Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1996, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1996, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1996 Fréttir Átökin innan meirihluta bæjarstjórnar Húsavíkur: Tel ekki ad málið muni „sprengja" meirihlutann - segir Sigurjón Benediktsson, oddviti sjálfstæöismanna DV, Akureyri: Sigurjón Benediktsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins I bæjarstjórn Húsavíkur, segist ekki sjá fyrir sér að meirihluti framsóknar- og al- þýðubandalagsmanna í bæjarstjórn falli vegna fyrirhugaðrar sölu á hluta af eignarhluta bæjarsins í sameinuðu fyrirtæki Fiskiðjusam- lags Húsavíkur og útgerðarfyrir- tækisins Höfða. Eins og fram kom í DV sl. laugar- dag er fyrirhugað að selja 13% af eignarhluta bæjarins eftir samein- inguna þannig að bærinn verði ekki meirihlutaeigandi í fyrirtækinu. Stjórn Fiskiðjusamlagsins vill kaupa hlutabréf af bænum á geng- inu 1,71 sem þýðir söluverð á bilinu 115-120 milljónir króna. Framsókn- armenn munu tilbúnir að taka þessu tilboði en Kristján Ásgeirsson, odd- viti Alþýðubandalagsins, segir slíkt ekki koma til greina, miklu nær væri að selja bréfin á genginu 3,0 og söluverðmætið yrði þá um 200 millj- ónir króna. Einar Njálsson bæjar- stjóri sagði við DV að þetta mál gæti orðið banabiti meirihlutans og Kristján Ásgeirsson sagði að þá yrði bara svo að fara. „Það vekur auðvitað mikla undr- un og furðu að oddviti annars meirihlutaflokksins, fyrrverandi framkvæmdastjóri Höfða, sem hefur verið á móti sameiningu Höfða og Fiskiðjusamlagsins alla tíð, skuli vera að hafa miklar áhyggjur af því Hafin er jarövinna viö byggingu safnaðarheimilis í Keflavík. DV-mynd ÆMK Keflavík: Bygging safnaðarheim- ilis við kirkjuna hafin DV, Suðurnesjum: „Það er mikil þörf fyrir safnaðar- heimilið og við erum mjög ánægðir með að málið skuli vera komið í höfn, allir sáttir við þessa fram- kvæmd,“ sagði Birgir Guðnason, formaður byggingarnefndar, en fyrsta skóflustungan að hinu nýja safnaðarheimili var tekin í síðustu viku. Framkvæmdir eru hafnar og á að vera lokið innnan tveggja ára. Margbúið er að breyta teikningum að heimilinu en sem kunnugt er mótmæltu íbúar i nágrenni kirkj- unnar og fleiri íbúar í Keflavík stað- setningu byggingarinnar sem verð- ur á kirkjulóðinni. Endanleg niðurstaða er að bygg- ingin verður eitt þúsund fermetrar að stærð. Alls bárust sjö tilboð í jarðvinnslu og undirstöður og voru þau öll undir kostnaðaráætlun. Hún var tæpar 22,5 milljónir króna. Húsanes í Keflavík, sem var með lægsta tilboðið, 17,9 milljónir, fékk verkið og á að skila því í febrúar næstkomandi. -ÆMK Akureyringar meganú kaupa hlutabréf í ÚA DV, Akureyri: Öllum íbúum á Akureyri, svo og öllum starfsmönnum Útgerðarfélags Akureyringa, var í gær sent form- legt tilboð um kaup á hlutabréfum í Útgerðarfélagi Akureyringa hf. Hverjum einstökum aðila stendur til boða að kaupa hlutabréf fyrir 131 þúsund krónur á genginu 4,98 og þeir sem nýta rétt sinn að fullu greiða því rúmlega 625 þúsund krónur fyrir bréfin. Bæjarstjórn Akureyrar ákvað í haust að selja hlutabréf