Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1996, Qupperneq 36
44
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1996
nn
Pjóöin er ekki á eitt sátt um ís-
lenska þjóösönginn.
Blómabúð
eilífð-
arinnar
„Þjóðsöngurinn er lag sem
enginn getur sungið, við ljóð
sem enginn skilur. Ljóð séra
Matthíasar er ekkert um þessa
þjóð. Það fjallar um herra Guð
almáttugan og síðan einhverja
blómabúð eilífðarinnar.“
Guðmundur Andri Thorsson, í
DV.
Andstyggilegt
„Fólk ætlast til að þetta sé
andstyggilegt en það má samt
ekki vera of andstyggilegt. Hvað
mega andstyggilegheitin ganga
langt. Það er spumingin?“
Ágúst Guðmundsson, ieikstjóri
Áramótaskaupsins, í Alþýðu-
blaðinu.
Léttskýjað sunnanlands
Yfir N-Grænlandi er 1018 mb
hæð, en á milli Jan Mayen og Nor-
egs er minnkandi 975 mb lægð.
Lægð nokkuð djúpt suður af land-
Veðrið í dag
inu hreyfist austnorðaustur.
í dag verður norðankaldi um
landið austanvert en annars fremur
hægur vindur. Dálítil él verða norð-
austanlands og eins á vestustu an-
nesjum. Áfram verður léttskýjað
um landið sunnanvert. Frost verður
á bilinu 7 til 12 stig í innsveitum en
nokkru minna úti við sjávarsíðuna.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
austangola og lengst af léttskýjað.
Frost verður á bilinu 4 til 9 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 17.01
Sólarupprás á morgun: 9.24
Slðdegisflóð í Reykjavík: 13.03
Árdegisflóð á morgun: 1.55
Veðriö kl. 6 í morgun:
Akureyri snjókoma -9
Akurnes léttskýjaö -6
Bergstaöir snjókoma -10
Bolungarvík snjóél -4
Egilsstaðir hálfskýjaú -7
Keflavíkurflugv. skýjað -4
Kirkjubkl. skýjað -5
Raufarhöfn snjóél
Reykjavík heióskírt -5
Stórhöfói snjókoma -3
Helsinki skýjað -3
Kaupmannah. rigning og súld 8
Ósló súld á síð. kls. 5
Stokkhólmur rigning 8
Þórshöfn rigning 2
Amsterdam súld á síð. kls. 12
Barcelona léttskýjaö 9
Chicago skýjaö -2
Frankfurt rigning 10
Glasgow skýjað 9
Hamborg súld 9
London léttskýjað 8
Los Angeles heiðskírt 13
Madrid heiðskírt 0
Malaga þokumóöa 14
Mallorca þoka í grennd 6
París rign. á síö. kls. 13
Róm þokumóða 9
Valencia heiöskírt 9
New York heiðskírt 11
Nuuk léttskýjaö -5
Vín skýjaó 3
Washington Winnipeg alskýjað 13
t Ummæli
Langtímamarkið
Núna er ég farinn að snúa mér
að daglegu lífi og stefni að nýju
langtímamarkmiði - að greiða
skuldir mínar."
Vernharð Þorleifsson, fyrrum
júdókappi, í Degi-Tímanum.
Myndlist og
ekki myndlist
„Þetta er myndlist sem er að
keppast við að líta ekki út eins
og myndlist."
Þorvaldur Þorsteinsson list-
málari, í Alþýðublaðinu.
Óbarinn biskup
„Það verður enginn óbarinn
biskup i Alþýðuflokknum."
Séra Gunnlaugur Stefánsson,
fyrrv. þingmaður, í Alþýðublað-
inu.
Dýr klæði
Dýrasti kjóll sem franskt
tískuhús hefur nokkru sinni
sýnt var á vor- og sumarsýningu
Schiaparelli tískuhússins 23. jan-
úar 1977. Kjólinn teiknaði Serge
Lepage og nefndi hann Fæðingu
Venusar. Kjóll þessi var skreytt-
ur 512 demöntum og ef einhver
hefði keypt hann þá hefði hann
þurft að punga út átta milljónum
franka.
