef það er ekki gert
eirir krían engu og allur friður
fyrir bí.
Reykjavíkur maraþon 18. ágúst
Hvíld og kolvetnisríkur matur
Nú styttist óðum í Reykjavíkur
maraþon. Við skulum hvíla okkur vel
þessa vikuna og borða kolvetnisríkt
fæði. Menn skyldu forðast skyndibita-
mat og reyna að sofa minnst 8 klst á
sólarhring, sérstaklega þeir sem ætla
í lengri vegalengdimar. Þetta gerum
við Eillt til þess að vera vel undirbúin
og endumærð fyrir átökin 18. ágúst.
Svefninn aðfaranótt laugardags er
mikilvægastur og menn skyldu ekki
verða stressaðir þótt þeim kynni að
verða svefnvant nóttina fyrir mara-
þonið. Það er mjög algengt og skiptir
í sjálfu sér ekki máli fólk hefur náð að
hvíla sig vel að öðru leyti í vikunni.
Jakob Bragi Hannesson.
9. vika. 11/8-17/8
10 km 21 km 42 km
Sunnudagur 5 km ról. 8 km ról. 12 km ról.
Mónudogur Hvíld Hvild Hvild
Þriðjudagur 3-5 km (frísklega) 12 km (frisklega) 12 km (frísklega)
Miðvikudagur Hvíld Hvild Hvild
Fimmtudogur 3 km ról. 4 km ról. 4 km ról.
Föstudagur Hvíld Hvíld Hvild
Laugardagur 2-4 km ról. 2-4 km ról. 2-4 km ról.
Sam!.: 13-17 km ■ 17-21 km 21-25 km jbh
Sunnudagur:
Fjallahjólreiðar
í Öskjuhlíð
íslandsmeistarakeppni í fjalla-
hjólreiðum fer fram á morgun,
sunnudag, i Öskjuhlíðinni. Segja
má að fjallahjólreiðar (e. Cross
Country) séu samsvarandi við
víðavangshlaup hlaupara. Um
Öskjuhlíðina verður farið eftir
ómalbikuðum troðningum og
sannast sagna ekki öllum greið-
færum fyrir hjólreiðar.
Keppnin á sunnudag hefst
klukkan 14.00 og verður ræst við
hlíðarrætur upp af Hótel Loftleið-
um og farinn tæplega 3 km hring-
ur um svæðið. Fjórir aldursflokk-
ar verða: 9 til 12 ára, 13-15 ára,
16-18 ára og 19 ára og eldri. Hinir
síðastnefndu skiptast í B-flokk og
meistaraflokk. Yngsti flokkurinn
hjólar einn hring, hinir fleiri og
þeir elstu eina 30 hringi.
Hjólreiðar eru vaxandi íþrótta-
grein bæði meðal keppnisfólks og
almennings. íslandsmeistara-
keppnin í Öskjuhlíð verður vafa-
laust skemmtileg á að horfa eins
og raun varð á í fyrra þegar hún
var við Rauðavatn fyrir ofan
Reykjavík. Keppnin á morgun er
á vegum Hjólreiðafélags Reykja-
víkur og að sögn Steingríms
Ólafssonar, stjómarmanns þar, er
hún haldin í nánu samstarfi við
lögreglu og borgaryfirvöld.
Umsjón
Ólafur Geirsson
Lagaskylda að
hafa bjöllu á
reiðhjólum
- og einnig að nota hana
Skokkari hafði aftur sam-
band vegna bréfs sem hann
kom á framfæri um nauðsyn
þess að hjólreiðamenn notuðu
bjöllur til að gera vart við sig
þegar þeir færu fram úr gang-
andi og hlaupandi vegfarend-
um. Á síðustu Trimmsíðu kom
fram sú skoðun Geirs hjólreiða-
manns að bjöllur gerðu ekkert
gagn og best væri að skjótast
liðlega fram hjá göngufólki á
sem hljóðlegastan hátt.
Skokkari fullyrti að sam-
kvæmt umferðalögum væri
skylt að hafa bjöllur á reiðhjól-
um og að nota þær til að vekja
athygli á ferðum sínum.
Við snerum okkur til Um-
ferðarráös og mikið rétt, bjall-
an er lagaskylda. í bæklingi fyr-
ir hjólreiðamenn, sem Umferð-
arráð hefur nýverið gefið út,
segir meðal
annars:
Þegar
hjólað
er eftir
gangstígum og stígum verður
að sýna tillitssemi, víkja fyrir
gangandi vegfarendum og gefa
merki meö bjöllu í tæka tíð.
Eiirnig segir í bæklingnum:
Hjólreiðamenn skulu hjóla í
einfaldri röð. Þar sem nægilegt
rými er mega þó tveir hjóla
samhliða ef það er unnt án
hættu eða óþæginda fyrir aðra
umferð.
Auk þess er sagt:
Ætið skal fara eftir reglum
og umferðarmerkjum. Reiðhjól,
sem notuð eru í umferð, verða
að vera með löglegan búnað.
Reykjavíkur maraþon:
Enn vantar
sjálfboðaliða
Miklir íþróttaviðburðir fara
hvergi fram og geta ekki orðið
nema með þátttöku og aðstoð
áhugasamra og fómfúsra sjálf-
boðaliða. Gildir þá einu hvort
um er að ræða Ólympíuleika í
Atlanta í Georgíu eða Reykja-
víkur marþon. Hornsteinninn
er ávallt vinna sjálfboðaliða.
Enn vantar nokkuð á að næg-
ur fjöldi hafi haft samband við
skrifstofú Reykjavíkur mara-
þons. Þeir sem leggja hönd á
plóginn fá til minningar sér-
merktan æfmgabol og auk þess
boð í pastaveisluna daginn fyr-
ir hlaupið. Sími skrifstofúnnar
er 588 3399 og hún er í Laugar-
dal.
er styrktaraðili
Reykjavíkurmaraþonsins /xnwa
^Skandia jjjjj
EIMSKIP VOLVO 6(j(