Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1996, Blaðsíða 2
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 LlV
2 fréttir
Samherji og tengd fyrirtæki á hlutabréfamarkaðinn:
Hagnaðurinn yfir hálfan
milljarð á síðasta ári
- áætluð heildarvelta Samherjafyrirtækjanna 7,8 milljarðar á yfirstandandi ári
DV, Akureyri:
Eigendur útgeröarfyrirtækisins
Samherja hf. á Akureyri sviptu hul-
unni í ftrsta skipti af afkomutölum
fyrirtækisins í gær og upplýstu að
hagnaður af rekstri fyrirtækisins og
tengdra fyrirtækja á síðasta ári
hefði numið 553 milljónum króna.
„Þetta er há tala en árið 1995 var
okkur gjöfult, reksturinn gekk mjög
vel og þetta var besta ár okkar til
þessa,“ sagði Þorsteinn Már Bald-
vinsson framkvæmdastjóri. Hann
upplýsti um leið að Samherji hefði
ávallt verið rekinn með hagnaði
þau 13 ár sem fyrirtækið hefur
starfað.
Um leið var tilkynnt að Samherji
hefði stigið sín fyrstu skref á verð-
bréfamarkaði með 300 milljóna
króna skuldabréfaútboði og sjá
Landsbréf-Akureyri og Landsbanki
íslands um útboðið. í framhaldinu
er stefnt að samruna Samherja og
tengdra félaga í eitt félag sem mun
bjóða út hlutafé á opnum hluta-
bréfamarkaöi. Samherjamenn segja
að reynist tækifæri vænleg til vaxt-
ar í starfsemi fyrirtækisins gæti sú
hlutafjáraukning orðið umtalsverð
strax á fyrsta ári, jafnvel allt að ein-
um milijarði króna.
Stóraukin velta
Velta Samherja og tengdra fyrir-
tækja árið 1995 nam alls 6,5 mill-
jörðum, 4,4 miUjörðum á íslandi,
400 milljónum í Færeyjum og 1,7
milljarði í Þýskalandi. Sambæri-
legar áætlaöar tölur fyrir yfir-
standandi ár gera ráð fyrir 5,3
milijarða veltu hér á landi, 400
miUjónum í Færeyjum og 2,1 miilj-
arði í Þýskalandi eða samtals 7,8
milljörðum. Nettóskuldir Sam-
herja og samstarfsfyrirtækjanna
erlendis eru áætlaðar 3,4 miiljarð-
ar við árslok og er þá ekki tekið til-
lit til nýlegra fjárfestinga í Bret-
landi.
Samherji og tengd fyrirtæki
reka 10 frystitogara, fimm fersk-
fisktogara, tvö fjölveiðiskip, tvær
rækjuverksmiðjur, eina síldar- og
loðnuvinnslu og söluskrifstofú í
Englandi. Veiðisvæði eru víða, s.s.
í íslenskri, grænlenskri, norskri og
rússneskri lögsögu, á Reykjanes-
hrygg, í Smugunni, á Flæmska
hatti, í Norðursjó, á Hattonbanka
og í kanadískri lögsögu.
22,6 þúsund tonna afli
Afli Samherjaskipanna upp úr
sjó á síðasta ári nam 22,6 þúsund
tonnum og þar af voru 5,8 þúsund
tonn utan lögsögu. Aflaheimildir á
íslandi fiskveiðiárið 1996/1997 eru
irni 21 þúsund tonn og erlendis eru
aflaheimildir ekki minni þótt
nettóskuldir séu rúmlega sjö sinn-
um minni þar eða um 400 milljón-
ir.
Samherjahópurinn, sem svo er
kallaður, mun í framtíðinni sam-
anstanda af móðurfyrirtækinu
Samherja hf., með útgerð og
vinnslu á Akureyri og Dalvík, í
öðru lagi Oddeyri hf. sem reki
samnefnt fjölveiðiskip og þar sé
einnig vinnslufyrirtækið Friðþjóf-
ur á Eskifirði. í þriðja lagi eru er-
lendu félögin DFFU/Seagold í
Þýskalandi, Onward Fishing í
Bretlandi og Framherji í Færeyj-
um og í fjórða lagi eiga Samherja-
menn hlutafé í öðrum fyrirtækj-
um, Samskipum, Fiskeldi Eyja-
fjarðar og Skipakletti. -gk
stuttar fréttir
Vilja rammaáætlun
Hjúkrunarforstjórar sjúkra-
húsa skora á þingmenn og ráð-
herra aö láta gera fjögurra ára
rammaáætlun um fjármál og
rekstur sjúkrahúsa til að eyða
rekstrarlegu öryggisleysi.