í ÚA sem eru í eigu bæjarins, að nafnverði 131,2 milljónir króna. Um leið var ákveðið að bæjarbúar hefðu for- kaupsrétt að þessum hlut og Kaup- þingi Norðurlands var falið að ann- ast söluna. í bréfi Kaupþings til bæjarbúa býðst Kaupþing Norðurlands til að lána 70% af kaupverði hlutabréf- anna til allt að þriggja ára með EURO-raðgreiðslusamningi eða skuldabréfi og til allt að tveggja ára ef greitt er með VISA-raðgreiðslu- samningi. Þá er í bréfinu einnig vakin at- hygli á að kaup á hlutabréfunum veita skattaafslátt. Einstaklingur sem kaupir fyrir 130 þúsund krónur getur lækkað skatta sína um allt að 44 þúsund krónur og sú upphæð er tvöföld fyr- ir hjón eða sambýlisfólk. í bréfinu kemur einnig fram að þeir sem hafa áhuga á að taka þessu tilboði Akureyrarbæjar og Kaup- þings Norðurlands, þurfa að fyfla út eyðublað þar að lútandi og koma því til Kaupþings Norðurlands eigi síðar en föstudaginn 1. nóvember. -gk hvað þetta geri gott fyrir fyrirtæk- ið,“ segir Sigurjón Benediktsson. En telur hann að þetta mál muni „sprengja" meirihlutann? „Nei, nei, það held ég ekki. Völd- in eru sæt en sætindi eru óholl. Það sem ég held að muni gerast er að meirihluti bæjarstjómarinnar setj- ist niður og búi til eitthvert tilboð sem verði sent stjórn nýja fyrirtæk- isins, það kæmi mér ekki á óvart. Ef eitthvað væri að marka tal manna um að láta brjóta á málum í þessum meirihluta þá væri kominn nýr meirihluti í bæjarstjóm Húsavík- ur,“ segir Sigurjón. Hann segir að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins muni styðja það að hlutabréf í eigu Húsavíkur- bæjar verði seld og fyrirtækið verði ekki meirihlutaeigandi áfram. „Hvaða gengi selt verður á er svo framkvæmdaatriði," segir Sigurjón. -gk Sigurjón Benediktsson, oddviti Sjálfstæöisflokksins í bæjarstjórn Húsavíkur MTV evrópsku tónlistarverölaunin: Björk tilnefnd sem ein af fimm bestu söngkonunum DV, Akranesi: Þann 14. nóvember næstkomandi verður tilkynnt í London hverjir hafa hlotið MTV evrópsku tónlistar- verðlaunin í hinum ýmsu flokkum, svo sem besta hljómsveitin, besta lagið, besta dansatriðið, besti nýlið- inn, besti söngvarinn og besta söng- konan. í hverjum flokkanna em fimm tilnefningar og sem besta söngkonan er Björk Guðmundsdótt- ir ein af þeim sem tilnefndar em, aðrar sem keppa við Björk em Joan Osborne, Neneh Chery, Tori Braxton og Alanis Morissette. Reiknað er með því að 123 mifljónir áhorfenda víðs vegar um heim muni sjá afhendingu verðlaunana í beinni útsendingu og ættu sigurlík- ur Bjarkar að vera nokkrar. -DVÓ Strand fyrir aðstoð hafnsögubátrsins, en togarinn losnaöi af strandstaö skömmu fyrir kl. 17 þegar byrjaö var aö falla aö. Ekki er vitað um skemmdir á skipinu, en nokkuö algengt er aö skip taki niöri viö innsiglingarrennuna sem er mjög þföng. Ljósmynd: Höröur Tölvubúnaði stolið ú bíl Brotist var inn í bíl frá fyrir- tækinu Nýherja á sunnudags- morgun og stolið þaðan ýmsum tölvubúnaði. Hluti þýfisins fannst síðan í gróðri við hliðina á Hlíðarbakarí í gærdag. Málið er í rannsókn hjá lögreglu. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.