Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1996, Síða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1996
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1996
íþróttir
Keila:
Gunnar og
Annel best
Gunnar Annelsson og Annel
Þorsteinsson sigruðu í tvíkeilu á
móti sem Keilufélag Suðumesja
hélt um helgina.
Þeir fengu 1141 stig. í öðru
sæti urðu Ingiber Óskarsson og
Steinþór Jóhannsson með 1128
stig og í þriðja sæti urðu Sigur-
vin Ægir Sigurvinsson og Ævar
Olsen með 1070 stig.
Danmörk:
Öll efstu
liðin töpuðu
Öll efstu liðin töpuðu leikjum
sínum í dönsku úrvalsdeildinni í
knattspymu um helgina. Brönd-
by tapaði fyrir Odense, 1-2.
Álaborg beið lægri hlut fyrir
Herfölge, 4-2 og AGF tapaði fyr-
ir Lyngby, 3-1. Önnur úrslit
urðu þau aö Silkeborg og AB
gerðu 3-3 jafntefli, Velje lagði
Kaupmannahöfn, 3-0, og Viborg
og Hvidovre gerðu jafntefli, 1-1.
Bröndby er efst eftir 12 umferðir
með 26 stig, Álaborg 25, AGF 19
og Herfölge 19.
Enski boltinn:
Bosnich
ákærður?
Svo getur farið að Mark Bosn-
ich, Ástralíumaðurinn sem leik-
ur í marki Aston Villa, verði
kærður fyrir ósæmilega hegðun
á leikvelli.
Bosnich var yfirheyrður af
lögregluyfirvöldum á laugardag
en honum er gefið að sök að hafa
heilsað stuðningsmönnum
Tottenham með nasistakveðju.
Þetta mál er litið alvarlegum
augum bæði af enska knatt-
spyrnusambandinu og lögreglu-
yfírvöidum.
Carbone til
Wednesday
Sheffield Wednesday gekk í
gær frá kaupum á ítalanum
Benito Carbone frá Inter Milan
fyrir 300 milljónir króna. Carbo-
ne er fjórði italski knattspyrnu-
maðurinn sem gengur til liðs við
ensk félagslið á þessu keppnis-
tímabili en hinir era Gianluca
Vialli og Roberto Di Matteo hjá
Chelsea og Fabrizio Ravanelli
hjá Middlesbrough.
Umdeildur
dómari
Enska knattspyrnusambandið
hefur tekið þá ákvörðun að sekta
Bryan Robson, framkvæmda-
stjóra Middlesboro, um upphæð
sem nemur 150 þúsundum króna
vegna ummæla sem hann við-
hafði í návist dómara eftir leik
Boro og Nottingham Forest á
dögunum.
Dómarinn, sem heitir Michael
Railey, hefur verið umdeildur.
Graham Souness, framkvæmda-
stjóri Southampton, lenti einnig
í nefndum Railey og var sektað-
ur um 70 þúsund krónur eftir
orðaskak í gær af enska knatt-
spyrnusambandinu. -SK
lan Wright
fyrir rétt
Ian Wright, Arsenal, hefur
verið kærður af enska knatt-
spymusambandinu vegna þess
að hann kallaði David Pleat,
stjóra Sheff Wed, öfugugga á dög-
unum. -SK
Cardaklija í mark
Leiftursmanna?
Miklar líkur eru á að Hajrudin
Cardaklija standi I marki Leifturs
í 1. deildinni í knattspyrnu á
næstu leiktíð.
Cardaklija myndi þá leysa Þor-
vald Jónsson af hólmi en hann
ákvað að leggja hanskana á hill-
una eftir íslandsmótið í haust.
Cardaklija hefur undanfarin ár
leikið með Breiðabliki úr Kópa-
vogi en eftir að félagið féll í 2.
deild vildi hann komast burt frá
félaginu.
Hann yrði Leiftursmönnum
mikill liðsstyrkur enda er þarna
snjall markvörður á ferð sem fræg-
ur er fyrir að verja vítaspymur.