Sendiherra í ísrael
| Tómas Á. Tómasson hefur af-
| hent forseta ísraels trúnaðar-
| bréf sitt sem sendiherra í ísrael
með aösetri á íslandi.
Ný söluskrifstofa
Flugleiðir opnuðu í gær nýja
söluskrifstofu í suðurhúsi
Kringlunnar og buðu upp á
í 17.900 króna fargjald til sjö Evr-
! ópuborga í tilefiú opnunarinn-
ar fyrir 500 manns. Um 300 mið-
! anna seldust i gær.
| Hlutafjárútbod Jökuls
Útgerðarfyrirtækið Jökull á
| Raufarhöfh opnaði í gær 20
j milijóna kr. hlutafjárútboð að
j nafnverði en bréfin eru seld á
genginu 5,0. Tilgangurinn er að
Istyrkja eiginfjárstöðu félagsins
og fjölga hluthöfum.
Lækkar vexti
Húsnæðisstofnun ætlar að
lækka vexti á hlutaverðtryggð-
um lánum úr Byggingarsjóði
ríkisins sem voru veitt á árun-
um 1974-1978 úr 9,75% í 6%.
Lækkunin tekur gildi frá gjald-
daganum 1. maí 1996 og nær til
um 7.440 skuldunauta.
Óbreyttan hraða
IStjóm Slysavamafélagsins
varar eindregið við því að Al-
þingi lögleiði hækkun há-
markshraða úr 90 km í 110 km
á klst.
Dulbúnar heræfingar
Samtök herstöðvaandstæð-
inga mótmæla fyrirhuguðum
æfmgum í viðbrögðum við nátt-
úruhamforum sem þau segja
vera dulbúnar heræfingar.
Stúdentar hjáipa
Söfnun stúdenta í Háskóla ís-
lands fyrir stúdenta í Sarajevo
er að ljúka og er verið að ganga
frá sendingu 80 tölva, 2000 bóka
og ýmiss annars búnaðar og
námsgagna til áfangastaðar.
Nemendur Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi og Menntaskólans á Laugarvatni héldu útifund á Selfossi í gær. Þeir voru að leggja áherslu á áskoranir
þær sem nemendur afhentu stjórnmálamönnum í gær. Hér ganga nemdur í kröfugöngu á leiö til fundarins á Selfossi. DV-mynd Kristján Einarsson
Námsmenn mótmæltu víða um land:
Hnippt í stjórnmálamenn
Framhaldsskólanemendur bæði
sunnan og norðan fjalla héldu úti-
fundi í gær og hnipptu síðan í
ráðherra og aðra stjórnmála-
menn.
í Reykjavík héldu nemendur úti-
fund á Austurvelli. Á Akureyri
komu nemendur saman til fundar
og á Selfossi héldu menntskæling-
ar á Laugarvatni og nemendur
Fjölbrautaskóla Suðurlands úti-
fund.
Eftir fundinn á Austurvelli var
formönnum stjórnmálaflokkanna
og ríkisstjóminni afhent áskorun.
Annars vegar að ríkisstjómin for-
gangsraði í þágu menntunar,
rannsókna og vísinda við skipt-
ingu ríkisútgjalda. Ennfremur að
hætt verði við boðaðan niður-
skurð til framhaldsskólanna, stór-
auka vægi iðn- og starfsnáms og
auka fjárveitingu til Háskóla ís-
lands.
Síðan er skorað á ríkisstjómina
að gera breytingar á lögunum um
Lánasjóð íslenskra námsmanna og
koma á samtímagreiðslum og létta
endurgreiðslubyrði námslána.
Undir þessar áskoranir rita nöfn
sín um 15.000 námsmenn.
-S.dór
Þú getur svaraB þessari
spurningu meö þvl aö
hringja í síma 0041600.
39,90 kr. mínútan
jí b «•/ m
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Á að taka upp
samtímagreiðslu námslána?
Póstur og sími:
Nokkrum pósthúsum lokað
„Viö munum á næstunni loka
pósthúsinu í Lóuhólum í Breiðholti
og á Umferðarmiðstöðinni fljótlega.
Þá munum við gera breytingar á
póstafgreiðslunni á Keflavíkurflug-
velli og loka pósthúsunum í Fljótum
og Þykkvabæ," segir Guðmundur
Björnsson sem tekur við starfi póst-
og símamálastjóra um áramót þegar
fyrirtækið breytist í hlutafélag.
Hann segir að til þessara aðgerða
sé gripið til að hagræða í rekstrin-
um en þama sé um að ræða smáar
einingar og óhagkvæmar. Hann seg-
ir að frekari aðgerðir hafi ekki ver-
ið ákveðnar.
„Það hafa ekki verið teknar
ákvarðanir um frekari breytingar en
það er allur rekstur í stöðugri endur-
skoðun," segir Guðmundur. -rt