Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1996, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1996, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1996 9 DV Sandkorn Vettlingar með Landsmenn eru nú í óðaönn að „koma í lóg“ f]árhagslega batanum 1 þjóðfelaginu sem svo mik- ið er rætt um en fáir þykj- ast sjá í buddunum sinum. Ein- hverjir eru eflaust líka aö taka for- skot á sæl- una, td. með kaupum á nýjum bílum sem koma nú til landsins i hundraðatali. Bila- umboðin keppast við að ná athygli þeirra sem vÚja fjárfesta í nýju bilunum og bjóða eitt og annað. Sumir bjóða fullan bensíntank, rúðusköfur og fleira þess háttar. Frumlegasta boðið var þó það sem gerði ráð fyrir ýmsum af þessum aukahlutum í kaupbæti, auk þess sem boðið var upp á vandaða vett- linga fyrir veturinn. Það er nú ekki amalegt að kaupa sér nýjan bíl fyrir t.d. eina og hálfa milljón króna og fá svo ókeypis vettlinga í kaupbæti. Gengið olræt? Húsvíkingar fylgdust með af miklum áhuga þegar bæjarfulltrú- ar þeirra deildu um verðmæti hlutabréfa bæjarins i Fiskiðjusam- lagi Húsavík- ur á bæjar- stjómaifundi á dögunum. Þingeyingar eru sagðir hagyrðingar upp til hópa og á áheyr- endabekknum á umræddum bæj- arstjórnarfundi sat einn sem missti þetta út úr sér: Ef gengið er út frá þvf, að gengið sé tveir, eða gengið sé örlítið minna eða jafnvel meir. Þá gengur ei lengur að ganga að því sem vísu, að gengið sé olræt hjá meirihluta i krisu. Illur fyrirboði? Þá segir hið „alræmda" Vikur- blaö á Húsavík frá því að þegar togarinn Kol- beinsey.kom til ha&ar eft- ir langa úti- vist á fjar- lægum mið- um hafi eig- inkonur skip- vetja tendrað friðarljós á bryggjunni skömmu fyr- ir komu skipsins. Svo illa fór hins vegar að eldamir dóu út áður en skipið lagðist að og segir blaðið að hjátrúarfullir á bryggjunni hafl talið þetta illan fyrirboða um frið- samlegar samfarir í hjónaböndum skipveija. Ja, það sem þeim dettur ekki í hug, Þingeyingunum. Málinu ólokið Enn frá Húsavík. Stefán Har- aldsson, oddviti framsóknarmanna í meirihluta bæjarstjóm- ar, skrifaði grein í Vík- urblaðið sem bar yfirskrift- ina „Kjami málsins" og var greinar- gerð Stefáns um deilumar í bæjarstjóm vegna „sam- einingarmáls- ins“ og sölu á hlutabréfum bæjarins í sjávarút- vegsfyrirtækjum bæjarins. Eins og fram hefur komið vom framsókn- armenn bomir þeim sökum af oddvita Alþýðubandalagsins og Óháðra, sem er samstarfsflokkur framsóknarmanna í bæjarstjóm, að gæta hagsmuna annarra en bæjarbúa í málinu. Grein Stefáns í Víkurblaðinu sl. fimmtudag lauk með orðunum: „Því máli er ólok- ið.“ Menn sem leggja saman tvo og tvo þykjast sjá úr þessum orð- um að hið Hfseiga meirihlutasam- starf sem sagt er hafa níu líf sé nú loksins að lognast út af. Umsjón: Gylfi Kristjánsson Fréttir Fálki stal bráð af rjúpnaskyttu: Hvæsti á mig og flaug með rjúpuna í klónum - segir Einar Haraldsson „Eg var að klöngrast í klettunum þegar ég sá tvo hvíta fugla koma fljúgandi úr þokunni. Ég sá að fyrri fuglinn var ijúpa en var ekki viss með þann seinni því hann virkaði svo stór. Ég skaut á þann fyrri og hann féll til jarðar. Sá síðari kom og stakk sér á eftir honum. Þegar ég kom nær og gáði betur að sá ég að stóri fuglinn var hvítur fálki og hann var að éta rjúpuna," segir Ein- ar Haraldsson, rjúpnaskytta og varaformaður Skotveiðifélags ís- lands, við DV en hann var á rjúpna- veiðum þegar hann lenti í þessu skondna atviki. „Fálkinn hvæsti á mig, setti síðan klæmar utan um ijúpuna og flaug með hana burt. Hann var stór og fallegur og mér kom aldrei til hugar að skjóta hann, enda dái ég þennan fugl. Ég var fyrst dálítið fúll yfir að hann skyldi stela af mér bráðinni en svo fannst mér þetta skondið að hann skyldi vinna þessa baráttu um bráðina," segir Einar. -RR MHC-771 SONY Hljómtækjasamstæða af bestu qerð. Maqnari 2x70 músíkvött, útvarp, tvöfalt sequlband, 3 diska qeislaspilari, tónjafnari, karaoke o.fl. o.fl. CCD-TR340 SOííY Fullkomin og þægileg 8mm myndbandstökuvél með fjarstýringu. SL-S138 Panasonic Nettur og léttur ferðageislaspilari CDP-CE405 SONY Fjöldiskaspilari fyrir 5 diska með fjarstýringu. sc-ch64 Panasomc Hljómtækjasamstæða. Magnari 2x40 músíkvött, útvarp, segulband, 60 diska geislaspilari, tónjafnari, hátalarar og fjarstýring. CFD-6 SONY Vandað ferðatæki með geislaspilara. KV-29X1 SONY Hágæða 29" SuperTrinitron sjónvarp með Nicam Stereo, textavarpi, allar aðgerðir á skjá. SL-PG480 Technics Technics geislaspilari 1 bita með fjarstýringu. T-28NE50 TATUNG 28" Sjónvarp með Black Planigon myndlampa, Nicam stereo, íslenskt textavarp, tengi fyrir aukahátalara. RX-DS22 Panasonic Ferðatæki með geislaspilara, 20w magnara, útvarpi, segulbandi, qeislaspilara, X.B.S. Bass Reflex, fjarstýringu og tengi fyrir heyrnatól. NV-A3 Panasonic Nett, einföld og meöfærileg VHS-C myndbandstökuvél. 1 lux liósnæmi. Fylgihlutir: Taska, auka rafhlaða, þrífótur og 3 spólur. NV-HD600 Panasomc Nicam HI-FI Stereo myndbandstæki. Long Play, Super Drive gangverk, Clear View Control ásamt fjarstýringu f. fjölda sjónvarpstækja. Þetta er aðeins brot af úrvaiinu. Sjón er BRAUTARHOLTI & KRINGLUNNI SÍMI 562 5200 afsláttur af öllum geisladiskum VERIÐ HAGSÝN OG GERIÐ JÓLAINNKAUPIN Á NÓVEMBERTILBOÐIJAPIS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.