Þorsteinn Þorvaldsson, formað-
ur knattspymudeildar Leifturs,
staðfesti í samtali við DV í gær að
Cardaklija væri inni í myndinni
og það væri ekki síst fyrir vilja
hans sjálfs en hann vill koma til
Leifturs.
Þá hefur Hörður Már Magnús-
son verið orðaður við Leiftur en
hann hefur undanfarin ár leikiö
með Val.
Ólafsfirðingar hafa ekki form-
lega gengið frá ráðningu á þjálfara
í stað Óskars Ingimundarsonar en
öraggt er að Kristinn Björnsson
tekur við liðinu.
Kristinn hætti á dögunum sem
þjálfari kvennalandsliðsins en
hann hefúr á þjálfaraferli sínum
þjálfað meðal annars lið Stjöm-
unnar, Vals og Dalvíkur og þá var
hann eitt tímabil við stjórnvölinn
hjá Leiftri.
-GH
Helgi og félagar
að missa flugið
Austurríska liðið Lustenau,
sem Helgi Kolviðarson leikur
með, virðist vera að missa flugið
eftir að hafa verið lengstum í
efsta sæti deildarinnar. Um
miðja síðustu viku gerði liðið
jafntefli við Mölding, 0-0, og um
helgina beið liðið ósigur fyrir
Gerarsdorf, 2-1.
Helgi hefur fengið góða dóma
fyrir frammistöðu sína fram að
þessu, en veiktist og var tæpur
fyrir leikinn um helgina.
Lustenau er nú komið niður í
þriðja sætið í 2. deild
-JKS
Greg Norman
enn á toppnum
Ástralski kylfingurinn Greg
Norman gefur ekki toppsætið á
styrkleikalistanum svo auðveld-
lega eftir. Hann situr á toppnum
sem fyrr og sjá menn fyrir sér að
hann verði það út þetta árið úr
þessu. Nýr listi var gefinn út í
gær og kemur þar fram að Skot-
inn Colin Montgomerie er í öðru
sæti og Nick Faldo er í þriðja
sæti en hann hefur ekki leikið
vel að undanfömu. Els frá S-Afr-
íku og Couples og Lehman, báð-
ir frá Bandaríkjunum, koma í
næstu sætum.
-JKS
Annar Portúgali í
raðir West Ham
Enska úrvalsdeildarliðið West
Ham gerir það ekki endasleppt þeg-
ar um er að ræða kaup á nýjum
leikmönnum. Um helgina gekk liðið
frá kaupum á portúgalska landsliðs-
manninum Hugo Porfirio frá Sport-
ing i Lissabon.
Það var fyrst ætlun félagsins að
leigja umræddan leikmenn i tvo
mánuði en frammistaða hans með
West Ham á laugardaginn var gegn
Everton gerði gæfumuninn.
Harry Redknapp, framkvæmda-
stjóri liðsins, lagði það til eftir leik-
inn við stjómina að kaupa leik-
manninn þegar í stað.
Redknapp fékk ósk sína uppfyllta
og var gengið frá kaupunum á
sunndeginum og greiddi West Ham
um 220 milljónir fyrir Porfirio sem
þykir með efnilegustu leikmönnum
sem fram hafa komið í Portúgal.
Upphaflega kom Porfirio til West
Ham fyrir tilstilli Portúgalans Paulo
Futre sem gaf unga stráknum bestu
meðmæli.
-JKS
Þýski handboltinn:
Sigurður stendur sig vel
Sigurður Bjarnason og félagar
hans hjá Minden eru í 4.-5. sæti í
þýsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik eftir tvo góða sigra að undan-
fömu. Um miðja síðustu viku vann
Minden sigur á Hameln á útivelli,
23-24, og skoraði Sigurður eitt mark
í leiknum. Á laugardaginn vann
Minden öruggan sigur á Dormagen,
26-20. Sigurður skoraði 2 mörk.
Sigurður hefur staðið sig vel með
liði Minden í vetur í stöðu leik-
stjómanda. Hann hefur ekki skorað
mikið en þess í stað einbeitt sér að
því að leika félaga sína uppi.
Anna kvöld mætir Minden liði
Nettelstedt í þýsku bikarkeppninni
og um helgina leikur liðið gegn
Reinhausen.
