Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1996, Page 23
ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1996
27
Hringiðan
Gott hjarta er gulli
betra er slagorð
Hjartaverndar. Hans
Tómas Björnsson var í
Krlnglunnl á laugardag-
Inn á vegum Hjarta-
verndar og mældi blóö-
þrýsting vegfarenda af
stakri snilld.
Nemendaleikhús Leik-
listarskóla íslands
frumsýndi leikritið
„Komdu Ijúfi leiði“ í Lind-
arbæ á laugardagskvöld-
ið. Bjarni Ragnarsson og
Aðalheiður Alfreðsdóttir voru
á sýningunni.
LefKrmu Dimngur emr vunaire var irunibym i riurririrbird
leikhúsinu Hermóði og Háðvör á föstudagskvöldið. Sirrý
Oddsdóttir, Magnús Gunnarsson og Elísabet Karlsdóttir
skemmtu sér konunglega á leiksýningunni.
Á dögunum var opnuð ný
félagsmiðstöð í Kópavogi.
Félagsmiðstöðin hlaut
nafnið Igló og er til húsa í
Snælandsskóla. Reynir
Guðsteinsson, skólastjóri
skólans, afhenti Söru Hlín
Sigurðardóttur, formanni nem-
endaráðs, lykilinn að félagsmið-
stöðinni við hátíðlega athöfn.
DV-mynd Hildur Björg
Á laugardaginn opnaði Þorgerður Sigurðardóttir sýningu á verkum sínum í Gallerí
Horninu. Sýningin ber yfirskriftina „Bænir og brauð“ en verkin eru tréristur sem
bæði er þrykkt á pappír og brauð sem gestirnir fengu að gæða sér á við opnunina.
Þorgerður stillti sér upp fyrir Ijósmyndarann ásamt foreldrum sínum, séra Sigurði
Guðmundssyni vígslubiskupi og Aðalbjörgu Halldórsdóttur, og eiginmanni sínum,
Ólafi H. Torfasyni. DV-myndir Teitur
Það var heilmikið um að vera í
Kringlunni um helgina. Amerískir
dagar voru í fullum gangi og brydd-
að upp á ýmsu vegfarendum til
skemmtunar. Meðal annars var
haldin tískusýning þar sem föt úr
versluninni Smash voru sýnd.
Það var fjör hjá sjálfstæðismönnum
á laugardagskvöldið. Þá var tekin
pása frá fundarhöldum og amstri
landsfundarins og haldið landsfund-
arhóf á Hótel ísiandi. Ásdís Halla
Bragadóttir og Hannes Hólmsteinn
tóku þátt í gleðinni.
DV-mynd Hari
Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins fór fram um helg-
ina. Á laugardagskvöldíð
var haldið heljarinnar
landsfundarhóf á Hótel ís-
landi með kvöldverði og
öllu tilheyrandi. Söngsyst-
urnar knáu úr Heimdalli,
Sólveig Sigurbjörnsdóttir
og Margrét Einarsdóttir,
létu sig ekki vanta í gleö-
skapinn.
DV-mynd Hari
Það var mikið um dýrð-
ir í Kiwanishúsinu í
Mosfellsbæ á laugar-
dagskvöldiö. Þar var hald-
ið þrefait þrítugsafmæli og
allt haft í mexíkóskum stíl.
Félagarnir Oddur Friðriksson
og Auðunn Árnason munduðu
byssurnar eins og sannir Mex-
íkanar.
DV-mynd Hari
Halla Margrét Árnadóttir sópran-
söngkona hélt sína fyrstu opinberu
einsöngstónleika í íslensku óper-
unni á laugardaginn. Borgarstjór-
inn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, og eiginmaöur hennar,
Hjörleifur Sveinbjörnsson, hlýddu á
tónleikana og gæddu sér á kampa-
víni í hléi.