Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1996, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1996
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Barnaníöingsmáliö í Belgíu:
Brottvikning domara
vekur reiði almennings
Mikil reiði hefur gripið um sig í
Belgíu í kjölfar þeirrar ákvörðunar
hæstaréttar í gær að rannsókn-
ardómarinn Jean-Marc Connerotte
léti af störfum við rannsókn á máli
barnaníðingsins Marcs Dutroux.
Ástæðan fyrir ákvörðun hæstarétt-
ar er sú að Connerotte mætti í
pastaveislu sem haldin var til að
fagna frelsi tveggja stúlkna sem
bjargað var úr klóm Dutroux. Sagði
í úrskurði hæstaréttar að hægt væri
að efast um óhlutdrægni Conneretti
og því skyldi hann hætta við rann-
sókn málsins.
Sjö hundruð manns mótmæltu
fyrir utan dómhúsiö í Brussel í gær.
„Mér falla tár af hvörmum og ég
skammast mín fyrir að vera Belgíu-
maður,“ sagði einn mótmælend-
anna. í Antwerpen mótmæltu um
þrjú hundruð manns.
Dómsmálaráðherra Belgíu, Stefa-
an De Clerck, sagði í sjónvarpsvið-
tali í gærkvöldi að úrskurður
hæstaréttar myndi engu hreyta um
tilraunir til að leysa þetta hræðilega
mál. Hann sagði að rannsókn yrði
haldið áfram af fullum krafti og
bætti því við að möguleiki væri á að
bæta við rannsóknardómara til að
efla liðiö.
Forsætisráðherrann, Jean-Luc
Dehaene, bað landsmenn í útvarpsá-
varpi í gær að virða ákvörðun
hæstaréttar því hún væri tekin á
grundvelli laga og aðskilnaðar
dóms- og löggjafarvalds.
Faðir eins fórnarlambsins sem
fannst látið í garði Dutroux sagði í
kjölfar ákvörðunarinnar að þetta
væri upphafið á endalokunum, rétt-
lætið hefði lotið í lægra haldi.
Reuter.
Múslímskar konur frá þorpinu Tihovici skammt norður af Sarajevo fylgjast með er Bosníumenn opna fjöldagröf með jarðneskum leifum tólf þorpsbúa. Talið
er aö Bosníu-Serbar hafi myrt þorpsbúana við upphaf stríðsins 1992. Tihovici var undir yfirráöum Serba þar til í mars á þessu ári. Símamynd Reuter
Segir ferð for-
setans vera
áróðursbragð
Andófsmaðurinn Jose Ramos-
Horta, sem hlýtiu- friðarverð-
laun Nóbels í ár, sagði ferð
Suharto Indónesíuforseta til
Austur-Tímor farna i áróðurs-
skyni. Suharto hélt í morgun til
Austur-Tímor þar sem hann
mun skoða
27 metra háa
styttu af Jesú
Kristi sem
reist var rétt
utan við höf-
uðborgina
Dili. Ramos-
Horta sagði
landa sína
hafa verið
kaþólikka í aldaraðir og ekki
þurfa 27 metra háa styttu með 27
þrepum upp að til aö sýna að
þeir væru góðir kaþólikkar.
Indónesar réðust inn í Austur-
Tímor i desember 1975 eftir að
nýlenduherrarnir Portúgalar
höfðu yfirgefið eyjuna.
Horta, sem deilir friðarverö-
laununum meö Carlos Belo bisk-
upi, flúði frá Austur-Tímor
þremur dögum fyrir innrásina.
Hann er nú kennari viö háskól-
ann í Sydney í Ástralíu. Reuter
Hart deilt um
tillögur
Sjávarútvegsráðherrar Evrópu-
sambandsins, ESB, deildu hart á
fundi í Lúxemburg í gær um tillög-
ur Emmu Bonino, sjávarútvegs-
stjóra ESB, þess efnis að sókn í
nytjafiskstofnana yrði minnkuð um
40% á næstu sex árum. Gagnrýndu
sjávarútvegsráðherrarnir tillögurn-
ar harðlega á fundinum og sögðu
nauðsynlegt að finna aðrar leiðir til
að vernda fiskstofnana og tryggja
þar með framtíð fiskiðnaðarins í
Evrópu. Líklegt þykir að fallist
verði á málamiðlun og samþykkt að
skera niður um 15% á næstu sex
árum, eöa um 2-3% á ári.
Ráðherramir drógu margir í efa
þá vísindalegu útreikninga sem
lagðir voru fram þess efnis að marg-
ir fiskstofnar væru í hættu, þ. á m.
ýsa og þorskur.
Þeir Loyola de Palacio, sjávarút-
vegsráðherra Spánar, og Tony
Baldry, sjávarútvegsráðherra Breta,
deildu hart á fundinum í gær.