-GH
Eric Cantona:
Knattspyrna
Arnar lék vel
með Sochaux
Arnar Gunnlaugsson lék í 70
mínútur með varaliði Sochaux
um helgina og stóð sig vel í
leiknum. Hann virðist því vera
búinn að ná sér af meiðslunum
sem háö hafa honum í nokkrar
vikur. Hann vonast eftir að geta
farið að æfa með aðalliði félags-
ins í vikunni og vera kominn í
toppform um áramótin.
-JKS
1. DEILD KARLA
Höttur byrjar vel
Höttur hefur byrjað mjög vel í
1. deild karla í körfuknattleik og
er með fullt hús eftir þrjá leiki.
Höttur vann Þór frá Þorláks-
höfn, 90-78, í framlengdum leik á
Egilsstöðum á laugardaginn en
þar tókst gestunum aðeins að
skora eitt stig í framlenging-
unni.
Valsmenn hafa unnið báða
sína leiki en þeir fóru létt með
Reyni frá Sandgerði, 109-84.
Nýliðarnir úr Stafholtstung-
um fengu sín fyrstu stig á laug-
ardaginn þegar þeir sigruðu ÍS í
Borgamesi, 83-78.
Snæfell sótti Selfyssinga heim
og náði þar í sín fyrstu stig með
sigri, 72-84.
Leiknir úr Reykjavík lagði
Stjömuna, 91-76, í lokaleik um-
ferðarinnar á sunnudagskvöldið.
Staðan:
Höttur 3 3 0 258-222 6
Valur 2 2 0 206-150 4
Leiknir R. 1 1 0 91-76 2
SnæfeU 2 1 1 157-147 2
í>ór Þ. 2 1 1 172-167 2
Selfoss 2 1 1 135-144 2
Stafholtst. 2 1 1 149-175 2
fs 2 0 2 138-146 0
Stjaman 1 0 1 76-91 0
Reynir S. 2 0 2 161-203 0
-VS
Lélegasti leikur minn
með Manchester United
„Þetta er öragglega lélegasti leik-
ur minn með Manchester United frá
upphafi og ég hreinlega var búinn
að gleyma því að ég gæti leikið
svona illa,” sagði Eric Cantona, fyr-
irliði Manchester United, eftir sigur
liðsins á Liverpool í ensku úrvals-
deildinni í knattspymu um helgina.
„Þrátt fyrir sigurinn er ég mjög
óánægður og fólk hefur alveg rétt
fyrir sér ef það segir að ég hafi ver-
ið að leika illa. Ég er mjög vonsvik-
inn. Ég einfaldlega komst ekki í takt
viö leikinn,” sagði „kóngurinn” við
fréttamenn á Old Trafford eftir leik-
inn.
Það var fátt sem heppnaðist hjá
Cantona i leiknum. Sendingar hans
voru flestar mislukkaðar og lang-
tímum saman var hann ekki með í
leiknum, ólikt því sem hann hefur
verið að gera með United þar sem
hann hefur verið potturinn og
pannan í öllum aðgerðum liðsins.
Erfið vika fram undan
Manchester United á erfiða viku
fram undan. Annað kvöld leikur lið-
ið gegn Fenerbache í Evrópukeppni
meistaraliða og á sunndaginn mæt-
ir það Newcastle í toppslag ensku
úrvalsdeildarinnar. Það skiptir
sköpum fyrir lið United að Cantona
nái sér á strik í þessum leikjum og
sjálfur segist hann verða að leika
miklu betur en hann hefur verið að
gera að undanförnu. -GH
15 leikir í UEFA-keppninni í kvöld
Það verður nóg um að vera í knattspyrnunni í kvöld víðs vegar um Evrópu en þá fara
fram fyrri leikirnir í 2. umferð UEFA-keppninnar. Meðal leikja er viðureign spænska
liðsins Espanyol og Feyenoord frá Hollandi. Á myndinni má sjá þá Henrik Larson og
Ronald Koeman á æfingu í Barcelona í gær. Efsta lið ensku úrvalsdeildarinnar,
Newcastle, á erfitt verkefni fyrir höndum þegar það mætir ungverska liðinu Fer-
encvaros í Búdapest. Reuter-mynd
Knattspyrna:
Formaðurinn gaf
íslendingunum
toppeinkunn
íslenskir dómarar gera það oft gott á
erlendum vettvangi í störfum sínum.
