Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1996, Page 34
42
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1996
Afmæli______________________
Eiður Helgi Einarsson
Eiður Helgi Einarsson, viðskipta-
fræðingur við Seðlabankann,
Tryggvagötu 6, Reykjavík, er sex-
tugur i dag.
Starfsferill
Eiður lauk stúdentsprófi frá
Verslunarskóla íslands 1958 og við-
skiptafræðiprófi frá HÍ 1967. Hann
stundaði námskeið í ensku hjá Ber-
litz School of Language í Was-
hington DC í Bandaríkjunum 1970,
hagfræðinámskeið hjá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum í Washington DC 1970
og hefur sótt ýmis önnur námskeið
og námstefnur vegna starfa síns,
einkum er lúta að tölvunotkun.
Eiður var við nám í biblíuskólan-
um Ungdom í Oppdrag í Noregi í
hálft ár 1979 og dvaldist í Uppsala í
Svíþjóð 1988-90 við nám hjá Livets
Ord Bibelcenter.
Eiður var aðstoðar-
maður á rannsóknar-
stofu Sementverksmiðju
ríkisins á Akranesi
1958-61 og síðan í sumar-
vinnu þar frá 1962-66.
Hann hefur verið við-
skiptafræðingur við
Seðlabankann frá 1967,
fyrst í hagdeild en siðan
á tölfræðisviði.
Eiður starfaði í barna-
og unglingastarfi KFUM
og K 1968-74, starfaði í
kristniboðsfélagi ungs fólks i nokk-
ur ár, sat í stjórn Kristilegs stúd-
entafélags 1971-75, var virkur með-
limur í Gideonfélaginu í Reykjavík
nr. 1 og sat i stjóm þess um skeið,
var einn af stofnendum og forystu-
mönnum samtakanna Ungt fólk
með hlutverk 1976-82, var
forstöðumaður trúfélags-
ins Vegurinn, kristið
samfélag, 1994-95 og hefur
verið aðstoðarforstöðu-
maður þar eftir það.
Hann hefur farið einn og
með öðmm í kristniboðs-
ferðir, t.d. til Sovétríkj-
anna, Bandaríkjanna,
Norðurlandanna og til
Mexíkó.
Fjölskylda
Systkini Eiðs em Óttar Símon
Einarsson, f. 11.10. 1943, bílstjóri á
Laugarvatni, og á hann fimm upp-
komin böm; Herdis Ingveldur Ein-
arsdóttir, f. 26.3. 1946, húsmóðir í
Danmörku, gift séra Birgi Ásgeirs-
syni og eiga þau þrjú uppkomin
börn.
ForeldrEU- Eiðs vom Einar Þórður
Helgason, f. 24.1. 1901, d. 18.7. 1995,
bílasmiður og húsasmíðameistari á
Akranesi, og Þórunn Símonardóttir,
f. 8.1. 1903, d. 6.6. 1989, kennari.
Ætt
Einar Þórður var sonur Helga
Einarssonar, b. og smiðs í Litla-
Botni í Hvalfirði, á Hlíðarfæti og
Hóli í Svínadal, í Skarðskoti og á
Vestra-Súlunesi í Melasveit, og k.h.,
Sigríðar Guðnadóttur húsfreyju.
Þórunn var dóttir Símonar Sím-
onarsonar, b. að Bárustöðum í
Andakílshreppi, og k.h., Herdísar
Jónsdóttur húsfreyju.
Gestum og vinum er boðið til
fagnaðar i Veginum, Smiðjuvegi 5,
Kópavogi í kvöld kl. 20.00-22.00.
Eiður Helgi
Einarsson.
Auður Jónasdóttir
Auður Jónasdóttir framhalds-
skólakennari, Ránarslóð 4, Höfn í
Homafirði, er sjötug í dag.
Starfsferill
Auður fæddist á Bakka í Reyðar-
firði og ólst þar upp. Hún stundaði
nám við KÍ og lauk þaðan kennara-
prófi 1949, stundaði nám við íþrótta-
kennaraskóla íslands og lauk þaðan
íþróttakennaraprófi 1950, stundaði
nám í bókasafnsfræði við HÍ
1981-82, stundaði leiðsögunám við
Farskóla Austurlands 1991-92 og
hefur sótt fjölda námskeiða á vegum
endurmenntunardeiidar KHÍ og víð-
ar.
Auður kenndi sjúkraleikfimi við
íþróttaskóla Jóns Þorsteinssonar
við Lindargötu 7 og hefur verið
kennari á Ólafsfirði, Selfossi og á
Höfn i Homafirði.
Auður sat í stjóm Kennarasam-
bands Austurlands í mörg ár, í
stjóm Orlofssjóðs Kennarasam-
bands íslands í mörg ár, hefur verið
trúnaðarmaður í Hafhcnskóla um
árabil, sat í stjóm Golfklúbbs
Hornafjarðar og Bridgefélags
Hornafjaröar og verið virk í ýmsum
fleiri félögum.
