Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1996, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996
Húsavík:
Meirihluta-
viðræður
um helgina
DV, Akureyri:
I Sjálfstæöismenn í bæjarstjórn
Húsavíkur hafa ákveðiö að
ganga til meirihlutaviðræðna
| við framsóknarmenn og munu
þær fara fram um helgina.
Sigurjón Benediktsson, odd-
viti sjálfstæöismanna, segir að
eftir viðræður við framsóknar-
I menn og Alþýðubandalag og
I óháða hafi þetta orðið niðurstaö-
an. „Nú látum við á það reyna
• hvort þetta gengur upp, það eru
!! allir hlutir til umræðu og þetta
þarf að komast á hreint um helg-
ina,“ segir Siguijón. -gk
Þórshöfn:
Nýja flug-
brautin ekki
enn í gagnið
DV.Akuœyri:
„Þessi seinkun á opnun flug-
brautarinnar stafar fyrst og
fremst af því aö það hefúr vant-
að fjarskipta- og veöurathugun-
artæki. Það var langur af-
greiðslufrestur á þessum tækj-
um en þau eru nú komin til
landsins og eru á Akureyri,"
segir Jóhann H. Jónsson hjá
Flugmálastjóm um ástæöur
; þess að nýja flugbrautin á Þórs-
S höfn hefur ekki verið tekin í
\ notkun.
Flugbrautin og nýtt flugvall-
arhús voru vígð formlega í júlí
! sl. er Þórshafnarbúar fögnuðu
| verslunarafmæli slnu og Vigdís
Finnbogadóttir, fyrrverandi
forseti, heimsótti Þórshöfn. Jó-
| hann H. Jónsson segir að
ákveðið hafi verið aö flýta
i formlegri vígslu flugvallarins
8 þótt ekki væru öll tæki komin á
I staðinn og það hafi verið gert.
Tækin sem hefur vantað séu
hins vegar komin til landsins
og þess sé að vænta að þau
verði sett upp á næstu dögum
og völlurinn verði þá tekinn í
notkun. -gk
Ríkið tapar málaferlum um biðlaunarétt:
Siglubörður:
Dómur um biðlaun
kennara kemur
á óvart
- vísað til Hæstaréttar, segir Friðrik Sophusson
Það hefur vakið nokkra athygli
að ríkið er að tapa málaferlum
vegna biðlaunaréttar opinberra
starfsmanna hjá ríkisfyrirtækjum
sem hafa verið einkavædd eða þeg-
ar grunnskólinn var færður til
sveitarfélaganna. Friðrik Sophus-
son fjármálaráðherra var spuröur
hvort þessir dómar hefðu komið
honum á óvart?
„Ég held að öllum sé ljóst að það
er út í bláinn og fuilkomlega úrelt
að einhverjir geti átt rétt á því að fá
tvöföld laun í 6 eða 12 mánuði. Mér
er það aftur á móti ljóst aö það mál
gat farið á hvom veginn sem var í
Hæstarétti eftir að maður sá héraðs-
dóminn. Varðandi kennarana, og þá
sem hætta störfum, verð ég að segja
að dómurinn kemur mér á óvart,
ekki síst vegna þeirra forsenda sem
koma fram í honum. Þess vegna
verður að fá alveg hreinar línur frá
Hæstarétti hvort hann samþykkir
niðurstöðu héraðsdóms í þessu
máli,“ sagði Friðrik.
Hann var spurður hvort þessi
einkavæðingarmál og flutningur
grunnskólans hvað varðar biðlaun
fólks hefði verið illa undirbúin?
„Það tel ég ekki vera. Lögunum
um þessi réttindi opinberra starfs-
manna var breytt með almennri
lagabreytingu á starfsmannalögun-
inn á síðasta þingi við mikil mót-
mæli opinberra starfsmanna. Það
hefur hins vegar alla tið blasað við
sú ósanngirni sem birtist í því að
menn teiji það vera réttindi sín að
geta verið í sömu stöðu á tvöföldum
launum í tiltekinn tíma vegna þess
að eignarhaldi fyrirtækisins er
breytt. Það kom í ljós, samkvæmt
hæstaréttardómnum um biölauna-
rétt starfsmanns SR mjöls, að dóm-
stólar fallast ekki á að nýja starfið
sé sambærilegt því eldra. Það getur
dregið dilk á eftir sér í nokkrum
einkavæðingarmálum. Héraðsdóm-
urinn um biðlaun kennara snýst aft-
ur á móti um það fólk sem hætti
störfum þegar grunnskólinn færðist
frá ríki til sveitarfélaga. Þar er því
spumingin allt önnur eða sú hvort
staðan hafi verið lögð niður í skiln-
ingi laganna? Sé svo ber að greiða
biðlaun eða bjóða annað sambæri-
legt starf hjá ríkinu. Það er ekki er
hægt þar sem skólinn fór yfir til
sveitarfélaganna eða viðkomandi
sagði upp með því að neita að taka
stöðu sem er sambærileg hjá sveit-
arfélögunum en þar fylgir biðlauna-
réttur. Þess vegna byggist dómur-
inn um biðlaun kemnara á öðmm
forsendum, sem er að þetta séu
lögvarin eignarréttindi. Það gera
hinir dómarnir ekki. -S.dór
Bærinn nær
vatnslaus
í fjóra
sólarhringa
DV, Akureyri:
Siglufjarðarbær var nær vatns-
laus í um fjóra sólarhringa núna
í vikunni og var ekkert kalt vatn
að hafa nema í fáum húsum í
bænum. Þetta átti bæði við um
íbúöar- og atvinnuhúsnæði og
hefúr orðiö talsvert tjón.