Krýningarskikkja
Bokassa
Þegar Jean-Bédel Bokassa lét
krýna sig keisara og hermar-
skálk, var hann með 12 metra
langa krýningarskikkju, setta
785 þúsund perlum og með 1,2
milljónir kristalperla. Flíkin var
saumuð hjá Guiselin í París og
kostaði um 80 þúsund pund.
Skikkjuna bar hann 4. desember
árið 177 í Mið-Afríkukeisara-
dæminu. Það þarf varla að taka
það fram að Bokassa var ekki
lengi keisari í þessu ríki sem er
eitt af því fátækasta á jörðinni.
Blessuð veröldin
Lengsti brúðarslóðinn
Lengsti brúðarslóði sem sögur
fara af var 26 metrar að lengd.
Brúðarkjóllinn var gerður af
Indverjum sem bjuggu í Leicest-
er í Englandi. Hann var úr
rauðu silki, skreyttur gyllttnn
knipplingum, skrautperlum og
gljádoppum.
Karl Taylor, varðstjóri í slökkviliði Keflavíkurflugvallar:
Hef alltaf haft áhuga á bnmavörnum
DV, Suðurnesjum:
„Ég er ekki búinn að átta mig á
þessu enn þá að seta mín i stjóm BS
er skyndilega búin. Það er eins og
fótunum hafi verið kippt undan
mér. Það tekur sinn tíma að átta sig
á því að maður er ekki lengur í
þeirri aðstöðu að geta stuðlað að
þeirri þróun sem hefur átt sér stað
hjá BS,“ sagði Karl Taylor sem hef-
ur sagt sig úr stjóm Brunavama
Suðumesja vegna úrskurðar félags-
málaráðuneytisins að honum bæri
að víkja úr stjóminni. Ráðuneytið
taldi setu Karls í stjóminni og varð-
stjórastöðu hjá slökkviliðinu á
Keflavíkurflugvelli, auk þess að
Maður dagsins
reka slökkvitækjaþjónustu sem er í
viðskiptum við BS, ekki fara saman.
Karl var formaður stjómarinnar
og hann hefur setið 6 ár í stjóm.
„Þessi tími hefur verið mjög fróðleg-
ur og það er skemmtilegt verkefni
að geta stuðlað að bættum bruna-
vömum í sinni heimabyggð. Fyrir
tæpum 2 árum byrjuðum við að
huga að skipulagsbreytingum innan
slökkvistöðvarinnar og gera nýtt
skipurit sem á að gera allt miklu
Karl Taylor.
skilvirkara og meira í takt við tím-
ann í dag. Það hefur kannski farið
fyrir brjóstið á sumum mönnum
vegna þess að farið var í aö breyta
fyrirtæki sem er búið að vera
óbreytt frá 1988 þegar það var gert
að atvinnumannaslökkviliði. í dag
held ég að menn séu nokkuð sáttir
við þessar breytingar. Ég sat áfram
í stjórmnni 2 mánuði eftir að ég var
úrskurðaður vanhæfur, eingöngu
vegna þess að ég vOdi þá ekki hætta
á þeim tímapunkti þegar öll mál
vom mjög viðkvæm, ég vildi ekki
ganga út og skiija allt eftir í algjör-
um sárum. BS er mjög gott lið og
hefur virkilega sannað sig. Þetta
eru góðir starfsmenn."
Karl segist hafa gífurlega mikinn
áhuga á slökkviliðsstörfúm. Hann
hefur kennt í Brunamálaskóla,
Slysavarnaskóla sjómanna. Einnig
hefur hann kennt almenningi og
sjómönnum eldvamir ásamt mörgu
öðm. Hann er búinn að vera í
slökkviliðinu á Keflavikurflugvelli í
26 ár og er í dag varðstjóri. „Árið
1976 stofnaði ég Slökkvitækjaþjón-
ustu sem byrjaði þannig að sjómenn
komu til min og spurðu mig hvort
ég gæti bjargað þeim viö skoðanir á
slökkvitækjum. Fyrst var ég með
fyrirtækið í kjallaranum heima hjá
mér en flutti það síðar um set. í dag
vinna tveir menn hjá fýrirtækinu
sem þjónar öilu sem viðkemur þess-
um bransa."
