Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1996, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1996
9
I>v Útlönd
Madonna sem er oröin 38 ára, eignaöist sitt fyrsta barn í gærkvöid. Móður
og barni heilsast vel en blaöafulltrúi söngkonunnar vildi ekki láta uppi hvort
barniö heföi veriö tekiö með keisaraskuröi eöa fætt á eðlilegan máta.
Símamynd Reuter
Madonna orðin mamma:
Eignaðist
stúlkuna Mariu
í gærkvöld
Talebanar
játa ósigur og
efla varnir
Taleban-skæruliðar efldu
vamir í kringum Kabúl, höfúð-
borg Afganistans, í gær. And-
stæðingar Talebana hafa hafið
pólitískt samstarf við stríðsherr-
ann Abdul Rashid Dostum sem
er leiðtogi í norðurhluta lands-
ins. Dostum viðurkenndi í gær
stjóm Rabbanis forsætisráð-
herra og lýsti sig reiðubúinn til
hernaðarsamstarfs.
Talebanar viðurkenndu í gær
að hafa misst bæi á þjóðvegin-
um norður af Kabúl en þeir hétu
því að brjóta á bak aftur sókn
herliðs Masoods, yfirmanns
fyrrum stjómarhersins.
Játar að hafa
búið til hler-
unarbúnaðinn
ítalska lögreglan tók í gær i
sína vörslu tölvudiskling sem
ónafngreindur aðili hafði sent
fréttastofu í
Róm. Á disk-
lingnum við-
urkennir
ónafngreindur
aðili að hafa
búið til hler-
unarbúnaðinn
sem komið
var fyrir á
skrifstofu Silvios Berlusconis,
fyrrum forsætisráðherra Ítalíu.
Sendandinn kveðst hafa séð
Berlusconi sýna hlerunarbúnað-
inn í sjónvarpi og hafa þekkt
handverk sitt. Fundur hlenmar-
búnaðarins hefur valdið mikifli
ólgu í itölskum stjómmálum og
velta menn þvi ákaft fyrir sér
hver hafi hlerað Berlusconi.
Börn skilin
eftir hjá lát-
inni móður
Lögreglan í Sacramento í
Kalifomiu leitar nú að manni
sem talið er að hafi myrt eigin-
konu sina og skilið tvö böm sín,
8 og 14 ára, eftir hjá líkinu í 10
daga. Harmsagan uppgötvaðist á
sunnudag er 8 ára bamið var
staðið að því að stela mat í stór-
markaði. Lögregla fann lík móð-
urinnar í svefnherbergi. Hafði
hún verið stungin í brjóstið og
lá hnífur við hlið hennar. Að
sögn lögreglu hafði faðirinn
bannað bömunum að fara inn í
svefnherbergið og ógnað þeim
með hnífi áður en hann hélt að
heiman. Bömin óttuðust að
hann kæmi heim á hverri
stundu. Reuter
Söngkonan Madonna eignaðist i
gær stúlkubarn á sjúkrahúsi í Los
Angeles. Stúlkan fæddist klukkan
11 í gærkvöld og gekk fæðingin, að
sögn blaðafulltrúa hennar, Liz Ros-
enberg, vel. Hún sagði að ekki yrði
látið uppi hvort Madonna hefði fætt
bamið sjálf eða hvort það hefði ver-
ið tekið með keisaraskurði.
Stúlkan, sem þegar hefur fengið
nafti, heitir Lourdes Maria Ciccona
Leon.
Faðirinn, hinn 30 ára Carlos
Leon, sem var einkaþjálfari
Madonnu, var viðstaddur fæðing-
una en sögusagnir hafa verið uppi
um að samband þeirra sé á enda.
Madonna sagði í viðtali við tímarit-
ið Vanity Fair á dögunum að hún
væri ekki búin að taka ákvörðun
um hvort hún ætlaði að giftast
bamsfoður sínum. „Ég elska Juan
Carlos en það er ekki þar með sagt
að ég ætli að giftast honum.“
„Ég notaði Carlos ekki til undan-
eldis og ég varð ekki ófrísk í þeim
tilgangi að hneyksla heiminn,"
sagði Madonna og bætti því við að
þetta væri komið frá fólki sem þyldi
ekki þá tilhugsun að hún væri ham-
ingjusöm. Reyndar sagði hún í við-
tali fyrir nokkrum árum að hún ætl-
aði að auglýsa eftir foður að barni
sínu, en hún hefur í gegnum árin
notið þess að hneyksla heiminn með
yfirlýsingum sínum.
Söngkonan sagði i viðtali fyrir
nokkru að hún ætlaði að ala barn
sitt upp sem góöan kaþólikka, rétt
eins og hún hefði verið alin upp.
Hún sagðist hafa eignast bamið
vegna þess að hún vildi eiga eitt-
hvað sem væri hennar og hún gæti
verið stolt af.
Madonna hefur átt í nokkrum ást-
arsamböndum við fræga menn und-
anfarin ár. Hjónaband hennar og
leikarans Sean Penn var storma-
samt og endaði með ósköpum en
fyrir nokkrum árum átti hún í ást-
arsambandi við leikarann Warren
Beatty. Dennis Rodman og
Madonna áttu einnig í ástarsam-
bandi um tíma og gerði Rodman
grín að því í sjónvarpsþætti síðar
hve veik söngkonan væri fyrir
íþróttamönnum.
Reuter
HAPPDRÆTTIHJARTAVERNDAR 1996
VINNINGASKRÁ:
1. Toyota Land Cruiser, 3,0 L, dísil
kr. 3.775.000 Nr. 83804
2. Toyota Carina E
kr. 1.590.000 Nr. 75022
3. - 5. Ævintýraferð með Úrval/Útsýn
kr. 500.000 Nr. 14885, 57519,
103234
6.-25. Ferðavinningur eða tölvupakki
kr. 300.000 Nr. 1868, 6418,
11604, 12973, 17962, 25010, 30408, 39977,
42866, 43696, 47561, 48979, 63381, 72326,
78147, 86665, 93385, 95586,102898,103151
Vinninga má vitja á skrifstofu
Hjartaverndár, Lágmula 9, 3.h., Reykjavík.
Hlustaðu á Rósu Ingólfs
í síma 905-2525
Rósa Ingólfsdóttir ræöir af hispursleysi
um hjónabandiö, ástina og kynlífiö.
Gagnleg og kitlandi skemmtun fyrir
fullorðið fólk.
66,50 mínútan
Hvar færð þú betra verð
eða meiri gæði?
Þú kemur og sækir
Úrvals pitsur
Opið 16.00 - 23.30
12“ m. 2 áleggjum 9 a 690 kr.
16“ m. 2 áleggjum 9 a 790 kr.
18“ m. 2 áleggjum 9 a 890 kr.
alla daga
Tilboð á heimsendu
T.d. 16“ m/3
áleggstegundum
á kr. 1.190.
Pizzahöllin Dalbraut l RVK C v. u-beygjuna hjá Laugarásbíói)
Ath. einnig góð tilboð í heimsendingum. S. $68 4848