Baldry gerði harða atlögu að kvóta-
hoppi Spánverja. Spænski ráðherr-
ann hélt uppi vörnum og minnti á
að Spánverjar hefðu minnkað flota
Bonino
Emma Bonino, sjávarútvegsstjóra
ESB.
sinn, þann stærsta í ESB, um 200
tonn á tiu árum. Það ætti að hafa í
huga þegar ákvörðun yrði tekin um
væntanlegan niðurskurð. Hann
sagði að helsta vandamálið væri of
mikil sókn í ákveðnar fisktegundir.
Jórdaníukon-
ungur til Vest-
urbakkans
Hussein Jórdaníukonungur
heldur til Vesturbakkans í dag
til viðræðna við Yasser Arafat,
forseta Palestínu. Er það fyrsta
heimsókn Jórdaniukonungs til
svæðisins í 29 ár. Hann hefur
ekki heimsótt Vesturbakkann
síðan ísrael-
ar tóku svæð-
ið af Jórdön-
um í stríðinu
1967. Arafat
hitti Hussein
í Jórdaníu í
gær til að
greina hon-
um frá gangi
viðræðna
ísraela og Palestínumanna um
brottflutning ísraelskra her-
manna frá Hebron. Viðræðum-
ar áttu að hefjast að nýju í Eg-
yptalandi í gær eftir nokkurra
daga hlé en var frestað til að
hægt yrði að ræða málin betur
óformlega. Aðstoðarmaður
Arafats sagði hann hafa sagt
sínum mönnum að halda til
fundarstaðarins en óljóst var í
morgun hvort ísraelsku samn-
ingamennirnir kæmu einnig
strax. Reuter
Öflugur jarðskjálfti
Öflugur jarðskjálfti, allt að 7 á
Richter, reið yfir Salomonseyjar
í Kyrrahafi í morgun. -
Stjórnarflokkur leiðir
Frjálslyndi lýðræðisflokkur-
inn, flokkur Hashimotos, for-
sætisráðherra Japans, gæti hlot-
ið meirihluta i kosningunum á
sunnudag, að því er nýjustu
skoðanakannanir sýna.
Rússland skipstjóralaust
Leiðtogi
kommúnista,
Gennady
Zjúganov,
lýsti í gær
Rússlandi
sem skip-
stjóralausu
skipi. Sagði
hann Boris
Jeltsín forseta ekki lengur fær-
an um að gegna skyldum sín-
um sem ríkisleiðtogi. Zjúganov
hefur lengi farið fram á að hlut-
laus nefhd meti heilsu forset-
ans.
Viðurkenna hryðjuverk
Serbneskir fjölmiðlar, sem
eru í nánum tengslum við
stjómina í Belgrad, viður-
kenndu í fyrsta sinn í gær að
serbneskir hermenn hefðu
framið ódæðisverk eftir fall
Vukovars í Króatíu 1991.
Mótmæla morði á Kýpur
Friðargæsluliðar Sameinuðu
þjóðanna, SÞ, mótmæltu í gær
við tyrkneska hermenn morð-
inu á óbreyttum grískum borg-
ara sem hafði farið yfir til tyrk-
neska hluta Kýpur.
Svíar neikvæðastir
Svíar era neikvæðastir Evr-
ópusambandsþjóða í garð aðild-
ar að sambandinu, samkvæmt
niðurstöðum nýrrar skoðana-
könnunar.
124 undirrita
Alls hafa 124 ríki undirritað
bann við tilraunum með kjam-
orkuvopn undanfamar þrjár
vikur.
Aðalsamningamaöur
Borís
Jeltsín Rúss-
landsforseti
útnefndi Al-
exander
Lebed örygg-
ismálastjóra
sem yfirmann
rússnesku
nefndarinnar
sem stendur fyrir samningavið-
ræðum við aðskilnaöarsinna
Tsjetsjena.
Dirk Bogarde fékk slag
Dirk Bogarde, einn af fremstu
kvikmyndaleikumm Breta, hef-
ur fengið slag, að því er frændi
hans greindi frá í gær en lækn-
ar telja hann ná sér að fullu.
Blaðamenn í verkfall
Franskir blaðamenn hófu í
morgun sólarhringsverkfall tfl
að mótmæla skertum skattfríð-
indum.
Heilsan góð
Bill Clinton
Bandaríkja-
forseti sagði í
fyrsta viðtali
sínu um
heilsufar sitt
að hann væri
i góðu formi
og hefði
aldrei tekið
inn gleöipillu
né leitað tfl sálfræðings. Forset-
inn sagði að það sem helst am-
aði að væri hæsi, ofhæmi og yf-
irvigt en það færi ekki úr
böndunum.
Herðir landamæraeftirlit
Danska lögreglan herðir
landamæraeftirlit tO að koma í
veg fyrir að vélhjólagengi fái
liðsafla erlendis frá.
Reuter