Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1996, Side 11
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1996
*2L
★
*
-
fpenmng
11
PS...
Sögulegar
kvikmyndir
- hve raunsæjar eru þær?
Bretar velta vöngum yfir sögu-
legum kvikmyndum um þessar
mundir, enda spæna kvikmynda-
gerðarmenn bókmenntaarfinn
upp á tjald og skjá. Jane Austen,
Joseph Conrad, Thomas Hardy og
Bronté- systur eru bara frægustu
höfundamir sem þeir nýta sér
Gwyneth Paltrow í hlutverki
Emmu I samnefndri kvikmynd
eftir skáldsögu Jane Austen.
þessi misserin. í Sunday Times
var fyrir skömmu spurt í grein
hversu raunsanna mynd sögu-
legu kvikmyndimar gæfu af tím-
anum sem þær ættu að gerast á.
Leikkona sem leikur kurteisa
söguhetju úr bók eftir Jane Aust-
en þyrfti, ef vel ætti að vera, að
láta slá úr sér nokkrar tennur og
lita þær sem eftir eru soldiö
blakkar, því ekkert var tann-
kremið á þeim tímum. Klæði
vora ekki skjannahvít, og menn
voru ekki alltaf að baða sig.
Þyrftu ekki að sjást opin klóök og
almenn fátækt til aö myndin
nálgaðist raunveruieikann? spyr
blaðið. En þvert á móti minna
nýjar bíómyndir um „gamla
daga“, einkum amerískar, einna
mest á þvottaefnisauglýsingar.
Skyldu þeir hjá Sunday Times
hafa séð myndir Hrafns Gunn-
laugssonar.
Engin nagdýr?
Friðrik Þór okkar þykir ná
raunsannri mynd af braggahverf-
um sjötta áratugarins í Djöfla-
eynni, en þyrfti kannski meira?
Veggjalús var algeng, segir gam-
all braggabúi. „Maður strauk
Umsjón
Silja Aðalsteinsdóttir
stjórnbúnaður
Þú finnur f
varla betri j
lausn. í
HÉÐINN =
VERSLUN
SEUAVEGI 2 SÍMI 562 4260
vegginn á morgnana og það kom rautt strik.“ Rottur
stukku líka oft yfir gólf að kvöldlagi. Sáum við slíkt í
myndinni? Og hefði hún grætt á meira raunsæi?
gefendur heimsins í biðröð við bás norska Cappelen-
forlagsins, að sögn Politiken, þegar kynnt var ný bók
sem lyktaði af metsölu. Hún heitir Rándýr og er eftir
Ragnhildi N. Gredal sem fléttar saman á 400 blaðsíðum
spennandi glæpasögu og sögu sálfræðinnar. Þetta
minnti útgefendur á uppskrift Jósteins Gaarder að Ver-
öld Soffíu, sem nú hefur selst í á annan tug milljóna
eintaka! Þess vegna stóðu þeir í biðröð. Að vísu hafa
Rándýr aðeins selst í um 4000 eintökum í Noregi, en
Veröld Soffiu fór heldur ekki að seljast þar fyrr en hún
varð fræg erlendis.
Sjálf segist Ragnhild ekki hafa fengið hugmyndina
frá Jósteini heldur Robert M. Pirzig og sígildu riti hans
um Zen og listina að viðhalda mótórhjóli, sem ’68 kyn-
slóðin þekkir vel. Hún er uppeldisfræðingur og vann
viö að leiðbeina um mannleg samskipti og komst þá að
því hvað fólk vissi lítið um sálfræði og sögu hennar.
Samt tók það ekki fúslega við fræðslunni um Jimg og
Freud og þá félaga, þess vegna datt henni í hug að flétta
hana inn í glæpasögu. Meðalið rennur framvegis ljúf-
lega niður með skeið af sykri, eins og fóstran góða söng
um árið.
Möenuð eddukvæði
Umsjónarmáour er ekki tónlistargagnrýnandi en get-
ur þó ekki stillt sig um að lýsa yfir hrifningu sinni á
mögnuðum flutningi tónlistarhópsins Sequentia á
eddukvæðum í forskála Þjóðminjasafnsins í gær.
Dvergatalið varð að sannkölluðum galdri, Ragnarök
sendu hroll niöur hrygginn og maður grét af feginleik
þegar jörðin reis aftur og gullnar töflur fundust í grasi.
En skemmtilegast var að horfa og hlýða á Benjamín
Bagby flytja Þrymskviðu með rödd, látbragði og leik á
miðaldahörpu. Hann dró með örfáum dráttum persón-
ur kvæðisins, Þór sjálfan, Freyju sem ekki vildi giftast
í Jötunheima, Loka sem hefði kannski verið til í það og
jötnana Þrym og systur hans. Ógleymanleg stund.
BAENASTIGUR
BRUM’S 0-14 SÍÐAN 1955
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8 SlMI 552 1461
J
:',kíWj svjmxt
£3 iérJsllikun á
Sigurför PlayStation-leikjatölvunnar
hefur verið ósiitin
Engin leikjatölva stendur PlayStation á
sporðí þegar kemur að hraða
og hágæðagrafík
Tugir leikja fyrir PlayStation eru
komnir á markaðinn og von er á
fjölda nýrra titla á næstu vikum
Ein vandaðasta og vinsælasta leikjatölva
heims á aðeins 22.930
Fkr. stgr.
(AGV: 25.500 kr.)
PlayStation fæst m.a. hjá eftirtöldum söluaðilum:
Reykjavík: Megabúðin, Laugavegi 96
Skífan, Kringlunni
Sktfan, Laugavegi 26
Tölvukjör, Faxafeni 5
Akranes: Hljómsýn
ísafjörður: Póilinn
Sauðárkrókur: Stuðull / Tölvubúnaður
Akureyri: Tölvutæki-Bókval
Naust
Egilsstaðir: Kaupfélag Héraðsbúa
Vestmannaeyjar: Tölvubær
Selfoss: KÁ
Kefiavík: Rafhús