Gylfi Orrason dæmdi á dögunum viður-
eign Finna og Svisslendinga í und-
ankeppni heimsmeistaramótsins sem
fram fór í Helsinki. Aðstoðardómarar á
leiknum vora þeir Pjetur Sigurðsson og
Gísli Björgvinsson. Sviss fór með sigur
af hólmi í markaleik, 2-3.
Eftirlitsdómari á leiknum var enginn
annar en Möltubúinn Joseph Mifsud,
sem er formaður dómaranefndar UEFA.
Sá var greinilega himinlifandi með
frammistöðu íslendinganna og gaf þeim
öllum niu í einkunn af tíu mögulegum,
sannarlega glæsilegt hjá þeim félögum.
Frammistaða af þessu tagi hlýtur að
ýta undir það að íslenskir dómarar fái
aukin verkefni á alþjóðavettvangi.
Guömundur dæmir í Lúxemborg
Guðmundur Stefán Maríasson hefur
verið tilnefndur til að dæma leik Lúxem-
borgara og Rússa í Evrópukeppni 21 árs
landsliða á næstunhi.
-JKS
Þrjár bestu konurnar í rallíkrossinu með verðlaunagripi sína.
Hörð og jöfn keppni
kvenna í krónuflokki
Sigríður Kristinsdóttir vann mjög nauman sigur í rallíkrosskeppni sem fram fór
um síðustu helgi. Bílanaust var bakhjarl keppninnar. Sigríður keppti á MMC Lancer
GS og fékk tímann 4,56 mínútur.
í öðru sæti varð Sigríöur Ottósdóttir á 4,57 mínútum en Sigríður ók á Ford
Mustang.
Þriðja sætið hreppti Sigrún Þorbjömsdóttir á 4,58 mínútum en hún ók Mazda
bifreið. Á tímunum sést hve kepnin var hörð en hún var liður í keppni til
íslandsmeistaratitils.
-SK
.4
23
Iþróttir
Baldur til Lyngby
- boðinn reynslusamningur og fer væntanlega til Danmerkur í næstu viku
Baldur Bragason, knattspyrnu-
maður úr Leiftri, kom til landsins
seint í gærkvöld eftir vikudvöl hjá
danska úrvalsdeildarliðinu Lyng-
by. Honum hefur verið boðinn
reynslusamningur til nóvember-
loka og fer aftur til Danmerkur eft-
ir viku, svo framarlega sem Lyng-
by og Leiftur komast að samkomu-
lagi um félagaskiptin.
„Mér gekk mjög vel á æfingum
hjá Lyngby, meiddist reyndar á
fjórða degi, en þjálfarinn sagðist
vera mjög ánægður með mig.
Ég mun væntanlega leika
sem kantmaður eða bak-
vörður vinstra megin.
Svo þarf ég bara að
standa mig á þessum
reynslutíma svo að mér
verði boðinn lengri
samningur. Aðstæður
hjá Lyngby eru mjög góð-
ar, þetta er hreint atvinnu
lið og hefur verið við
toppinn í Danmörku
Baldur
undanfarin ár, þannig að
fyrir mig er þetta mjög
spennandi," sagði Baldur
við DV í gærkvöld.
Baldur meiddist á læri
hjá Lyngby en læknir
félagsins taldi að hann
yrði búinn að ná sér al-
veg eftir tíu daga.
Lyngby, sem hefur bæki-
stöövar sínar í útjaðri
Kaupmannahafnar,
Bragason. hefur ekki byrjað
tímabilið vel og er í sjötta sæti en
vann góðan sigur á AGF um helg-
ina. Liðið seldi þrjá leikmenn til
meginlands Evrópu í sumar og sá
fjórði er á fórum til Spánar.