Fjölskylda
Eiginmaður Auðar er Björn Karl
Gíslason, f. 8.2. 1925, rafvirkjameist-
ari. Hann er sonur Gísla Bjömsson-
ar, rafveitustjóra á Höfn, og Arn-
bjargar Arngrímsdóttur húsmóður.
Sonur Auðar og Bjöms Karls er
Geir Bjömsson, f. 25.2. 1957, tölvun-
arfræðingur, kvæntur Hlíf Guð-
mundsdóttur hjúkmnarfræðingi og
em böm þeirra Ýrr Geirsdóttir, f.
31.5. 1979, Auður Geirsdóttir, f. 10.2.
1985, Amar Geirsson, f. 13.5. 1996 og
Bjöm Geirsson, f. 13.5. 1996.
Systkini Auðar: Guðrún Sigur-
björg Jónasdóttir, f. 28.12. 1916; Jó-
hann Hallgrímur Jónasson, f. 28.4.
1918; Kristín Jónasdóttir, f. 12.8.
1919; Bóas Jónasson, f. 17.7. 1921, d.
23.8. 1992; Bjami Jónasson, f. 10.12.
1922, d. 6.12.1995; Lára Guðlaug Jón-
asdóttir, f. 25.3. 1924, d. 11.9. 1977.
Foreldrar Auðar vom Jónas Pét-
ur Bóasson, f. 18.5.1891, d. 27.2.1960,
bóndi og verkamaður, og Valgerður
Bjamadóttir, f. 14.10. 1885, d. 21.8.
1974, húsmóðir.
Auður tekur á móti gestum að
Engjateigi 11 í dag, milli kl. 17 og 20.
Jón Pétursson
Jón Pétursson, tæknimaður við
Sjúkrahús Suðurlands, Engjavegi
59, Selfossi, er sextugur i dag.
Starfsferill
Jón fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp við Vatnsstíginn. Hann
lauk gagnfræðaprófi við Gagnfræða-
skóla Austurbæjar, stundaði nám
við Iðnskólann í Reykjavík og lauk
prófi sem rafvirki og rafvélavirki
hjá Volta hf í Reykjavík.
Jón flutti með fjölskyldu sinni til
Selfoss 1965 og vann þar við sína
iðngrein auk þess sem hann sér-
hæfði sig á ýmsum sviðmn tækni-
mála. Hann sérhæfði sig í rafeinda-
fræðum flugvéla og vann um
þriggja ára skeið hjá Cargolux í
Lúxemborg 1975-78 en hefur verið
tæknimaður Sjúkrahúss Suður-
lands á Selfossi frá 1979.
Fjölskylda
Eiginkona Jóns er Sigríður J.
Guðmundsdóttir, f. 19.10. 1942, um-
boðsmaður Samvinnu-
ferða- Landsýnar á Sel-
fossi. Hún er dóttir Guð-
mundár Jóhannssonar,
fyrrv. framkvæmdastjóra,
og Ólafar Maríu Guð-
mundsdóttur húsmóður.
Böm Jóns og Sigríðar
eru Guðmundur P. Jóns-
son, búsettur í Reykjavík;
Hanna Björk Jónsdóttir,
búsett í Reykjavík, en
sambýlismaður hennar er
EgUl Egilsson og eru böm
Jón Pétursson.
þeirra Jón Anton og
Rakel Björk auk þess
sem sonur Hönnu Bjark-
ar og fóstursonur Jóns
og Sigríðar er Viktor
Ingi Jónsson.
Foreldrar Jóns vom Pét-
ur Brandsson, f. 29.3.
1902, d. 1986, loftskeyta-
maður í Reykjavík, og
Hanna Jónsdóttir, f. 7.3.
1904, d. 1985, húsmóðir.
Jón er í útlöndum á af-
mælisdaginn.
Fréttir
Bæjarstjórn Húsavíkur:
Staða meirihlutans
DV, Akureyri:
„Við eigum eftir að fara yfir stöð-
una sem er óljós sem stendur," sagði
Stefán Haraldsson, oddviti framsókn-
armanna i bæjarstjóm Húsavíkur, í
gær.
Meirihlutasamstarf Framsóknar
og Alþýðubandalags og Óháðra í bæj-
arstjóm er því enn í óvissu en Stefán
segir mál munu skýrast á næstunni.
Á miðvikudag verða fundir hluthafa
í Fiskiðjusamlaginu og útgerðarfýr-
irtækinu Höfða þar sem endanlega
verður gengið frá sameiningu fyrir-
tækjanna og segir Stefán að eftir það
muni áframhaldandi samstarf meiri-
hlutaflokkanna eða slit á samstarfi
þeirra verða rætt. „Það er í sjálfú sér
ekkert sem rekur á eftir okkur að
hraða þessu,“ segir Stefán.
