Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1996, Síða 58
66
kvikmyndir
LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996
33V
Bruce Willis í aðalhlutverki í Síðasta manninum:
\'4
Klæðum okkur ekki upp
heima hjá okkur
„Hjónaband okkar Demi á
sínar góðu og slæmu hliðar eins
og hjá öllum öðrum. Það er eins og
garður sem þarf að gæta að á hverjum
degi. Við klæðum okkur ekki upp
heima hjá okkur þó
við séum fræg.
Ég skipti um
bleiur
og
þríf
af
böm-
unum
okkar
kúkinn,"
segir leik-
arinn Bruce
Wiilis sem leik-
ur aðalhlutverkið
í kvikmyndinni Síðasti maðurinn sem
Laugcirásbió frumsýndi í gær. Kvikmynd-
in hefur slegið í gegn vestanhafs og WUlis
mætir þar ferskur til leiks. Myndin er
kröftug og seiðandi einfaramynd.
Bruce Willis er fæddur 19. mars árið
1955 í Idar-Oberstein í Westur- Þýska-
landi og er þvi 41 árs. Hann gekk í skóla í
Montclair State College, í leiklistardeild.
Að námi loknu lék hann í nokkrum leik-
ritum off- Broadway og í sjónvarpsauglýs-
ingum. Eiginkona Willis er leikkonan
Demi Moore og eiga þau saman dæturnar
Rumer, Scout og Tallulah.
Mörg andlit Willis
Willis hefur leikið mjög ólík hlutverk á
leikferlinum, meðal annars leigumorð-
ingjann í Pulp Fiction, lögreglumanninn
John McClane í Die Hard og fleiri. Frá
árinu 1988 hafa kvikmyndir sem Willis
hefur leikið aðalhlutverkið í halað inn
520 milljónir dala í Bandaríkjunum ein-
göngu.
Willis hefur fengið nokkur verðlaun
fyrir leik sinn, þar á meðal Emmy-verð-
launin og Golden Globe verðlaunin fyrir
hlutverk sitt í sjónvarpsþáttaröðinni
Moonlightning. Á sama tíma lék hann í
fyrstu bíómyndinni sinni, Blind Date, og
stuttu síðar í Sunset.
Frægastur fyrir Die Hard
Árið 1988 skapaði Willis persónuna
John McClane í kvikmyndinni Die Hard
og á eftir henni komu tvær aðrar Die
Hard myndir. Hann hefur leikið í kvik-
myndum eins og The Color of Night, The
Bonfire of the Vanities, Billy Bathgate,
The Last Boy Scout, Mortal Thoughts,
Death Becomes Her, Striking Distance,
The Player, röddina í Look Who’s
Talking, Four Rooms og 12 Monkeys.
Willis þótti einnig liðtækur tónlist-
armaður en hann gaf út plötu árið 1986
sem nefndist The Return of Bruno sem
fór í platínuplötu. Þremur árum síðar gaf
hann út aðra plötu If It Don’t Kill You, It
just Makes You Stronger. Hann er einn
þeirra sem eiga vinsælu veitingahúsa-
keðjuna Planet Hollywood. -em
LA CASA
di VANNA PAOLI
„Kvenleikstjórinn Vanna Paoli sjaimerar okkur með „Bleika húsið"
sitt þar sem hin undurfríða Giulia Boschi leikur aðalhlutverkið. Besta
„Panorama italiano" kvikmyndin á Feneyjahátíðinni. Innileg og hjart-
næm kvikmynd sem gefur okkur innsýn í horfna fortíð sem að lok-
um verður að verða hluti af framtíðinni.“
(II Tempo)
„Bleika húsið er uppfull af einhverjum göfugleika
sem þar að auki lætur okkur skynja tilfmningar í
hverju einasta myndskeiði myndarinnar.”
(L’Opinone)
„Bleika húsið hefur stíl og býður upp á mikla tilfinningaæmi.1
(L’Unita)
Gegn framvísun stúdentaskírteinis fá
nemendur miOann á kr. 300 á „Bleika húsið“
Tll síðasta manns í Regnboganum og Háskólabíói:
Chicago-glæponar
í Texas
Til síðasta manns (Last Man
Standing), sem frumsýnd var í gær,
er endurgerð hinnar frægu
japönsku kvikmyndar, Yojimbi, sem
Akira Kurosawa gerði á sínum
tima. Yojimbo, sem mundi þýða Lif-
vörðurinn á íslensku, fjallar um
nítjándu aldar samúræja sem sér at-
vinnugrein sina deyja hægt út en
stríðsmaður þessi tekur til sinna
ráða í borg þar sem spilling ræður
ríkjum.