Ef svo fer sem horfir hefur Leift-
ur þurft að sjá á bak tveimur lykil-
manna sinna frá síðasta sumri því
Gunnar Oddsson er sem kunnugt
er farinn til Keflavíkur sem þjálf-
ari og leikmaður.
-VS
„Tapiö styrkir
okkur bara
í baráttunni"
Heil umferð verður í meistara-
deild Evrópu í knattspymu ann-
að kvöld. Núverandi meistarar í
Juventus mæta Rapid Vin á úti-
velli. Lið Juventus kom til Vínar
í gærkvöld og sagði Marcello
Lippi, þjálfari liðsins, að tapið
gegn Vicenza um helgina styrkti
liðið bara í baráttunni. „Við vit-
um vel að okkar bíður erfiður
leikur og við megum ekki sofa á
verðinum," sagði Lippi.
Manchester United kom til Ist-
anbúl í gærkvöld en enska liðið
leikur gegn Fenerbache og er
uppselt á leikinn fyrir mörgum
vikum.
-JKS
Fabrizio Ravanelli hefur veriö iö-
inn viö kolann hjá Middles-
borough og í gærkvöld skoraöi
hann sitt 11. mark á tímabilinu.
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Bovain hjá Blikum
stigahæstur til þessa
- Williams hjá Þór tekið flest fráköst
Þegar þremur umferðum er lokið
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik
hefur Andre Boavin hjá Breiðabliki
verið iðnastur í stigaskoruninni.
Boavin hefur skorað 104 stig.
Fred Williams hjá Þór hefur tekið
flest fráköst, alls 55 í þremur
leikjum. Eiríkur Sverrir
Önundarson, ÍR, hefur oftast náð
boltanum, alls 18 sinnum. Flestar
stoðsendingar á Jón Kr. Gíslason á
flestar stoðsendingar fram að þessu,
alls 27.
Fimm efstu leikmenn í stigaskori,
fráköstum, stolnum boltum og
flestum stoðsendingum era
eftirtaldir:
Stigahæstir:
1. Andre Boavin, UBK...........104
2. Fred WilUams, Þór ...........98
3. Damon Johnson, Keflavik .....81
4. Euan Roberts, KFÍ........... . 79
5. Tito Bakr, ÍR..................77
Flest fráköst:
1. Fred Williams, Þór .............55
2. Euan Roberts, KFÍ...............44
3. Damon Johnson, Keflavík ........41
4. Andre Bovain, Breiðablik .......39
5. Alexander Ermolinski, ÍA .......34
Bolta náð:
1. Eiríkur Önundarson, ÍR..........18
2. Óskar Kristjánsson, KR..........13
3. Andre Bovain, ÍR................13
4. Tómas A. Tómasson, Skallagr. ... 13
5. Yorick Parke, UMFT..............13
Flestar stoðsendingar:
1. Jón Kr. Gíslason, UMFG .........27
2. Jóhannes Kristbjörnsson, UMFN . 21
3. Ómar Sigmarsson, UMFT ..........20
4. Tómas A. Tómasson, Skallagr. ... 20
5. Champ Wrencher, KR .............19
-JKS
Enska úrvalsdeildin:
Sunderland tókst að
jafna einum færri
Sunderland og Middlesborough
skildu jöfn, 2-2, í ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu í gærkvöld. Við-
ureign liðanna fór fram á Roker
Park í Sunderland. Heimamönnum
tókst af miklu harðfylgi að jafna
metin en skömmu áður hafði Ric-
hard Ord verið vikið af leikvelli eft-
ir stimpingar við Nick Barmby.
Ord er þriðji leikmaðurinn úr
röðum Sunderland sem fær að líta
rauða spjaldið á skömmum tíma.
Þeim Scott og Stuart var vikið af
leikvelli fyrir skömmu gegn
Arsenal.
Peter Reid, framkvæmdastjóri
Sunderland, hélt sér á mottunni í
gærkvöld en lét þó hafa eftir að sér
að rauða spjaldið í gærkvöld hefði
verið strangur dómur.