Hann sagði í grein í Víkurblaðinu
um ásakanir Kristjáns Ásgeirssonar,
oddvita Alþýðubandalags og Óháðra,
þess efhis að framsóknarmenn hefðu
fyrst og fremst gætt hagsmuna ann-
arra aðila en bæjarbúa við ákvörðun
óljós
um sameiningu fyrirtækjanna í bæj-
arstjórn, að því máli væri ólokið sem
bendir til að framsóknarmenn hyggi
varla á frekara samstarf meirihluta-
flokkanna og lægi þá fyrir að Fram-
sóknarflokkurinn og Sjálfstæðis-
flokkurinn sem stóðu að því sam-
komulagi myndi nýjan meirihluta.
-gk
DV
Til hamingju með afmælið 4. nóvember
90 ára
Pétur Guðmundsson, Hólmgarði 31, Reykjavík.
85 ára
Helgi Hallgrimsson, Hvassaleiti 56, Reykjavík.
80 ára
Erlendur Snæbjörnsson, Byggðavegi 138A, Akureyri. Kristin V. Kristinsdóttir, Tjamargötu 40, Keflavík.
75 ára
Anna Einarsdóttir Kiðafelli, Kjósarhreppi. Jón Alexandersson, Skeljagranda 2, Reykjavik. Hann er að heiman.
70 ára
Magnea Jónsdóttir, Ásgarði 3, Keflavík. Þorsteinn Skúlason, Fellsmúla 16, Reykjavík.
60 ára
Stefán Friðriksson, Hólmagrund 14, Sauðárkróki. Hólmfríður S. ólafsdóttir, Túngötu 21, Vestmannaeyjum. Sesselja H. Jónsdóttir, Desjarmýri, Borgaifjarðar- hreppi. Svava Ágústsdóttir, Hjallabrekku, Mosfellsbæ. Ingrid María Paulsen, Móaflöt 25, Garðabæ.
50 ára
Guðrún Björk Jóhannesdótt- ir, Smáratúni 24, Keflavík. Jón Snorrason, Huldugili 10, Akureyri. Bjöm H. Árnason, Hringbraut 86, Reykjavík. Guðrún Valgerður Ámadótt- ir, Brekkuseli 4, Reykjavík.
40 ára
Þorsteinn G. Eggertsson, Kvíum II, Þverárhlíðarhreppi. Gunnar Öm Guðmundsson, Hraunbæ 198, Reykjavík. Brynja Þorvaldsdóttir, Fagrahvammi 6, Hafnarfirði. Gyða Hafdís Margeirsdóttir, Fögruhæð 4, Garðabæ. Helga Þórólfsdóttir, Laufásvegi 10, Reykjavík. Sigrún Málfríður Árnadótt- ir, Háholti 9, Hafnarfirði. Sæmundur Gunnar Jónsson, Tjamargötu 10B, Reykjavík.
Grímsí
v/Bústaðaveg
Skreytingar við öll
tœkifœrL Frí heimsending
fyrir sendingar yfir 2.000 kr.
Sími 588-1230
Akureyri:
Atlantavélin lenti á öryggissvæðinu
DV, Akureyri:
Tristarþota flugfélagsins Atlanta
lenti á ómalbikuðu öryggissvæði
við syðri enda flugbrautarinnar á
Akureyri sl. miðvikudag er vélin
kom þangað til að sækja farþega í
flug til írlands.
Þótt bremsuskilyrði væru ágæt
ákváðu flugmenn vélarinnar að
„undirskjóta" brautina sem kallað
er, en það er að lenda nákvæmlega
á enda brautarinnar til að nýta
lengd hennar sem best. Heimir
Gunnarsson, umdæmisstjóri Flug-
málastjómar á Akureyri, sagði í
samtali við DV að ekkert hefði ver-
ið athugavert við lendingu vélarinn-
ar sem hefði verið um 200 metra
inni á flugbrautinni en öruggar
heimildir DV segja að vélin hafi lent
á öryggissvæðinu sem er ómalbikað
sem fyrr sagði og rótað þar upp möl
og snjó. Mikið högg kom á vélina
sem stöðvaðist þegar hún var kom-
in inn á miðja braut en vélin, sem
er stærsta vél sem lendir á Akureyr-
arflugvelli, var síðan keyrð út á
enda til að snúa við þar sem braut-
in er breiðari.
Tjakkur i hægra hjóli brotnaði
við lendinguna og starfsmenn Loft-
ferðaeftirlitsins voru kallaðir á vett-
vang en gerðu engar athugasemdir
við lendinguna. í vélinni var ein-
ungis áhöfn hennar. -gk