! Last Man Standing er sögusvið-
ið fært yfír á fjórða áratuginn á
þessari öld. Myndin gerist í smá-
bænum Jericho í Texas sem er frek-
ar ólíklegur viðkomustaður mafíu-
glæpamanna frá Chicago. En þetta
er á bannárunum og þessi borg er
tilvalinn staður fyrir ólöglega starf-
semi og mafian er fljót að taka lögin
í sínar hendur. Inn í bæinn kemur
dularfullur einfari, sem kallar sig
Smith, til að dvelja þar eina nótt.
Hann er alls ekki velkominn í bæ-
inn og spilltur lögreglustjóri segir
honum að hypja sig en þetta líkar
einfaranum ekki. Hann kemur
glæpalýðnum á óvart með beinni
árás og drepur bestu skyttu þeirra. í
stað þess að hefna ófaranna bjóða
þeir þessum dularfulla manni
vinnu. Smith, sem eingöngu hugsar
um sjálfan sig, tekur boðinu en leik-
ur tveimur skjöldum eins og brátt
kemur í ljós.
Það er Bruce Willis sem leikur
einfarann. í öðrum hlutverkum eru
Christopher Walken, Bruce Dern,
William Sanderson og Karina Lomb-
ard. Leikstjóri og handritshöfundur
er hinn reyndi spennumyndaleik-
sfjóri, Walter Hill, sem hefur átt
misgóða daga í sinni kvikmynda-
gerð. En þegar honum tekst vel upp
þá hefur hann skilað frá sér mynd-
um á borð við The Long Riders, The
Warriors og 48th Hours.
-HK
50.000 búnir að
sjá Djöflaeyjuna
Aðsókn á Djöflaeyjuna hefur
farið fram úr vonum bjartsýn-
ustu manna og virðist ekkert
lát á aðsókninni. Um miðja
viku voru gesti númer 50.000
veitt vegleg verðlaun. Á mið-
vikudagskvöldið var Djöflaeyj-
an síðan frumsýnd með við-
höfh á Akureyri og voru við-
staddir leikarar og aðstandend-
ur myndarinnar. Síðasta ís-
lenska kvikmyndin, sem fór
yfir 50.000 áhorfendur, var
Karlakórinn Hekla en áhorfend-
ur að henni urðu 60.000 þúsund.
Kvikmyndahátíð áfram
Kvikmyndahátíð í Reykjavík
lauk síðastliðinn sunnudag og
var þá ákveðið að framlengja
sýningum á nokkrum myndum.
Áhugamenn um kvikmyndir
geta því áfram verið á kvik-
myndahátíð. Háskólabíó sýnir
Dauður, Shanghai- gengið og
Brimbrot. Regnboginn heldur
áfram að sýna Emmu, Chabert
ofursta, Elísu, Einstimi,
Stjömufangarann, Reyk og Hel-
bláan. Stjörnubíó sýnir Amer-
íku og Bleika húsið. Sam-bíóin
sýna Fortölur og fullvissu og
Ríharð m og Laugarásbíó sýnir
Kristin Lavransdóttur.
Önnur Vatnaveröld?
Þrátt fyrir öll ósköpin sem
gengu á við gerð Waterworld
ætlar MGM að fara út í að gera
rándýra kvikmynd sem gerist að
mestu neðansjávar. Myndin á að
heita Submerged og á hún að
gerast eftir tuttugu ár þegar
stóri skjálftinn i Los Angeles er
búinn að færa borgina á kaf.
Gerist myndin að mestu í neð-
ansjávarskemmtigarði sem
búið er að koma upp í rústum
borgarinnar. Framleiðandi
myndarinnar er Gale Anne
Hurd sem meðal annars var
einn framleiðenda The Abyss,
sem einnig var neðansávar-
mynd, en hún hefúr komið ná-
lægt framleiðslu á mörgum
stórmyndum í- samvinnu
við James Cameron.
í Last Man Standing hreiöra mafíuglæpamenn um sig í smábæ í Texas.