Þrumufleygur hjá Emerson
Alex Rae og Craig Russell skor-
uðu mörk Sunderland og Emerson
og Fabrizio Ravanelli mörk Midd-
lesborough. Markið sem Emerson
skoraði var þrumufleygur af 20
metra færi. Þetta var fyrsta markið
sem RavaneUi skorar á útiveUi í
vetur en aUs eru mörkin hans orðin
11 talsins.
Middlesborough er 8. sæti með 12
en Sunderland í 13. sæti með 10 stig.
-JKS
Körfuknattleikur:
Grindvíkingar kæra
leikinn gegn Haukum
DV, Suðurnesjum:
Grindvíkingar hafa kært leik-
inn við Haúka úr 1. umferð úrvals-
deffdar í körfuknattleik. Grindvík-
ingar telja að Haukamir hafi ekki
verið með tilskilin leyfi fyrir
Bandaríkjamanninn Shawn Smith
áður en leikurinn hófst.
„Að okkar mati voru Haukarnir
ekki með umrædd leyfi í höndun-
um fyrir þennan leikmann. Leyfið
kom síðar um kvöldið eftir leik-
inn. Menn verða einfaldlega að
fara eftir reglunum og á það verð-
ur reynt í þessu dæmi. Að vel at-
huguðu máli ákváðum við að
kæra leikinn tff íþróttabandalags
Hafnarfjarðar og sækja það alla
leið ef meö þarf,“ sagði Margeir
Guðmundsson, formaður
körfuknattleiksdeUdar Grindavík-
ur, í samtali við DV í gærkvöld.
-ÆMK
Staðan hjá Orgryte ekki góð
Rúnar Kristinsson og félagar í sænska liðinu Örgryte máttu sætta sig
við markalaust jafntefli gegn Norrköping í úrvalsdeUdinni í gærkvöld.
Örgryte er í 10. sæti í deUdinni, tvö neöstu falla beint en liðin í 11.-12 .
sæti fara í sérstaka úrslitakeppni um áframhaldandi vera í úrvalsdeUd-
inni. Oddevold er þegar faUið og þegar tveimur umferðum er ólokiö er
spennandi keppni fram undan í botnbaráttunni. JKS
Evrópukeppnin í handbolta:
Valur leikur báða
leikina í Bochum
Valsmenn mæta um næstu helgi
Donesk frá Úkraínu í Evrópukeppni
meistaraliða í handknattieik. Stjóm
handknattieiksdeildar Vals ákvað
að vel athuguðu máli aö leika báða
leikina erlendis.
„Á endanum samþykkti Donesk
að leika báða leikina í Þýskalandi.
Það var einnig mjög kostnaðarsamt
fyrir þá að koma heim tU íslands
svo þetta Vcir hagkvæm lending fyr-
ir báða aðUa. Niðurstaðan var sú að
fyrri leikurinn verður á fóstudag og
sá síðari á sunnudag í Bochum. Það
verður eflaust á brattann að sækja
fyrir okkur í þessum leikjum enda
Donesk mjög sterkt lið,“ sagði Jó-
hann Birgisson, liðstjóri Vals-
manna, í samtali við DV.
Valsmenn höfðu sama hátt á í
keppninni í fyrra þegar þeir mættu
CSKA frá Moskvu. Báðir leikimir
voru háðir í Þýskalandi og komst
Valur áfram með eftirminnUegum
hætti. Hætt er við að róðurinn verði
Valsmönnum erfiðari nú. Donesk
varð Evrópumeistari í fyrra og eins
hafa miklar breytingar orðið á leik-
mannahópi Valsmanna.
Magnús þjálfar Leikni Magnús Pálsson hefur verið ráðinn þjálfari liðs Leiknis úr Breiðholti fyrir næstu leiktíð og tekur hann viö starfi Péturs Arnþórssonar. Magnús hefur áöur þjálfað lið Ægis úr Þorlákshöfn og Fylkismenn. Leiknir leikur í 3. deilc næsta sumar en liðið féU úr 2. deildinni í haust.
Þjálfari
Knattspyrnufélagiö Ægir, Eyrabakka og
Þorlákshöfn óskar eftir aö ráöa þjálfara fyrir
meistaraflokk næsta keppnistímabil.
Upplýsingar í síma 483-1402
-JKS