En Karl á nokkur áhugamál fyrir
utan slökkvistörfin. „Ég hef mjög
gaman af göngutúrum og ég og eig-
inkonan forum oft í langar göngu-
ferðir. Þá finnst mér gaman að spila
knattspyrnu með vinnufélögum
mínum sem er meira gert að
gamni."
Eiginkona Karls er Ása Skúla-
dóttir og eiga þau tvö börn, Önnu,
27 ára, sem er grunnskólakennari í
Njarðvíkurskóla, og Jón Fannar, 20
ára, sem er í námi Tölvuháskóla VÍ
í Reykjavík. -ÆMK
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1653:
r'' •• CðCr ÞO S >
\r*rtp mínnJS)
X/'~„þÚ FA.BV ''
\ MÍNN..Í* J ,
Skiptast á skotum
Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnorði
DV
Margrét Guömundsdóttir í vinnu-
stofu sinni.
Haustsýning
Margrétar
Á laugardaginn opnaði Mar-
grét Guðmundsdóttir „Haustsýn-
ingu“ í Gallerí Listakoti, Lauga-
vegi 70. Margrét hefur unnið við
grafík og vídeólist siðan hún
lauk myndlistamámi 1953 en
áður starfaöi hún sem innan-
hússarkitekt og kenndi meðal
annars fagteikningu við Iðn-
skóla Hafharfjarðar. Margrét er
einn af þrettán starfandi lista-
mönnum sem reka Listhús 39 í
Hafnarfirði. Hún hefúr haldið
fjölda einkasýninga og tekið þátt
í samsýningum hér heima og er-
lendis. Sýningin stendur til 18.
nóvember.
Sýningar
Myrkraveröld Sunnu
Þessa dagana sýnir Sunna
Emanúels á Nikkabar, Hraun-
bergi 4. í verkum sínum hefur
Sunna hcifíð elstu kvenréttinda-
konuna á íslandi til vegs og virð-
ingar á undanfómum árum, hýst
Grýlu og hennar hyski ásamt
tröllum, álfum og dvergum með-
al annars í Gerðarsafni, Perl-
unni og Laugardalshöllinni.
Bridge
Danmörk spilaði gegn Indónesíu í
undanúrslitum Ólympíumótsins 1
bridge í opnum flokki og áhorfend-
ur hafa sjaldan orðið vitni að
annarri eins dramatík. Fylgst var
með leiknum á sýningartöflu og
Danir vora 11 impum undir í leikn-
um þegar kom að síðasta spilinu.
Indónesamir höfðu ekki náð góðum
árangri á NS-spilin, norður hafði
opnað á einu grEuidi, austur hindrað
á þremur hjörtum og sögnum lauk á
þremur gröndum suðurs. Sagnir
gengu þannig á sýningartöflunni,
norður gjafari og allir á hættu:
4 ÁK1082
* 64
4 ÁD5
4 Á97
* 973
•* D9
4- G63
* KD854
* D654
•* Á2
4 K109742
* 3
N
V A
S
* u
4» KG108753
4 8
* G1062
Norður Austur Suður Vestur
Koch Lasut Auken Manoppo
1 4 pass 2 grönd pass
3 * 3 v 34 pass
4*j pass 4 grönd pass
5 4 pass 5 grönd pass
64» pass 7 4 p/h
Tvö grönd vom áhugi á meira en
úttekt og þrjú lauf lýstu jafnskiptri
hendi og meira en lágmarki. 3 spað-
ar lofuðu spaða og einspili í laufi,
fjögur hjörtu vom spumarsögn og 4
grönd lofuðu hjartaásnum. Fimm
tíglar spurðu áfram og 5 grönd lof-
uðu tígulkóngi og trompdrottningu.
Mikil fagnaðarlæti brutust út í saln-
um þegar Auken stökk í 7 spaða því
Danir græddu 16 impa á ákvörðun-
inni. En þegcir skorblööin vom bor-
in samcm kom í ljós að mistök höfðu
orðið við skráningu skýrenda og
leikurinn endaði hnífjafn. Spila
þurfti 8 spila bráðabana sem
Indónesar unnu, 13-9. Impana þrett-
án fengu þeir alla í siðasta spilinu.
ísak Öm Sigurðsson, Rhódos