„Við lukum viðgerð í nótt og
menn hafa svo sannarlega staðið
í ströngu síðan þetta kom upp,“
sagöi Theódór Eggertsson hjá
áhaldahúsi Siglufjarðarbæjar er
DV ræddi við hann í gær. Theó-
dór sagði ástæðu vatnsleysisins
þá að vatnsleiðsla í Hólsdal hefði
farið í sundur á tveimur stöðum.
„Þetta gerist nákvæmlega á þeim
tíma þegar við vorum að fá nýjar
dælur fyrir vatnsveituna og
menn vora ánægðir með ástand-
ið. Það var líka búið að skipta
um nær allar leiðslur í Hólsdal
en þetta kom upp á þeim hluta
leiðslunnar sem ekki hefur verið
skipt um,“ sagði Theódór.
Ólafur Marteinsson hjá Þormóði
ramma sagði að vatnsleysiö hefði
þýtt að nær ekkert var unnið hjá
fýrirtækinu á meðan á því stóð. -gk
Það er fjör f síldinni og í frystihúsinu er margt gert til skemmtunar. Pjetur
Pjetursson hafbi Iftiö fyrir þvf ab sporbrenna sfld. Fór létt meb þab.
DV-mynd Hjörvar
Neskaupstaður:
Nýtt frystihús
í hraðsmíöum
DV, Neskaupstað:
Nú er unnið hörðum höndum
við að reisa nýtt frystihús hjá Síld-
arvinnslunni hér á Neskaupstað.
Það á að verða 4500 fermetrar að
stærð og afkastageta þess 300 tonn
á sólarhring.
Samkvæmt samningi sem Síld-
arvinnslan gerði við ístak hf. á
verkinu að verða lokið um miðjan
janúar næstkomandi. Unnið er
með miklum hraða og verkið á
áætlun.
-HS
Lagaðu þitt eigið vín
Essensar í hundraðatali
Vínþrúgur í miklu úrvali
Steinkol - frábært verð
Bjórhumlar
Mælar
Hettur
Tappar
Gerjunarkútar
Ger
Miðar
Tappavélar
Enn ein nýjungin
frá PLÚTO
Tipless,
áfengt gos (5%)
Vínsíur Þú færð 30 flöskur (12%) - Tilbúið á 7 dögum - Verð aðeins 2.880
PLÚTÓ
flllt til víngerðar
Suðurlandsbraut 22, sími 553-1080. Opið laugardaga í Reykjavík frá kl. 10-14
Hafnargötu 25, Keflavík, sími 421 1432 Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 461 3707
Skagaleikflokkurinn:
Unglingar i
adalhlutverki
DV, Akranesi:
Skagaleikflokkurinn á Akra-
nesi er farinn aö huga aö verk-
efnum vetrarins og veröur
stærsta verkefnið þemavinna
unglinga á aldrinum 15-19 ára í
samvinnu viö jafnaldra þeirra í
Noregi og Færeyjum.
Sl. sumar heimsóttu unglingar
frá Lófóten Skagaleikflokkinn og
tóku þátt í leiklistarnámskeiöi
með ungum Skagamönnum auk
þess sem þeir vora með stóra
leiksýningu sem unnin var í
þemavinnu ásamt leikstjóra í
heimabyggð þeirra.
Viðfangseöii allra leikhópanna
er að setja á svið leikrit sem fjall-
ar um hafiö eða tengist hafinu.
Á næsta ári munu unglinga-
leikhópar frá Akranesi og Fær-
eyjum síðan fara til Lófóten í
Noregi og sýna þar árangur vetr-
arstarfsins. Valgeir Skagfjörð
hefur verið ráðinn til að leiða
vinnu íslenska hópsins. -DVÓ
Skipverjinn
sem lést
Skipverjinn sem drukknaði,
þegar hann féll útbyrðis af loðnu-
skipinu Faxa á miðvikudag, hét
Bjarni Ómar Steingrímsson.
Bjami Ómar var 37 ára,
ðkvæntur og bamlaus. Hann bjó
á Grettisgötu 84 í Reykjavík.